Morgunblaðið - 10.10.1989, Blaðsíða 12
12
6801 agaörxQ .01 aupAauLaifl4 aiöAiamj.Oflow
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1989
Islenska óperan:
Brúðkaup Figarós
_________Tónlist___________
Ragnar Björnsson
I endursýningu á óperu Mozarts
tekur Keith Reed við hlutverki
Almavíva greifa, en það hlutverk
flutti Kristinn Sigmundsson á sl.
leikári. Aður en sýning hófst á laug-
ardagskvöldið var áheyrendum tjáð
að Reed hafi verið þjáður af kvef-
pest undanfarnar vikur og viðstadd-
ir því beðnir um skilning. Hvort
Reed væri ennþá kvefaður var ekki
látið uppskátt né hvort skilningur-
inn ætti að vera í því fólginn að
reyna að skilja hvernig söngvarinn
syngi ókvefaður. Svona kynningu
er mjög vafasamt að bera fram og
liggur við að sé móðgun við áheyr-
endut'. Ef fyrirfram er boðið upp á
hluta af því sem listamaðurinn get-
ur sýnt, hvers vegna þá ekki að
bjóða endurgreiðslu á hluta af miða-
verðinu? En Reed hefði ekki þurft
að bera fram afsökun. Að vísu vat'
auðheyrt að röddin fókuseraði ekki
vel og að hann virtist spara sig
raddlega, sem vitanlega var hárrétt
ákvörðun miðað við undanfarin
veikindi. Auðheyrt var að Reed et'
vel menntaður söngvari, rytmískur
og nákvæmur í besta lagi, músík-
SKRIFSTOFUTÆKNI
i ,
OPNAR
ÞÉR NÝJAR
LEIÐIR
Skrifstofutæknin er markvisst nám þar sem þú lærir
tölvugreinar, viðskiptagreinar og tungumál í skemmti-
legum félagsskap. Sérstök áhersla er lögð á notkun
tölva í atvinnulífinu. Námið tekur 3 mánuði og að því
loknu útskrifast nemendur sem skrifstofutæknar.
f náminu eru kenndar m.a. eftirfarandi greinar:
Almenn tölvufræði, stýrikerfi, tölvusamskipti, ritvinnsla,
gagnagrunnur, töflureiknar og áætlanagerð, tölvubókhald,
toll- og verðútreikningur, almenn skrifstofutækni, grunn-
atriði við stjórnun, útfylling eyðublaða, verslunarreikn-
ingur, víxlar og verðbréf, íslenska og viðskiptaenska.
Yfir 600 ánægðir skrifstofutæknar eru okkar bestu
meðmælendur nú á fjórða kennsluári okkar.
Innritun og nánari upplýsingar eru veittar í síma
687590. Hringdu strax og fáðu sendan bækling.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28, sími 68 75 90
Hvað segja
þau um
námskeiðið:
Kristjana
Guðjónsdóttir
skrifstofutæknir:
Skrifstofutækni-
námið veitti mér
mikla innsýn í tölv-
ur og jók sjálftraust
mitt til muna. Það
er góð tilfinning að
geta sýnt sjálfum
sér fram á hvað
máður getur mikið.
Námið var skemmti-
legt og kennararnir
voru hreint út sagt
frábærir.
Garðar Gíslason
skrifstofutæknir:
Síðastliðið sumar
ákvað ég að drífa
mig í skrifstofu-
tækninám Tölvu-
fræðslunnar. Það
reyndist mjög góð
ákvörðun því að
námið var bæði
gagnlegt og
skemmtilegt. Nám-
ið hefur nú þegar
komið mér að góðu
gagni því það var
metið tii 12 eininga í
menntaskólanum
sem ég stunda nú
nám við.
Námskeiðs-
gjaldið getum
við lánað til
allt að 3 ára
- afborgunar-
laust fyrstu
9 mánuðina.
alskur og aría hans í þriðja þætti
var fallega mótuð. Annarra er að
dæma sviðstækni og leik Reeds, en
mér virtist hann nokkuð sannfæi'-
andi, en þó dálítið ómarkviss á köfl-
um. Vafalaust hefur hér bæst í
hópinn góður liðsmaður, þegar
kvefið er liðið hjá. Þegar hefur ver-
ið skrifuð gagnrýni um sýninguna
á Brúðkaupi Figarós og ætla ég
raunar engu þar við að bæta, en
velta má nokkrum atriðum fyrir sér.
Venjan er í landi Mozarts, að
greifinn í Brúðkaupinu sé sunginn
af lýrískum baritón, og venjan et'
einnig að bassi syngi Figaró, þ.e.
Mozart-bassi, bassi með dýpt og
góða hæð, og góðum leikhæfileikum
þarf Figaró að vera gæddur. Svona
eru þessi tvö hlutverk yfirleitt skil-
greind í austurrískum og þýskum
óperuhúsum og mun ættað frá
Mozart sjálfum. Ef þessum fyrir-
mælum er fylgt fær flutningurinn
allt annað yfirbragð og í flestum
tilfellum er aðeins hægt að ná fram
þeim manngerðum sem tónskáldið
hugsar sér með því að fylgja þessum
reglum. Figaró t.d. et' ekki nema
hálfur Figat'ó, þrátt fyrir fjörlegan
leik, ef dýptin er hljómlaus og hæð-
in ljós baritón. Tryggð við nótna-
gildi er nauðsynleg í Mozart, það
ættu allir söngvarar að vita. Fróð-
legt væri að fá að vita hvaðan flúr-
söngurinn í sumum aríunum er
ættaður. Vandi er að bæta slíku
kryddi inn í Mozart og í þessum
tilfellum voru frumlegheitin jafn
óskyld Mozart eins og vatn er víni.
Hvers vegna ekki að fá þýskan eða
austurrískan hljómsveitarstjóra ef á
annað borð þarf að sækja þá yfir
hafið, þegar fluttar eru þýskar eða
austurrískar óperur? íslensku ópe-
runni skal óskað til hamingju á 10
ára afmælinu og megi Brúðkaupið
verða ennþá meira ekta eftir næstu
tíu ár.
Davíð Þorsteinsson
Tvær sýningar
________Myndlist______________
Bragi Ásgeirsson
Á stundum rekst maður á mark-
verðar sýningar utan hinna hefð-
bundnu listhúsa, sem eiga rétt á
umfjöllun og athygli, en erfitt er
að sinna á aðalsýningartímabilinu.
Svo er tvímælalaust um ljós-
myndasýningu Davíðs Þorsteins-
sonr í Mokkakaffi, en hann sýnir
þai' nú í annað sinn. I fyrra skiptið
sýndi hann ljósmyndir af ýmsum
fastagestum kaffihússins á liðnum
árum og vakti hún góða athygli.
Að þessu sinni sýnir Davíð ýmiss
konar myndir úr mannlífinu, en
hann hefur næmt auga fyrir ýmsum
sérkennum þess og einnig þegar
um dauða hluti er að ræða, sem
Myndatökur frá kr. 6.500,-
út októbermánuð, öllum tökum
fylgja tvær prufustækkarnir
20x25 cm.
Ljósmyndastofan Mynd
sími 5 42 07
veðrast af tímanum, steypu-
skemmdir á húsum o.fl. Hann sér
hér hina fagurfræðilegu hlið á mál-
inu, en ekki einungis forgengileik-
ann og óþægindin, sem allri hrörn-
un fylgja.
Þá er Davíð einnig lagið að
bregða upp stemmningaríkum og
lifandi myndum úr hvunndeginum,
þannig að til umhugsunar vekur. —
Ákaflega falleg sýning og mikil
prýði að henni á veggjum Mokka.
í listahúsinu Djúpinu í Hafnar-
stræti, sem fyrir löngu er orðið að
veitingastað og stendur því naum-
ast undir heitinu lengur, sýnir Ulla
Hosford Back nokkur litrík vegg-
teppi.
Hugmyndina að teppunum fékk
hún í Arabíu, þar sem hún mun
hafa verið í heimsókn hjá vinkonu
sinni og kynntist þá þessari tegund
vefnaðar, sem hefur yfir sér trúar-
legan og táknænan svip.
Hér er um mikla og um margt
sundurlausa hleðslu skreytikenndra
forma og lita á einn flöt að ræða,
svo að þær hugleiðingar leita á
skoðandann, hvort ekki sé um of-
hleðslu að ræða. En þó stinga hér
tvær myndir í stúf fyrir annars
konar og markvissari vinnubrögð
„Arabískt fljóð (8) og „Konuþema"
(II).
Þá njóta myndirnar sín ekki alls-
kostar í húsakynnunum, en vera
má að þær þurfi þá stemmningu
sem ríkir á staðnum, er kvöldar og
bekkurinn er þéttsetinn, en það
veit ég ekki og langar ekki mikið
til að vita.
En ég á bágt með að skilja, af
hveiju listakonan velur myndum
sínum þessa umgjörð í stað þess
að sýna í einu hinna mörgu virku
listhúsa höfuðborgarinnar.