Morgunblaðið - 19.05.1991, Page 42
85.35
MORGUNBLAÐIÐ rULI
...tv >;1 t,i <„• tiurr'TTrzn
42
STEIKARTILBOÐ
I apríl seldi Jarlinn
um 6.300 grillsteikur.
Ástæðcm:
Þær eru góðar - þær eru ódýrar.
NAUTAGRILLSTEIK
m. bak. kartöflu, kryddsmjöri og hrásalati
KR. 690,-
SVÍNASTEIK
m. bak. kartöflu, kryddsmjöri og hrásalati
KR. 650,-
BARNABOXIN
vinsælu með Ofurjarlinum:
Hamborgari, franskar og kók (auk
þess sælgæti o.fl.)
KR. 480,-
rlaður í bragði
TRYGGVAGÖTU - SPRENGISANDI - KRINGLUNNI
Meira en þú geturímyndad þér!
UNNUD
AGUR 19. MAÍ 1991
/4 l f 4 /. i VI I/ í : U-l / 1 Í I\
LIST
Er hægt að vera bæði
drottning og listamaður?
Margrét Danadrottning við eitt verka sinna.
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdótt-
ur, fréttaritara Morgunblaðsins.
Undanfarin ár hafa æ fleiri danir
gert sér grein fyrir því að
drottningin þeirra bæði teiknár
og málar, auk þess sem hún hefur
stundað þýðingar. Hún hefur
málað vatnslitamyndir í dagatöl
fyrir góðgerðarfélög,
myndskreytt bækur, teiknað
messuhökla og altarisklæði og
teiknað búninga og sviðsmynd
fyrir Konunglega leikhúsið.
Sem stendur er sýning eftir hana
í Noregi á vatnslitamyndum,
sem hún hefur málað undir áhrif-
um af árlegum skíða- og fjallaferð-
um sínum í norsku fjöllunum. Það
ber æ meira á henni sem lista-
manni og þó hún hafi lengi haft
listiðkunina sem tómstundaiðju,
virðist henni vera í mun að láta
taka sig alvarlega sem listamann.
En um leið hafa heyrst gagnrýnis-
raddir úr röðum listamanna og
annarra, sem láta sig listir varða.
í tilefni af sýningunni i Noregi
var sýnt í sjónvarpinu danska við-
tal við Margréti drottningu um
sýninguna og
tilurð hennar.
Daginn eftir
skrifaði Henrik
Sten Möller
blaðamaður við
Politiken dag-
lega sjónvarps-
gagnrýni blaðs-
ins og kom þá
inn á að staða
hennar sem
drottningar
gæti engan veg-
inn farið saman
við listamanns-
starfið. Blaða-
maðurinn skrif-
ar að staðaldri
um byggingar-
list og hönnun
og hefur skrifað
bækur um þessi
efni. í pistli sín-
um segir hann
að með því að kalla sig listamann,
taki drottningin stórt upp í sig.
Listamaður sé lífsstarf, full iðja
dag og nótt, svo annaðhvort van-
meti hún listamenn eða undirbúi
sig undir að stíga skrefíð til fulls.
Blaðamaðurinn segist vel geta
unnt henni að gleðjast yfir norskri
náttúru, en list sé ekki tómstunda-
iðja og geti ekki samrýmst jafn
erfiðu starfi og drottningarstarf-
inu.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Henrik Sten Möller skrifar um list-
iðkun drottningarinnar. Hann seg-
ist í hvert skipti fá að heyra að
svona megi hann ekki skrifa um
drottninguna, því hún geti ekki
svarað fyrir sig. Það segir hann
hins vegar vera rugl, því hún svari
með því að halda áfram að tala
um sjálfa sig sem listamann og
með því að taka hvað eftir annað
að sér verkefni sem fullgildur lista-
maður. Sýningin í Noregi sé enn
eitt svar frá henni.
Það þarf ekki að leita langt í
fjölskyldu Margrétar drottningar
til að finna listaáhugann. Móðir
hennar, Ingiríður drottning, er
þekkt fyrir áhuga á listum og list-
rænan smekk og bróðir hennar,
Sigvard Bernadotte, var arkitekt
og hönnuður, svo þar fékk listaá-
huginn að blómstra. Móðurafi
drottningar, Gústaf Adolf 6., var
reyndar ekki listamaður en sinnti
fræðistörfum í klassískri fornleifa-
fræði og menn-
ingarsögu.
Sigvard
Bernadotte var
ekki ríkisarfi og
þyrfti því ekki
að taka tillit til
opinberra
starfa. Gústaf
Adolf gat sinnt
fræðistörfum,
án þess að fara
inn á verksvið
annarra. Vand-
amálið kemur
upp, þegar
Margrét drottn-
ing vill láta taka
sig alvarlega
sem listamann
og tekur að sér
verkefni, sem
um leið verða
ekki látin eftir
listamönnum í
fullu starfí. Listamönnum, sem
hafa unnið til viðurkenningar í
krafti verka sinna. Drottningin
getur vart nokkru sinni búist við
að fá gagnrýni á verk sín óháð
því hver hún er og það hefur ótvír-
ætt auglýsingagildi að fela henni
verkefni. Hún verður að bíta í það
súra epli að verk hennar verða
seint metin á sömu forsendum og
annarra listamanna og að umsvif
hennar á listasviðinu vekja gremju
margra í listaheiminum.
V
Svona lítur norsk sveitasæla út í augum Danadrottningar.
Verð frá kr. 37.500.- í 2 vikur, 2 fullorðnir og 2 börn
Verð frá kr. 55.600.- í 2 vikur, 2 í stúdíói
Verð frá kr. 43.450,- í 3 vikur, 2 fullorðnir og 2 börn 2-11 ára
Verð frá kr. 59.800.- í 3 vikur, 2 í stúdíói
BROTTFARARDAGAR:
26. maí 9. júli 20. ágúst
4. júrú 16. júlí 27. ágúst
11. júní 23. júll 3. september
18. júní 30. júli 10. september
25. júní 6. ágúst 17. september
2. júlí 13. ágúst
(tttMTIK
FERÐASKRIFSTOFA HALLVEIGARSTÍG 1 SlMAR 28388-28580
BROTTFARARDAGAR:
29. maí
17. júnl
8. júlí
29. júlí
19. ágúst