Morgunblaðið - 20.10.1991, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 1991
27
VJterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
*Skilmálar
1. Eingöngu þeirsem eiga staðfestar bókanir f 3ja og.4ra daga
helgarferðir tii Londott á tímabilinu 30. októbertil 5. desembereru
gjaldgengirí leiknum.
2. Ferðin ervinningshbfum að kostnaðatiausu að undanskildum
flugvallarskatti sem er 1.250 kr.
3. Hringt verður (vinningshafa (síðasta i'agi fi/idjudaginn 29.
október. Haft ferðin verið að fulllu gneidd fyrir Jutnn tima verður
hún ettdurgreidd vinningshafa.
4 4
tU URVAL UTSVN
/ Mjódd: sími 60 30 60; vid AusturvöU: simi 2 69 00;
i Hafnarfirbi: simi 65 23 66; vib Rábhústorg á Akureyri: simi 2 50 00
- oghjá umbodsmönnum um land allt.
FLUGLEIDIR i
KiiBFARKCJRT FÍF
**Verð miðast viðgistingu dSt. Giles hótelinu, slaðgreiðs/u
ferðakostnaðar oggengi ogf/ugverð 15. okt. 1991.
F/ugva/larskattur, 1250 kr., ogforfallagjald, 1200kr.,eru ekki
innifalin iverði.
iO» S KJt S i «£? iJA 14U2- — -
Tryggðu þér strax sœti á veisluverði!
Laufey Einars-
dóttir - Minning
Sem móðir hún býr í bamsins mynd,
það ber hennar ættar merki.
Svo streyma skal áfram lífsins lind,
þó lokið sé hennar verki.
Óg víkja skal hel við garðsins grind,
því guð vor, hann er sá sterki.
(E. Ben.)
Mánudaginn 21. október verður
kvödd hinstu kveðju tengdamóðir
mín Laufey Einarsdóttir frá Bjargi
í Grindavík, síðast til heimilis í
Hólmgarði 42, Reykjavík.
Laufey lést í Hátúni 10B að
morgni 9. október eftir löng og erf-
ið veikindi.
Laufey fæddist 4. júlí 1909 að
Bjargi í Grindavík og var hún yngri
dóttir merkishjónanna Einars Guð-
mundssonar sem fæddur var í Múla-
koti í Fljótshlíð og Guðrúnar Jóns-
dóttur frá Dagverðarnesi á Rangár-
völlum, en þau Guðrún og Einar
bjuggu allan sinn búskap að Bjargi
í Grindavík og ólst Laufey þar upp
ásamt eldri systur sinni Guðríði sem
lést fyrir þremur árum, en Guðríður
var ljósmóðir Grindvíkinga um ára- ■
bil.
Þær systur ólust upp við mikið
ástríki foreldra sinna að Bjargi sem
var menningarheimili, en þar var-
bókakostur góður og var Einar fað-
ir þeirra stofnandi góðtemplara-
stúkunnar í Grindavík. Guðrún
móðir Laufeyjar var orðlögð gæða-
kona og áttu margir lítilsmegnugir
athvarf á heimili þeirra Guðrúnar
og Einars og báru þær systur það
með.sér að þær óiust upp á góðu
. heimili. Laufey gekk að eiga Loft
Georg Jónsson frá Arney í Breiða-
firði en hann lést fyrir 22 árum.
Þau Laufey og Loftur eignuðust 6
börn en einn son átti Loftur fyrir,
Skarphéðin sem kvæntur er Erlu
Egilsson, en hann ólst upp hjá þeim
frá 7 ára aldri. Börn þeirra hjóna
eru Eyrún Lára, gift Gunnari Gísla-
syni, Lofthildur Kristín, gift Ragn-
ari Franzsyni, Guðmunda, var gift
Eyjólfi Kristjánssyni, en hann lést
í ágúst sl., Helga, gift Gunnari
Kristjánssyni, Eiríkur Jón, hann
lést á öðru aldursári og Hrefna
Björk gift Hirti Karlssyni.
Þau Laufey og Loftur bjuggu sín
fyrstu búskaparár að Bjargi í
Grindavík og stundaði Loftur sjó-
mennsku á opnum bátum eins og
þá tíðkaðist, lengst af sem formað-
ur.
Árið 1936 fluttust þau hjón til
Reykjavíkur, þá var kreppan í al-
gleymingi og lítið um atvinnu og
þröngt í búi hjá mörgum, en þau
hjón létu ekki deigan síga, hóf Lauf-
ey störf utan heimilis og Loftur hóf
eigin atvinnurekstur sem fisksali.
Með dugnaði og ráðdeild tókst þeim
að sjá sér og börnum sínum far-
borða, enda var Laufey framúrskar-
andi húsmóðir og var sem allt yxi
í höndum hennar. Hún var fríð kona
sýnum og hafði flest það við sig
sem prýða má eina konu og heimili
hennar bar það með sér að hún
hafði næmt auga fyrir öllu því sem
fallegt var. Hún var dagfarsprúð
og tilfinninganæm en stóð sig samt
eins og hetja þegar á móti blés, en
hún fór ekki varhluta af mótlæti,
hún missti einkason sinn sem að
framan greinir, hún missti eigin-
manninn úr krabbameini og hafði
hún annast hann lengi heima í hans
erfiðu sjúkralegu með mikilli um-
hyggju og fórnfýsi. Ári siðar missti
hún tengdason sinn, mann Hrefnu,
af slysförum, en hann var aðeins
25 ára gamall er hann lést. Tók
hún þá Hrefnu og dætur hennar
tvær inn á sitt heimili og studdi hún
Hrefnu sem best hún gat í hennar
miklu sorg og reyndist dætrum
hennar sem besta móðir.
Þegar Laufey var orðin sjúkling-
ur var auðséð að Hrefna kunni að
meta hvað móðir hennar hafði fyrir
hana gert. Sonur Helgu, Róbert
Birgir, ólst upp á heimili Laufeyjar
með móður sinni til 15 ára aldurs
og þrjú önnur barnabörn hennar
dvöldu á heimili hennar um lengri
eða skemmri tírna og reyndist hún
þeim öllum eins og þau væru henn-
ar eigin börn, enda bar hún velferð
barnanna og barnabarnanna fram-
ar öllu öðru fyrir bijósti.
Þegar ég kom á heimili tengda-
foreldra minna sem ungur maður,
tóku þau mér strax opnum örmum
og reyndust þau mér og minni fjöl-
skyldu ætíð mjög vel. Þegar ég var
í Stýrimannaskólanum, þá nýbúinn
að kaupa fyrstu ibúðina og með tvö
börn, lánuðu þau mér allt sitt spari-
fé án þess að fyrir því væri nokkur
stafur skráður. Fæ ég það traust
sem þau sýndu mér seint fullþakk-
að.
Að leiðarlokum þakka ég fyrir
allt það góða>sem Laufey gerði fyr-
ir okkur öll sem áttum því láni að
fagna að kynnast henni.
Blessuð sé minning Laufeyjar.
Ragnar Franzson
ítilefni afbreskum dögum t Reykjavtk
getur þú tekið þátt í einföldum
og spennandi leik með Úrvali-ÍJtsýn.
ívinning eru fimm helgarferðir
til London á neestu vikunt.
Allir sem bóka helgarferð til London í næstu viku og staðfesta ferðina
með greiðslu staðfestingargjalds fyrir vikulok eru sjálfkrafa með í leiknum. Við drögum
síðan út nöfri fimm þátttakenda sem fá þessa helgarferð í vinning.
Helgarveisla í London slær öllu við: Leikhúsin, tónleikamir, listsýningamar, veitingahúsin,
verslanimar og fótboltinn. London býður einfaldlega betur.
Fjögurra daga helgarferð frá 31.730 kr. í tvíbýli.**