Morgunblaðið - 26.10.1991, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1991
,þarf bar&'GÁ írebbjCL. hann* upp etnu
sínni i rncLnutc ■"
Ast er...
... óyænt heimsókn.
TMReg. U.S. PatOff.—allrightsreserved
® 1991 Los Angeles Tímes Syndicate
Með
morgunkaffínu
(016 o
Ég spila nú eins og herfor-
ingi?
HÖGNI HREKKVISI
,$ATT AÐ SEG3A QlbrAR. HAMN SJ/1LPAN."
Um Fæðingarheim-
ili Reykjavíkur
Sinn er siður
í sýslu hverri
Á suðurlandi þar sem ég ólst upp
og þekkti til var það siður að ef
skepna sem átti að farga komst
undan fyrirhuguðu lífláti þá var
henni gefið líf. Þetta voru sem
óskráð lög og þá ekki horft í tíma-
bundið óhagræði af völdum þessa.
Fyrir aðeins fáum árum var sagt
frá atburði sem átti sér stað fyrir
vestan. Kýr sem komin var á slátur-
stað reif sig lausa og þreytti langt
sund yfir fjörð til þess að komast
heim. Vel var tekið á móti kúnni
og góðhjörtuð kona keypti hana og
forðaði frá dauða. Konan hlaut allra
lof fyrir og langt út fyrir sína
heimabyggð.
Átakanlegasta dýrasaga sem ég
hef lengi heyrt er sagan um kúna
Von sem leidd var til slátrunar á
Blönduósi. Kýrin, sem var stór og
fallegur gripur, fimm vetra gömul,
reif sig lausa. Nú skyldi haldið heim,
þar væri helst vægðar að vænta.
Fljótt bar af réttri leið í eltingaleikn-
um og um skeið haldið til fjalls og
farið vítt um. Farin var um 30 km
leið á.flótta undan dauðanum. Eftir
aðeins sólarhrings frelsi tókst að
laumast að kúnni og senda henni
kúlu í gegnum höfuðið.
Sunnlendingur
Keli er týndur!
Kisi er gulbröndóttur og hvítur.
Hann sást síðast í bakgarði við
Grettisgötu 74, mánudaginn 21.10.
Keli er bæði með hálsól og einnig
eyrnamerkingu. Ef einhver hefur
orðið var við köttinn, vinsamlegast
hringið í síma: 13764.
Það var með reiði sem ég las í
Pressunni þann 17. október að
Magnús Ver Magnússon hafi komið
til landsins með sömu flugvél og
bridsmennirnir. En hann fékk enga
ræðu né móttöku. Þetta er til hábor-
innar skammar.
Ég ætla alls ekki að draga at-
hygli frá hinum frábæra árangri
bridsmannanna en hvað um Magn-
Að undanfömu hefur mikið verið
fjallað í ijölmiðlum um tillögur fjár-
laga til niðurskurðar á útgjöldum
til heilbrigðismála. Mest hefur verið
fjallað um St. Jósefsspítaia í Hafn-
arijrði.
í fjárlögum er einnig lagt til að
Fæðingarheimili Reykjavíkur verði
lagt niður til að spara 40 milljónir
króna á ári. Ég vil mótmæla þess-
ari tillögu. Á þessu ári hafa mörg
hundruð konur fætt á Fæðingar-
heimilinu og er ég ein þeirra. í einu
orði sagt var frábært að liggja á
Fæðingarheimilinu. Heimilið var
gert upp á þessu ári og fannst mér
ég frekar vara á stóru heimili en á
heilbrigðisstofnun. Starfsfólkið var
með eindæmum þægilegt og aðbún-
aður allur hinn besti. Allir voru
samtaka um að gera þennan við-
burð, barnsfæðinguna, sem ánægj-
ulegastan fyrir okkur foreldrana.
Miðað við það fé sem ríkisvaldið
ráðstafar til mismunandi arðbærra
verkefna eru 40 milljónr króna á
ári smáaurar. Nýlega hefur t.d.
Byggðastofnun veitt Miklalaxi,
gjaldþrota fiskeldisfyrirtæki, styrk
upp á 113 milljónir króna og selt
97 milljóna króna hlut sinn í Fiskiðj-
unni Freyju fyrir 12,5 milljónir
króna. Ef við íslendingar höfum
efni á slíkum viðskiptum hljótum
ús Ver? Ég krefst þess að opinber
rannsókn fari fram til þess að at-
huga hvers vegna hinn nýkrýndi
sterkasti maður heims fékk ekki
ræður og móttökur. Það er heilög
skylda íslensku þjóðarinnar að allir
íslendingar sem hafa verið landi og
þjóð til sóma njóti sömu réttinda.
Villyálmur Alfreðsson
við að hafa efni á að eyða 40 millj-
ónum króna á ári í að veita nýfædd-
um íslendingum góðan aðbúnað á
fýrstu dögum lífs síns.
Ég vil því hvetja alla þá fjöl-
mörgu foreldra sem hafa notið
góðrar þjónustu Fæðingarheimilis-
ins til að láta í sér heyra og mót-
mæla þessum tillögum. Einnig vil
ég hvetja borgarfulltrúa til þess að
standa vörð um hagsmuni foreldra
í borginni og halda Fæðingarheimil-
inu opnu í óbreyttri mynd, enda
getur Fæðingardeild -Landspítalans
ekki tekið við öllum fæðingum á
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Að lok-
um vil ég taka undir orð Guðmund-
ar Árna Stefánssonar, bæjarstjóra
í Hafnarfirði og varaþingmanns, en
hann bendir heilbrigðisráðherra á
að hreinsa arfann og illgresið í
garðinum en hlúa að rósum í fullum
blóma. Fæðingarheimili Reykjavík-
ur er tvímælalaust rós í hnappagat
íslenskrar heilbrigðisþjónustu.
Ásta M. Urbancic
--------------
Listaverk —
skemmdarverk
Nú fyrir skömmu ók ég inn Sæ-
brautina til að njóta útsýnisins og
meðal annars til þess að skoða enn
einu sinni listaverkið Sólfar eftir
Jón Gunnar Árnason. Mér brá held-
ur betur í brún því það fyrsta sem
ég rak augun í voru tvær dökkar
súlur sem skyggðu á listaverkið eða
réttara sagt drógu athyglina frá
því. Ég hefi lesið í dagblöðum að
setja eigi ljós ofan á þessar súlur
til þess að lýsa upp listaverkið en
gætu þær þá ekki dregið athyglina
enn þá meira að sjálfum sér? Væri
ekki betra að lýsa verkið neðan frá?
Mér fínnst þetta vera algjört
skemmdarverk á listaverkinu. Hygg
ég að fleiri séu mér sammála. Lista-
verkið ætti að hækka þá nyti það
sín betur. Ástálist
Sterkasti maður heims
fékk engar móttökur
Víkveqi skrifar
Undanfarnar vikur hafa nokkur
gömu! hús í Hafnarstrætinu
fengið andlitslyftingu, verið máluð
og lagfærð, svo að prýði er að.
Austan við Pósthússtræti hafa hús-
in nr. 15 (Hornið), 19 (Rammagerð-
in) og 16, þar sem Hótel Alexandra
var til húsa fyrr á öldinni, verið
máluð og snyrí. Oft þarf ekki ann-
að til en málningu til að þagga nið-
ur í nöldrurunum, sem hamra á því
sýknt og heilagt að gamli Miðbær-
inn sé upp til hópa kofarusl, sem
eigi að rífa.
xxx
Vestur við Steindórsplan stendur
Hafnarstræti 4, sem nýlega
var hresst upp á þegar Blóm og
ávextir fluttu þár inn. Líklega vita
fáir með hveijum glæsibrag þetta
hús var þegar það var nýbyggt, upp
úr aldamótunum síðustu. A þakinu
voru sex brattir kvistir, hver um
sig með útskornum dreka á mænin-
um, sem hafa hæft húsinu ólíkt
betur en síðari tíma „endurbætur”,
sem eru til lítillar prýði. í áranna
rás hefur þetta hús, eins og svo
mörg önnur í gamla bænum, verið
svipt sínu upprunalega skrauti, sem
gefur sumum tilefni til að tala um
„kofa” og „kotrassabrag”. Skyldu
eigendur Hafnarstrætis 4 hafa þann
metnað til að bera að endurgera
húsið eftir gömlum teikningum, til
að prýða Miðbæinn og stinga upp
í niðurrifskarlana?
*
Iframhaldi af þessum þönkum urú
gamla Miðbæinn getur Víkveiji
ekki látið hjá líða að minnast á
sérkennilegt atvik, sem bar fyrir
augu er hann gekk Pósthússtrætið
fyrir nokkrum dógum. Eigandi list-
gallerís í götunni stóð í dyrum fyrir-
tækis síns og kastaði logandi sígar-
ettustubb út á gangstéttina! Vík-
veiji á varla til orð yfir þennan
sóðaskap. Hann hefði haldið að eig-
endur fyrirtækja í Miðbænum kapp-
kostuðu að snyrtilega væri gengið
um þennan bæjarhluta.
xxx
íkveiji sá í blaði svohljóðandi
auglýsingu: „Erfisdrykkjur í
þægilegum og rúmgóðum salar-
kynnum okkar. Danshúsið.” Er
þetta nú viðeigandi?