Morgunblaðið - 13.04.1991, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 13.04.1991, Blaðsíða 51
. MQRQWBLAÍ)!# My.GAR.DAGUR ,13- ARRÍp,1991 51 ÆSKULÝÐSSTARF Fleiri strákar í fyrsta sinn Oft er litið svo á, að kristindóm- urinn sé bara fyrir krakka, konur og einstaka skrítna karla. Aðrir hafa lítið við slíkt að gera og eftirláti öðram andleg efni. Nóg annað og þarfara sé að hugsa um í daglega lífinu. Það þótti því sæta nokkrum tíðindum, að i fyrsta sinni í langan tíma, þá voru fleiri strákar á vorskólamóti Kristilegi’a skóla- samtaka í Vatnaskógi yfir bænda- gana. Alls mættu um 85 ungmenni á aldrinum 15-20 ára, sem tóku sér frí frá amstri skólans og hversdags- ins heima fyrir til þess að íhuga píslargöngu Frelsarans. Guðni Gunnarsson skólaprestur sá um fræðslu á mótinu, ásamt Guðmundi Guðmundssyni, Skúla Svavarssyni og Þórunni Elídóttur. Var þar farið í frumfræðslu kristin- dómsins, ásamt því, sem helgihald bænadagana var innt af hendi, svo sem að fasta á föstudaginn langa. Kristileg skólasamtök eru með samkomur í sal Kristniboðssam- bandsins á Háaleitisbraut 60. Þar mæta um 70-80 manns á fundum á laugardagskvöldum, og eru allir velkomnir þangað. Formaður er Gunnar Pétursson nemi. Þegar svo margir strákar sækja mót sem þetta, þá er um að gera að vera nógu alþýðleg og brosa framan í þá til þess að eftir manni verði tekið. Morgunblaðið/pþ á Konan sem lætur verkin tala Madonna og Sean Penn, saman á ný? SAMRUNI Madonna og Penn saman á ný? Það gengur fjöllum hærra, að fyrum hjónin Madonna og Sean Penn séu farin að hittast á laun og Madonna sagði nýlega í viðtali fyrir vestan haf að hún sakn- aði þess að eiga ekki fast heimili og fjölskyldu. Saknaði þess að eiga engin börn. Madonna sleit samvist- um við sambýlismann sinn Tony Ward fyrir rúmum mánuði siðan og Penn og sambýliskona hans Robin Wright eru einnig skilin að skiptum og er ungfrú Wright þó með barn þeirra Penns undir belti og er langt gengin. Vinir þeirra Madonnu og Penns segja þau enn ástfangin hvort af öðru, en ytri aðstæður og álag hafi eyðilagt þriggja ára hjónaband þeirra á sín- um tíma. í fyrrgreindu viðtali er haft eftir Madonnu að hún hafi verið undr- andi á því hversu vel sér hefði líkað við rólegt heimilislíf, það hafi meira að segja verið gaman að sjá um þvottinn, að bijóta saman nær- brækurnar hans Sean og para sam- an sokka úr þvottahaugnum! í við- talinu viðurkennir hún að hún þurfi að sjá Sean reglulega og ef þess sé ekki kostur hafi hún gert sér far um að sjá allar kvikmyndirnar sem hann hefur leikið í. Þá síðustu fékk hún ekki af sér að horfa á, enda getur þar að líta eldheita ástarsenu milli Sean og sambýliskonunnar fyrrverandi og tilvonandi barns- móðurinnar Robins Wright. I •S 5 Jóhanna Sigurdardóttir A ISAFIRÐI á almennum stjórnmálafundi í Stjórnsýslu- húsinu, sunnudaginn 14. apríl kl. 17.00. Ávörp: Kolbrún Sverrisdóttir, Ragnheiður Davíðsdóttir ojg Sighvatur Björgvinsson. Fundarstjóri Olína Þorvarðardóttir. Á SA UÐÁRKRÓKI á opnu kratakvöldi á Hótel Mælifelli, mánudaginnlö. apríl kl. 20.30, ásamtJóni Sæmundi Sigurjónssyni og Jóni Karlssyni. Ávörp, umræður og skemmtiatriði. Á SUÐURLANDI í heimsókn ásamt Árna Gunnarssyni í Hveragerði, Selfossi, Eyrarbakka og Stokkseyri, þriðjudaginn16. apríl kl. 13-19. Sighvatur Jón Sæmundur Arni ALÞYDUFLOKKURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.