Morgunblaðið - 25.04.1992, Síða 47
47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1992
Þorsteinn Gylfason:
Það kom söngfugl að sunnan
Tónskáld hafa keppzt við upp á síðkastið, eftir áskorun Helga Hálfdanarsonar, að semja hvert lagið öðru betra við skólavísur Guðjóns Guðjónssonar „Það er leikur að læra“. Það hefur ábyggilega ekki gerzt síðan í stríðinu að jafnmargir fletti Morgunblaðinu jafnspennt- • ir á hveijum morgni. „Skyldi ekki koma nýtt lag á morgun?“ spyr maður mann. í þessu fengsæla flóði má það samt ekki gleymast að þjóðlagið þýzka, sem jafnan hefur verið ranglega haft við þessar vísur, er framúr- skarandi lag eins og fleiri þýzk þjóðlög. Vin- sældir þess á íslandi ekki síður en í Þýzka- landi eru engin furða. Þess vegna er það verð- ugt verk fyrir íslenzk ljóðskáld að yrkja fáein- ar hendingar sem hæfa þessu lagi. Kannski þykir einhveiju skáldi fróðlegt að sjá hvernig Þjóðverjar hafa hagað orðum sínum þegar þeir syngja lagið. Þýzku vísurnar munu vera þjóðvísur eins og lagið er þjóðlag, og þær eru kveðnar á mállýzku sem mig brestur lærdóm til að nefna og staðsetja. A þeirri mállýzku eru þær jafnan sungnar hvar sem er í Þýzka- landi og Austurríki.
Það kom söngfugl að sunnan Það kom söngfugl að sunnan. Hann var sendur af þér. Hann bar gullblað í goggi sem var gjöf handa mér. Kimmt a Vogerl geflogen Kimmt a Vogerl geflogen setzt sich nieder auf mein Fut ', hat a Zetterl im Goscherl und vom Dirnderl an GruS.
Já þú baðst mig að bíða eftir bjartari tíð. Nú er sól, nú er sumar, og ég syrgi og bíð. Hast mi all weil vertröstet auf die Summeri Zeit, und der Summer is kimma und mein Schatzerl is weit.
Því þú hímir enn heima svo ég hef ekki þig. Hvorki Kátur né Kisa vilja kannast við mig. Daheim is mein Schatzerl, in der Fremd bin i hier, und es fragt halt ka Katzerl ka Hunderl nach mir.
Góði söngfugl minn, svífðu aftur suður með koss. Hvað ég fylgdi þér feginn! Ég legg fingur í kross. Liebes Vogerl, flieg weiter, nimm a GruB mit, an KuS! Und i kan di nit begleita, weil i hier bleiba muS.
Greinin birtist hér leiðrétt vegna tæknilegra mistaka við fyrri birtingu. Er beðist velvirðingar á þessu.
Skattur á sparifé?
Frá Guðjóni Jónssyni:
RÍKISSJÓÐUR þarf að fá sínar
tekjur, t.a.m. skatta. En það er
ekki sama hvernig þeir eru lagðir
á, það er satt að segja hið mesta
vandaverk.
Nefnd „um samræmda skatt-
lagningu eigna og eignatekna"
hefur nýlega skilað áfangaskýrslu
um þetta mál og verður hún rök-
rædd á fundi á Hótel Sögu laugar-
daginn 25. apríl. Hlutleysi og
,jafnaðarmennska“ í skattlagn-
ingu setur mjög svip á hugmyndir
nefndarinnar. Það hljómar vel en
í því eru gildrur fólgnar.
Skattlagning þarf að vera með
þeim hætti að hún hvetji fólk til
að spara, vitanlega í þeim tilgangi
að sparnaður leiði til hagkvæmari
notkunar fyrir sparandann síðar
en þangað til sé hann til afnota
fyrir ríkissjóð, fyrirtæki og ein-
staklinga sem þarfnast lánsfjár og
sækja það til útlanda ef það fæst
ekki innanlands.
Þetta var viðurkennt með víð-
tæku skattfrelsi sparifjár og loks
verðtryggingu þess þegar komið
var í óefni í óðaverðbólgunni.
Og enn er ekki tímabært að
afnema þetta skattfrelsi, enda er
veruleg hætta á að þá yrði hrun
í innlendum sparnaði og stórhækk-
un erlendra skulda í kjölfarið auk
margra annarra þjóðfélagsmeina.
Almenningur þarf því að vaka
á verðinum og mótmæla þeim
áformum um skattlagningu á vexti
sparifjár sem nú eru á döfinni.
GUÐJÓN JÓNSSON,
Meistaravöllum 17,
Reykjavík.
Félag íslenskra snyrtifræðinga
Member of: Comité Intemotional <? Esthétique et de Cosmeiologie
Ingólfsstræti 5,101 Reyhjoutk, Icelond, TeL 26099.
Orösending frá Félagi fslenskra snyrtilræöinga
Að gefnu tilefni vill Félag íslenskra snyrtifræðinga tilkynna:
Árið 1985 öðlaðist starfsgreinin snyrtifræði lögverndun.
Engum öðrum en þeim sem náð hafa sveinsprófi eða
meistaraprófi í snyrtifræði er heimilt að selja vinnu sína
til viðskiptavina.
Eini löglegi skólinn á íslandi sem útskrifar snyrtifræðinga
er Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, snyrtibraut.
Þau störf sem lögverndin nær til eru:
AndHtsböð
Húðhreinsun
Handsnyrting
Fótsnyrting
Litanir augnhára og augnabrúna
Dag- og kvöldförðun
Háreyðingar ýmiskonar.
Stjórn félagsins vekur sérstaka athygli á því að þeir nem-
endur sem sækja ýmiskonar námskeið sem auglýst eru á
þessu sviði öðlast engin starfsréttindi í iðninni.
Vinsamlegast athugið að l. maí ber
upp á föstudag að þessu sinni.
Pví þurfa allar auglýsingar í
sunnudagsblaðið 3. maí að berast
í síðasta lagi fyrir kl. 16 fimmtudaginn
30. apríl
Sími auglýsingadeildar er 69 11 11
*
Pennavinir
Átján ára bandarísk stúlka í lista-
námi vill skrifast á við 18-30 ára
karlmenn og konur sem áhuga hafa
á listum, garðyrkju, kvikmyndum,
tónlist og mannréttindamálum.
Marijka van Hofstra,
P. O. Box 08350,
Milwaukee 53208-0350,
Wisconsin,
U.S.A.
Ellefu ára sænsk stúlká með
áhuga 'adýrum, tónlist, bréfaskrift-
um o.fl. vill skrifast á við 10-14 ára
krakka á ensku eða sænsku:
Eva Andersen,
Hemmansvagen 7,
87153 Harnösand,
Sweden.
Sautján ára japönsk stúlka með
margvísleg áhugamál vill eignst
apennavini á aldrinum 15-20 ára:
Mayumi Itami,
193-7 Nakazato Myogi-machi,
Kanra-gun,
Gunma,
379-02 Japan.
LEIÐRÉTTING
Ekki fullbókad
Vegna misskilnings stóð í frétt um
20 ára afmælisferð MR-stúdenta
sl. fimmtudag að fullbókað væri í
leiguvél til Dublin. Enn eru laus
sæti í vélinni en alls eru sætin um
170.
HONDA ACCORD ER í FYRSTA . . .
. . . sæti í Bandaríkjunum sem
söluhæsti fólksbíllinn undan-
farin þrjú ár og var heiðraður
sem sá bíll sem eigendur voru
ánægðastir rrieð. Accord hlaut
einnig verðlaunin um Gullna
stýrið í sínum flokki í Þýska-
landi.
Það er ekki hægt að segja að
Accord sé sportbíll, en hann er
eins nálægt því og hægt er að
komast sem fjöl-
skyldubíll. Það má
því kannski segja
að Accord sé fjöl-
skyldusportbíll.
Utlitshönnun
Accord er sérlega
vel heppnuð og
innréttingar í alla
staði vel úr garði
gerðar.
Accord er með
sextán ventla,
tveggja lítra vél og
nýja hönnun á
Isveifarás sem
| dregur mjög úr titringi.
Accord er stórgóður bíll sem
uppfyllir ströngustu kröfur sem
Nánari upplýsingar eru veittar
í síma 68 99 00
Verð frá: 1.548.000,- stgr.
Greiðslukjör við allra hæfi.
HONDA
gerðar eru til
fjölskyldubíla.
Accord ár-
gerð 1992 er
til sýnis að Vatnagörðum 24,
virka daga kl. 9:00 - 18:00 og
laugardaga kl. 11:00 - 15:00.