Morgunblaðið - 03.12.1992, Síða 54

Morgunblaðið - 03.12.1992, Síða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992 KNATTSPYRNA / HM Stoichkov lék með Búlgörum BULGARIR unnu Israelsmenn 2:0 í 6. riðli undankeppni heims- meistarakeppninnar í knatt- spyrnu í gær og eru þar með komnir í efsta sæti riðilsins, hafa hagstæðara markahlutfall en Svíar. Hristo Stoichkov, sem leikur með Barcelona á Spáni, lék með þrátt fyrir að þjálfarinn hefði lýst því yfir að hann yrði ekki með þar sem hann fór til Spánar til að leika með liði sínu um síðustu helgi. Þjálf- arinn vildi ekki taka áhættuna á að tapa stigi eða stigum og bað því Stoichkov að mæta til leiks. Það gerði hann og lagði upp fyrra markið sem Sirakov gerði á 55. mín- útu. Síðara markið gerði Penev skömmu fyrir leikslok. Vamarmað- urinn Trifon Ivanov, sem einnig leik- ur á Spáni og fór með Stoichkov þangað jim helgina, var einnig mætt- ur til leiks þrátt fyrir hótanir þjálfar- ans. ísraelar hafa tapað öllum þremur URSLIT Skvass Kim Magnús Nielsen sigraði með yfirburð- um í Hi-Tec-skvassmótinu, sem fór fram um helgina, og tapaði ekki lotu. Helstu úrslit: A-flokkur karla Kim Magnús Nielsen Magnús Helgason Jökull Jörgensen B-flokkur karla Jón Páll Gestsson Hjalti Sölvason Kristján Gaukur Kristjánsson C-flokkur (opinn) Ralf Hartemink Páll Guðmundsson Elín Blöndal Kvennaflokkur Elín Blöndal Ingrid Svensson Ásta Ólafsdóttir Reykjavíkurmót í Júdó 7 - 10 ára - 25 kg 1. Sigurður M. Davíðsson, Á. 2. Amar Halldórsson, Á 3. Bjarki Sólmundsson, JFR 3. Kári Birkisson, JFR. - 30 kg Sigurður Kristjánsson, JFR 2. Helgi I. Halldórsson, JFR 3. Siguijón M. Heiðarsson, Þ. 8. Hannes Jónsson, Á. -35 kg 1. Snævar M. Jónsson, Á. 2. Dagur Sigurðsson, JR. 3. Óskar Jónsson, í. 3. Hreinn Halldórsson, Á. + 35 kg 1. Þormóður Jónsson, JR. 2. Bjöm Ámason, JR. 3. Hallur Ámason, Þ. 3. Gunnar Jakobsson, Þ. 11-14 ára 1. Snævar M. Jónsson, Á. 2. ívar Sigurbjömsson, Á. 3. Eymar B. Gunnarsson, Á. 4. Snorri Gunnarsson, Á. - 40 kg 1. Funi Sigurðsson, JR. 2. Hjörtur Davíðsson, Á 3. Teitur Hjaltason, Á 3. Páll B. Jacþórsson, Á. - 46 kg. 1. Ölafur Baldvinsson, A. 2. Andri Júlíusson, Á. 3. Kristinn Guðjónsson, JR. 3. Tryggvi Óiafsson, Á. + 46 kg 1. Atli Gylfason, Á. 2. Ólafur Baldursson, Á. 3. Bergur Sigfússon, Á. 15 - 17 ára 1. Vignir Stefánsson, Á. 2. Atli Gylfason, Á. 3. Bergur Sigfússon, Á. Hrlsto Stolchkov leikjum sínum í riðlinum til þessa en þeir fengu þó færi í gær. Ronny Rosenthal fékk m.a. mjög gott færi í upphafi síðari hálfleiks en mark- vörðurinn bjargaði meistaralega. Búlgaría hefur 6 stig eftir fjóra leiki, Svíar hafa einnig 6 stig og eiga leik inni. Frakkar hafa fengið 4 stig í þremur leikjum. SKIÐI HANDKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNI HSI Atvikið íVestmannaeyjum kært: Valurferfram á hlutlausan völl VALSMENN afhentu HSÍ bréf i gærkvöldi, þar sem þeir kæra leikmann ÍBV fyrir lík- amsárás og fara fram á að sambandið flytji fyrirhugaða bikarleiki ÍBV og Vals i karla- og kvennaflokki, sem eiga að vera í Eyjum 12. desember, á hlutlausan völl. Eins og Morgunblaðið greindi frá í gær rauk leikmaður ÍBV af varamannabekknum eftir leik- inn gegn Val í 1. deild karla og sló einn mótherja sinn svo úr blæddi og skallaði annan. Vals- menn kölluðu lögreglu á staðinn og var tekin skýrsla og gengið var frá áverkaskýrslu í gær, en HSf fékk málið formlega í hendur í gærkvöldi. Lúðvík Sveinsson, formaður handknattleiksdeildar Vals, sagði við Morgunblaðið, að brotið hefði verið kært til aganefndar, en auk þess yrði því fylgt eftir á opinber- um vettvangi, því um beina lík- amsárás hefði verið að ræða. Hann sagði að áhorfendur í Eyjum hefðu brugðist ókvæða við, þegar Valsmenn kölluðu á lögregluna, og hótað öllu illu, þegar liðin mættust í bikarkeppninni um aðra helgi. Hótunina bæri að taka al- varlega og því hefði verið farið fram á við HSÍ að bikarleikir fé- laganna í karla- og kvennaflokki yrðu fluttir á hlutlausan völl. Til vara hefði þess verið krafist að HSÍ áminnti stjóm ÍBV og tryggði að auki öryggi Valsmanna í Vest- mannaeyjum, þegar og ef bikar- leikimir færu þar fram. Lúðvík sagði að í bréfínu til HSÍ hefði verið greint frá því sem gerðist í höllinni í Eyjum eftir leik- inn í fyrrakvöld og allt væri þetta til á myndbandi. „Framkoma manna eftir leikinn var fyrir neð- an allar hellur og ekki er þorandi að fara aftur út í Eyjar við þessar aðstæður," sagði Lúðvík. Gunnar Kr. Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri HSÍ, staðfesti að kæran hefði borist en vildi ekki tjá sig að öðru leyti um bréf Vals- manna. Sagði samt að aganefnd myndi taka málið fyrir og væntan- lega mótanefnd og framkvæmda- stjórn HSÍ. Alberto Tomba i stórsvigi. BORÐTENNIS Alberto Tomba hótar að hætta í stórsvigi ÍTALINN Alberto Tomba hótaði í fyrradag að hætta að keppa í stórsvigi íheimsbikarmótunum. Hann eróánægður með hvernig brautin var lögð í fyrsta mótinu sem var um helgina. Tomba, sem varð ólympíumeist- ari í stórsvigi 1988 og aftur í ár, varð annar um helgina á eftir Kjetil-Andre Aamodt. „Ef þeir halda áfram að leggja stórsvigs- brautirnar eins og þeir gerðu um helgina, stuttar og hraðar, get ég ekki sigrað samanlagt í heimsbik- arnum,“ sagði Tomba í gær. „Þá get ég eins hætt að keppa í stór- svigi í heimsbikarnum," bætti hann við. Tomba hefur alltaf neitað að keppa í „hættulegri“ alpagreinun- um, þ.e.a.s. risasvigi og bruni, og Færeyingar höfðu betur ÍSLENDINGAR töpuðu fyrir Færeyingum, 5:2, ílandsleik í borðtennis sem fram fór í Þórs- höfn fyrir stuttu. Unglingalið íslands unnu bæði sína leiki nokkuð auðveldlega. Sigurður Jónsson, sem er aðeins 15 ára, lék fyrsta landsleik sinn og tapaði naumlega í odda- lotu, 21:19. Kristján Viðar Har- aldsson jafnaði metin með góðum sigri, en Ásta Urbancic, sem lék sinn 50. landsleik, mátti þola tap, 2:0. Færeyingar unnu síðan í tví- liðaleik karla, en Kristján og Ásta minnkuðu muninn í tvenndarleik. Þá töpuðu Sigurður og Kristján Aðalfundur Hauka Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Hauka verður haldinn nk. miðvikudag, 9. desember, kl. 20.00 í félagsheimilinu. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. öðru sinni í einliðaleik og lokatölur því 5:2. Eldra unglingalið íslands átti ekki í miklum erfiðleikum með sig- ur gegn jafnöldnim sínum. Ingólf- ur Ingólfsson, Ólafur Eggertsson og Margrét Hermannsdóttir skip- uðu liðið og unnu alla leikina nema að Ólafur tapaði seinni leik sínum í einliðaleik, 21:19, í oddalotu og urðu úrslitin 1:6 fyrir ísland. Yngra liðið vann með fullu húsi, 0:7. Færeyingar náðu aðeins að vinna eina lotu í keppninni. Guð- mundur Stephensen, Bjöm Jóns- son og Ásdís Kristjánsson skipuðu íslénska liðið. Opið mót einstaklinga var haldið á Austurey. Sigurður Jónsson vann karlaflokkinn, Færeyingurinn Pét- ur Niclasen varð annar og Kristján Haraldsson þriðji. í kvennaflokki hafnaði Ásta í 2. sæti á eftir Mar- íu Petersen en María varð þriðja. Guðmundur Stephensen sigraði í báðum unglingaflokkunum örugg- lega en Ásdís hafnaði í öðru sæti í stúlknaflokki. í einstaklingskeppninn var keppt í 13 flokkum og unnu ís- lensku keppendumir 7 gull, 8 silfur og 5 bronsverðlaun. BADMINTON Tryggvi stóð sig vel Tryggvi Nielsen, badmintonleikari í TBR, stóð sig vel á sterku móti fyrir 18 ára og yngri sem fram fór í Bretlandi um helgina. Tryggvi sigarði í einliðaleik og tvendarleik en féll úr keppni í tvíliða- leik fyrir sigurvegurum mótsins. Þetta er mjög góður árangur hjá Tryggva en meðal þátttakenda voru margir úr unglingalandsliði Breta. það hefur komið niður á honum í heildarstigakeppninni. Þar hefur hann þrívegis orðið í öðm sæti síð- ustu fímm árin. Tomba lét Emst Kovac líka heyra það, en hann lagði brautina fyrir síðari umferðina um helgina. „Kovac lagði allt of þrönga braut. Hann þekkir mig og veit hvernig ég skíða, en hann vildi hjálpa Arm- in Bittner," sagði Tomba en Kovac er þjálfari Bittner. „Þjálfarinn minn leggur alltaf brautir sem henta öll- um keppendum," bætti hann við. URSLIT Körfuknattleikur NBA-deildin: Leikir þriðjudag: Atlanta - Indiana...........119:107 Boston Celtics - Cleveland..101:111 New York - Portland.........101: 85 Washington - San Antonio....119:106 Denver - Houston.......... 112:105 Utah Jazz - Dallas........ 116:101 Phoenix - Chárlotte.........109: 90 Seattle - Orlando...........116:102 Sacramento-LALakers.........117:110 Íshokkí NHL-deildin: Leikir á þriðjudag: New Jersey- Toronto Maple Leafs...8:3 Pittsburgh - New York Islanders...7:3 Minnesota North Stars - Ottawa..3:1 LA Kings - Chicago Blackhawks.....6:3 St Louis Blues - Hartford Whalers.8:4 Edmonton Oilers - San Jose Sharks.3:1 KNATTSPYRNA Knattspyrnuskóli í Þýskalandi Samvinnuferðir/Landsýn hefur gert samn- ing við Burdenski-knattspymuskðlann i Þýskalandi fyrir milligöngu Ásgeirs Sigur- vinssonar. Skðlinn er starfræktur á tveimur stöðum, Auerbach við Frankfurt og Gröm- itz nálægt Bremen. Fyrir utan skólann er einnig boðið upp á æfingaaðstöðu fyrir meistaraflokkslið um páskana rétt þjá Bremen og er hægt að útvega æfingaleiki við þýsk knattspymulið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.