Morgunblaðið - 25.11.1989, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/LESBOK
Falli kommúnista ákaft
fagnað á götum Prag
Alexander Dubcek og Vaclav Havel fallast í faðma í sigurgleði
Prag. Reuter.
ÞEKKTUSTU umbótasinnar Tékkóslóvakíu skáluðu í kampavíni og
tugir þúsunda Tékka fögnuðu á götum Prag í gærkvöldi er fregnir
bárust af því að leiðtogar kommúnistaflokksins hefðu látið undan
síga eftir dagleg fjöldamótmæli í landinu að undanförnu. Milos Jak-
es og 24 aðrir forystumenn kommúnistaflokksins sögðu af sér á fúndi
miðstjórnar flokksins og var Karel Urbanek, sem á sæti í stjórn-
málaráðinu, kjörinn í embætti flokksleiðtoga. Rúmlega 300.000 Tékk-
ar höfðu safnast saman á Wenceslas-torgi í borginni til að krefjast
þess að alræði flokksins yrði afnumið. A meðal þeirra sem ávörpuðu
inannfjöldann var Alexander Dubcek, sem fluttur var í hlekkjum frá
Prag eftir innrás Varsjárbandalagsins í landið fyrir 21 ári.
Fréttastofan CTK skýrði frá því
að Jakes, öll forsætisnefndin og
aðalritarar flokksins hefðu beðist
lausnar á skyndifundi miðstjórnar-
innar til að auðvelda lýðræðisum-
bætur í landinu. Karel Urbanek var
síðan kjörinn leiðtogi flokksins í
leynilegri atkvæðagreiðslu með 136
atkvæðum gegn sjö. Hann er 48
ára að aldri og hefur átt sæti í
stjórnmálaráðinu frá því í fyrra og
í miðstjórninni síðan 1986.
Alexander Dubcek og leikrita-
skáldið Vaclav Havel féllust í faðma
er þeir fréttu af afsögn forystunn-
ar. Jan Urban, félagi í mannrétt-
indahreyfingunni Charta 77, kom
með kampavínsflösku til þeirra og
bauð viðstöddum að skála fyrir
frelsi Tékkóslóvakíu. Tugir þúsunda
Prag-búa fögnuðu tíðindunum á
Wenceslas-torgi, veifuðu fánum og
kröfðust fijálsra kosningá.
Skömmu áður hafði Dubcek sagt
í ávarpi sínu á torginu að hugsjónin
um „kommúnisma með mannlegri
ásjónu“ væri enn lifandi í hugum
ungu kynslóðarinnar í landinu.
„Vitrir menn spurðu eitt sinn: hvers
vegna ætti að vera myrkur úr því
hægt er að hafa birtu? Við skulum
öll láta sem við séum í birtunni,“
sagði Dubcek, sem verður 68 ára á
mánudag. „Við verðum að sameina
samfélagið í einn farveg til að lyfta
landinu á hærra stig,“ bætti hann
við.
Þúsundir manna voru á svölum
í grenndinni eða klifruðu -upp á
húsþök til að hlusta á Dubcek, sem
bolað var frá völdum eftir að skrið-
drekar Varsjárbandalagsins réðust
inn í landið árið 1968.
Samkvæmt skoðanakönnun
námsmanna á götum Prag nýtur
Dubcek stuðnings 24% þjóðarinnar
en fylgi Vaclavs Havels er ívið
minna, eða 22%. Margir fijálslyndir
demókratar í Tékkóslóvakíu hafa
gagnrýnt Dubcek, sem hefur ekki
snúið baki við kommúnismanum á
sarria tíma og umbótasinnar í öðrum
Austur-Evrópulöndum, svo sem
Ungveijalandi og Póllandi, eru að
gefa hann upp á bátinn. Margir líta
á hann sem mann fortíðarinnar.
Vestrænir stjórnarerindrekar efast
einnig um að Dubcek sé rétti mað-
urinn til að leiða Tékka út úr stjórn-
mála- og efnahagskreppu þeirra.
Sten Andersson, utanríkisráð-
herra Svíþjóðar, afhenti í gær Vac-
lav Havel Olof Palme-verðlaunin
fyrir „hugrekki í baráttu sinni fyrir
lýðræði og mannréttindum".
Reuter
Muawad kvaddur
- nýrforseti kjörinn
Elias Hrawi var kjörinn forseti Líbanons á fundi líbanskra þingmanna
í gær og sór embættiseiðinn skömmu síðar. Hann fékk 47 atkvæði af
52 en fimm skiluðu auðu. Hrawi er kristinn eins og fyrirrennari hans,
Rene Muawad, sem var myríur í Beirút á miðvikudag. Mörg þúsund
syrgjendur fylgdust með því er líkkistu Muawads var ekið um götur
Beirút í gær. Sumir rifu klæði sín og grétu en margir bölvuðu morð-
ingjunum.
Reuter
Alexander Dubcek, fyrrum leiðtogi Tékkóslóvakíu, flytur ávarp við Wenceslas-torg í Prag, þar sem
rúmlega 300.000 Tékkar söfnuðúst saman í gær til að krefjast stjórnmálaumbóta í landinu. A innfelldu
myndinni fagna Dubcek og leikritaskáldið Vaclav Havel er skýrt hafði verið frá því að forystumenn
kommúnistaflokksins hefðu sagt af sér.
Litháíska þingið:
Neftid falið að undirbúa
stoftiun sjálfstæðs ríkis
Moskvu. Reuter.
LITHÁÍSKA þingið hefúr skipað
nefnd til að kanna hvernig standa
skuli að stofnun sjálfstæðs ríkis
Litháa, að því er haft var eflir
bfaðamönnum í Vilnius, höfuð-
borg Litháens, í gær.
Blaðamennirnir sögðu að nefndin
hefði verið skipuð á fimmtudag og
enginn vafi léki á því að. þingið
hefði sett sér það markmið að
stofna sjálfstætt ríki. „Spurningin
er hins vegar sú hvernig standa
beri að því,“ sagði einn þeirra í
símaviðtali við fréttaritara Reuters
i Moskvu. Þeir sögðu að nefndinni
væri ætlað að kanna ýmsa mögu-
leika, svo sem viðræður við sovésk
stjórnvöld, samninga við Kreml-
veija um efnahagslegt og pólitískt
sjálfstæði og þjóðaratkvæða-
greiðslu um aðskilnað frá Sovétríkj-
unum. Litháen var sjálfstætt ríki á
árunum 1918-40.
Margir litháískir þingmenn telja
líklegt að Litháar reyni að stofna
sjálfstætt ríki innan fimm til tíu
ára. Blaðamennirnir sögðu að
nefndin hefði verið skipuð að undir-
lagi leiðtoga ungra kommúnista í
Litháen, en þeir hafa rift öllum
tengslum við sovésku æskulýðs-
fylkinguna, sem stjórnað er frá
Moskvu.
Sovésk stjórrivöld tjáðu sig ekki
um þetta mál í gær óg fréttastofan
TASS minntist ekki á nefndina í
frétt sinni af fundi litháíska þings-
ins. Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti
liefur sagt að .ekki komi til greina'
að lýðveldi Sovétríkjanna öðlist
sjálfstæði þótt stjórnarskrá Sov-
étrikjanna heimili slíkt.
Norðursjór, Skagerak og Kattegat:
Þorskkvótinn verði
minnkaður um 20%
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen Bruún, fréttaritara Morgunblaðsins.
FISKIFRÆÐINGAR hafa skilað niðurstöðum af rannsóknum sínum
á fiskstofnum í Norðursjó, Skagerak og Kattegat. Samkvæmt upplýs-
ingum Ritzau-fi’éttastofunnar leggja fiskifræðingarnir til að dregið
verði úr þorsk- og ýsuveiði um 20% á þessum hafsvæðum árið 1990.
Þetta kæmi sér mjög iila fyrir
danska sjómenn. Fiskifræðingarnir
leggja einnig til að dregið verði úr
síldveiðum, en enn hefur ekki verið
ákveðið hversu mikill sá niðurskurð-
ur verður.
Sjávarútvegsráðherrar aðild-
arríkja EB ræða kvótamálin í
Brussel á mánudag.