Morgunblaðið - 03.01.1990, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 03.01.1990, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990 MORGUNBLAÐIÐ MlDVIKUDAGUR '3. JANÚAR 1990 fttíirrfmiiMalti Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík HaraldurSveinsspn, Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sírni 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Ræktun lands og barna Iáramótaboðskap sínum leggja þjóðarleiðtogar áherslu á þau mál er þeim þykir bera hæst í samtíðinni. Margir beindu augum sínum til Austur-Evrópu, þar sem þjóðirnar eru að hefja erfiða ferð frá kommúnisma til lýðræðis. Hinn nýi forseti Tékkóslóvakíu, Vaclav Havel, veitti nokkrum tug- um þúsunda landsmanna sinna sakaruppgjöf, vafalítið með reynslu sína sem fangi í huga. Og hann minnti á, að þjóð hans hefði á sínum tíma verið andlegur aflgjafi í Evrópu, og spurði, hvort hún gæti ekki orðið það að nýju. í góðu áramótaávarpi sínu beindi Vigdís Finnbogadóttir for- set íslands athygli sinni að ræktun lands og þjóðar. Fór vel á því á þessum tímamótum að beina at- hygli þjóðarinnar að þeirri stað- reynd, að ekki er allt fengið með eftirsókn eftir einhveiju nýju, hitt sé ekki síður mikilvægt að huga að því sem við höfum, hlú að ný- græðingi hvar sem hann fínnst og tryggja honum hæfilegt um- hverfí til að vaxa og þroskast. Forseti sagði að landið og fólkið væru mikilvægustu forsendur framtíðar okkar. Og rökstuddi það meðal annars með þessum orðum: „Án byggilegs lands á fólk sér enga framtíð. Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um það hvernig við höfum á liðnum öldum gengið um land okkar, jafnvel svo að sumum hefur þótt horfa til auðnar. Hins vegar vil ég minnast þess að fyrir dyrum stendur merkilegt átak í tengslum við sex- tugsafmæli Skógræktarfélags ís- lands, nú á nýbyijuðu ári, og er kennt við ræktun landgræðslu- skóga. En landgræðsluskógur er skilgreindur sem allar þær land- græðslu- og gróðurvemdarað- gerðir, sem leiða til þess að örfoka eða lítt gróið land verði klætt tijá- gróðri að nýju, eða öðrum jurta- gróðri sem bindur mold og býr í haginn. Um gróður gildir hið sama og um lífsyndi okkar, bömin. Ef við viljum lifa það að sjá grósku- ríkan árangur, þá verðum við að byija strax, - það er aldrei hægt að draga neitt á langinn sem varð- ar ræktun.“ Þá minnti Vigdís Finnbogadótt- ir á, að fyrir nokkru hafi verið stofnuð samtök, sem eru til bráða- birgða nefnd „Hjálpum börnum“ og eiga að vinna að barnaheill og bættum hag barna hér á landi. Og forseti vék að bömum með þessum orðum: „Við verðum að játa það fyrir okkur sjálfum að böm okkar eru afskipt. Við höfum verið svo ánægð með allt það frelsi sem okk’ nefur áskotnast og gengið sv áköf til vinnu til að afla verð- mætanna, án þess að láta þar á móti koma ömggan umhyggju- og uppeldisstað fyrir bömin, skóla og námsstofnanir, að við höfum gengið svo langt að láta börnin ganga sjálfala. Það er eins og við höldum að þau geti bjargað sér sjálf, að þau læri af sjálfsdáðum að tileinka sér verðmæti lífsins, svo sem fróðleik ýmiskonar og sjálfsaga. Þá höfum við gleymt því, að ekki gátum við, sem nú erum fullorðin, bjargað okkur sjálf til uppeldis. Við fengum aðstoð, okkar ræktun, þegar við vorum börn og styrk til að nýta hana.“ Með þessum orðum snertir for- seti íslands viðkvæma kviku þjóð- félagsins, þar sem lifnaðarhættir hafa verið að breytast á þann veg, að hlutur fjölskyldunnar hef- ur verið að víkja fyrir stofnunum, einkum á vegum opinberra aðila. Um áramótin veltu stjórnmála- menn þeirri staðreynd fyrir sér, að ekki hefur tekist að koma þeim böndum á útgjöld ríkisins, sem halda þeim innan hæfilegra marka. Ekki er unnt að skilgreina þann vanda til fulls og finna lausn á honum, nema menn ræði af hisp- ursleysi um einstaka útgjaldaliði og velti því fyrir sér fordóma: laust, hvort þeir eigi rétt á sér. í því efni þarf að skoða þjóðfélags- myndina alla og meðal annars þann þátt, sem forseti gerði að sérstöku umtalsefni og lýtur að hag og uppeldi barna. Meðal ann- ars með tilliti til þessa ber að huga að eftirfarandi orðum for- seta: „Þegar nú samfélag okkar hefur þróast til þess að hveiju heimili dugi ekki minna en tveir til fyrirvinnu, ef sinna á kröfum tímans, þá verður eitthvað annað að koma í staðinn til leiðsagnar og uppeldis. Þá verður með nýjum hætti að tryggja öllum bömum full mannréttindi.“ Og forseti minnti á, að á þessu brýna máli eru fleiri hliðar en þær, sem snúa að fjármálum og afkomu, þegar hún sagði: „Við verðum að gefa börnunum af tíma okkar og reynslu og vinsamlegum skilningi svo þau viti betur að maður er manns gaman um leið og þau kunni að vera ein með sjálfum sér og afla sér gleði við annað en það sem mölur og ryð fá grandað. Og öll böm eiga heimtingu á uppeldi til þess að verða manneskjur í einu og öllu, til þess að njóta samvista við aðra en óttast þá ekki. Ekkert okkar fær í vöggugjöf skemmdarfýsn eða kunnáttu til ofbeldisverka. Ekkert bam á skilið að alast upp til slíkrar hegðunar." Þessi áminning yigdísar Finn- bogadóttur forseta íslands átti vel við í upphafí árs 1990. Verði tek- ið mið af henni verður þjóðlífið betra. 31 „Þetta er það land sem við þekkjum og unnum“ Ávarp forseta íslands, frú Vigdísar Finnbogadóttur, á nýársdag ^rnþe£f £nr fXSwí !vS Góðan dag, góðir áheyrendur. Ég óska landsmönnum öllum gleðilegs nýárs með þeirri heilu von að við megum nú líta til bjartari tíma í íslensku þjóðlífi en verið hafa um skeið. Framtíðarspá um þjóðarhag leyfir okkur einnig að trúa að svo sé og að við eigum nú að baki örðugasta hjallann á nokkuð torsóttri vegferð okkar á árinu sem kvatt hefur og heyrir þegar sög- unni til. Allt andstreymi í stórum heimi er þó afstætt og mér er stund- um, þegar við kveinkum okkur mik- ið undan þungum róðri, sem ég heyri vísnasmiðinn þylja: Finnst mér oft er þrautir þjá þulið mjúkt við eyra: þetta er eins og ekkert hjá öðru stærra og meira. Þyngst er okkur ávallt að lifa með sorg við ástvinamissi og um þessi áramót sem fyrr minnumst við þeirra sem ekki eru lengur hlut- takendur í lífi okkar og vottum þeim sem sárast sakna innilegan samhug okkar. „Svo rís um aldir árið hvert um sig . . .“ kvað Jónas í nýárskvæði sínu. Og enn verður sama undrið, nýtt ár, eilífðin í endurtekningunni, en samt eitthvað breytt. Sólin er sú sama og í fyrra, og þó er sem sitthvað hafi breyst í ljósi þessarar sólar. Landið er hið sama og í fyrra en samt nýtt og með einhveijum hætti öðruvísi en fyrr. Og söm er þjóðin sem landið byggir en þó hef- ur ævinlega eitthvað breyst i fari hennar og aðstæðum. Því á hveijum tímamótum bíða okkar ný verk, nýr vandi og oftar en ella ný gleði, - sá vandi og sú gleði sem fylgir þeirri vegsemd að vera íslendingur. Því það er í senn gott til gæfu og vandasamt að vera íslendingur. Hafís við norðurstrendur landsins er um þessar mundir enn einu sinni að minna okkur á það, hvar við erum stödd á hnettinum, þessi sami hafís sem skáldin kváðu um, „lands- ins forni fjandi", sem boðaði hart vor, kannske hungur og neyð. Samt skyldum við aldreí gleyma því að aðstæður okkar nú eru allt aðrar en formæðra okkar og -feðra til þess að fást við vandann sem skap- ast af óblíðri náttúru, aðeins ef við viljum beita til þess þekkingu okkar og samtakamætti en látum ekki vanda lítillar þjóðar í stórum heimi smækka okkur, beygja okkur, held- ur hvetja okkur til að horfa framan í veröldina og segja án yfirlætis en líka án óhóf legs lítillætis: Hér erum við og hér verðum við - því að hér viljum við vera. Við erum nátengdari þessu landi en margar aðrar þjóðir ættlöndum sínum, þótt sumir finni það ekki fyrr en þeir eru farnir héðan og horfa á það úr fjarlægð. Við gleym- um því aldrei að við erum alin upp í töfrabirtu hins íslenska sumars, okkur finnst að við eigum þetta land með einhveijum þeim hætti sem engu Iíkist, ískalda jöklana líka og hijóstrin öll. Þetta er landið sem við tókum í arf og þess vegna er það okkar Iand og við erum fólk þessa Iands. Þetta er það land sem við þekkj- um og unnum. Og ekki aðeins landið í heild: Átthagar eru stórt orð í vit- und okkar, oftast stærra en fyrir öðrum annars staðar í álfum. Að sumu leyti kann það að stafa af því að í átthögunum ber næstum að segja hver blettur nafn sem við þekkjum og talar til okkar á gegn- særri tungu. BláfjöII og Jarlhettur, Hveradalir og Hljóðaklettar, Jóru- kleif og Ingólfsfjall - allt eru þetta staðir sem bera okkur óm sögunnar og náttúruskynjunar allt frá land- námsöld. Of sjaldan gefum við því líklega gaum hvern fjársjóð við eig- um þar sem eru skiljanleg örnefni, nöfn sem hvert barn getur séð í gegnum án þess að leita flókinna skýringa frá málvísindamönnum eins og algengast er með öðrum þjóðum. Þarna eins og annars stað- ar sameinar tungan okkur, eflir skilning okkar, gefur okkur óþijót- andi umræðuefni, ekkert síður en fámennið og frændræknin. Oft látum við að því liggja að landið sé stórt en þjóðin fámenn, jafnvel of fámenn. Hugsanlega eru þó menning okkar og siðvenjur þess megnugar að leggja okkur mikla líkn í þraut. Til dæmis er sennilegt að hver venjulegur íslendingur þekki miklu fleira fólk persónulega - bæði lífs og liðið - en mönnum tekst að komast yfir annars staðar í heiminum. Lífs eða liðið sagði ég, því engin þjóð sem ég þekki man eins vel þá sem gengir eru og hin íslenska, engin þjóð er jafn iðin við að draga þá inn í umræðuna um daginn og veginn með því að vitna til þess hvað þeir sögðu og gerðu. Þetta er éitt af einkennum menn- ingar okkar og með þessum hætti verður fámennið til að skerpa minni okkar, gera kynslóðabilið marklítið og um leið til að stækka þjóðina, fjölga í því liði sem við vitum af okkur til trausts og halds í tilver- unni. Og okkur er líka hollt að minn- ast forréttinda sem fylgja því að vera fámenn þjóð. Vissulega látum við okkur lynda ýmiskonar misrétti en fámennið ætti að gera okkur kleift að byggja þjóðfélag okkar á hugsjónum meira jafnréttis og öflugri samhjálpar en stórþjóðirnar eiga kost á, þar sem ávallt vofir yfir að einstaklingurinn verði ekki annað en peð í tafli sem enginn hefur yfirsýn yfir. Dýrasta sameign okkar, landið, tungan og minningamar, eflir okk- ur öryggiskennd. Við erum ekki rótslitin, við eigum okkur athvarf í himingeimnum. En einnig í sameign okkar, í nábýli okkar hvert við ann- að, felast mótsagnir. Við höfum kunnað að snúa bökum saman þeg- ar mikið lá við en í næstu andrá tökumst við á, gagnrýnum hvert annað eins og lífið liggi við, erum dómhörð og umburðarlynd á víxl, og ekki alltaf auðvelt að koma auga á rökvísina sem ræður því hvað verður ofan á. Þetta getur orðið böl, því við megum síst við því að bíða „þrjóskir við garðinn“ eins og segir í nýju Sturlungakvæði: „meðan sveit okkar máist í móðu sundrungar út.“ Þegar við á áramótum reynum að skyggnast fram í tímann hljótum við að minnast þess að þetta eru mikilvægustu forsendur framtíðar okkar: Landið og fólkið. Án byggilegs lands á fólk sér enga framtíð. Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um það hvernig við höfum á liðnum öldum gengið um land okkar, jafnvel svo að sumum hefur þótt horfa til auðnar. Hins vegar vil ég minnast þess að fyrir dyrum stendur merkilegt átak í tengslum við sextugsafmæli Skóg- ræktarfélags íslands, nú á nýbyij- uðu ári, og er kennt við ræktun landgræðsluskóga. En land- græðsluskógur er skilgreindur sem allar þær landgræðslu- og gróður- verndaraðgerðir, sem leiða til þess að örfoka eða lítt gróið land verði klætt tijágróðri að nýju, eða öðrum jurtagróðri sem bindur mold og býr í haginn. Um gróður gildir það sama og um lífsyndi okkar, börnin. Ef við viljum lifa það að sjá gróskurík- an árangur, þá verðum við að byija strax, - það er aldrei hægt að draga neitt á langinn sem varðar ræktun. Jafnvel um miðjan vetur verður að gera áætlanir um, hvernig standa eigi að verki strax og tækifæri gefst. Landið sem við nefnum ætt- jörð okkar hefur oft leikið okkur hart. Það hefur með öðru leitt til þess að við höfum gengið harðara að því en skynsamlegt hefði verið. Vera okkar í landinu hefur ekki samrýmst því að landkostir héldust. En nú höfum við sem betur fer gert okkur grein fyrir illri þróun og viljum snúa við blaðinu. Færa landinu aftur það sem frá því var tekið. Og þá gefúm við sjálfum okkur um leið þá gjöf að eiga miklu betra land að una við. Ég líkti saman tijárækt og upp- eldi barna. Til lítils kemur okkur að rækta upp örfoka land ef við gleymum því að öll framtíð þjóðar- innar veltur á þeim sem nú eru börn. Ef okkur gleymist að hlúa að þeim kemur landgræðsla fyrir lítið. Fyrir nokkru voru stofnuð tvenn samtök, annars vegar ís- landsdeild alþjóðasamtaka um upp- eldi barna áður en þau ná skóla- skyldualdri OMEP og hins vegar samtök sem til bráðabirgða eru nefnd „Hjálpum börnum“ og vinna eiga að barnaheill og bættum hag barna hér á íslandi. Þessi samtök stefna að þörfu átaki í aðhlynning- armálum bama, - og mun nú líklega margur spyija hvort eitt- hvað skorti á að börnum sé sæmi- lega sinnt á íslandi. Búum við ekki við það lán að öll börn fá að borða á íslandi og enginn gengur klæð- laus? Vonandi er það rétt. Þó er það nú svo að mörgum er hagur barna í þessu vinnuþreytta þjóðfélagi mik- ið áhyggjuefni og greinilega er nauðsynlegt að finna leiðir til lausn- ar. Við verðum að játa það fyrir okkur sjálfum að börn okkar em afskipt. Við höfum verið svo ánægð með allt það frelsi sem okkur hefur áskotnast og gengið svo áköf til vinnu til að afla verðmætanna, án þess að láta þar á móti koma ömgg- an umhyggju- og uppeldisstað fyrir börnin, skóla og námsstofnanir, að við höfum gengið svo langt að láta börnin ganga sjálfala. Það er eins og við höldum að þau geti bjargað sér sjálf, að þau læri af sjálfsdáðum að tileinka sér verðmæti lífsins, svo sem fróðleik ýmiskonar og sjálfs- aga. Þá höfum við gleymt því, að ekki gátum við, sem nú emm full- orðin, bjargað okkur sjálf til uppeld- is. Við fengum aðstoð, okkar rækt- un, þegar við vorum börn og styrk til að nýta hana. .Þessa aðstoð fengum við hjá full- orðnum sem Ieiðbeindu og töluðu við okkur og umgengust okkur eins og þær manneskjur sem þeir vildu að við yrðum, þjóðinni til gagns þegar við eltumst. Öll börn eiga rétt á þessari hjálp. Öll böm eiga rétt á því að fá frá okkur fullorðn- um uppeldi til að njóta þess að lifa, hjálp til að sjá og nálgast það sem gefur lífinu gildi. Þegar nú sam- félag okkar hefur þróast til þess að hveiju heimili dugi ekki minna Frú Vigdís Finnbogadó'ttir forseti Islands en tveir til fyrirvinnu, ef sinna á kröfum tímans, þá verður eitthvað annað að koma í staðinn til leið- sagnar og uppeldis. Þá verður með nýjum hætti að tryggja öllum börn- um full mannréttindi. Ég tel líka að hér séu hyggindi sem í hag koma - hvert skref sem stigið er til að kenna börnum að njóta andlegra verðmæta verður til þess að þau geti betur aflað sér hinna veraldlegu, án þess að mikla þau fyrir sér. Við verðum að gefa börnunum af tíma okkar og reynslu og vinsamlegum skilningi svo þau viti betur að maður er manns gam- an um leið og þau kunni að vera ein með sjálfum sér og afla sér gleði við annað en það sem mölur og ryð fá grandað. Óg öll börn eiga heimtingu á uppeldi til þess að verða manneskjur í einu og öllu, til þess að njóta samvista við aðra en óttast þá ekki. Ekkert okkar fær í vöggugjöf skemmdarfýsn eða kunnáttu til ofbeldisverka. Ekkert barn á skilið að alast upp til slíkrar hegðunar. Þegar við um þessi áramót reyn- um að sjá tilveru okkar, það að vera Islendingar, í víðara sam- hengi, hugsum við ekki síst til þess hvers virði séreinkenni okkar, þjóð- menning ökkar, er í heimsmenning- unni. Heimsmenning og þjóðmenn- ing: Þetta tvennt skarast alltaf, því enginn er eyland. í þjóðmenning- unni er ávallt margt að finna sem er heimsmenning. Án þjóðmenn- inga sem eru sjálfum sér trúar væri engin heimsmenning. Og mætti ég þá í leiðinni minna á þann augljósa sannleik að heimurinn er ekkert annað en við, hér og nú, og að ábyrgð okkar er að bregðast á hveiju augnabliki sem líður við því hvernig hann er frá stund til stund- ar. Á þetta höfum við verið átakan- lega minnt í jólamánuði 1989. En þar fyrir utan er þjóðmenning sér- eign þjóðar, sem verður að fá að hugsa sitt í ljósi þess hvar hún býr á jarðhnettinum og í Ijósi þess sem yfir haná hefur gengið. Þetta er sú menning sem er séreign hverrar þjóðar, auðlegð sem aldrei verður frá henni tekin. Vitundina um þessa auðlegð sköpum við okkur í tungumálinu. Þar erum við rík en megum þó ekki láta þar við sitja. Hver og einn rækti garðinn sinn segir í frægri bók. Og það er til margs konar ræktun. A nýliðnu ári var efnt til málræktarátaks og er talið að hafi lánast vel. En því átaki má ekki vera lokið. Því má aldrei ljúka. Öll ár í lífi þjóðarinnar verða að vera málræktarár. Okkur getur ekki liðið vel, við getum ekki eignast lífsfyll- ingu í þjóðerni okkar, nema með því að rækta tunguna sem best, þetta orðríka, gagnsæja og lang- minnuga tungumál, sameign okkar. Við viljum ekki að fyrir íslenskri tungu fari eins og latínu, að afkom- endur okkar verði að setjast á skóla- bekk og nálgast hana sem fram- andi tungu til að geta lesið um okkur sjálf. Við verðum að láta það renna okkur í merg og bein að hvert orð sem gleymist er glataður sjóð- ur, ómissandi lykill úr stórri lykla- kippu, hvert örnefni innstæða á minningabanka með góðum vöxt- um. Þá þurfum við einnig að tryggja það að þeir sem við taka kunni að tileinka sér bækur, haldi áfram að lesa okkar eigin bækur um okkar eigin veruleika og kunni og skilji ljóð okkar. Ég hef lengi verið þeirr- ar trúar að ljóð þjóðarinnar varð- veiti svo vel ótal orð og blæbrigði í ríkidæmi tungunnar sem stöðugt er í hættu að glati purpurafaldi sínum. Og ljóð er auðvelt að læra - þau seitlast inn í minnið og efla til lesturs annars efnis sem á sama hátt er verðmætt. Við vitum að samkeppnin um tómstundirnar harðnar og að hætt er við að bók- lestri fari aftur. Við það yrðum við til muna fátækari. Því það verður seint ofmetið hve mjög það auðgar hvern mann að hafa vanist því að lesa. Vitað er fyrir margvíslegar rann- sóknir að lestrarvenjur mótast snemma, eða áður en börn eru 11 til 12 ára. En hver lítur eftir því að börn okkar læri að umgangast bókina sem ómissandi þátt í dag- legu lífi, sem ætti ekki að vera bundinn skyldu heldur er sjálfsagð- ur réttur barns sem elst upp í þessu landi. Og hver getur séð til þess að ljóðið taki þátt í því að rótfesta tunguna og ríkidæmi hennar með þeim virka hætti sem við helst vild- um? Að engir múrar rísi milli þeirra sem fara með bókmenntaarfinn og rækta hann og hinna sem á stund- um þykjast láta sér fátt um finnast. Þorsteinn skáld frá Hamri segir: Köllumst því á annað veifið! þú og ég og maðurinn sem fullyrðir stundum að sér leiðist ljóð; og hver veit nema maður sem fullyrðir að sér leiðist ljóð geti þrátt fyrir það . nært okkur á ljóði lífs síns sært okkur við ljóð alls lífs dag og dag. Góðir landsmenn. Ég hef eins og stundum áður látið mér tíðrætt um ræktun lands og lýðs. Skilji þó eng- inn orð mín svo að ég geri lítið úr því sem á þeim sviðum hefur verið unnið hingað til. Þar hefur oft ver- ið lyft grettistökum. En á hveijum tíma ber okkur skylda til að byggja á þeirri þekkingu sem við vitum besta og sannasta. Okkur ber ávallt að vera reiðubúin að endurskoða starfsaðferðir okkar, jafnt í land- rækt sem mannrækt. Við lifum tíma svo stórstígra breytinga að margir jafna til byltingar. Án þess að gera okkur sek um óleyfilega bjartsýni getum við meira að segja haldið því fram að þjóðir heimsins muni á nýjum áratug snúa sér að ræktun og uppbyggingu með stórfengleg- um hætti. Stórbætt sambúð ríkja og ríkjablakka leiðir til þess að stig- in eru merkileg skref í þá átt að skera niður vígbúnað, fækka eyð- ingarvopnum. Með því móti er dreg- ið að miklum mun úr líkum á því að styijaldir bijótist út manna í milli. Um leið verða til nýir mögu- leikar á því að semja sátt í stríði mannkynsins gegn móður náttúru, sem alltof lengi hefur staðið og haft hörmulegar afleiðingar. Heim- urinn gerir sig nú líklegan til að hrista sem víðast af sér fjötra, til að höggva eldflaugaskóg og snúa orku sinni og hugviti að því að vernda náttúrulegt umhverfi mannsins, - snúa við blaði, hreinsa mengunarkaunin, rækta upp, láta sár foldar gróa. Það er trú mín og von og ósk, að á þessu ári og þeim næstu munum við sjá vakningu um allan heim, samstillt átak til að bæta það sem við höfum óvart eða viljandi rifið niður eða eyðilagt, átak til að byggja upp jörðina sem við göngum á og manninn sjálfan. Fari svo, kann að blasa við okkur ný og mennskari framtíð á þessum síðasta áratug aldarinnar en okkur hefur dreymt um að undanförnu. í raunsærri bjartsýni höfum við þá fulla ástæðu til að segja af sannfær- ingarkrafti: Gleðilegt nýár, gifturíka framtíð. Guð blessi land vort og þjóð. Hjörtur Pálsson hlaut Utvarpsverðlaunin „Fyrir þann sem áður hafði skáldskap sinn í hjáverkum frá öðrum áberandi störfum, en hefúr nú nokkur ár stundað ritstörf ein og sjaldn- ast átt laun vís um mánaðamót kemur sér hvort tveggja vel, efnismun- ir og óvænt uppörvun andans", sagði skáldið Iljörtur Pálsson, er hann tók á gamlársdag við styrk úr Rithöfundasjóði Ríkisútv^rpsins úr hendi formanns sjóðsstjórnar, Jónasar Kristjánssonar. I ár er styrkurinn 350 þúsund krónur. Ennfremur sagði Hjörtur: „Það er eitur í beinum flestra höfunda að tala um fóstrin sín eða ófæddu börnin, en gjarnan vildi ég að mér auðnaðist að vinna handartak í þágu lífs og lriðar með því sem úr pennanum flýtur - og mega tala með því rödd mannúðar á máli fegurðar. Það er ósk og draumur.“ Morgunblaðið/Þorkell Hjörtur Pálsson tekur við rithöfundarstyrk Ríkisútvarpsins úr hendi Jónasar Kristjánssonar, formanns sljóðssljórnar. Nítján sæmdir fálkaorðunni FORSETI íslands sæmdi á nýársdag, samkvæmt tillögu orðunefnd- ar, eftirtalda Islendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu: Það lá því beint við að spyija verð- launahafann að hveiju hann væri að vinna nú. En Hjörtur hefur átt drjúg dagsverk víða á ritvellinum. Fjórða ljóðabók hans kom út fyrir 4 árum og auk þess hefur hann gefið út á vegum Menningarsjóðs sagnfræðiri- tið Alaskaför Jóns Ólafssonar, ferðabækur m.a. Martins Hansens og Ahlmans og þýtt mikið, m.a. 8 bækur Nobelshafans Singers. Þetta eru 15-20 bækur, flestar unnar með fullu starfi hjá Ríkisútvarpinu í 20 ár. En síðustu 5-6 árin hefur hann helgað ritstörfunum einum. Nú kvaðst Hjörtur vera að vinna að ævisögu, sem kemur væntanlega út í haust, þótt ekki vildi hann enn upplýsa hvem þar væri um að ræða. Því komi sér ákaflega vel að fá slíka aðstoð sem verðlaunin eru, þótt þau dreifist á fleiri verkefni. En draumur hans er fyrst og fremst að geta sinnt ljóðgerðinni. Ekki er þó ákveðið enn hvort einnig kemur út Ijóðabók eftir hann í haust. í ræðu sinni hafði Jónas Krist- jánsson vakið athygli á því að nokk- ur ár eru liðin síðan ljóðskáld hefur hlotið styrk úr þessum sjóði og vel væri við hæfi að styrkinn hljóti að þessu sinni ljóðskáld á góðum aldri, - sem að vísu hafi lagt nokkra stund á fleiri greinar bókmennta, sagði m.a.: „Ég hygg að í ljóðagerð hafi íslenskar bókmenntir risið einna hæst í nútímanum, á 19. og 20. öld. Og ég hygg að ástæðan sé sú að þar er þráðurinn óslitinn aftur til eld- fornra tíma, jafnvel eldri en íslands byggð. Skáldin byggja beint á gam- alli hefð og „aga mál sitt við stuðl- anna þrískiptu grein,“, jafnframt því sem þau sækja vökvun í erlenda ljóðastrauma á hveijum tíma“. En Jónas hafði m.a. gert að umtalsefni för sína á sl. ári á vit Vestur-íslend- inga, m.a. til heimilis Stephans G. í Markerville og vitnað í orð Sigurðar Nordals um hann: „Hann varð ham- ingjumaður á því að vaka, vinna og vaxa. Andvokur geta orðið okkur tær og óþorrin heilsuslind, þegar mest á reynir, af því að við stöndum þar augliti til auglitis við skáld sem í lífi sínu stóðu við hvert orð í ljóðunum.“ -E.Pá. Ágúst Bjarnason, fv. skrifstofu- stjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyr- ir störf að söngmálum. Almar Grímsson, lyfsala, for- mann Krabbameinsfélags íslands, Hafnarfirði, riddarakrossi fyrir störf að_ heilbrigðismálum. Frú Ásdísi Sveinsdóttur, Egils- stöðum, riddarakrossi fyrir störf að fræðslu- og félagsmálum kvenna. Frú Auði Laxness, Gljúfrasteini, Mosfellsbæ, riddarakrossi fyrir störf að menningarmálum. Baldvin Ti-yggvason, sparisjóðs- stjóra, Reykjavík, stórriddarakrossi fyrir störf að menningar- og spari- sjóðsmálum. Boga Pétursson, fv. verkstjóra, Akureyri, riddarakrossi fyrir störf að æskulýðsmálum. Eyþór Þórðarson, fv. kennara, Neskaupstað, riddarakrossi fyrir störf að skóla- og félagsmálum. Friðrik Pálsson, forstjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf að markaðsmálum sjávarútvegsins. Garðar Cortez, óperusöngvara, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf að tónlistarmálum. Guðmund Guðmundsson (Erró), listmálara, París, riddarakrossi fyrir málaralist. Jón Tómasson, fv. stöðvarstjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir emb- ættis- og félagsmálastörf. Ólaf Skúlason, biskup, Reykja- vík, stjörnu stórriddara fyrir störf að kirkjumálum. Óla M. ísaksson, verslunarmann, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf að atvinnumálum. Pálínu Ragnheiði Kjartansdóttur, forstöðukonu, Hveragerði, riddara- krossi fyrir störf að manneldismál- um. Pétur Sigurgeirsson, biskup, Reykjavík, stórkrossi fyrir störf að kirkjumálum. Dr. Sigríði Þ. Valgeirsdóttur, prófessor, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf að uppeldis- og kennslu- málum. Sigurð Magnússon, fram- kvæmdastjóra ÍSI, Reykjavík, ridd- arakrossi fyrir störf að íþróttamál- um fatlaðra. Sveinbjörn Sigurðsson, bygg- ingameistara, Reykjavík, riddara- krossi fyrir störf að byggingamál- Hannes hafði svart í skákinni gegn Lago og tefldu þeir Kóng- Indverska vörn. Hannes fórnaði skiptamun í miðtaflinu og vann skákina örugglega í 35 leikjum. í 11. umferð mótsins tapaði Hannes fyrir Georgy Serper. Hannes hafði hvítt í skákinni og | upp kom Sikileyjarvöm. Hann Dr. Þuríði J. Kristjánsdóttur, prófessor, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf í þágu kennaramenntun- fórnaði snemma skiptamun fyrir sókn, en sóknin gekk ekki alveg upp og gaf Hannes skákina eftir 29 leiki. 112. umferð tapaði Hann- es fyrir Englendingnum Demetrius Agnos. Hannes hafði svart og missteig hann sig í miðtaflinu og gafst upp eftir 31 leik. (Frcttatilkynning frá orðuritara) Hannes Hlífar varð í sjöunda til tólfta sæti Arnhem. Prá Þráni Vigfússyni, fréttaritara Morgunblaðsins. HANNES Hlífar Stefánsson vann Spánverjann Miguel Lago í 13. og síðustu umferð Evrópumeistaramóts unglinga 20 ára og yngri sem tefld var í gær. Hannes varð í 7.-12. sæti á mótinu með 7,5 vinninga, en Sovétmaðurinn Gregory Serper vann mótið næsta örugglega. Hann hlaut 10,5 vinninga, en næstu menn, þeir A. Dre- ev og Z. Hracek, fengu 9 vinninga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.