Morgunblaðið - 13.04.1991, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1991
ÞETTA ERU
OKKAR MÁL...
Verðbólga niður. Kaupmáttur upp!
Samgöngubylting í þágu byggðanna.
Áframhaldandi áfangasigrar í menningarmálum.
Burt með kvótakerfið. Ný hugsun í sjávarútvegsmálum.
r
JWtóáur
r
a
motBtm
v_______
ÁRBÆJARKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Fermingarguðs-
þjónusta kl. 14, altarisganga. Org-
anleikari Jón Mýrdal. Miðvikudag:
Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 16.30.
Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Fermingarguðsþjónusta og alt-
arisganga kl. 14. Árni Bergur Sig-
urbjörnsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Fermingarguðs-
þjónusta með altarisgöngu kl.
13.30. Organisti Daníel Jónasson.
Þriðjudag: Bænaguðsþjónusta kl.
18.30. Altarisganga. Gísli Jónas-
son.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Gastur í heimsókn:
Hemmi Gunn. Guðrún Ebba Ólafs-
dóttir, sr. Pálmi Matthíasson.
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti
Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Pálmi
Matthíasson. Kirkjuleg sveifla kl.
17. Jazz, blús og negrasálmar.
Hljómsveit, einsöngvarar.
DIGRANESPRESTAKALL: Ferm-
ingarguðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 10.30. Barnasamkoma í
safnaðarheimilinu við Bjarnhóla-
stíg kl. 11. Sr. Þorbergur Kristjáns-
son.
DÓMKIRKJAN: Kl. 11. Ferming og
altarisganga. Dómkórinn syngur.
Organleikari Marteinn H. Friðriks-
son. Barnasamkoma í safnaðar-
heimilinu á sama tíma. Prestarnir.
Kl. 17. Síðdegismessa. Sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson. Miðvikudag:
Hádegisbæniríkirkjunni kl. 12.15.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta fellur niður vegna lagfær-
inga í hátíðasal.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Umsjón Jó-
hanna Guðjónsdóttir. Ferming og
altarisganga kl. 14. Prestur sr.
Hreinn Hjartarson. Organisti
Guðný M. Magnúsdóttir. Þriðju-
dag: Fyrirbænir í Fella- og Hóla-
kirkju kl. 14. Fimmtudag: Helgi-
stund fyrir aldraða í Gerðubergi
kl. 10 f.h. Sóknarprestar.
GRAFARVOGSSÓKN: Messu-
heimili Grafarvogssóknar, Félags-
miðstöðin Fjörgyn. Útvarpsmessa
kl. 11. (Athugið breyttan mess-
utíma.) Einsöngvari: Signý Sæ-
mundsdóttir. Kirkjukórinn syngur.
Organisti Sigríður Jónsdóttir.
Síðasta barnamessa sunnudaginn
21. apríl. Barnamessuferð 27.
apríl. Sr. Vigfús Þór Árnason.
GRENSÁSKIRKJA: Fermingar-
messa kl. 10.30 og kl. 14.00. Altar-
isganga. Organisti Árni Arinbjarn-
ar. Barnastarfið. Farið í heimsókn
í Háteigskirkju. Lagt af stað frá
Austurveri kl. 11 f.h. Þriðjudag kl.
14: Biblíulestur. Miðvikudag:
Helgistund fyrir aldraða kl. 11.
HALLGRÍMSKIRKJA. Messa og
barnasamkoma kl. 11. Sr. Ragnar
Fjalar Lárusson. Þriðjudag: Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beð-
ið fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Kl. 10: Morgun-
messa, sr. Arngrímur Jónsson. Kl.
11: Barnaguðsþjónusta. Kirkjubíll-
inn fer um Suðurhlíðar og Hlíðar
fyrir og eftir guðsþjónustuna. Kl.
14: Messa, sr. Tómas Sveinsson.
Kvöldbænir og fyrirbænir eru í
klrkjunni á miðvikudögum kl. 18.
Sóknarnefndin.
HJALLAPRESTAKALL: Messusal-
ur Hjallasóknar, Digranesskóla.
Barnamessa kl. 11. Lok barna-
starfsins. Ferming í Kópavogs-
kirkju í<l. 13.30. Sr. Kristján Einar
Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
starf í safnaðarheimilinu Borgum
kl. 11. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Fermingarmessa á vegum Hjalla-
sóknar í Kópavogskirkju kl. 13.30.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Guðsþjónusta kl.
11. Vekjum athygli á því að Óska-
stund barnanna og hin almenna
guðsþjónusta eru sameinaðar
næstu 3 sunnudaga. Prestur sr.
Hundalíf o g himnaríki
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Allir hundar fara til himnaríki-
s(„All Dogs Go to Heaven“).
Leikstjóri: Don Bluth. Raddir:
Burt Reynolds, Loni Anderson,
Dom DeLuise, Judith Barsi.
Don Bluth er einn af afkasta-
mestu teiknimyndahöfundum
Hollywood en nú er til sýninga
í Bíóhöllinni um helgar myndin
Allir hundar fara til himaríkis
sem hann gerði árið 1989. Það
er fjörug og skemmtileg teikni-
mynd með röddum Burt Reyn-
olds, eiginkonu hans Loni Ander-
son og Dom DeLuise.
Umhverfið er hið skuggaleg-
asta og það er dimmur og
drungalegur svipur yfir myndinni
allri en húmorinn og léttleikinn
er Iíka fyrir hendi og söngatriði
nokkur, en best af þeim er
spaugilegt númer með risastór-
um krókódíl. „Allir hundar“ er
ekki eins falleg og stórfengleg
og Litla hafmeyjan en hún er
engu að síður ágætis skemmtun.
Myndin gerist í skuggalegri
undirheimaveröld New Orleans
árið 1939. Hundar eru í öllum
aðalhlutverkum og meginhund-
urinn, sem Reynolds talar fyrir
og heitir Kalli, sleppur úr haldi
og vitjar glæpaforingjans sem
sölsað hefur undir sig vafasama
starfsemi þeirra í fjarveru hans.
Glæpaforingjanum tekst að
drepa Kalla sem fer til himna en
stelst þaðan aftur til að hefna
sín með ófyrirsjáanlegum afleið-
ingum.
Eins og sjá má hefur drauga-
gangurinn úr leiknu myndunum
tekið sér bólfestu í teiknimyndun-
um líka en Kalli framlengir jarð-
vist sína til að ljúka sínum málum
hér á jörð svipað og Patrick
Swayze í Draugum. Nema Kalli
er enn af holdi og blóði þegar
hann snýr aftur og við tekur
æsandi uppgjör við glæpaforingj-
ann. Inn í söguna fléttast angur-
vær saga um munaðarlausa
stúlku í leit að íjölskyldu en Kalli
verður að sjálfsögðu bjargvættur
hennar.
Bluth heldur ágætum hraða í
frásögninni, spenna og kómískur
léttir skiptast á og drungalegt
New Orleans yfirbragðið - mest-
ur hluti sögunnar gerist að næt-
urlagi - þjónar sögunni vel. Prýð-
isgóð skemmtun.