Morgunblaðið - 03.01.1990, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.01.1990, Blaðsíða 14
81 Í4 H n 8AUKAI .8 iK'HACJ'/lYíi M QK AIJKÖÍM ÖlW -----MORGUNBLAÐIÐ- MÍÐVIKUÐAOUR- S: JANUAR-1990 Sinfóníuhljómsveit æskunnar. Tónleikar Sinfóníu- hljómsveitar æskunnar Opið bréf — til Kristínar Jóhannesdóttur, Þorsteins Jónssonar og Hraftis Gunnlaugssonar — frá Svavari Gestssyni Sem stendur heldur Sinfóníu- hljómsveit æskunnar hljómsveit- amámskeið í Hagaskóla. Þar koma saman um 80 tónlistarnem- endur víðsvegar að af landinu og æfa saman í fullskipaðri sin- fóníuhljómsveit næstu tíu dag- ana. Á námskeiðinu er verið að æfa Pellias & Melisande eftir Schönberg og er Paul Zukofsky aðalstjórnandi hljómsveitarinnar nú sem endra- nær. Námskeiðinu lýkur með tón- leikum í Háskólabíói, sunnudaginn 7. janúar kl. 14. Forsala aðgöngumiða er í Bóka- verslun Sigfúsar Eymundssonar. í opnu bréfi til Páls Skúlasonar formanns stjórnar Menningarsjóðs útvarpsstöðva kemur fram eftirfar- andi: „Jafnframt hafði menntamálaráð- herra lofað á fundi með stjóm kvik- myndasjóðs að ef aðeins þyrfti reglu- gerðarbreytingu skyldi hann sjá til þess að sjóðurinn nýttist sjálfstæðum íslenskum kvikmyndagerðarmönn- um. Eftir að ráðuneytisstjóri mennta- málaráðuneytisins hafði kynnt sér málið kom í ljós að hægt var að breyta reglugerðinni þannig að sjóð- urinn nýttist sjálfstæðri kvikmynda- gerð. Um leið og þetta upplýstist, gleymdi menntamálaráðherra loforði sínu.“ Ekki veit ég hvað þessi athuga- semd á að þýða en mér er augljós- lega ætlaður boðskapurinn og því svara ég fyrir mig með opnu bréfi. 1. Strax og það lá fyrir að breyta mætti sjóðsreglunum að þessu leyti með reglugerð ræddi ég það við formann stjómar Menningarsjóðsins. Hann mæltist undan reglugerðar- breytingu á þeirri forsendu að unnið væri að uppgjöri á sjóðnum aftur í tímann meðal annars vanskilum út- varpsstöðva. Taldi hann rangt að breyta reglugerð fyrr en uppgjör lægi fyrir. Ég féllst á þetta sjónar- mið enda virtist þá skammt í að unnt yrði að knýja stöðvarnar til uppgjörs. Því miður var þessi bjart- sýni ekki á rökum reist eins og ykk- ur er kunnugt. 2. Kvikmyndagerðarmenn hafa komið ítrekað á minn fund í ráðu- neytinu til þess að fjalla um kvik- myndagerðina í landinu. Höfum við meðal annars rætt um aðgang íslenskra kvikmyndagerðarmanna að erlendum sjóðum sem kvikmynda- gerðarmenn hafa fagnað. Við höfum rætt um nauðsyn þess að virðisauka- skattur verði ekki lagður á íslenskar kvikmyndir, en samkvæmt gildandi lögum er söluskattur lagður á íslen- skar kvikmyndir þó enginn hafi rukkað enn fyrir þær og verður von- andi aldrei gert. Kvikmyndagerðar- menn hafa fagnað niðurstöðum sem Svavar Gestsson „ Yið erum sammála um að framlagið í sjóðinn er mörg ljósár frá þeim veruleika sem verður að takast á við.“ fyrir liggja í þessu efni. í þriðja lagi höfum við rætt um kvikmyndasjóð og stöðu hans á árinu 1990. Við erum sammála um að framlagið í sjóðinn er mörg ljósár frá þeim veru- leika sem verður að takast á við. Kvikmyndirnar eru svo mikilvægur þáttur íslenskrar menningarsköpun- ar að það er með öllu fráleitt að búa við kvikmyndasjóðinn í þessu formi áfram. Þess vegna verður að hefna þess á öðrum vettvangi sem hallaðist á kvikmyndasjóðinn við afgreiðslu fjárlaga og við ætlum að gera það. í fjórða lagi höfum við rætt um framtíðarskipan kvikmyndasjóðsins og það augljósa ranglæti sem felst í því að kvikmyndamenn hafa orðið að hætta öllum eigum sínum — og hafa oft misst þær — meðan aðrir framleiðendur hér á landi búa við þær aðstæður að geta jafnvel leitað ríkisábyrgðar fyrir framleiðslulánum sínum. Allt þetta höfum við rætt. Hafi ráðherrann verið gleyminn sem hann er ekki þó hann segi sjálfur frá þá hefðu fundarmenn haft ótal tækifæri til þess að hrista upp í undirrituðum. Það að höfundar hins opna bréfs kjósa heldur að senda frá sér athuga- semdir í bréfi til Páls Skúlasonar er lítt skiljanlegt. Og þessi svargrein er ekki til þess skrifuð að biðja um skýringar. En hún er svar. Höfundurer menntamálaráðherra. Neftid end- urskoðar áfengisvamir Heilbrigðis- og tryggingaráð- herra, Guðmundur Bjarnason, hefiir í samráði við dóms- og kirkjumálaráðherra, Óla Þ. Guð- bjartsson, Áfengisvarnaráð og landlækni skipað nefnd, sem feng- ið er það hlutverk að endurskoða þau ákvæði áfcngislaga nr. 82/1969, með síðari breytingum, sem snerta áfengisvarnir, og lög nr. 39/1964, um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra, með það fyrir augum að steypa ákvæðuni þessara laga saman í ein lög, áfengisvarnalög. Er nefndinni ætl- að að hafa samráð við þá aðila er vinna að áfengisvörnum, s.s. Áfengisvarnaráð, áfengisdeild ríkisspítalanna og Samband áhugamanna um áfengisvanda- málið. I nefndinni eiga sæti: Ingimar Sig- urðsson, skrifstofustjóri, formaður, Hrafn Pálsson, deildarstjóri, ritari, Níels Árni Lund, deildarstjóri, Sig- mundur Sigfússon, geðlæknir, til- nefndur af landlækni, Ólafur Haukur Árnason, áfengisvarnaráðunautur, tilnefndur af Afengisvamaráði og Jón Oddsson, hrl., tilnefndur af dóms- og kirkjumálaráðherra. Nefndinni er ætlað að Ijúka störf- um á næsta ári. % GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ BORGAR UTSALA í FULLUM GANGI Þetta eru helgarferðir til London, Luxemborgar, Glasgow, Frankfurt og Stokkhólms. Brottfarir eru alla fimmtudaga, föstudaga og laugardaga og verðið er aðeins krónur Þetta er ekkert verð fyrir svona ferð. Bókið snemma - takmarkaður sætafjöldi. Fargjaldið gíldir í brottfarir frá 1. jan. til 28. febr. Ferðir á ofangreindu fargjaldi eru aðeins til sölu í janúarmánuði. FLUGLEIÐIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.