Morgunblaðið - 10.01.1992, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 10.01.1992, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992 JUDO • KARATE-DO • TAEKWON-DO ; MlJ • AIKIDÓ • JUDO jÉMpT £ J SPORT §»*** ££* Mörkin 8, austast v/Suöurlandsbraut, s. 679460. HÁR Blendinn hugur við breytingn Breska popp- söngkonan Lisa Stansfield sló vel í gegn á síð- asta ári er hún sendi frá sér skífuna „Affection". Hún þótti syngja prýði- lega og lögin voru þétt og grípandi. Það vakti ekki minni athygli útlit hennar, en •það þótti hreint út sagt dren- gjalegt, sér- staklega hárið. Þar var á ferð- inni drengja- kollur með strákslegum topp sem liðað- ist ofan í aug- un. Nýlega kom önnur skífa frá ungfrúnni, „Re- Lisa Stansfield með nýju hárlínuna. al Love“. Þar er sama pottþétta röddin og sömu grípandi þéttu lögin. En útlitið er gerbreytt og þá einkum hártíska hennar. í viðtali nýlega var hún spurð hvað ylli þessari byltingu. Hún svaraði að hún hafi ver- ið orðin verulega leið, svona almennt og þegar hún var í kápumyndatök- um þremur mánuðum áður en skífan kom út hafi hún beðið hárgreiðslu- meistara sinn að skella í sig krullum og sjá hver útkoman yrði. Var þetta gert og útkoman sú sem sjá má á meðfylgjandi mynd. Ungfrú Stansfield var ekki alls kostar ánægð með viðbrögð vina sinna þótt þau hafi almennt verið jákvæð. Hún segir að algeng athugasemd hafi verið þessi:„Nei!, maður þekkir þig varla, þú ert orðin svo sæt!“ Og þá hugsi hún gjarnan, „jæja já, einmitt það. Hvað þótti þér eiginlega um mig áður?“ r Aramótaspilakvöld Yarðar Áramótaspilakvöld Landsmálafélagsins Varðar verður haldið á Hótel Sögu, Súlnasal, sunnudaginn 12. janúar nk. kl. 20.30. Stórglæsilegir vinningar: r - Urvals ferðavinningar - Matarkörfur - Bækur - Vöruúttektir - Búsáhöld og margt fleira Ávarp flytur Markús Örn Antonsson, borgarstjóri. Allir velkomnir! Spilanefnd. Samkór Kópavogs Okkur vantar tenóra og bassa í kórinn. Æft í Digranesskóla á mánudagskvöldum kl. 20.00-22.30. Nánari upplýsingar í síma 34369 (Ósk). TILTRAUN Costner í söngleik? Verið getur, að bandaríski leikar- inn Kevin Costner láti það verða sitt næsta verkefni að fara á leiksvið og afgi-eiða aðalhlutverkið í söngleik sem verið er að skrifa. Costner er í samvinnu við Richard Baskin, tónskáld og kvikmyndafram- leiðanda og hefur sá sagt að söng- leikurinn verði á suður amerískum línum og hugmyndin sé.að fyrst verði um sviðsverk að ræða og ef það gangi vel myndi kvikmynd fylgja í kjölfari. Costner hefur einungis viljað stað- festa að þreifingar hafi átt sér stað og Baskin bætir raunar við að enn sé verkefnið á teikniborðinu og ekki einu sinni ljóst hvort að Costner syngi sjálfur í verkinu þótt sterkur orðróm- ur sé fyrir því að hann hafi mikinn áhuga á því að reyna sig á því sviði. Kevin Costner. Meira en þú geturímyndaó þér! Popparinn Madonna er ekk- ert allt of vinsæl í bænum Evansville í Indiana þar sem hún dvaldist í þrjá mánuði á síðasta ári við kvikmyndaupp- tökur. Nýlega sagði hún í við- tali við blaðið „TV Guide“, að bærinn hafi verið ótrúlegt krummaskuð, það hafi ekkert verið þar við að vera annað en að heimsækja hamborgara- búllu og hún hefði ekki getað skemmt sér ver þó hún hefði aiið aldurinn í Prag þessa þijá mánuði! Þessi ummæli fóru mjög svo fyrir bijóstið á íbúum Evans- vilie sem telja sig ekki leiðin- legri en gengur og gerist. 300 bæjarbúar ákváðu að senda Madonnu tóninn þannig að munað yrði eftir því. Þeir mynduðu táknið sem sjá má af meðfylgjandi loftmynd sem birtist í bæjarblaðinu Evans- ville Courier og barst þaðan vítt og breitt þar sem uppá- tækið þótti kostulegt. Ekki verður orðsendingin misskilin og sagt er að færri hafi kom- ist að í „kveðjuna" en vildu. SKILABOÐ Madonna ekki eftir- læti Evans- ville-búa UTSALAN BYRJAR í DAG Valborg, Laugavegi Valborg, Borgarkringlunn i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.