Morgunblaðið - 24.09.1991, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 24.09.1991, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991 Geislamengrm í Sovétríkiunum: Alþjóðalög brot- in í Múrmansk? Danadrottmngu hrósað fyrir sviðshönnun Margrét Danadrottning hefur hlotið lofsamlega dóma fyrir frumraun sína í búninga- og sviðshönn- un - fyrir leikdans sem Anne Marie Vessel, eigin- kona danska forsætisráðherrans, Pouls Schlúters, setti upp. Ballettinn nefnist Þjóðsaga, er eftir Bo- urnonville og var saminn árið 1854. Hann var sýnd- ur í Konunglega danska leikhúsinu á föstudag í nýrri sviðsetningu Franks Andersens og Vessel, sem veitir Konunglega danska ballettflokknum for- stöðu. í sunnudagsblaði Politiken segir að hönnun drottningarinnar sé „smekkleg og hefðbundin". Berlingske Tidende segir að hún hafi „lagt áherslu á dönsk sérkenni ballettsins með dysjum, risastór- um eikartijám, grænum engjum í bakgrunni, grindmúruðum bændabýlum og bláum himni“. Á myndinni sést drottning hneigja sig fyrir áhorfend- um að lokinni sýningu. Lengst til hægri er Anne Marie Vessel. Moskvu. Reuter. SOVÉSK yfirvöld létu fleygja hylkjum með geislavirkum úr- gangsefnum í hafið við borgina Múrmansk á árunum 1963-1986 og brutu alþjóðlega samninga um Georgía: Sljórnarand- stæðingar taka sjónvarpshús Tbilisi. Reuter. ANDSTÆÐINGAR Zviads Gams- akhurdia, forseta Georgíu, hvöttu í gær til mótmæla við háskólann í Tbilisi, höfuðborg lýðveldisins. Honum hefur verið lokað vegna andófs gegn forsetanum. íjóðvarðliðar, sem styðja stjórnar- andstöðuna, voru með mikinn við- búnað í gær við sjónvarpsbyggingu í höfuðborginni, sem þeir náðu á sitt vald um helgina. Hafa þjóðarvarðlið- arnir meðal annars stórskotavopn og brynvarða bíla undir höndum. Stuðn- ingsmenn forsetans hafa tekið sér stöðu við stjómarbyggingar. Talið er að mótmælin auki enn á spennuna í höfuðborginni, sem hinar stríðandi fylkingar virðast hafa skipt á milli sín. Borgarbúar reyna að varast að stíga fæti á svæði, sem eru á valdi andstæðinganna. Gamsakhurdia fyrirskipaði að há- skólanum skyldi lokað í óákveðinn tíma til að draga úr styrk stjórnar- andstöðunnar, sem nýtur einkum stuðnings menntamanna, náms- manna og uppreisnarmanna á meðal þjóðvarðliða. Forsetinn hefur reynt að styrkja stöðu sína í höfuðborginni með því meðal annars að taka frá sæti fyrir stuðningsmenn sína í inn- anlandsflugi og senda langferðabíla eftir þeim. Hann nýtur einkum stuðn- ings í dreifbýlinu. Hundruð fylgis- manna hans sofa í rútum, sem eru notaðar sem vegatálmar við stjórnar- ráðið í Tbilisi til að veija forsetann fyrir hugsanlegri árás stjómarand- stæðinga. Gamsakhurdia ræddi við leiðtoga stjómarandstöðunnar á sunnudag en fundurinn bar lítinn árangur. losun úrgangsefna, að sögn þing- mannsins Andrejs Zolotkovs á ráð- stefnu á vegum Grænfriðunga í Moskvu. Zolotkov starfaði lengi hjá skipafélagi í Múrmansk og segist hafa séð skjöl um málið og einnig heyrt lýsingar sjónarvotta. Zolotkov segir efnin hafa komið úr kjarnaofnum ísbijóta og kafbáta flotans. „Það voru tvö skip sem not- uð voru við þessa iðju. Þau héldu úr höfn og losuðu efnin rétt undan ströndinni, það sást vel til þeirra úr landi,“ sagði hann. Sovétríkin undir- rituðu árið 1983 alþjóðasamning í London sem kvað á um bann við los-' un kjarnorkuúrgangs í hafíð. Grænfriðungar segjast hafa komið yfir sovéska skýrslu þar sem ljallað sé um viðbrögð ef kjamorkuslys verði á norðurhjara. Þeir segja að áætlað sé að allt að 26.000 manns geti far- ist ef kjarnaofn bráðni í hafi og mengunin geti borist 1.000 km leið frá slysstaðnum. Alls eru um 220 kjarnaofnar í herskipum og ísbrjótum Sovétmanna á norðurhjaranum, flest með bækistöð á Kólaskaga eða í Múrmansk-borg. Oft var hylkjum með úrgangi sökkt með því að bora göt á þau, að sögn Zolotkovs. EB og sjávarútvegsmálin í EES-viðræðum: Fréttum um hótanir vísað á bug Brussel. Frá Kristófer M: Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. FRÉTTUM um að Evrópubandalagið (EB) hygðist beita íslendinga og Norðmenn hótunum til að ná fram hagstæðu samkomulagi um sjávarútveg var vísað á bug af talsmanni bandalagsins í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann sagði að unnið væri að því af alvöru að semja við aðildarrríki Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) á grund- velli þess umboðs sem ráðherraráð EB hefði veitt. Fréttir um hvað tæki við ef samningar tækjust ekki væru því staðlausar vangaveltur. I frétt frá Reuters-fréttastofunni búið að semja tvíhliða við þau ríki á sunnudag sagði að EB hefði ákveðið að krefjast þess af Norð- mönnum og íslendingum að þeir gæfu eftir í kröfum sínum varðandi sjávarafurðir. Ef ekki næðist sam- komulag milli EB og EFTA um myndun Evrópsks efnahagssvæðis (EES) væri EB líka einungis reiðu- sem þegar hefðu sótt um aðild eða gera það fyrir 1993, var haft eftir embættismönnum. Viðmælendur fréttaritara Morg- unblaðsins vísa einnig á bug orð- rómi þess efnis að lagt hafi verið til að sjávarafurðum verði haldið utan við samninginn til að greiða fyrii' niðurstöðu. Af hálfu íslend- inga yrði slíkt frágangssök, að sögn heimildarmanna. Samkvæmt heimildum í Brussel hefur framkvæmdastjórnin lagt til við Norðmenn að þeir láti bandalag- inu í té sem svarar 20 þúsund tonn- um af þorski í veiðiheimildum í norskri lögsögu. Á samningafund- um með Islendingum hafa veiði- heimildir ekki verið ræddar til þessa en tilboð íslendinga um jafngildi 2.600 tonna af þorski í skiptum fyrir samsvarandi magn frá EB stendur enn. Framkvæmdastjórn EB hefur sent dómstóli bandalagsins í Lúx- emborg uppkast að samningi um EES til umsagnar. Samningavið- ræðunum um EES verður haldið áfram í Brussel í dag en þá hittast aðalsamningamenn EB og EFTA til að freista þess að binda enda- hnútinn á viðræðurnar. Það eru fyrst og fremst um þau ákvæði samningsins sem fjalla um úrskurð- arvald og lögsögu dómstóla hins sameiginlega efnahagssvæðis sem óskað er umsagnar Evrópudóm- stólsins á grundvelli 228. greinar Rómarsáttmálans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.