Morgunblaðið - 05.10.1989, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 05.10.1989, Blaðsíða 34
MQRGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTOBER 1989 34P. Frændurnir Jón o g séra Jón Enn um dúkbyggingar eftir Þorstein Eggertsson Leikarinn Haraidur Björnsson heitinn kvartaði stundum yfir því, meðan hann var á lífi, að leikhús- fólk væri ekki metið að verðleikum þegar ábyrgðarstöður væru annars vegar. Nú er öldin hins vegar önnur Tj^>g ieikhúsfólk er að verða æ meira áberandi í hæstu virðingarstöðum. Kvikmyndaleikari hefur orðið for- seti Bandaríkjanna og Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrsta konan í heiminum sem var kosin forseti í almennum kosningum, var leik- hússtjóri um skeið. Gríska leikkon- an Melina Mercouri, sem varð heimsfræg fyrir að leika gleðikonu í kvikmyndinni „Aldrei á sunnudög- um“, var menntamálaráðherra Grikklands á sínum tíma og nú sit- ur leikstjórinn Þórhildur Þorleifs- dóttir á Alþingi íslendinga. Svona mætti lengi teija. Á íslandi ber að nefna forseta lýðveldisins og biskupa með ávarps- "heitinu Herra nema ef þeir eru dokt- orar en þá skal rita dr. fyrir framan nafn þeirra. Það vafðist því fyrir mörgum, þegar Vigdís Finnboga- dóttir tók fyrst við forsetaembætt- inu, hvernig bæri að ávarpa hana þar sem hún var ógift kona og hafði ekki doktorsgráðu. Svo kom- ust mehn að raun um að titillinn Frú (með stórum staf þegar forseti vor á í hlut) er fornt tignarheiti. Ekki má heldur gleyma því að Frú Vigdís er heiðursdoktor í lögum við kanadískan háskóla svo að titillinn dr. Vigdís á fyllilega rétt á sér. Breski prestssonurinnn Laurence Olivier, sem varð einn af frægustu leikurum heimsins og lést fyrir skömmu, var aðlaður árið 1947 og fékk við það titilinn Sir. Hann var seinna gerður að lávarði (Lord Olivi- er) og tók sæti í lávarðadeild breska þingsins árið 1971 enþarhafði leik- ari aldrei setið áður. Nokkrir aðrir bretar hafa verið slegnir til riddara, ss. Sir Alec Guinness, Sir Ralph Richardsson, Sir John Gielgud, Sir Stanley Baker og Sir John Mills. Breska leikkonan Peggy Ashcroft (sem fékk Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í myndinni „A Passage to India“) var öðluð árið 1956 — en hún er aldrei kölluð Sir. Samsvar- andi tignarheiti fyrir breskar konur er Dame; Dame Peggy Ashcroft. Prestar á íslandi bera tignar- heitið séra sem er skylt enska orð- inu Sir. Eiginkonur presta voru kallaðar maddömur fyrr á tímum, á sama hátt og eiginkonur konunga hafa alltaf fengic tignarheitið drottning. Orðið maddama er auð- vitað skylt orðunum dama og Dame. Aftur á móti fá eiginmenn drottn- inga ekki tignarheitið kóngur eða konungur nema þeir séu beinlínis fæddir inn í embættið. Út frá þessu sjónarmiði er því rökrétt að álykta að íslenskar konur, sem hafa hlotið prestvígslu, noti ávarpsheitið madd- ama í staðinn fyrir séra, t.d. madd- Þorsteinn Eggertsson „Út frá þessu sjónar- miði er því rökrétt að álykta að íslenskar kon- ur, sem hafa hlotið prestvígslu, noti ávarpsheitið maddama í staðinn fyrir séra.“ ama Auður Eir Vilhjálmsdóttir. Með sömu rökum er þó engin ástæða til að kalla eiginmenn kvenpresta séra, nema þeir séu vígðir til embættisins. Eða hvað finnst ykkur? Höfundur er blaðamndur og textahöfundur. eftir Einar Þorstein * Asgeirsson Það er vonandi ekki að bera í bakkafullan lækinn, að minna landsmenn enn og aftur á ýmsa möguleika í gerð bygginga, af því tagi sem hér má sjá á myndinni? Nýjungar í gerð dúka gera það nú mögulegt að tjalda til einnar nætur. Gerviefni sem sett eru inn- an í venjulegt PVC-plast gera það að verkum að dúkurinn teygist nánast ekkert og, flaksar því ekki í íslenskum vindum, ef rétt er stað- ið að stífingu hans (sjá þrýstitoppa í miðju hver þríhyrnings). Það sem meira er, þetta bygg- ingarlag er unnt að framleiða hér á landi að ekki sé minnst á hugvi- tið sem er að grunni íslenskt. Einhvern veginn er það grunur undirritaðs, að hagkvæmt muni að nota byggingar af þessu tagi til sjávar og sveita, þar sem nota- gildi bygginga á að felast í færan- leika, einföldu skjóli og ekki síst lágu verði. Það er vitaskuld gott og gilt, að reisa vegleg stórhýsi, við þau tækifæri sem slíkt á rétt á sér, enda er þá meiningin að sýna það sem kallar er „stórhug“, eftirkom- endunum til aðdáunar. En það er nú svo í nútímanum að atvinnu- tæknin breytist ört. Það sem var byggt fyrir hana í dag er úrelt á morgun. Offjárfesting er vinsælt orð um þessar mundir, og leyfist vonandi að nota það orð í þessu samhengi. Þeir sem um sveitir landsins aka nú, sjá hvíta bagga liggjandi vítt og breitt um túnin, afleiðing af nýrri heyjunartækni. Vonandi hlaupa menn nú ekki upp til handa og fóta og reisa myndarlegar hlöð- ur upp á nýtt, þar sem gömlu hlöð- urnar eru mjög oft illnýtanlegar fyrir hvítu baggana. Væri nú ekki nær að huga að nýjum lausnum: Byggingarlagi, sem fullnægir ná- kvæmlega þeirri þörf sem fyrir hendi er og sparar þjóðarbúinu um leið íjárútlát? Mér datt þetta svona í hug, þegar ég leit augum 200 fermetra dúkbyggingu Bindindis- samtakanna að Galtalæk. Höfundur er hönnuður. 200 fermetra dúkbygging Bindindissamtakanna að Galtalæk. Byggt 1989. SIEMENS Góður og ódýr þurrkari! • Stórt lúguop og stór lósía. • Öryggislæsing og kæling i lok þurrkunar til að foróast krumpur. • Tekur 4,5 kg. aó þvotti. Sérlega hagkvæmur og sparneytinn þurrkari. Verð:kr. 35.800,- SMITH&NORLAND NÓATÚNI 4 • SlMI 28300 Létt og sterkt álskaft Handfang Ruslapokagrind Vinda úr ryðfríu stáli Festiplata sem fer vel inn í horn Rykmoppa Ætmmmtmmam NOKKRAR NÝJAR TILLÖGUR! Skaftfesting á vagn - Fata fyrlr afþurrkun ofl. ,— Sorppokagrind (má brjóta saman í geymslu) Bakki fyrir hreinsiefni ofl. \ Öskubakki 2 - 4 fötur fyrir afþurrkun ofl. t— Skaftfesting a vagn Grunnvagn Liðamót sem gera hreyfinguna létta og auðveldar að koma moppunni undir húsgögn Moppa úr gerviefni (þolir suðuþvott) Nú fást vagnar med nýrri vindu þar sem moppan er undin meö einu handtaki án þess að taka þurfi hana afskaftinu. Moppan fer alveg inn í horn og auðveldlega undir húsgögn. Einnig er hún tilvalin í veggjahreingerningar. Þetta þýðir auðveldari og betri þrif. Auðveldara, fljótlegra og hagkvæmara! M oppuvagnarnir eru allir einn og sami grunnvagninn en með aukahlutum eru óteljandi möguleikar á samsetningum. Þannig geta fyrirtæki og stofnanir sett saman vagn sem fullnægir nákvæmlega þeirra þörfum. IBESTAI Nýbýlavegi 18, Kópavogi, sími 641988 Hafnargata 61, Keflavík, sími 92-14313

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.