Morgunblaðið - 08.02.1991, Page 44

Morgunblaðið - 08.02.1991, Page 44
— svo vel sétryggt FOSTUDAGUR 8. FEBRUAR 1991 VERÐ I LAUSASOLU 100 KR. Farmenn vilja fá 2% ^hækkun frá 1. janúar STJÓRN Sjómannafélags Reykjavíkur hefur krafist þess af útgerðarmönnum kaupskipa að farmönnum verði greidd 2% launahækkun umfram almennar launahækkanir, sem hafi átt að koma til framkvæmda 1. janúar sl. samkvæmt kjarasamningi sem félagið gerði í júlimánuði 1989. Jón H. Magnússon, lögfræðingur hjá Vinnuveitendasambandi Is- lands, segir að Sjómannafélaginu hafi verið svarað því til, að bráða- birgðalögin sl. sumar hefðu kippt ' —^þeirri hækkun úr sambandi og því væri óheimilt að greiða hana. Sljórn SR hefur samþykkt,, að hún muni að sækja þessa launahækkun með öllum tiltækum ráðum. Gúðmundur Hallvarðsson, for- maður Sjómannafélagsins, sagði í ■ samtali við Morgunblaðið að kjara- samningurinn sem um ræðir hefði verið gerður til 30 mánaða og sagði að hækkunin hefði að áliti Sjómanna- félagsins verið sérstök greiðsla vegna þess hversu langur gildistími samn- jg-Jngsins væri. I samningnum segir að laun skuli hækka um 2% frá og með 1. janúar 1991. Hækki kaup- taxtar viðmiðunarhópa umfram þetta á árinu breytist launataxtar SR til samræmis frá sama tíma. „Við telj- um ekki að þetta brjóti í bága við þjóðarsátt og bendum á hækkanir í sérsamningum aðstoðarlækna og flugumferðarstjóra að undanförnu," sagði Guðmundur. Hásetar í Sjómannafélaginu töldu sig einnig eiga rétt á hækkun í sept- ember á síðasta ári en útgerðarmenn töldu þá hækkun stangast á við bráðabirgðalögin og neituðu að greiða hana. Mótmælti Sjómannafé- lagið því í bréfi til VSÍ að sögn Jóns H. Magnússonar, þar sem því var ^lýst yfir að það áskildi sér allan rétt til kröfugerðar og virkni gildandi kjarasamnings, þegar lögin falla úr gildi 16. september 1991. „Þetta ákvæði um 2% hækkun var tekið úr sambandi með lagasetning- unni og það er ekki á okkar valdi að brejrta því,“ sagði Jón. Gertklárt upp á von og óvon Morgunblaðið/Arni Sæberg Gæftir hafa verið með eindæmum lélegar það sem af er ári og afli báta ætlaði á loðnuveiðar, en ekkert nýtt hefur komið fram í loðnumælingum lítill. Hér er skipveiji á Húnaröst ÁR að gera trollið klárt. Húnaröst og veiðibann því enn í gildi. Sjómenn bíða og vona að fiskurinn finnist. Ullarvörusala Álafoss til Sovétríkjanna: Sovézka samvinnusam- bandið frestar viðræðum Kyndugt að þetta komi upp á þessum tíma, seg’ir Ólafur Ólafsson forstjóri Álafoss S AMNIN G AMENN sovézka samvinnusambandsins frestuðu í gær viðræðum við fulltrúa Ala- foss í tíu daga til tvær vikur. Jón Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Ráðherra sagði ekki Ijóst, hvers vegna Sovétmenn gerðu þetta og sagðist aðspurður ekki ætla að tengja þetta neinum sérstök- um atburðum öðrum, en minnti á, að samningaviðræður við Sovétmenn um saltsíldarkaup, olíuviðskipti og fleira hefðu lent T3- Í Háskólí íslands áformar rekstur sjónvarpsstöðvar Sjónvarpað um allt land á sérstakri rás FYRIRHUGAÐ er að Háskóli ísiands setji upp sjónvarpsstöð, Fræðslu- og menningarsjónvarp Háskóla íslands. Háskólaráð sam- þykkti í gær að leita eftir heimild og stuðningi við uppbyggingu stöðvarinnar. Þegar hefur verið rætt óformlega við menntamála- ráðuneytið um að fá sjónvarpsrás til umráða og afnot af dreifi- kerfi Rikissjónvarpsins. Fræðslu- og menningarsjónvarpið myndi því sjónvarpa um allt land. Þá hefur verið rætt um að stöðin fái það fjármagn, sem ætlað er til fjarkennslu á fjárlögum, en Ríkis- sjónvarpið heldur nú ekki uppi fjarkennslu með því sniði, sem áður var að stefnt. Að sögn Sigmundar Guðbjarna- sonar háskólarektors verður hlut- verk Háskólasjónvarpsins ijór- þætt. í fyrsta lagi á það að ann- ast íjarkennslu fyrir háskólastig, framhaldsskóla og grunnskóla. Hugmyndin er að stuðningsefni fyrir grunnskóla, sem nýttist í kennslu tungumála og annarra greina, yrði til dæmis sent út að morgni dags. I öðru lagi á sjón- varpsstöðin að efla endurmenntun og símenntun. í þriðja lagi á að sjónvarpa fræðsluefni til almenn- ings og í fjórða lagi að fjalla um menningarmál almennt og styrkja sérstaklega íslenzka tungu og menningu. Rektor sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að ætlunin væri að leita til einkageirans um stuðning við fjármögnun fyrir- tækisins. Eftir væri að huga nán- ar að rekstrarformi, en til greina kæmi að Háskólinn ræki sjón- varpsstöðina í samstarfi við einka- aðila. Hann sagði að settar hefðu verið fram grófar hugmyndir um stofnkostnað, en vildi ekki fara með tölur í því efni. „Við höfum húsnæði til þess arna í Odda, kjáll- arinn í seinni áfanga byggingar- innar var beinlínis hannaður með það í huga að setja þar upp stúdíó, og þar væri hægt að koma upp mjög sómasamlegri aðstöðu," sagði Sigmundur. Rektor sagði að hugmyndin væri að leitað yrði fanga um út- sendingarefni í ýmsum löndum, en sjónvarpsskólar væru starf- ræktir meðal annars í Bretlandi, á Norðurlöndum og í flestum öðr- um löndum Evrópu og Norður- Ameríku. Af nógu erlendu kennsluefni yrði því að taka, auk þess sem íslenzkt efni yrði fram- leitt og sérstakur stuðningur veittur íslenzkri tungu. Rektor svaraði því játandi að líta mætti á samþykkt háskólaráðs frá í gær sem eins konar svar við auknu framboði á erlendu sjþnvarpsefni frá gervihnöttum. „Ég held að ekki verði litið fram hjá því að með þeirri þróun, sem nú er haf- in, og mun væntanlega ganga lengra, verður vafalítið brýnna að styrkja þessi mál heima fyrir. Sjónvarpið er sá miðill sem er sterkastur í því efni,“ sagði Sig- mundur. í margvíslegum töfum vegna efnahagserfiðleika í Sovétríkj- unum. Olafur Ólafsson forsljóri Alafoss sagði aðspurður, að ekki væri hægt að tengja þetta beint við Litháensmálið, en taldi samt kyndugt að þetta skyldi koma upp með þessum hætti nú. Samningaviðræður um kaup sovézka samvinnusambandsins á ullarvörum frá Álafossi á þessu ári hófust í Moskvu á þriðjudag. Olafur Olafsson forstjóri Álafoss sagði að í gær hefðu sovézku samningamennirnir óskað eftir fresti í tíu daga til hálfan mánuð. Aðspurður um skýringar sagði Ólafur að Sovétmennirnir hefðu gefið þær skýringar að þeii' vildu skoða betur verðlagsþróun og gjaldeyrismál. Hann sagði að ekki væri hægt að tengja þetta beint við Litháenmálið en það væri kynd- ugt að þetta mál kæmi upp með þessum hætti nú. Sovézka samvinnusambandið hefur venjulega keypt ullarvörur frá Álafossi fyrir hátt í 200 milljón- ir kr. á ári, að sögn Ólafs. Álafoss hefur nýlega gengið frá samningi við Rosvnishtorg, fyrir- tæki lýðveldisins Rússlands, um. kaup á ullarvörum í ár og næsta ár. Verðmæti samningsins er rúm- ar 630 milljonir kr., þar af um 320 milljónir kr. á þessu ári. Er þetta í fyrsta skipti sem íslenzkt fyrir- tæki gerir stóran viðskiptasamning beint við fyrirtæki einstaks lýð- veldis í Sovétríkjunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.