Morgunblaðið - 29.07.1992, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 29.07.1992, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JULÍ 1992 27 Dagvistarmál í borginni eftir Signýju Sigurðardóttur Ég leyfi mér að koma á framfæri smáerindi í þeirri von að þið sýnið því áhuga. Kannski er þetta orðið „þreytt mál“ og ekkert frekar um það að segja, þá verður það að vera svo. Ég er bara einn af íbúum þessar- ar borgar og enn einu sinni hefur verið gengið svo gjörsamlega fram af mér að ég er orðlaus. Eins og við vitum sem áhuga höfum á umönnun bama í þessari borg eru þau yfirleitt afgreidd sem afgangsstærð og virðist ekki vera að borgaryfirvöld líti þannig á að þau þurfi að veita foreldrum neina þjónustu eða aðstoð við uppeldi þeirra. Mér hefur alla tíð þótt það ákaflega furðulegt að í lok 20. aldar skuli það enn þykja sjálfsagt í Reykjavík að fólk á barneignaraldri skuli ekki hafa annað val en það að annaðhvort eignast ekki börn eða að vera heima hjá börnum sínum, þannig sé ég umhverfið í þessari borg í dag að minnsta kosti. Það sem kemur þá mér til að skrifa þessar línur núna er eins og oft vill verða að ákveðið mál snertir mig persónulega. Ég eignaðist dótt- ur 1989 og var þá í sambúð. Ég var í góðu starfi sem mér líkaði mjög vel og hafði hugsað mér að halda áfram í, jafnvel þó að ég leyfði mér að gerast foreldri. Þetta starf var 100% starf og gat aldrei orðið annað og ég fór á stúfana í lok lögbundins bameignarfrís að sækja um dagvist- unarpláss fyrir dótturina hjá Dagvist barna. Ég svo sem vissi fyrirfram að mér yrði ekki leyft að sækja um þar sem ég var sek um að vera í sambúð, en ákvað samt að leita eft- ir því og vita hvaða svör ég fengi. Ég fékk að sjálfsögðu strax það svar að ég fengi ekki að skrá dóttur- ina vegna minnar aðstöðu. Ég mátti sækja um fyrir hana í fyrsta lagi þegar hún væri orðin eins og hálfs árs og þá einungis um hálfsdagsvist- un. Eg bað um svar við því á hvaða forsendu væri hægt að neita mér um að svo mikið sem skrá hana á biðlista um heilsdagsvistun og fékk það svar að það væri ákörðun tekin af stjórn Dagvistar bama, punktur og basta, starfsfólkið hjá stofnuninni hefði fyrirmæli um að fara eftir þeirri ákvörðun og meira væri ekki um málið að segja. Ég gaf mig ekki strax og skrifaði bréf á staðnum til framkvæmdastjóra Dagvistar barna og bað um skriflegt svar frá honum hvernig hann rökstuddi þessa synj- un. Ég fékk skriflegt svar og á það enn heima hjá mér þar sem það er staðfest og undirritað að hjóna-/sambúðarfólki er ekki heimilt að skrá börn sín á biðlista eftir heils- dagsvistun á dagheimilum þessarar borgar. Þetta er skv. ákvörðun stjórnar Dagvistar barna. Þá var ekki um annað að ræða fyrir mig en að sækja um „dag- mömrnu" allan daginn ef ég ætlaði mér að halda starfinu. Nákvæmlega sama staða, geri ég ráð fyrir, og flestir aðrir foreldrar lenda í. Til að fá dagmóður leita ég til sömu stofn- unar — Dagvistar barna — og tala þá við umsjónarfóstru viðkomandi hverfis. Upplýsingarnar sem ég fæ eru nöfn og símanúmer og þar með er það upptalið, svo „vesgú“ verð ég að hjálpa mér sjálf. Upplýs- ingarnar sem skipta öllu máli, s.s. eins og hvernig þessi eða hin dagm- amman sé, hvernig aðstæður séu hjá henni, hvað hún geri fyrir börn- in o.s.frv. o.s.frv., voru ekki fyrir hendi. Ég varð sem sagt að hitta þessar konur og fara eftir minni eig- ■in tilfinningu eingöngu. Ég ætla ekkert að lýsa óörygginu sem kom yfir mig á þessum tíma að treysta á „Guð og lukkuna" þegar ég kom dóttur minni fyrir. Ég tek það fram að auðvitað hlýtur það að vera óumf- lýjanlegt að finna fyrir óöryggi til að byija með þegar maður er í fyrsta skipti að láta bamið sitt frá sér dag- langt, en auðveldara væri það ef maður vissi eitthvað um umönnuna- raðilann, í stað þess að þurfa bók- staflega að renna blint í sjóinn. Aðstæður dagmæðra eru mjög misjafnar og t.d. varð ég að sætta mig við að um útivist var ekki að ræða hjá þeirri er tók dóttur mína, og ég hef fengið að heyra frá mörg- um að hún er ekki sú eina. Þær láta börnin sofa úti þegar þau em lítil og kannski ekki þörf á frekari úti- vist en þegar þau verða eldri og þurfa hreyfingu þá verða þau annað- hvort að vera inni allan daginn eða það verður að leita annað. Það gerði ég sl. haust, og núna er dóttir mín hjá dagmóður sem setur börnin á gæsluvöll, stundum bæði fýrir og eftir hádegi, tvo tíma í senn. Ég er báðum þessum konum þakklát fyrir að hafa getað leitað til þeirra. En ég er vægast sagt mjög óánægð með að þetta skuli vera það eina sem dóttur minni er boðið upp á ef ég vil ekki gjöra svo vel að vera heima hjá henni. Ég borga í dag tæplega 27.000 krónur fyrir þessa vistun og vildi mjög gjarnan borga sömu upp- hæð fýrir vistun þar sem ég vissi að eitthvað væri verið að gera fyrir hana, unnið væri eftir einhverri dag- skrá. En ég lít þannig á að þessivist- un sé fyrst og fremst „geymsla" og hef samviskubit yfir því á hveijum degi að dóttir mín skuli þurfa að lifa við það. Því miður átti ég ekki því láni að fagna að sambúðin við föður dóttur minnar gengi upp og skildum við þegar dóttirin var rúmlega eins árs, eða fyrir ári. Þá leitaði ég aftur til Dagvistar barna til að skrá dóttur mína á biðlista eftir heilsdagsvist og hafði þá leyfi til þess. Biðlistinn var langur og var mér sagt að ég kæmi henni ekki að fyrr en að ári liðnu, sem er þá núna, 1992. Ég Signý Sigurðardóttir „Mér þykir með ólíkind- um að ástandið hér skuli vera þannig á þessum tímum að það skuli þurfa að setja svona reglur, að taka skuli einn hóp fram yfir annan.“ reyndi til að byija með að hringja af og til en var bent á að það hefði engin áhrif. Dóttir mín væri komin á biðlista og hún kæmist að þegar að því kæmi, hringingar mínar hefðu þar engin áhrif. Allan tímann hefur því verið haldið statt og stöðugt fram að ég kæmi henni að í síðasta lagi eftir sumarfrí i ár. Svona var og er ástandið þó svo að ég sé í forgangs- hópi. Ég hef þennan tíma treyst þessu fullkomlega og reiknað með og hlakkað til að fá loks þetta pláss. Þá er ég komin að því sem kemur mér til að skrifa þetta bréf. Þegar ég hringi til Dagvistar barna í morg- un og spyr hvað líði þessu bréfi sem búið var að segja mér að yrði sent út nú í apríl, er mér sagt að þetta sé nú allt breytt. Líklega fæ ég ekk- ert bréf frekar en margir aðrir for- eldrar í sömu aðstöðu. Stjóm Dag- vistar barna hefur nefnilega tekið ákvörðun um það að í öllum tilfellum séu fjögurra ára börn látin ganga fyrir! Það er alveg sama hvenær sótt var um fyrir þau börn, hvort stutt er síðan þau komust á biðlista eða ekki, þau ganga fyrir. Þessi ákvörðun var bara tekin si svona fyrir tveimur eða þremur mánuðum og var hún hvorki kynnt starfsfólki Dagvistar áður né foreldrum bama á biðlistum síðan. Ég hef ekki feng- ið að heyra hvað þetta þýðir fyrir dóttur mína, þar sem ég hef ekki getað náð sambandi við þann starfs- mann Dagvistar sem hefur með þessa ákveðnu biðlista að gera, en geri ráð fyrir því versta eða að ég/hún þurfi að bíða í einhveija mánuði eða ár enn eftir plássi. Ég vil að síðustu taka það fram að ég hef fulla samúð með foreldrum íjögurra ára bama alveg eins og ég hef samúð með foreldrum allra bama í þessari borg, sem búa við þessa þjónustu ef hægt er að kalla þetta það. Mér þykir með ólíkindum að ástandið hér skuli vera þannig á þessum tímum að það skuli þurfa að setja svona reglur, að taka skuli einn hóp fram yfir annan. Mér þyk- ir ekki mikið að gera þær kröfur til samfélagsins (ekki síst yfirvalda hér í Reykjavík þar sem peningar eru til en það er meira en hægt er að segja um flest sveitarfélög önnur) að það hjálpi til við uppeldi bama og lái mér hver sem vill. Af hveiju þurfum ég og aðrar konur (ég segi konur því þannig er það í reýnd) að sætta okkur við þetta ástand? Að velja á milli þess að eiga ekki bam eða eiga bam og þurfa þá um leið annaðhvort að vera heima og gleyma eigin þörfum (ef þær eru aðrar en að vera heima hjá baminu) eða senda bamið eitthvert í vistun og sitja uppi með eilíft samviskubit. Ég gæti haldið lengi áfram og er svo sem búin að skrifa 100 greinar í huganum síðan ég varð móðir en aldrei gert í því að koma neinu nið- ur á blað. Mig langar til að koma þessum hugleiðingum mínum á framfæri í þetta skiptið í von um að eitthvað af þessu geti komið af stað umræðu um þessi mál. Höfundur starfar við útflutmngsverslun. 1 SUZUKIVITARA 5 DYRA LÚXUSJEPPI Suzuki Vitara er rúmgóður 5 manna lúxusjeppi, búinn öllum helstu þæg- indum fólksbíls og kostum torfærubíls. Hann er grindarbyggður og má auðveldlega hækka og setja undir hann stærri dekk. Suzuki Vitara er með 4ra strokka, 16 ventla vél með beinni innspýtingu. Jjr SUZUKI Verð frá kr. 1.576.000.- . SUZUKI BÍLAR HF SKEIFUNNI 17 SlMI 68 51 00 wm SKUTBILL Daglegt amstur gerír ólikar kröfurtil bifreiða. Lada station sameinar kosti fjöl- skyldu- og vinnubíls, ódýren öflugur þjónn, sem mælir með sérsjálfur. Veldu þann kost, sem kostar minna! Opið kl. 9-18. Laugard. 10-14. BifreUSarog landbúnaðarvéiarhf. Ármúla 13, Suðurlandsbraut 14. Sfmi681200. REGNFATNAÐUR vind- og vatnsheldur JAGGER regnjakki. Verð kr. 6.390,- = »hummél^ SPORTBÚÐIN ÁRMÚLA 40 ■ simar 813555 og 813655.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.