Morgunblaðið - 25.04.1992, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1992
Morgunblaðið/Bjami
Selfoss í úrslit
Selfoss vann Víking 31:27 í úrslitakeppninni í handknattleik í gærkvöldi og komst þar með í úrslit í fyrsta
skipti í sögu íslandsmótsins. Selfoss mætir FH eða ÍBV í úrslitunum. FH komst ekki til Vetmannaeyja í
gær vegna veðurs. Á myndinni sjást leikmenn Selfoss fagna sigrinum.
Sjá íþróttasíður bls. 50-51.
Hjúkrunarfræðingarnir áfram í Kabúl:
Menn varir um sig
eftir voðaatburðinn
- segir starfsmaður Rauða krossins í Kabúl
ÍSLENSKU hjúkrunarfræðingarnir Elín Guðmundsdlóttir og Mar-
íanna Csillag starfa enn á sjúkrahúsinu í Kabúl í Afganistan. Eru
þær meðal þeirra 20 hjálparstarfsmanna, sem verða áfram við
störf. Að sögn Hannesar Haukssonar framkvæmdasljóra Rauða
kross íslands tóku Elíh og Maríanna þessa ákvörðun sjálfar í sam-
ráði við yfirmenn sína í Kabúl.
Starfsmaður í höfuðstöðvum
alþjóðaráðs Rauða krossins í Kab-
úl sagði í samtali við Morgunblað-
ið í gær, að starfsmenn Rauða
krossins þar væru óhultir, en menn
væru mjög varir um sig eftir voða-
atburðinn á miðvikudag, þegar Jón
Karlsson var skotinn til bana.
Þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við höfuðstöðvar alþjóða-
ráðsins í Kabúl í gær var þar að-
eins einn starfsmaður, þar sem
helgi múhameðstrúarmanna var
gengin í garð. Starfsmaðurinn,
Serid, sagði að allt væri með kyrr-
um kjörum í Kabúl. „Sú ákvörðun
var tekin, í kjölfar skotárásarinnar
á Jón heitinn Karlsson, að hjúkr-
unarfólk færi ekki út úr borginni
til að sækja særða, heldur sinnti
Jóhannes Nordal á ársfundi Seðlabankans í gær:
Ekki þörf á að íbúðalánastarf-
semi sé undir forsjá ríkisvaldsins
aðeins þeim, sem komið væri með
á sjúkrahúsið,“ sagði Serid. „Þessi
regla verður í gildi í a.m.k. eina
viku. Núna bíða menn átekta, en
eru mjög varir um sig eftir þennan
voðaatburð. Á sjúkrahúsinu héma
em þó allir óhultir.“
Starfsmönnum Rauða krossins
í Kabúl hefur verið fækkað. Áður
vom 70 manns að störfum þar,
en 20 þeirra hafa nú farið til starfa
í Pakistan, þar sem Rauði krossinn
rekur búðir fyrir afganska flótta-
menn.
Sigríður Guðmundsdóttir hjá
Rauða krossi íslands kvaðst í gær
bíða upplýsinga um til hvaða ör-
yggisráðstafana yrði gripið. Hún
sagði að starfsmenn, sem ekki
störfuðu á sjúkrahúsinu, hefðu
þegar verið fluttir á brott frá Kab-
úl. Gervilimaverksmiðju, sem ís-
lendingar hafa fjármagnað að
hluta, hefur til dæmis verið lokað
tímabundið og starfsfólk hennar
flutt til Pakistan.
Eiginkona Jóns Karlssonar fylg-
ir kistu hans hingað til lands á
sunnudag. Útför hans verður gerð
frá Akureyri.
» ♦
JÓHANNES Nordal seðlabankastjóri, formaður bankastjórnar
Seðlabankans, sagði á ársfundi bankans í gær að engin þörf væri
á því að hafa almenn íbúðalán ríkistryggð. Vakti hann máls á
þeirri hugmynd að breyta húsbréfunum í veðdeildarlán á vegum
banka og annarra lánastofnana.
Jóhannes Nordal sagði í ræðu
sinni að húsbréfakerfið, þar sem
lánskjör ráðast á markaði, væri
ótvíræð framför frá þeim niður-
greiddu lánum, sem það tók við af.
„í eðli sinu er húsbréfakerfið svipað
einkareknum veðlánakerfum
ýmissa annarra landa, til dæmis
Danmerkur, og ætti því að geta
starfað án ríkisábyrgðar jafn vel
og þau. Þess vegna sé ég enga
þörf á því, að almenn íbúðalána-
starfsemi til einstaklinga sé hér á
landi rekin undir forsjá ríkisvalds-
ins og lánsfjárins aflað með ríkis-
ábyrgð. „Með því að breyta hús-
bréfunum í veðdeildarlán á vegum
banka og annarra lánastofnana, en
án ríkisábyrgðar, mundi vaxta-
kostnaður vafalaust hækka eitt-
hvað, en á móti kæmu miklu sveigj-
anlegri kjör, t.d. varðandi lánstíma
og greiðslufyrirkomulag eftir því
lántakendum hentar," sagði
auknu samkeppni sem Jjíður þeirra
á næstu árum,“ sagði Ágúst. Hann
sagði að rekstrarkostnaður banka-
kerfísins gæti lækkað, og væri
Seðlabankinn þar ekki undanskil-
inn.
Ágúst sagði að búast mætti við
aukinni samkeppni á fjármagns-
markaði á næstu árum. Islenski
bankaheimurinn hefði enn á sér
yfírbragð fákeppni að nokkru leyti
og nefndi í því sambandi hvað
hægt hefði miðað í lækkun nafn-
vaxta undanfarna mánuði þó efna-
hagslegar forsendur hafi verið til
þess.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra sagði að EES-samningurinn
kallaði á setningu almennrar lög-
gjafar um starfsemi fjárfestingar-
lánasjóða. Það væri forsenda fyrir
löngu tímabærri endurskipulagn-
ingu sjóðanna. „Nokkrir sjóðanna
eru einfaldlega of smáir til að upp-
fylla lágmarkskröfur um eigið fé.
Þeir verða því annaðhvort að sam-
einast öðrum sjóðum, bönkum eða
sparisjóðum eða hætta starfsemi
því ég hef enga trú á að ríkið, sem
er eigandi flestra sjóðanna, kjósi
að leggja þeim til aukið fé. Ég
dreg' ekki dul á þá skoðun mína
að heppilegt sé að tveir til þrír
öflugir, alhliða fjárfestingarlána-
sjóðir atvinnuvega starfí hér á landi
í samkeppni á jafnréttisgrundvelli
við hérlenda banka og sparisjóði
og erlendar lánastofnanir. Ég vil
líka láta þá skoðun í ljós að engin
ástæða sé til þess að ríkið eigi ráð-
andi hlut í slíkum sjóðum um aldur
og ævi,“ sagði Jón.
Viðskiptaráðherra sagði frá
helstu efnisatriðum í drögum að
nýjum seðlabankalögum. Hann
sagði að frumvarp nefndar sem það
samdi yrði lagt fram til kynningar
á Alþingi í næstu viku, eins og það
kom frá nefndinni.
Sjá ræðu seðlabankastjóra á
miðopnu.
Rokið braut
grenitré á
Þingvöllum
NOKKUR grenitré framan við
prestssetrið á Þingvöllum brotn-
uðu í austanrokinu sem gekk yfir
landið aðfaranótt föstudags. Þá
slitnaði raflína heim að bænum
Mjóanesi i sömu sveit og kviknaði
við það eldur í mosa og lyng-
gróðri á um fjórum hekturum.
Grenitrén sem brotnuðu standa
vörður, að þau yrðu sennilega felld.
Dómur í máli íslandsbanka gegn Sambandi bankamanna:
sem
Jóhannes meðal annars í ræðu
sinni.
Ágúst Einarsson, formaður
bankaráðs Seðlabankans, sagði frá
rekstri og efnahag bankans á síð-
asta ári í ræðu sinni. Tekjur voru
4,8 milljarðar kr. Útgjöld fyrir
skatta voru 3,6 milljarðar kr.
Hagnaður fyrir skatta var því 1,2
milljarðar kr. og þar af voru 686
milljónir greiddar sem skattur í rík-
issjóð. Rekstrarkostnaður var 617
milljónir kr. og hafði aukist um
tæpar 89 milljónir kr. eða 17% frá
árinu á undan. Niðurstöðutala
efnahagsreiknings er 46 milljónir
kr. og eigið fé 9,1 milljarður.
Eiginfjárhlutfall er því 20%.
Ágúst sagði að afkoma íslenska
bankakerfisins valdi nokkrum
áhyggjum. Í fyrra hafí ávöxtun
eigin fjár helstu lánastofnana ein-
ungis verið 1,3%. „Þetta er óviðun-
andi og þótt allar lánastofnanir
uppfylli tilskildar lágmarkskröfur
um hlutfall eigin fjár, bæði gagn-
vart íslenskum lögum og erlendum
reglum, þá er staða þeirra ekki
nægjanlega sterk sé litið til þcirrar
Starfsfólk haldi sömu lífeyrisrétt-
indum og opinberir starfsmenn
Fordæmisgildi fyrir 13-1400 bankamenn, segir formaður Sambands bankamanna
FÉLAGSDÓMUR hefur kveðið upp úrskurð í máli íslandsbanka gegn
Sambandi íslenskra bankamanna. Niðurstaða dómsins er sú að starfs-
menn íslandsbanka eiga rétt á sambærilegum lífeyrisréttindum og
bótum og starfsmenn rikisbanka nutu almennt 1. ágúst 1980. Anna
ívarsdóttir formaður Sambands bankamanna segir að hún sé ánægð
með að þessi dómur sé kominn því þar með sé eytt þeirri óvissu sem
verið hefur um mál þetta.
íslandsbanki stefndi Sambandi
bankamanna í þessu máli þar sem
bankinn lagði annan skilning en
starfsmenn bankans í ákvæði í kjara-
samningum sem segir að „aðrir
bankar með átta starfsmenn eða
fleiri tryggi áfram sambærileg rétt-
indi og bætur til handa sínum starfs-
mönnum og starfsmenn ríkisbank-
anna njóta“. Vildu forráðamenn
bankans meina að í ákvæðinu fælist
aðeins, auk loforðs um greiðslu ið-
gjald í Lífeyrissjóð verslunarmanna,
ábyrgð á verðtryggingu lífeyris.
Starfsmenn bankans töldu aftur að
ákvæðið fæli í sér skuldbindingu um
að veita þeim sömu lífeyrisréttindi
og opinberir starfsmenn njóta þar
með talin réttindi til eftirlauna, ör-
orku-, bama-, og makalífeyris.
í niðurstöðum Félagsdóms kemur
fram að málið snúist um túlkun á
bókun 5 í kjarasamningi sem gerður
var í lok ársins 1980, og gilti frá
1. ágúst sama ár, en síðan var þessi
bókun felld inn í meginmál kjara-
samningsins sem gerður var ári
seinna. Bókun þessi kveður á um að
starfsmenn einkabanka njóti sömu
lífeyrisréttinda og opinberir starfs-
menn eins og að framan greinir.
Félagsdómur telur að fyrrgreind bók-
un sé alls ekki nægilega ítarleg og
nákvæm miðað við hina flóknu stöðu
í lífeyrisréttindamálum bankamanna
og því sé nauðsynlegt við áframhald-
andi samningsgerð málsaðila að fá
úr því bætt. Hinsvegar telur dómur-
inn að, þegar litið er til allra þátta
málsins þar á meðal að þá staðreynd
að ákvæði bókunar 5 hefur staðið
óbreytt að efni til í nýjum kjarasamn-
ingum þrátt fyrir breytingar á regl-
um eftirlaunasjóða ríkisbankanna
eftir 1980, beri að taka kröfur banka-
manna til greina. „Þegar á allt þetta
er litið telur dómurinn að með kjara-
samningum 15. desember 1980 ...
hafi verið samið svo um að starfs-
menn einkabanka, sem hefðu átta
starfsmenn eða fleiri, skyldu öðlast
sambærileg lífeyrisréttindi og bætur
og starfsmenn ríkisbankanna nutu
almennt hinn 1. ágúst 1980. Að
þessu marki verða kröfur stefnda
(bankastarfsmanna, innskot blm.)
teknar til grein,“ segir í dómnum.
Anna ívarsdóttir segir að það hafí
verið baráttumál bankamanna á ár-
unum 1970 til 1980 að allir banka-
menn sætu við sama borð í lífeyris-
málum. Þessari baráttu hafi síðan
lokið með bókun 5 árið 1980. „Þar
með töldum við að okkur bæru sömu
réttindi og ríkisbankastarfsmenn
eins og til dæmis 95 ára reglan og
möguleikinn á að ávinna sér 85%
eftirlaun," segir Anna. „Félagsdóm-
ur hefur nú tekið undir sjónarmið
okkar en bendir jafnframt á að
ákvæðið sé loðið og óljóst. Við erum
með samninga lausa núna og ég
geri fastlega ráð fyrir að við samn-
ingsgerðina nú verði þessu máli kom-
ið a hreint."
í máli Önnu kemur fram að auk
starfsmanna íslandsbanka hafí dóm-
urinn fordæmisgildi fyrir starfsmenn
sparisjóðanna og nái þannig til
1.300-1.400 bankamanna.
Þórður S. Gunnarsson hrl. lögmað-
ur íslandsbanka í máli þessu segir
að dómurinn staðfesti að hið um-
deilda ákvæði sé óljóst og ónákvæmt
eins og Islandsbanki hafi fullyrt og
það réttlæti dómsmeðferðina. Þórður
segir að dómurinn miði við lífeyris-
réttindi starfsmanna ríkisbankanna
1. ágúst 1980 og telur þar með að
bankinn sé ekki bundinn af breyting-
um á reglugerðum lífeyrissjóða ríkis-
bankanna eftir það tímatakmark.
I
»
I