Morgunblaðið - 25.04.1992, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1992
15
sem eins og áður sagði telur nú
um 2.400 númer, er hið lang-
stærsta utan Reykjavíkur. Það er
til komið vegna dugnaðar f.v.
skjalavarðar, gamallar fræðahefð-
ar í héraði og velvildar fólks, sem
hefur verið ótrúlega duglegt að
efla það með gjöfum.
Á kynningardeginum, 26. apríl,
verður Skagfirðingum boðið að
koma í Safnahúsið á Sauðárkróki.
Þar verður eitt og annað til sýnis
úr fórum safnsins, má nefna elzta
handrit ýmissa þekktra Skagfirð-
inga eins og Sölva Helgasonar,
Gísla Konráðsskonar og Jóns
Espólíns, sýnishom af verslunar-
bókum, handskrifuðum sveitar-
blöðum frá fyrri hluta 20. aldar og
margt fleira. Einnig verða hafðar
frammi gamlar óþekktar ljósmynd-
ir, sem fólk verður beðið að skoða.
Með þessari kynningu er ætlunin
að vekja athygli á starfsemi safn-
anna og þeim brunni upplýsinga
og fróðleiks, sem þar er að finna
um menn og málefni í viðkomandi
héraði. Þetta tækifæri skal einnig
notað til að minna á, hvort fólk
eigi ekki eitthvað í fórum sínum,
sem það gæti hugsað sér að láta
á héraðsskjalasafnið, t.d. gamlar
ljósmyndir, merkileg sendibréf eða
einhver skrif. Sé um viðkvæm mál
að ræða, má innsigla efni og setja
ákvæði um, hvenær opna megi.
Ég vil sérstaklega höfða til brott-
fluttra Skagfirðinga, hvort þeir
minnist ekki einhverra gamalla
snifsa eða mynda, sem bezt væru
komnar á safn í heimahéraði. E.t.v.
fínnst fólki það ekki vera með neitt
sérstakt, en hvert eitt smáræði fyll-
ir upp í stærri mynd, eins og í
púsluspili. Margt getur verið merki-
legt á skúffubotni. Skjalasöfnin
geta gert að sínum orð skáldsins,
sem segir:
Ég vinn úr því sem aðrir vilja ekki nýta.
í arinskerslum leynist löngum lagleg spýta.
Ég vil hvetja sem flesta að koma
á héraðsskjálasafnið sunnudaginn
26. apríl nk., kynna sér hvað þar
er að finna og kannske hafa eitt-
hvað með sér í farteskinu.
Höfundur er skjalavörður á
Sauðárkróki.
fortíðina og glata hluta af eigin
fjölskyldusögu.
Afhending skjala
Ef einstaklingar, félög eða fyrir-
tæki vilja koma skjölum til varð-
veislu á skjalasafn, er best að byija
á að hafa samband við safnið og
athuga hvort það hafí áhuga á við-
komandi gögnum. Ef svo er, þá er
næsta skref að ræða afhendinguna
og frágang. Rétt er að riðla ekki
því skipulagi sem hefur verið á
skjölunum og athugið að ljósmynd-
ir geta verið hluti af skjölum
einkaaðila.
Rétt er að ítreka það sem fyrr
var nefnt, að hægt er að setja að-
gangsskilyrði að gögnunum eða
banna aðgang í ákveðinn tíma (t.d.
30 ár), ef um viðkvæmar upplýs-
ingar er að ræða.
Kynningardagur skjalasafna
26. apríl
Sunnudaginn 26. apríl nk. verður
haldinn sérstakur kynningardagur
skjalasafna. Þá verða skjalasöfn
víða um land með opið hús og starf-
semi þeirra kynnt. Jafnframt verð-
ur lögð áhersla á að fá upplýsingar
um gögn úr fórum einkaaðila og
vekja athygli á nauðsyn þess að
varðveita þau.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
verður með opið hús þann dag kl.
14-18 í Skúlatúni 2 og munu
starfsmenn þess veita upplýsingar
um starfsemi safnsins og taka við
upplýsingum um einkaskjöl. í and-
dyri safnsins verður sýning á ýms-
um skjölum sem varðveitt eru á
safninu, m.a. á hluta þeirra skjala
sem fundust í kistunni sem rætt
var um hér að framan.
Við á skjalasöfnum um land allt
vonum að fólk kanni hvort það lumi
ekki á skjölum sem það telur að
eigi erindi á skjalasafn, því fortíðin
er fjársjóður framtíðarinnar.
Fæðingarheim-
ili Reykjavíkur
eftir ÓlafÓlafsson
Af faglegum ástæðum virðist
ekki þörf á að leggja niður Fæðing-
arheimilið í Reykjavík. Komið hefur
fram að burðarmálsdauði er jafnvel
lægstur í þeim héruðum í landinu,
þar sem engar sérdeildir í fæðingar-
hjálp starfa.
Sjá töflu:
Þetta þýðir að heilsugæslulækn-
um tekst vel að velja úr hópi þung-
aðra kvenna þær konur sem vænta
má að eigi erfiðar fæðingar fyrir
Burðarmálsdauði í héruðum
eftir búsetu mæðra á 1000
fæðingar
1981-1989
Vestfírðir 6,7
Vesturland 5,3
Norðurland vestra 4,6
Austurland 5,3
Suðurland 2,9
Reykjavík 7,2
Reykjanes 7,8
Norðurland eystra 7,1
Allt landið 6,6
Ólafur Ólafsson
höndum og senda til sérdeilda
Reykjavíkur, Akraness og Akur-
eyrar.
Læknar Fæðingarheimilisins eru
vart í verri aðstöðu að bregðast
rétt við í þessu tilliti en læknar úti
á landi, en á Fæðingarheimilinu
starfa eingöngu sérfræðingar í fæð-
ingarhjálp. Af dæmum frá erlend-
um þjóðum má ætla að kostnaður
við fæðingarhjálp aukist eftir því
sem fleiri konur fæða á sérdeildum.
Hætt er við því að heildarkostnaður
aukist er til lengdar lætur.
Faglega og kostnaðarlega ætti
því að vera hagstætt að halda Fæð-
ingarheimilinu opnu sem lengst.
Auðvelt er að sameina sérfræðings-
vaktir á kvensjúkdómadeild
Landspítalans og Fæðingarheimil-
inu því af aðeins tekur örfáar mín-
útur að fara þar á milli og færðin
góð.
Höfundur er landtæknir.
AL ASf U
étmmR úrval
önuuer víro
Höfum fengið mikið úrval af fallegum, austur-
lenskum keramikblómapottum. Stórir og smáir
pottar, fallegir og frostþolnir. - Hentugir til nota
jafnt úti sem inni.
Viðurkenndur handiðnaður á frábæru verði.
- Skoðið sjálf.
Höfundur er borgarskjala vörður