Morgunblaðið - 25.04.1992, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRIL 1992
SKÍDASVÆÐI
LÓKAÐ VAR víða á ski'ðasvæðum landsins f gær
nema norðanlands. Reyna átti að opna skfða-
svæðin á Austurlandi í dag. Víðast er nægur
snjór en veður hefur hamlað skiðaiðkendum.
Suðurland: Óvíst er hvort opið verður á skíða-
svæðinu í Bláfjöllum (sími 801111). í gær voru 12
vindstig í Bláfjöllum en í Hamragili (sími 98-34699)
átti að hafa opið um helgina ef veður gengi niður.
Lokað verður í Sleggjubeinsskarði og Skálafelli um
helgina.
Vestfirðir: Skíðasvæðið í Seljalandsdal við (sa-
fjörð (sími 94-3793). Þar verður opið ef veður leyf-
ir en vissara er fyrir fólk að kanna stöðu mála í
símsvaranum.
IMorðurland:Skíðasvæði Akureyringa í Hlíðar-
fjalli (sími 96-22930) verður opið frá kl. 10-17 í dag
og á morgun. Þar er nægur snjór og verða tvær
lyftur í gangi.
Austurland: Lokað var á skíðasvæði Seyðfirð-
inga í Stafdal (sími 97-21160) í gær og átti að at-
huga hvort unnt yrði að opna svæðið á hádegi í
dag. Lokað var í Oddskarði (sími 97-71474) í gær
vegna veðurs en vonast var til að unnt yrði að
hafa opið um helgina frá kl. 10-17.
Skíðafólki er bent á að hringja i skíðasvæðin
áður en lagt er af stað til að kanna veður og
færð. Þá fást upplýsingar um veður í sfmsvara
Veðurstofunnar, 990600.
VEÐURHORFUR IDAG, 25. APRÍL
YFIRLIT: 954 mb djúp og nærri kyrrstæð lægð um 800 km suðvestur
af Reykjanesi, en 1034 mb hæð nærri Svalbarða.
SPÁ: Austan- og norðaustanátt, víða 6-8 vindstig. Él um norðanvert
landið, slydda eða rigning um austanvert landiðen annars úrkomulítið.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Fremur hæg austan- og norð-
austanátt og svalt. Þurrt og víða léttskýjað á Suðvestur- og Vesturlandi
en él um norðanvert landið og skúrir eða slydduéi austaniands.
Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
▼
Heiðskírt
r r r
r r
r r r
Rigning
Léttskýjað Hálfskýjað
* r * * * *
* r * *
r * r * * *
Slydda Snjókoma
Skýjað Alskýjað
V $ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
stig..
FÆRÐA VEGUM:
(Kl. 17.30 ígær)
Víða á landinu er mikið hvassviðri og óþægilegt ferðaveður. Góð færö er á
vegum í nágrenni Reykjavíkur um Suðurnes svo og um Mosfellsheiðí og aust-
ur um Hellisheiði og Þrengsli. Vegir ó Suðurlandi eru yfirleitt ágætlega færir
en sandstormur er við Óseyrarbrú og austan Víkur og allt til Djúpavogs er
ófært vegna sandfoks og hvassviðris. Á Austfjörðum er þokkaleg færð en
Fjarðarheiði og Oddsskarð eru ófær og verða væntanlega mokuð á morgun
ef veöur leyfir. Breiðdalsheiði er talin ófær. Mjög hvasst er á Kjalarnesi og í
Hvalfirði og eíns undir Hafnarfjalli. Greiðfært er um Borgarfjörð, Snæfellsnes
og i Dalasýslu og vestur í Gufudalssveit. Mjög slæmt veður er á milli Brjáns-
laekjar og Patreksfjarðar og eínnig milli Patreksfjarðar og Bíldudals og vart
ferðaveður. Steíngrfmsfjaröarheiði, Botn- og Breiðadalsheiðareru ófærar vegna
veðurs og snjóa og verða þær opnaðar á morgun ef veöur leyfir. Greiðfært er
um Holtavörðuheiði til Hólmavfkur og Drangsness. Greiðfært er um alla aðal-
vegi á Norðurlandi, en þó er skafrenningur á Öxnadalsheiði og Légheiði er
aðeins fær fyrir jeppa. Á Siglufjarðarleíð er talið ófært milli Siglufjarðar og
Fljóta vegna hvassviðris. Frá Akureyri er fært um Þingeyjarsýslur, í Mývatns-
sveít og með ströndinni til Vopnafjarðar. Jeppafært er um Mývatns- og Möðru-
dalsöræfi og Vopnafjarðarheiði. Vegageröin.
/ VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 4 úrkomaígr. Reykjavík 4 alskýjað
Bergen 8 skýjað
Helsinki +1 snjókoma
Kaupmannahöfn 7 skýjaö
Narssarssuaq 4 skýjað
Nuuk 4-2 heiðskírt
Ósló 9 léttskýíað
Stokkhólmur 6 skýjað
Þórshöfn 6 rigning
Aigarve 20 heiðskírt
Amsterdam 15 skýjað
Barcelona 18 léttskýjað
Berlín 15 skýjað
Chicago 7 rigning
Feneyjar 17 þokumóða
Frankfurt 16 skýjað
Glasgow 6 rigning
Hamborg 13 skýjað
London 16 skúr
Los Angeles 17 léttskýjað
Lúxemborg 16 skýjað
Madrtd vantar
Malaga 22 léttskýjað
Mallorca 22 heiðskírt
Montreal 7 mistur
NewYork vantar
Orlando vantar
Parls 17 léttskýjað
Madeira 18 léttskýjað
Róm 18 léttskýjað
Vín 16 akýjað
Washington 17 skýjað
Winnipeg +1 alskýjað
20 mánaða fangelsi fyrir kókaínsmygl:
Lét kunningja úr
hollensku fangelsi
senda sér kókaín
30 ÁRA gamall maður hefur verið dæmdur í 20 mánaða fangelsi og
til greiðslu 100 þúsund króna sektar fyrir að hafa frá mars til maí á
árinu 1990 flutt til landsins í þremur sendingum tæplega 180 grömm
af kókaíni. Efnið lét maðurinn Kólumbíumann sem hann hafði kynnst
í fangelsi í Hollandi senda sér í pósti, stílað á nafn 24 ára gamals
manns. Sá var sakfelldur og dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir
að hafa samþykkt að nafn sitt væri notað og fyrir að hafa sótt send-
ingar á pósthús fyrir eigandann. Upp komst um mál þetta eftir að
íslenskum tollyfirvöldum bárust þær upplýsingar frá yfirvöldum í
Frankfurt að tollgæsla þar hefði lagt hald á um 100 grömm af kókaíni
i póstsendingu sem fara átti til íslands.
Skráður viðtakandi var ungur
maður í Reykjavík en sendandi var
maður í borginni Cali í Kólumbíu.
Viku síðar komst pakkinn í hendur
íslensku fíkniefnalögreglunnar og
um leið bárust nýjar upplýsingar frá
Frankfurt um að annar samskonar
pakki hefði fundist ytra. Lögregla
ákvað að láta fyrri sendinguna fara
þá leið sem hún hefði farið ef toll-
gæsla og lögregla hefði ekki fundið
sendinguna og gripið inn í en sett
var hveiti í stað kókaínsins.
Eftir að viðtakandinn hafði sótt
efnið voru mennirnir tveir handtekn-
ir á heimili frumkvöðulsins og
eigandans. Sá bar við yfirheyrslur
að hann hefði kynnst Kólumbíu-
manninum er þeir sátu saman í fang-
elsi í Hollandi. Hann kvaðst hafa
þegið boð um að fá sent frá honum
kókaín. í fyrstu sendingunni, sem
komist hafði til skiia, voru 4-6
grömm af kókaíni falin í smyrsltúpu.
I þeirri næstu voru 73 grömm. Af
því seldi maðurinn einum aðila 40
grömm, á átta þúsund krónur
grammið, öðrum 5-8 grömm á
12-15 þúsund krónur grammið, en
afganginn, 25-28 grömm af kóka-
íni, sagðist hann hafa klárað sjálfur
á fimm dögum ásamt kunningjum
sínum. Með þriðju sendinguna, 100
grömm, þar sem lögregla setti hveiti
í stað kókaíns, var maðurinn hand-
tekinn á heimili sínu ásamt við-
takandanum en hann kannaðist ekki
við að hafa beðið um fjórðu sending-
una, einnig 100 grömm, sem fannst
í Frankfurt.
Hafnað var þeirri kröfu lögmanns
mannsins að lögregla teidist hafa
aflað sönnunargagna á ólögmætan
hátt með því að setja hveiti fyrir
kókaín í sendingunni sem fyrr var
frá greint og láta hana svo ganga
sína leið. „Bar lögreglu að reyna að
upplýsa hveijir stæðu að ofangreind-
um fíkniefnainnflutningi og engu
komið til leiðar sem ella hefði ekki
átt sér stað ef pakkinn hefði ekki
náðst,“ segir í niðurstöðum dómar-
ans, Bjarna Stefánssonar, fulltrúa,
um þetta efni. Hins vegar var refsað
fyrir þessa þriðju sendingu sem til-
raun en ekki fullframið brot.
Flug'leiðir fá þriðju
Fokker 50-vélina
Amsterdam, frá Úlfari Ágústssyni fréttaritara Morgunblaðsins.
FOKKER-verksmiðjurnar í Hollandi afhentu Flugleiðum í gær þriðju
Fokker 50-vélina við hátíðlega athöfn i verksmiðjum Fokker við Schip-
hol-flugvöll. Vélin er væntanleg til ísafjarðar kl. 14 í dag en áætlaður
flugtími frá Hollandi er um fimm tímar. Á ísafjarðarflugvelli mun
Kristjana Milla Thorsteinsson stjórnarmaður í Flugleiðum gefa vél-
inni nafn.
Kaupverð vélarinnar er um 900
milljónir króna en vélin er keypt eins
og hinar vélarnar með kaupleigu í
gegnum hollenskt fjármögnunarfyr-
irtæki á tíu ára kaupleigusamningi.
Meðal farþega yfir hafið eru Sig-
urður Helgason forstjóri Flugleiða,
Smári Haraldsson bæjarstjóri á
ísafírði, Ólafur Kristjánsson bæjar-
stjóri í Bolungarvík, Jónas Ólafsson
sveitarstjóri á Þingeyri og Ólafur
Arnfjörð Guðmundsson sveitarstjóri
á Patreksfirði.
Áætlað er að fjórða og síðasta
vélin komi til Vestmannaeyja 9.
maí. Skömmu síðar hverfur síðasta
Fokker 27-vélin úr landi en þær
Happó með
breyttu sniði
DREGIÐ verður í síðasta skipti i
Happó í beinni útsendingu í þætt-
inum Óskastundinni á Stöð 2
næstkomandi þriðjudag, en þetta
verður jafnframt síðasti þátturinn
sem sýndur verður á þessum
vetri. Áð sögn Ragnars Ingimars-
sonar, forsljóra Happdrættis Há-
skóla Lslands, verður Happó því
með öðru sniði í framtíðinni.
Ragnar segir að unnið hafi verið
að þessari nýju útgáfu á Happó frá
því í desember í vetur og að nú
megi heita að hún sé fullmótuð. „Nú
er verið að ganga frá framkvæmda-
atriðum. Það verður umtalsverð
breyting á Happó og við ætlum að
reyna að hafa það ennþá meifa
spennandi," segir Ragnar.
vélar hafa þá þjónað í innanlands-
flugi Flugleiða og áður Flugfélagsins
í 27 ár.
Pálmi Sigurðsson
Lést í um-
ferðarslysi
MAÐURINN sem lést eftir árekst-
ur á Vesturlandsvegi við Korp-
úlfsstaði síðastliðinn þriðjudag
hét Pálmi Sigurðsson.
Pálmi var 78 ára, fæddur 22. febr-
úar 1914. Hann bjó á Grettisgötu
77, Reykjavík, og lætur eftir sig
fjögur uppkomin börn.
I
i
I
>
>
-