Morgunblaðið - 25.04.1992, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1992
29
Léttur bátur slitnaði upp frá legufæri sínu í höfninni við Holtabakka
í rokinu í fyrrakvöld og hafnaði í fjörugrjótinu. Báturinn mun hafa
skemmst mikið auk þess sem utanborðsvél fór af. Dráttarbáturinn
Orion II var fenginn til aðstoðar og dró hann bátinn út.
Hópferðamiðstöðin hf. 15 ára:
Sýning á hópferðabíl-
um í tilefni afmælisins
Hópferðamiðstöðin hf. á fimmtán ára afmæli um þessar mundir.
Af því tilefni verður sýning á hópferðabílum að Bíldshöfða 2 frá kl.
13 til 16 í dag, sunnudag. Síðasta sumar voru tæplega niutíu bílar
skráðir til aksturs á vegum fyrirtækisins.
Eigendur hópferðabíla tóku sig
saman fyrir fimmtán árum og stofn-
uðu hlutafélag um rekstur Hópferða-
miðstöðvarinnar hf.
Að sögn Rúnars Pálssonar, fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins, var eft-
irspurn eftir slíkri þjónustu þá ört
vaxandi og töldu eigendur bílanna
að henni yrði best þjónað með stofn-
un fyrirtækisins.
„Þeim var ljóst að með auknum
ferðamannastraumi yrði að vera til
sterk afgreiðslustöð fyrir hópferða-
bíla, sem ferðaskrifstofur og aðrir
sem að innflutningi ferðamanna
stóðu, gætu treyst á. Sú varð líka
raunin," segir Rúnar.
Hann segir að umsvif fyrirtækis-
ins hafi aukist jafnt og þétt í gegn-
um árin. Markmiðið hjá starfsmönn-
um Hópferðamiðstöðvarinnar hafi
alla tíð verið að halda uppi háum
gæðastaðli og þess vegna hafí verið
takmarkanir á skráningu bíla hjá
fyrirtækinu. „Það er ákveðin gjald-
skrá í gildi og viðskiptavinir eiga
ekki að greiða sama gjald fyrir góð-
an, velútbúinn hópferðabíl eins og
lélegan hópferðabíl sem er lítið betur
búinn en gamall strætisvagn," segir
Rúnar.
„Einkunnarorð Hópferðamið-
stöðvarinnar eru „Öryggi og þjón-
usta alla leið“ og markmið okkar
er að allir viðskiptavinir okkar séu
ánægðir,“ segir Rúnar að lokum.
Erum að reyna að finna bestu leið-
ina til að nýta sjávarfang betur
segir Sigurjón Arason deildarstjóri Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins
SIGURJÓN Arason, deildar-
stjóri hjá Rannsóknarstofnun
fiskiðnaðarins, segir að þeir
útreikningar Rannsóknarstofn-
unarinnar á mögulegum hagn-
aði af fullnýtingu sjávarfangs
Breyttur af-
greiðslutími
í Kringlunni
í TENGSLUM við sumarkomuna
hefur verið ávkeðið að breyta
afgreiðslutíma í Kringlunni.
Verslanir verða nú opnar mánu-
daga til fimmtudaga til kl. 18,30,
en fram til þessa hafa þær verið
opnar til kl 19.
Afgreiðslutíminn verður því, að
á mánudögum til fímmtudaga er
opið frá kl. 10 til 18,30, föstudaga
frá kl. 10 til 19 og laugardaga frá
kl. 10 til 16. Flestir veitingastaðir
Kringlunnar eru opnir sunnudaga
sem aðra daga fram á kvöld. Breyt-
ing þessi gildir frá 27. apríl.
um borð í frystitogurum sé hlut-
laust mat stofnunarinnar á þeim
gögnum sem þeir hafa unnið
með. Hann segir að þessi út-
reikningar séu ekki áróður
gegn útgerðarinönnum frysti-
togara, en eins og fram kom í
frétt Morgunblaðsins á fimmtu-
dag segir Gísli Jón Hermanns-
son, framkvæmdastjóri Ögur-
víkur hf. að Rannsóknarstofnun
fiskiðnaðarins hafi reiknað
mögulegt verð á meltu mun
hærra en fiskimjölsverksmiðjur
vilji greiða fyrir hana.
„Það er gott fyrir alla aðila að
þessi mál séu skoðuð. í skýrslu
okkar er verið að tala um þrenns
konar verð, 3,50 krónur, 4,2 krón-
ur og 5 krónur. Aðeins var lagt
mat á hvernig arðsemin liti út í
þessum þremur valkostum,“ segir
Sigurjón.
Hann segir að í skýrslunni hafi
m.a. verið lagt mat á meltu og
að hún hefði komið best út, en
hins vegar séu fiskimjöl og fryst-
ing einnig inni í myndinni. „Við
erum aðeins að reyna að finna
bestu leiðina til að nýta sjávarfang
betur en nú er gert. Nú eru um
100 þúsund tonnum af fískmeti
hent á ári og auðvitað væri það
fysilegt að fá þetta í land ef það
væri hægt. Við erum enn ekki
INGUNN Eydal opnar málverka-
sýningu í Hafnarborg, menning-
ar- og listastofnun Hafnarfjarðar
laugardaginn 25. apríl kl. 14.00.
Ingunn lauk námi frá Myndlista-
og handíðaskóla íslands árið 1976.
Hún hefur haldið fjölda einkasýn-
inga og tekið þátt í um 120 samsýn-
ingum hér heima og erlendis. Ing-
unn var kjörin borgarlistamaður
árið 1983, fékk listamannalaun
1984 og starfslaun listamanna
1987. Hún vann ásamt tveimur
öðrum grafíksamkeppni íþrótta-
sambands íslands 1989. Sama ár
hlaut hún viðurkenningu fyrir verk
sín á sýningunni Impreza í Ivano
Frankivsk, Ukraínu í Sovétríkjun-
um.
búnir að vinna að þessum málum
og það er enn nokkur tími til
stefnu og því of snemmt að segja
til um hvernig málin eigi eftir að
þróast," segir Siguijón.
Sýningin verður opin daglega,
nema þriðjudaga, frá kl. 12-18
fram til 11. maí.
—...--♦■■■♦ <--
Michael Bach
í Listasafni
Sigurjóns
ÞÝSKI sellóleikarinn Michael
Bach mun leika verk eftir Bemd
Alois Zimmermann og John Cage
í Listasafni Siguijóns laugardag-
inn 25. apríl kl. 17.00 á vegum
Musica Nova og Göthe Institute.
Ingunn Eydal opnar mál-
verkasýningu í Hafnarborg
Saga bíó sýnir kvikmynd-
ina „Svellkalda klíkan“
SAGA-BÍÓ hefur hafið sýningar á myndinni „Svellkalda klíkan“.
Myndin er framleidd af Yoram Ben Ami. Leikstjóri er Craig B.
Baxley. Í aðalhlutverkum eru Brian Bosworth og Lance Henriksen.
Myndin heitir á frummálinu mótorhjólagengi hefur framið.
„Stone Cold“ og fjallar um lög- Hann bregður sér í dulargervi og
reglumann, sem fenginn er til þess margt dularfullt og spennandi ger-
að rannsaka fjölda morða,, sem ist.
Verk eftir Ingunni eru í eigu
safna hér heima, á Norðurlöndun-
um, í Bandaríkjunum og Sovétríkj-
unum. A sýningunni í Hafnarborg
sýnir Ingunn olíumálverk, grafík-
verk og teikningar.
Verk Cage er sérstaklega samið
fyrir Michael Bach og var frumflutt
nýlega. Bach nam sellóleik hjá Jan-
os Starzek og Fournier og hefur
komið fram víða og frumflutt og
hljóðritað mörg samtíðaverk.
Ábendingar frá
LÖQREQLUNNI:
Skotveiðar bannaðar
innan 2 km frá æðarvarpi
Kvartanir hafa borist til lögreglu um skotveiðar frá bátum á
Viðeyjarsundi. í reglum um fuglaveiðar og fuglafriðum segir
m.a. að virða beri fjarlægðarmörk landeigenda á sjó út og að
frá 15. apríl til 14. júlí ár hvert séu öll skot bönnuð nær frið-
lýstu æðarvarpi en 2 km. í flestum eyjum á sundinu eru frið-
lýst æðarvörp.
Samkvæmt samþykkt eru allar skotveiðar innan merkts
umráðasvæðis Reykjavíkurhafnar bannaðar. Þessar merkingar
koma fram á sjókortum. Hefur sú viðmiðun verið viðhöfð að
innan linu, sem dregin er á milli Gróttutáar og Kjalarnestanga
er óheimilt að nota skotvopn til veiða á sjó jafnt sem á landi
nema til þess hafi verið fengið sérstakt leyfí lögrelgustjóra.
Verði fólk var við brot á reglum þessum er það eindregið
hvatt til þess að tilkynnt það til lögreglunnar. Hún mun á
næstunni fylgjast sérstaklega með því að reglur um fuglaveiðar
séu virtar á Viðeyjarsundi.
tneð vei: tlu í
fu ra ngn rsrýni inn