Morgunblaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 39
MÖRGÍíNBLÁÐIÐ ÚTVARP/SÍÖIWI^R^sun^gW 1. ÖKTÖBER 1989 BYLGJAN FM 98,9 7.00 Páll Þorsteinsson með morgunþátt. Fréttir og ýmsar upplýsingar fyrir hlust- endur, í bland við tónlist. Fréttir kl. 8.00, 9.00 og 10.00. 10.00 Valdís Gunnarsdóttir. Bibba íheims- reisu kl. 10.30. Fréttir kl. 10.00, 12.00 og 13.00 og 14.00. 14.00 Bjami Olafur Guðmundsson. Gömlu lögin, nýju lögin og allt þar á milli. Óska- lög og afmæliskveðjur. Fréttir 16.00 og 18.00. Bibba í heimsreisu kl. 17.30. 18.00 Reykjavík síðdegis. Hallgrímur Thor- steinsson. 20.00 Þorsteinn Ásgeirsson. íþróttadeildin kemur við sögu, talsmálsliðir og tónlis't. 24.00 Næturvakt Bylgjunnar. RÓT FM 106,8 9.00 Rótartónar. 12.00 Stjáni stuð. 13.30 Af vettvangi baráttunnar. Gömlum eða nýjum baráttumálum gerð skil. E. 15.30 Laust. 16.30 Umrót. Tónlist, fréttir og upplýsingar um félagslíf. 17.00 Laust. 18.00 Á mannlegu nótunum. Flokkur mannsins. 19.00 Bland í poka. Tónlistarþáttur í umsjá Ólafs Hrafnssonar. 20.00 FÉS — unglingaþáttur. Umsjón Bragi og Þorgeir. 21.00 Frat. Tónlistarþáttur með Gauta Sig- þórssyni. 22.00 Hausaskak., Þungarokksþáttur i um- sjá Hilmars Þórs Guðmundssonar. 23.30 Rótardraugar. Lesnar draugasögur fyrir háttinn. 24.00 Næturvakt. ivar og Sigþór. STJARNAN FM 102,2 7.00 Þorgeir Ástvaldsson mættur á morg- unvaktina. Fylggi með málefnum liðandi stundar og fólk tekiö tali. Fréttir kl. 8.00 og 10.00. 9.00 Gunnlaugur Helgason. Hádegisverð- arpotturinn, Bibba i heimsreisu o. fl. Fréttastofan kl. 12.00, 14.00. Stjörnuskot kl. 11.00 og 13.00. 14.00 Margrét Hrafnsdóttir. Kl. 16.30 er Stjörnuskáld dagsins valið og kl. 18.15 er talað út. Bibba í heimsreisu kl. 17.30 Fréttir kl. 14.00 og 18.00. Stjörnuskot kl. 15.00 og 17.00. 19.00 Vilborg H. Sigurðardóttir í klukku- stund. 20.00 Kristófer Helgason. Óskalög og gam- anmál allt kvöldið. 24.00 Nætun/akt Stjömunnar. EFFEMM FM 95,7 7.00 Hörður Amarson. 9.00 Sigurður Gröndal og Richard Scobie. 11.00 Steingrímur Ólafsson. 13.00 Hörður Arnarson. • 15.00 Sigurður Gröndal og Richard Scobie. 17.00 Steingrímur Ólafsson. 19.00 Anna Þorláks. 22.00 Þorsteinn Högni Gunnarsson. Útrás 16.00MS 20.00MH 18.00FB 22.00MR Útvarp Hafnarfjörður 18.00-19.00 Menning á mánudegi. Rætt við listafólk o.fl. SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2 8.10— 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands. 18.03—19.00 Svæðisútvarp Norðuriands. Rás 2: Stóra spum- ingin ■■■■ Rás 2 efnirl.il spurn- 1 r 03 ingakeppni vinnu- 10 — staðanna í vetur undir nafninu Stóra spurning- in og verður <á dagskrá kl. 15.03 alla virka daga. Þá mæta fulltrúar vinnustaða í hljóðstofu til að gUma við stóru spurninguna. Þeir verða í beinu símsambandi við vinnu- félaga sína sem geta lagt þeim lið ef þörf krefur. Dómari og spyrill er Flosi Eirfksson, sá er gat sér góðan orðstír í spurningakeppni framhalds- skólanna í vetur sem leið. Flosi er nú sestur hinum meginn við borðið og byggir á mikilli reynslu í spurningakeppnum. Stóra spurningin verður kynnt klukkan 9.30 í morgunsyrpu Evu Ásrúnar, en í þæltinum Milli mála verður svo keppt um réttin til að svara henni. Rás 2: Þjóðarsálin HB Þátturinn Þjóðarsál 03 hóf göngu sína á Rás 2 um áramót. Stjórn- endur dægurmálaútvarps hafa nú ákveðið að útfæra þáttinn frekar í vetrardagskrá og brydda upp á nýjungum. „Végna gagnrýni um að of mik- ið beri á neikvæðni og kvörtun- um í fári þjóðarsálarinnar ætlar dægurmálaútvarpið að kalla á hlustendur til baráttu fyrir góð- um málstað," sagði Stefán Jón Hafstein sem lengstum hefur rætt við hlustendur. „Málstað- urinn er íslensk tunga og mál- rækt. Þjóðarsálin verður hvött til virkrar málræktar." Vikuleg- ur símatími verður helgaður þessu efni. Ólína Þorvarðardóttir verður sérstakur umsjónarmaður Þjóðarsálarinnar á mánudögum næstu vikurnar. Rás 1: Hlutleysi, hemám og hervemd tB í dag klukkan 10.30 30 hefst á Rás 1 ný þáttaröð sem Pétur Pétursson hefur tekið saman um ísland, seinni heimstyrjöld- ina og stefnu íslendinga gagn- vart hemaðarumsvifum, allt frá því að þeir lýstu yfir ævarandi vopn- og hlutleysi við gerð sam- bandslagasáttmálans árið 1918, til vorra daga. í fyrstaþættinum segir Pétur frá aðdraganda styijaldarinnar og því hvaða afstöðu íslendingar tóku til deilumála samtímans s.s. innr- ásar ítala í Eþíópíu og upp- gangs nasismans í Þýskalandi. Pétur ræðir við menn sem muna eða tóku þátt í þessum deilumál- um. Meðal annars ræðir hann við Jón Á. Gissurarson um ferð hans til Þýskalands árið 1933 og dregur fram samtímaheimildir um ferð Helga Hjörvars til Ítalíu og Halldórs Kiljan Laxness til Moskvu á árunum milli stríða. Ólína Þorvarðardóttir Stöd 2: Fötin skapa manninn Fjalaköttur Stöðvar 2 sýnir í kvöld þýsku bíómyndina Föt- OO 50 in skapa manninn, Der letzte Mann, frá 1924 eftir F.W. ^ _ Mumau. í henni segir frá dyraverði á fínu hóteli sem Lmil Jannings leikur. Hann er ákaflega stoltur af starfinu og þá sérstaklega af einkennisbúningnum. Hann spígsporar í honum um hótelið og nágrannar hans eru að springa af monti fyrir hans hönd. Dag einn ákveður framkvæmdastjóri hótelsins að setja hann í nýtt starf í fatahengi hótelsins, sem fylgir öllu ómerkilegri einkennis- búningur. Með það er dyravörðurinn fyrrverandi rúinn allri vii’ðingu og vinir og vandamenn snúa við honum baki. Hann á sér þó upp- reisn æru áður en yfir lýkur og var endir myndarinnar séstaklega settur saman til að hæðast að hamingjuríkum endalokum allra banda- rískra bíómynda á þessum árum. Maltin: ★ ★ ★’Á 3Ö GÁRUR eftir Elínu Pálmadóttur Ogjörðin snýst og snýst Súrsuð júgur voru oft gefin hundum! Þessi setning barst mér á öldum ljósvakans einn morguninn. Hundum? Eitthvert mesta ljúfmeti, sem ég hefi feng- ið um æfina, vom einmitt súrsað- ar júgursneiðar endur fyrir löngu hjá henni Sigurbjörgu í Felli í Sléttuhlíð. Þetta gómsæti úr súrnum hjá þessum snillingi hef- ur oft komið í hugann þegar ég í útlendu veitingahúsi hefi fengið einhvem fínan, súran forrétt, sem þar er gjarnan kynntur sem sérréttur hússins. í þeim mikla áhuga á framandi réttum, sem nú er í tísku, svo vel þrífast veitingahús með ítalskar pítsur, austur- landamat,„fra- nskt eldhús" o.fl., hefur hugmyndflug- ið lítt beinst að því að nýta og þróa gamla íslenska rétti. Oft þarf ekki mikið til þess að þeir falli inn í nútímamatargerð, en haldi sínum sérkennum. T.d. lenti und- irrituð fyrir 2-3 árum fyrir tilvilj- un á þessum afbragðs kokteilp- innamat, sem gaman var að bjóða. í ísskápnum var hvalur, sem mátti skera í pinnamat, og þessi fína heimalagaða sinn- epssósa, en engar pylsur. Kom þá ekki í ljós hvílíkt sælgæti súr- ir hvalbitar eru, sé þeim difið í sinnepssósu! En hvalur er nú víst úr sögunni í bráð. Margt fleira höfum við, en nýtum ekki. Gefa til dæmis hvannastilkar ekki jafn gott og sérkennilegt bragð sem sellerí? Nú ætti að vera óþarfi að fóðra rollur lengur á hvönn- inni. Mætti forða henni í girtrum görðum. Matargeymsluaðferðir hafa vitanlega breyst og eru að breyt- ast. Fer eftir aðstæðum á hveij- um tíma. íslensk matargeymsla og þar af leiðandi matargerð ein- kenndist löngum af landlægu salt- og kryddleysi, þótt víking- arnir væru búnir að læra að veija mat í salti fyrir íslandsbyggð og farnir að kenna það á öðrum ströndum. Almenningur hér á landi fer ekki að nota salt að neinu ráði fyrr en á síðustu öld, svo allan mat varð að geyma í súr eða vindþurrka hann. Þar í liggur okkar hefð, sem við gæt- um þróað og sérhæft okkur í. En þá rennur upp tími matar- varðveislu í salti, sem verður eðlilega að saltfískverkun og út- flutningi á saltfíski. Tæknin við varðveislu- á mat og flutning á markað réði aðferð og smekk. Síðan tekur við frystitæknin með sína miklu möguleika til varð- veislu á físki og kjöti og upp renn- ur nýtt tímabil. Salfískurinn víkur hjá þeim þjóðum, sem eiga þess kost og hafa efni. Og við frystum enn nær allan mat, fisk og kjöt, sem við þurfum að geyma og flytja milli staða. Höf- um sjálf lært að borða langgeymt kjöt í frysti. En veröldin stöðvast bara ekki þar sem maður helst kýs. Mark- miðið er vitanlega að fá matvæli sem nýjust til neyslu. Og með ört bættum samgöngum í lofti og á landi með hraðbrautum og hraðlestum, aukast stöðugt möguleikarnir á að fá nýmeti, sem hvorki hefur verið saltað né fryst. Þá kröfu gera atiðvitað í sívaxandi mæli þær þjóðir, sem hafa efni á því. Hinar koma sjálf- sagt á eftir, eins og alltaf hefur gerst í henni veröld. Semsagt er ljóst orðið, að langfrosin matvæli eru á útleið í heiminum. Ennþá að vísu hægt, en bítandi. Þeir kröfuhörðu og efnuðu eru farnir að ætlást til þess að fá kjöt af nýslátruðu og fisk upp úr sjó. Frystingin sem geymsluaðferð á matvælum er óhjákvæmilega á útleið eins og fyrri ágætar geymsluaðferðir. Er að víkja fyr- ir öðru æskilegra — nýmetinu. Langgeymdur matur í frysti, kannski í hálft annað ár, þykir ekki lengur eftirsóknarverður, enda næstum jafndýr vegna orkukostnaðar. Höfum við hér uppi á íslandi kannski ekkert tekið eftir þessu? Erum enn að ijárfesta í stórum stíl í frystingu og frystigeymsl- um, sem á eftir að borga upp á næstu áratugum? Þegar enginn vill lpngur borga aukalega fyrir fíystinguna? Ætlum við að verða jafn seinheppin með það og kindakjötið, sem var verið að ráða bændum til að rækta sem feitast löngu eftir að hinn ríki heimur — sá eini sem hefur efni á að skipta við okkur — var á leið og kominn í magurt fæði? Með minnkandi erfiðisvinnu vegna nýrrar tækniþróunar, varð þörfin fyrir þá orku horfin og fitan þarmeð óæskileg. Kannski við ættum nú að líta svolítið til átta, kíkja á það sem er að ger- ast úti í hinum stóra heimi? Þær tilhneigingar berast venjulega hingað áratug eða áratugum síðar. Nú erum við hér á íslandi á kafí í heilsuræktarbyltingunni. „Inni“ er hreyfing og útivera, heilsuræktarstöðvar, fitulaust heilsufæði og umfram allt tá- grannar manneskjur. Sér maður þá ekki í blaðaskrifum að farið sé að bóla á því að sú ímynd sé að byija-að láta á sjá í velferð- arríkjunum, m.a. vestan hafs. Farið að bera á því að fólk vilji makindi, sé farið að láta eftir sér að borða úti á veitingastöðum annað en megrunarfæði og konur á efri bameignaaidri unnvörpum að drífa sig í að eignast fleiri böm. Farnar að sjást þybbnari manneskjur, sem kæri sig kollótt- ar. Ja, heimurinn heldur víst áfrani að snúast og við með — svo lítið á eftir hér uppi undir heimskautsbaug.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.