Morgunblaðið - 08.02.1991, Side 2

Morgunblaðið - 08.02.1991, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRUÁR 1991 ASÍ berst gegn hækkun fasteignagjalda: Skorar á félaga að beita sér í héraði MIÐSTJÓRN Alþýðusambands íslands hafur hvatt aðildarfélög sambandsins til að taka upp við- ræður við sveitarstjórnarmenn um að draga hækkanir fasteigna- gjalda til baka. Telur miðstjórnin að á milli áranna 1990 og 1991 megi gera ráð fyrir 7,5% launa- Hæstiréttur: Frávísunar Hafskips- máls krafist VERJENDUR fjögurra sak- borninga í Hafskipsmálinu hafa krafist þess að málinu verði vísað frá Hæstarétti, þar sem áfrýjunarfrestur hafi ver- ið liðinn þegar máli þeirra fjögurra var áfrýjað til Hæsta- réttar. Málflutningur um kröf- una var í Hæstarétti í gær. Dómur var kveðinn upp í Hafskipsmálinu í sakadómi Reykjavíkur 5. júlí í fyrra. í desember áfrýjaði sérstakur ríkissaksóknari í málinu því til Hæstaréttar hvað fjóra sakborn- ingana varðaði. Veijendur fjórmenninganna halda því fram, að áfrýjunar- frestur hafi verið liðinn, þar sem í lögum um meðferð opinberra mála sé tekið fram, að ríkissak- sóknari skuii taka ákvörðun um áfrýjun eigi síðar en þremur mánuðum eftir að dómsgerðir hafi borist honum í hendur. Þeir segja ákæruvaldið hafa fengið öll gögn, sem þurfti til að taka ákvörðun um áfrýjun, í hendur við uppkvaðningu dómsins í júlí. Af hálfu ákæruvaldsins er því neitað að áfrýjunafrestur hafi verið liðinn. Fresturinn hafi ekki byijað að líða fyrr en 14. des- ember í fyrra, þegar öll skjöl bárust endanlega frá sakadómi. Ekki er ljóst hvenær Hæsti- réttur úrskurðar um frávísun- arkröfuna, en það verður á næstunni. hækkun og 6,5% verðlagshækk- unum, en flest sveitarfélög hafi hins vegar ákveðið að hækka skattinn um 12%. Auk þess hafi ýmis sveitarfélög tekið upp sér- stök gjöld vegna þjónustu við húseigendur. Þessar hækkanir hafa valdið mikilli reiði alþýðu- sambandsmanna. Miðstjórn ASÍ hélt fund á mið- vikudag þar sem bent var á að hjöðnun verðbólgu í kjölfar þjóðar- sáttarsamninganna hafi á marg- víslegan hátt styrkt stöðu sveitarfé- laga. Nefnir hún til lægri vexti og auknar tekjur af aðstöðugjaldi, sem áætlað sé að hækki um 14% á milli ára. Forsetar ASÍ hafa rætt við for- ystumenn Sambands ísl. sveitarfé- laga og krafist þess að stjóm sam- bandsins beiti sér fyrir endurskoðun á ákvörðunum um fasteignagjöld. Þau samskipti hafa engan árangur borið og því er nú gripið til þess ráðs að beina því til alþýðusam- bandsmanna að þeir fylgi málinu eftir á sínum heimavígstöðvum. Forystumenn ASÍ hafa einnig rætt við forsvarsmenn stærstu tryggingafélaganna og mótmælt hækkunum tryggingaiðgjalda. Samþykkti miðstjórnin að fylgja því eftir með bréfum til allra trygginga- félaganna. Morgunblaðið/Þorkell Forystumenn stjórnmálaflokkanna hittust í sljórnarráðinu í gærmorgun en tókst ekki að ná samkomulagi um aðgerðir í Litháensmálinu. Málið var einnig rætt í utanríkismálanefnd. Á stærri myndinni eru forystumenn flokkanna f.v.: Stefán Valgeirsson, Þorsteinn Pálsson, Jón Baldvin Hannibalsson, Steingrímur Hermanns- son, Ólafur Ragnar Grimsson, Júlíus Sólnes og Málmfríður Sigurðardóttir. Á þeirri minni er utanríkismálanefnd ásamt ráðuneytismönnum f.v.: Kristín Einarsdóttir, Eyjólfur Konráð Jóns- son, Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra, Jóhann Einvarðsson formaður, Hjörleif- ur Guttormsson, Eiður Guðnason, Ragnhildur Helgadóttir og Þorsteinn Ingólfsson ráðuneyt- issljóri. Líklegt að í dag náist sam- staða um ályktun Alþingis Litháar gáfu rangar upplýsingar segir utanríkisráðherra EKKI voru teknar neinar ákvarðanir á fundum formanna sljórnmála- flokkanna og utanríkismálanefnar Alþingis í gær um aðgerðir varð- andi upptöku stjórnmálasambands við Litháen. Líklegt er talið að í dag náist samkomulag um að Alþingi álykti um málið, en efnisatriði þingsályktunar liggja ekki fyrir. Flokksformenn og utanríkismála- nefnd hittast aftur í dag. Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra segir að á fundi flokksformannanna í gærmorgun hafi ríkt samstaða um þá stefnu, sem ríkisstjórnin hafi ákveðið í málinu, þ.e. að taka beri upp við- ræður við Litháa um stjórnmála- samband í ljósi breyttra aðstæðna, þar á meðal samnings rússneska lýðveldisins við Eystrasaltslöndin um gagnkvæma sjálfstæðisviður- kenningu. Hins vegar var áherzlu- munur milli flokkanna. Sjálfstæðis- menn vilja ganga lengst og taka . upp stjórnmálasamband við Litháen þegar í stað, en í stjórnarliðinu eru uppi raddir um að fara beri hægt í sakirnar, Á fundinum lögðu flokksformenn fram ýmsar fyrir- spumir, sem utanríkisráðuneytið mun svara skriflega, og munu þau svör væntanlega flest liggja fyrir á fundi formannanna í dag, að sögn Jóns Baldvins. Stjórnmálasamband íslands og Litháens: Verður upphafið að al- mennri viðurkenningu - segir Algirdas Saudargas, utanríkisráðherra Litháens ALGIRDAS Saudargas, utanríkisráðherra Litháens, hefur undanfarn- ar vikur ferðast um Vestur-Evrópu til að „veita upplýsingar", eins og hann orðar það sjálfur, um ástandið í Sovétríkjunum og Litháens- málið. Saudargas fór úr landi 13. janúar, í þann mund sem sovéskar hersveitir beittu valdi gegn sjálfstæðissinnum í Vilnius. Honum er meðal annars ætlað að stofna útlagastjórn ef ríkissljórn Litháens verð- ur hrakin frá völdum. Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við ráðherr- ann símleiðis í gær þar sem hann var staddur á upplýsingaskrifstofu Litháens í London þá nýkominn frá Brussel. Saudargas var fyrst spurður álits í þessu efni. Ég get ekki sagt meira á þeim ummælilfh Jóns Baldvins Hannbalssonar utanríkisráðherra að fullt samkomulag hefði verið milli sín og ríkisstjórnar Litháens um hvernig standa ætti að því að koma á stjórnmálasambandi ríkjanna og enn væru sameiginleg skilyrði ekki uppfyllt. „Af hveiju spyrðu ekki utanríkis- ráðherra ykkar?“ svaraði Saudargas. Hann hefur verið spurður og hann segir að enn hafi skilyrðunum ekki verið fullnægt. „Ég get einungis sagt að við erum að ræða málin við íslensku ríkis- stjórnina og við nálgumst ákvörðun um þetta efni. Og ég get ekki rætt málið í smáatriðum." Er eining um það meðal stjórn- valda í Litháen hvernig eigi að halda á þessu máli? „Auðvitað. Frá okkar sjónarhóli er málið skýrt. Það eru engin vanda- mál. Við sækjumst eftir fullri viður- kenningu hvaða ríkis sem er. Við setjum enga skilmála." Eg spyr vegna þess að forseti Litháens, Vytautas Landsbergis, segist ekki skilja eftir hveiju íslend- ingar séu að bíða. „Ef til vill er hann þeirrar skoðun- ar. Sú skoðun ber vitni um þá ósk að málin gangi hraðar fyrir sig. En það er ekki í neinni mótsögn við stefnu okkar. Hlutirnir þokast í rétta átt, það er allt og sumt sem ég get sagt.“ En hvert er gildi þess fyrir ykkur að taka upp stjórnmálasamband við ísland? „Það hefur mikið gildi. Það verður upphafið að almennri viðurkenningu sjálfstæðis Litháens." Hefurðu fengið vísbendingar um að önnur ríki rnuni fylgja í kjölfarið? „Ég er ekki reiðubúinn að ræða það mál.“ Hver eru viðbrögð þín við því að sovéska ríkisstjórnin hefur mótmælt afskiptum íslenskra stjórnvalda af Litháensmálinu? „Það kemur mér alls ekki á óvart." Hvenær verður undirritaður milliríkjasamningur Rússlands og Litháens? „Ég er ekki tilbúinn að ræða það. Almennt vil ég sem minnst segja á þessu stigi. Þú verður að sýna þolin- Algirdas Saudargas mæði, það gerum við. En hlutirnir þokast í rétta átt.“ Nú hefur þú ferðast um Vestur- Evrópu undanfarnar vikur. Hvernig gengur að afla stuðnings við málstað Litháens? „Ég er fremur að veita upplýsing- ar en að afla stuðnings. Litháar vörðu sitt þing upp á eigin spýtur. ÞSö voru ekki ríki Vestur- eða Austur-Evrópu sem vörðu þinghúsið fyrir áhlaupi. Ég er fyrst og fremst að reyna að upplýsa menn um þá miklu kreppu sem er hafín í Sov- étríkjunum. Ég reyni að hvetja menn til að byggja stefnu sína á raunveru- legri þróun mála fremur tálsýnum, vonum og sambandi við einstaka menn.“ Á fundi utanríkismálanefndar Alþingis útskýrði utanríkisráðherra stöðu málsins og samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins er vilji fyrir því í nefndinni að Alþingi álykti um stjómmálasamband við Litháen. Hins vegar liggur ekki fyrir um hvað ályktunin verður, en lögð er áherzla á að hún verði samþykkt samhljóða. „Ef það er ályktun, sem staðfestir að Alþingi íslendinga sé einróma um þessa stefnu, þ.e.a.s að ljúka undirbúningi að því að koma á stjórnmálasambandi, þá er ég prýðilega ásáttur við það,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson er hann var spurður álits á málinu. Jón Baldvin sagði að samningur Rússlands við Litháen yrði væntan- lega undirritaður innan viku, en ekki lægi fyrir hvenær hann yrði staðfestur í rússneska þinginu. Jón Baldvin segir að það hafí verið sam- eiginlegur skilningur sinn og Saud- argas, utanríkisráðherra Litháa, að sá samningur skipti sköpum um þjóðréttarlega stöðu Litháens. Jón Baldvin sagði að mikilvægt væri að flana ekki að neinu í málinu, heldur vinna það faglega til þess að málflutningur íslendinga stæðist gagnvart Helsinkisáttmálanum, og gagnvart sovézkri gagnrýni. Þannig væri bezt tryggt að önnur ríki gætu séð sér fært að fylgja í spor íslend- inga. Jón Baldvin sagði að þingsendi- nefndin, sem send var til Litháens, hefði fengið þær upplýsingar að tækju íslendingar upp stjórnmála- samband við landið, hefðu Litháar handsal frá Havel Tékkóslóvakíu- forseta og fullvissu Walesa Pól- landsforseta fyrir viðurkenningu sjálfstæðis, og þeir mætu það einn- ig svo að danska og kanadíska ríkis- stjórnin myndu feta í fótspor íslend- inga. „Ég var krafinn um að afla upplýsinga um það hvort þessar upplýsingar væru traustar, og nið- urstaðan er sú að þessu er alger- lega vísað á bug. Þessar upplýsing- ar hafa ekki reynzt réttar,“ sagði Jón Baldvin. Hann sagðist persónu--. lega ekki telja- að þetta hefði áhrif á samskiptin við Litháa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.