Morgunblaðið - 20.10.1991, Blaðsíða 25
MÖRGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓbER 1991
21
Palma Guðmunds-
dóttir - Minning
A morgun, mánudaginn 20. októ-
ber, er til moldar borin frá Foss-
vogskapellu elskuleg amma okkar,
Pálína Guðmundsdóttir, að Löngu-
hlíð\3, Reykjavík. Okkur barst sú
sorgarfrétt að hún amma hefði lát-
ist á heimili sínu að morgni 12.
október.
Við viljum kveðja ömmu hinstu
kveðju með þessum fáu orðum.
Amma var ákveðin en góð kona
og oft veitti hún okkur góð ráð og
skjól á okkar yngri árum.
Það varð ömmu mikið áfall, er
hún missti Leif afa fyrir 20 árum
og son sinn, föður okkar Gústafs,
fyrir tæpu ári.
Við vitum öll að amma er nú
loks komin þar sem hún vildi vera,
við hlið þeirra, og þar verða fagnað-
arfundir. I þeirri von og trú að þau
séu nú sameinuð á ný.
Hvíli elskuleg amma í friði.
Lækkar lífdaga sól
löng er orðin mín ferð.
Fauk í faranda skjól
fegin hvíldinni verð.
Guð minn, gefðu þinn frið
gleddu og blessaðu þá
sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá.
(H.A.)
Ágúst og Olla.
fomhjolp
Samhjálparsamkoma
verður í Wbúðum í dag kl. 16.00. Fjölbreytt dagskrá
með miklum söng og vitnisburðum. Samhjálparkórinn
tekur lagið. Barnagæsla. Söngtríóið „Beiskar jurtir” syngur.
Ræðumaður Göte Edelbring frá Svíþjóð.
Stjórnandi: Kristinn Olason.
Allir velkomnir.
Samhjálp.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
I minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn iátna. Leyfilegt er að
birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt
skáld, og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er birt-
ur. Meginregla er sú, að minn-
ingargreinar birtist undir fullu
nafni höfundar.
Réttu megin við stríkið með
Reglubundnum spamaði
Reglubundinn sparnaður - RS - er einfalt og sveigjanlegt sparnaðarkerfi
byggtá nýjum og gömlum þjónustuþáttum Landsbankans. RS hentar
öllum þeim sem hafa áhuga á að vera réttu megin við strikið í fjármálum.
Ávinningurinn er margfaldur: Þú eignast sparifé og ávaxtar það með öruggum og arðbærum hætti, átt
greiðari aðgang að lánsfé, kemst í hóp bestu viðskiptavina bankans og nærð betri tökum á fjármálum þínum
en nokkru sinni fyrr. Allt sem til þarf er að semja við bankann um að millifæra ákveðna upphæð reglulega inn
á Grunn, Landsbók, Kjörbók eða Spariveltu sem saman mynda RS.
Viltu stofna þinn eigin lífeyrissjóð, spara fyrir ákveðnum útgjöldum, leggja grunn að þægilegri fjármögnun
Við inngöngu í RS húsnæðis, tryggja þér skattafslátt, ávinna þér lánsrétt og tryggja þér örugga afburða ávöxtun
færðu þægilega hvort sem þú vilt spara í lengri eða skemmri tíma?
fjárhagsáætlunar- þátt í Reglubundnum sparnaði Lands- jÉjfjf LðDClStDdnkÍ
möpi.u fyrir heimilið þg^gpg Qg verjjur rettu megjn vjð strikið. Mk íslands
og fjolskylduna. JBBLJsk Banki allra landsmanna
IW Rcglubundiini
/•spamaður
Allar nánari upplýsingar fást í ítarlegum bæklingi sem liggur frammi í næstu afgreiðslu Landsbankans