Morgunblaðið - 01.10.1989, Side 18

Morgunblaðið - 01.10.1989, Side 18
18 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR l. OKTÓBER 1989 irðisaukaskatturverðurtekinn upp í stað söluskatts hinn 1. janúar 1990. Virðisaukaskattur er nútímaskattkerfi sem er sniðið að efnahags- og viðskiptal ífi samtímans. Hann er innheimtur af inniendum viðskiptum, innfluttum vörum og þjónustu. Innheimtan dreifist á öll stig viðskipta II framleiðslufyrirtæki, milliliðir og smásalar innheimta og skila sínum hluta virðisauka- skattsins. Þetta aðgreinir skattinn frá söluskattinum en þar fer innheimtan oftast fram á síðasta stigi. Innskattur - útskattur rvert fyrirtæki innheimtir virðisaukaskatt af allri sölu sinni. Sá skattur er nefndur útskattur. Öll aðföng fyrirtækis eru keypt með skatti. Sá skattur er hins vegar nefndur innskattur. Fyrirtækið skilar mismun útskatts og innskatts í ríkissjóð. Ef innskattur er hærri en útskattur endur- greiðir ríkissjóður mismuninn. Skattur af virðisauka mm (riWgaBpr Jrádráttur innskatts frá útskatti veldur því að hvert fyrirtæki - hver hlekkur í framleiðslu- og sölukeðjunni - innheimtir aðeins skatt af verðmætis- aukningunni sem á sér stað í því fyrirtæki, þ.e. af þeim virðisauka sem myndast í fyrirtækinu. Víðtæk frádráttarheimild yrirtæki má ekki aðeins draga frá innskattinn af vörum sem það kaupirtil endursölu, einnig má draga frá innskatt af rekstrar- og fjárfestingar- kostnaði, svo sem orku, vélum og byggingarkostnaði. Flest öll viðskipti og þjónusta er skattskyid tlmennt er öll sala vöru og þjónustu skattskyld. Þeir sem stunda viðskipti með skattskylda vöru eða þjónustu í atvinnuskyni innheimta virðisauka- skatt og standa skil á honum í ríkissjóð. Tiltekin vinna og þjónusta er undanþegin af félagslegum eða tæknilegum ástæðum, s.s. heilbrigðisþjónusta, menningarstarfsemi, íþrótta- starfsemi, bankaþjónusta og vátryggingarstarfsemi. Aðilar sem eingöngu hafa með höndum þessa starfsemi eru ekki skattskyldir. Mjög lítil fyrirtæki, þ.e. fyrirtæki sem selja skattskylda vöru eða þjónustu fyrir minna en 122.400 kr. á ári, eru heldur ekki skattskyld. Þeir sem ekki eru skattskyldir fá engan innskatt af aðföngum endurgreiddan. Hvað? Hvemig? . Hvernig er virðisaukaskattur innheimtur? Við skulum fylgja innfluttu heimilistæki frá tollafgreiðslu til neytanda (miðað er við 22% vsk.): Heildsali flytur inn heimilistæki. Tollverðtækisinser................................... 1.000 kr. Tollstjóri innheimtir22% vsk. aftollverðinu............ 220 kr. Heildsalinn greiðir samtals ........................ 1.220 kr. Tollstjóri skilar220 kr. í ríkissjóð. Heildsalinn skuldfærir ríkissjóð í bókhaldi sínu fyrir þessari upphæð, þ.e. færir sömu upphæð til frádráttar skattskilum sínum. Heildsalinn leggur 700 kr. á tækið og selur það til smásala á ..................................................... 1.700 kr. Heildsalinn innheimtir 22% vsk. af söluverðinu......... 374 kr. Smásalinn greiðir samtals............................ 2.074 kr. Heildsalinn hefur þá innheimt 374 kr. í virðisaukaskatt en við skil á skattinum í ríkissjóð dregur hann frá 220 kr. sem hann hefur áður skuldfært ríkissjóð fyrir. Hann greiðir því 154 kr. í virðisaukaskatt. Smásalinn færir 374 kr. til frádráttar í bókhaldi sínu. Loks selur smásalinn tækið til neytanda á............ 2.300 kr. og að auki kemur 22% vsk............................... 506 kr. Neytandinn greiðir................................... 2.806 kr. Smásalinn skilar 132 kr. í ríkissjóð (506 kr. - 374 kr. = 132 kr.). Hvað hefur gerst? Virðisaukaskatturinn er innheimtur á öllum stigum: Tollstjóri skilaöi.......................................... 220 kr. Heildsalinn skilaði....................................154 kr. Smásalinn skilaði ....................................132kr. Virðisaukaskattur samtals, þ.e. sú upphæð sem neytandinn greiddi................................. 506 kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.