Morgunblaðið - 25.07.1992, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1992
„ Ziltu ai 'eg hleypt kettinum út?“
TM Reg. U.S. Pat Off.—all righta raserved
Auðvitað vill hún það. Þetta
er hennar hugmynd ...
HOGNI HREKKVISI
/ ‘úwk? /
„ SNOTOR V/kSN— LJÓ7VR. K/Z/HCKlf"
SMtargiiitMtafrUk
BRÉF TTL BLAÐSINS
Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222
Tilheyra islam
Eftirfarandi bréf barst Morg-
unblaðinu frá ónafngreindum
aðilum í Tyrklandi en undir-
skriftin er Allir múslimir. Bréf-
ið endurspeglar sjálfsagt við-
horf sumra Tyrlqa til forræðis-
máls Sophiu Hansen, sem ekki
hafa kynnt sér staðreyndir
málsins:
Ayseul og Vesile eru dætur
Halim Al, af því leiðir að þessar
saklausu stúlkur tilheyra islam,
tilheyra Tyrklandi. Það er óþarfi
að vera að setja neitt á svið. Móð-
ir þessara stúlkna valdi sér Halim
A1 fyrir eiginmann - heiðarlegan
mann, útlending, duglegan mann,
Tyrkja. Móðir telpnanna hefur
sýnt eigið ístöðuleysi með því að
bijóta upp fjölskylduböndin og
hverfa frá islamskri trú sem hún
hafði tekið. Hvað hefur gerst með-
al fjölmiðlafólks á íslandi? Er ver-
ið að reyna að búa til ímyndaðan
óvin, koma á kynþáttahatri eins
og Hitler gerði? Eru íslendingar
hræddir við útlendinga eða önnur
menningarsamfélög? Hvers
vegna?
Hefur ykkur ekki verið sagt að
Ferðatívolíið:
Frá Erlu Björgvinsdóttur:
Vegna neikvæðra blaðaskrifa
um ferðatívolíð sem var hér á dög-
unum viljum við vekja athygli á
þeirri frábæru gestrisni sem okkur
var sýnd, þegar okkur bar þar að
garði. í síðustu viku ákváðum við
á tveimur deildum af Kópavogs-
hæli að skreppa í bæinn og skoða
tívolíið í leiðinni. Þegar inn var
komið hittum við framkvæmda-
stjórann, H. Taylor, og bauð hann
okkur að koma aftur, ásamt öllum
öðrum sem á Kópavogshæli búa,
utan venjulegs opnunartíma og
ókeypis. Þá væri líka hægt að
mannfjöldi þyrfti að vera meiri á
íslandi, að rými sé fyrir miklu fleiri
íbúa í landinu? Halim A1 jók íbúa-
flölda á íslandi, hið mannlega afl
sem er sterkasta afl hvers lands.
Já, hann varð þjóðinni til gagns
sem duglegur maður og vel heppn-
aður fjármálamaður. Hann hefði
getað eignast fleiri börn - heiðar-
legt, duglegt og vel heppnað fólk
laust við sálræn og líkamleg
vandamál sem eru svo algeng á
Vesturlöndum. En vanþroskuð,
ofsafengin og kynþáttafordóma-
full frænka telpnanna varð til þess
með hjálp ýmissa annarra að ís-
land fór á mis við þessi gæði.
Veit þetta fólk ekki að friðartíma-
bil nálgast nú á jörðu; án kommún-
isma, heimsvaldastefnu bolsévíka,
Darwinskenningar og guðleysis.
Veit það ekki að margir Evrópubú-
ar,'Ámeríkumenn, Asíu- og Afr-
íkubúar; þar á meðal andlegir leið-
togar, prestar, stjórnmálamenn,
söngvarar, rithöfundar og lista-
menn, hafa tekið upp islamska trú
og lifnaðarhætti, sem er í sam-
ræmi við nútíma vísindi. Hvorki
Tyrkland né islam eru óvinir ykkar
hafa leiktækin hæggengari og
taka vel á móti okkur. Við komum
því aftur viku síðar og voru mót-
tökurnar svo sannarlega góðar.
011 leiktækin voru gangsett og
notuðum við þau að vild. Þegar
allir voru búnir að skemmta sér
var boðið upp á breskan ávaxta-
safa og svo voru allir leystir út
með tuskudýrum. Þannig að allir
fóru ánægðir heim eftir vel heppn-
aða ferð.
F. h. starfsmanna og heimilis-
manna á Kópavogshæli, deild 1
ERLA BJÖRGVINSDÓTTIR
Keilufelli 6
né heimsins. Og það er gott að
láta sér skiljast að við lifum ekki
lengur á tímum nýlenduvelda, eng-
inn getur skipað Tyrkjum fyrir
verkum og enginn getur stolið
Ayseul og Vesile.
Tyrkneska þjóðin mótmælir
harðlega við íslenska fjölmiðla sem
hafa „bölvað eins og hundar“. Þið
hafið ekki rétt til að bölva öðrum.
Við héldum að ísland væri lýðræð-
isríki og þar ríkti virðing fyrir
mannréttindum, fjölskyldubönd-
um og friður með ólíkum menning-
arhópum. En ísland er ekki slíkt
land og íslendingar fylgja frænk-
unni að málum og fáum ofsa-
fengnum mönnum sem eru upp-
fullir af kynþáttafordómum.
Ef til vill munið þið vitkast í
framtíðinni eftir að hafa orðið fyr-
ir biturri reynslu sem leiðir af efn-
ishyggju, guðleysi, kynþáttafor-
dómum, lauslæti, eyðni, áfengis-
sýki, eiturlyfjum, slitnum íjöl-
skylduböndum o.fl. Þá mun ykkur
skiljast að islam er bjargvættur-
inn. Og þá munið þið skilja að
Ayseul og Vesile verða að tileinka
sér hina hreinu islömsku trú og
lifnaðarhætti.
Vitið þið að islam viðurkennir
meyfæðingu Jesú, kraftavek sem
Guð lét verða, og meydóm Maríu
og hinn stórkostlega persónuleika
hennar? Islam viðurkennir alla
spámennina, því Kóraninn lýsir því
yfir að allir spámennimir séu
múslimir og er Jesús meðtalinn.
Islam boðar múslimum að viður-
kenna og elska alla spámennina
og þar með Jesúm og Móses. Vilji
einhver það ekki, maður eða kona,
er sá ekki múslimur og mun lenda
í eilífu helvíti. En islam hafnar
þrenningarkenningunni (um þijá
guði eða persónuleika í svokölluð-
um einum guði). Guðspjöllin eru
fölsuð. Nútíma guðfræðingar
kristinna manna og gyðinga viður-
kenna að til hafi verið mörg ólík
guðspjöll rituð af óþekktum mönn-
um og ekki séu til nein upphafleg
handrit um gyðingdóm eða kristin-
dóm.
Góðar móttökur
Víkveiji skrifar
Veruleg umskipti hafa orðið á
stuttum tíma í mörgum grón-
um hverfum borgarinnar. Þar sem
varla sást barn fyrir nokkrum árum
fylla nú barnahópar gangstéttir og
græna bletti.
En skipulag umferðar hefur ekki
alltaf tekið tillit til þessarar þróun-
ar. Sem dæmi má nefna Egilsgöt-
una en á síðustu tveimur árum hef-
ur börnum fjölgað verulega í göt-
unni. Við hana standa Domus
Medica og Heilsuverndarstöðin,
leigubíla- og sendibílastæði og af
þeim sökum er þar talsverð umferð.
En til viðbótar hefur umferðarþung-
inn um götuna nú verið aukinn með
því að banna nýlega vinstri beygju
yfir á Snorrabraut af Eiríksgötu.
Afleiðingin er sú, að öll umferð úr
Þingholtunum sem ætlar norður
Snorrabraut, kemur niður Egilsgöt-
una.
Á svipuðum tíma var hámarks-
hraði umferðar um götuna lækkað-
ur í 30 km sem ætti að draga úr
slysahættu. En bílstjórar annað
hvort hunsa, eða taka ekki eftir
þessum takmörkunum og afleiðing-
in er þung, tiltölulega hröð umferð
um götu þar sem talsverður fjöldi
barna er jafnan að leik á gangstétt-
um. Þessi umferð léttist að vísu
venjulega þegar vinnudegi lýkur en
undanfarin kvöld hafa stórir vöru-
bílar með stór moldarhlöss farið
reglulega niður götuna, yfiríeitt á
töluverðri ferð, vegna framkvæmda
við Austurbæjarskólann, íbúum
götunnar til lítillar ánægju.
xxx
Víkveiji hitti mann að máli ný-
lega sem hafði sagt upp
áskriftinni að Stöð 2 yfir hásumar-
ið í sparnaðarskyni. Hann sagðist
vera mikið útivið og sjónvarpsgláp
því í lágmarki. Maðurinn hafði því
aðeins aðgang að Ríkissjónvarpinu,
sem er skylduáskrift fyrir alla sem
eiga sjónvarpstæki, eins og kunn-
ugt er.
Maðurinn var mest hissa á því
hve léleg dagskrá RÚV væri. Hann
sagði að það væri hending ef boðið
væri þar upp á áhugaverða þætti.
Hann sagðist frekar hafa sagt upp
áskriftinni að RÚV ef hann hefði
haft um það val. Víkveiji tekur
heils hugar undir þetta. Dagskrá
RÚV hefur verið óvenju slöpp í
sumar. Það getur ekki gengið mik-
ið lengur að skylda fólk til þess að
borga fyrir sjónvarpsefni sem það
vill ekki sjá.
xxx
Vonir um að sumarið yrði jafn
gott og í fyrra hafa brugðist,
enn sem komið er að minnsta kosti.
Þó hefur sólin látið sjá sig nokkrum
sinnum sunnanlands síðustu daga
og þá reyna allir að gemýta sólar-
geislana. Víkveiji hefur tekið eftir
því að veitingahús í höfuðborginni
hafa sett borð út á gangstétt þegar
viðrar til, eins og alsiða er erlendis,
þar sem fólk getur setið og notið
veitinga og góða veðursins. Þetta
setur óneitanlega skemmtilegan
svip á borgarlífið og eykur ánægju
bæði veitingahúsagesta og vegfar-
enda.