Morgunblaðið - 27.01.1993, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 27.01.1993, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1993 fclk í fréttum VESTMANNAEYJAR 20 ára gosafmælis minnst á ýmsan hátt Andri Hrólfsson játar sig sigraðan og þar með er Helgi Ólafsson orðinn skákmeistari Vestmannaeyja árið 1973. V estman naeyj um. Eyjamenn minntust þess um helgina að 20 ár voru liðin frá upphafi eldgossins á Heimaey. Gosmunadeild var opnuð á byggða- safninu, ný stjómstöð almanna- varnanefndar var tekin í notkun, Skákþingi Vestmannaeyja 1973 lauk, dagskrá var í Safnaðarheim- ilinu og helgistund í Landakirkju. Klukkan 11 á laugardagsmorg- uninn var fram haldið Skákþingi Vestmannaeyja 1973 en síðasta umferð þess fór fram 22. janúar 1973. Þá fór í bið skák Helga Ól- afssonar og Andra Hrólfssonar og hafði hún beðið þess í 20 ár að verða kláruð og er þetta líklega lengsta biðskák í heimi. Þá voru fjórar skákir, sem frestað hafði verið, ótefldar. Helgi Ólafsson sigr- aði biðskákina við Andra og vann Arnar Sigurmundsson í frestaðri skák þeirra og varð því skákmeist- ari Vestmannaeyja 1973. Að loknu Skákþinginu fór fram hraðskák- mót sem Helgi sigraði í. í Byggðasafninu var opnuð sér- stök gosmunadeild. Þar hafa verið settar upp myndir og ýmsir munir frá gostímanum. Bragi I. Ólafsson, forseti bæjarstjómar, flutti ávarp og opnaði síðan gosmunadeildina. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Þeir fylgdust með Skákþinginu. Frá vinstri Páll Zophóníasson, fyrr- verandi bæjarstjóri, Guðjón Hjörleifsson, bæjarsljóri, og Magnús H. Magnússon, fyrrverandi bæjarstjóri. H Kennsla Kennarar: Arnar Már Ólafsson og Martyn Knipe Nýliðanámskeið Hóptímar Einkakennsla Fyrirtækjadagar Unglinganámskeið Barnanámskeið Myndbandakennsla Rúmgóð kaffistofa Screansport-Eurosport Billardborð Kylfusala - Kylfuviðgerðir Æfingaaðstaða. Æfingabásar með góðum æfingamottum. 30m æfingabraut (Drive). Vippaðstaða. 18 holu púttflöt og vippflöt. Kennslutölvur. Speglasalur og myndbandaaðstaða Golfhermir með skemmtilegum völlum. Púttmót alla sunnudaga. Alhliða þjónusta veitt af fagmönnum. Leytið ekki langt yfir skammt. Það er alltaf gott golfveður í Goifheimi. 1 Opið frá kl. 9.00 til 23.30 alla daga. GOLFHEIMUR Skeifunni 8, sími 67 78 70 1 Fulltrúar Slökkviliðsins á Kefla- víkurflugvelli komu færandi hendi til Eyja og færðu starfsbræðrum sínum í Slökkkviliði Vestmanna- eyja að gjöf fyrstu sprautuna sem notuð var við hraunkælinguna í Eyjum. I Björgunarfélagshúsinu var tekin formlega í notkun stjómstöð almannavarnanefndar Vest- mannaeyja. Stöðin er vel tækjum búin og staðsett við hliðina á lög- reglustöðinni og þaðan er ráðgert að stjóma starfi ef það ástand skapast að almannavarnanefnd þarf að taka við stjórn i Eyjum. Guðjón Petersen, framkvæmda- stjóri Almannavamanefndar Ríkis- ins, flutti ávarp og opnaði síðan stjórnstöðina. Á laugardagskvöldið var síðan helgistund í Landakirkju. Á sunnu- daginn var dagskrá í safnaðar- heimilinu. Þar rifjaði Páll Zophón- íasson upp minnisstæða atburði frá eldgosinu. Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri flutti ávarp, Gísli Elías Baldvinsson, slökkviliðsstjóri í Eyjum, tekur við gjöfinni frá Slökkviliðinu á Keflavikurflugvelli. Helgason rifjaði upp Eyjapistla, en krossins á gostímanum. Þá fluttu hann ásamt Amþóri bróður sínum Kirkjukórinn og Inga Backman sá um þætti með þessu nafni í einsöngvari nokkur lög. útvarpinu á gostímanum, og Björn Grímur Tryggvason rifjaði upp starf Rauða Morgunblaðið/Silli. Á myndinni eru f.v. Hilmar, Hákon, Rúnar H. og Heimir sitjandi. ÚTVARP HÚSAVÍK Skólaútvarp o g öryggistæki Húsavík. Ný útvarpsstöð, Húsavík PM 103, lét fyrst í sér heyra fimmtudagskvöldið 21. janúar kl. 20.30. Þetta er skólaútvarp sem jafnframt á að verða öryggistæki fyrir Húsavík ef svo skyldi fara að bærinn yrði sambandslaus eins og gerðist í eftirminnilegu krubbs- veðri í upphafi árs 1991. Útsendingin hófst með ávarpi sem Heimir Harðarson flutti fyrir hönd útvarpsklúbbs framhalds- skólans sem annast mun rekstur stöðvarinnar. Áformað er að út- varpa tvo tíma á kvöldi 5 daga vikunnar. Einnig komu fram í þessari fyrstu útvarpssendingu bæjarstjórinn Einar Njálsson og skólameistarinn Guðmundur Birk- ir Þorkelsson. Bæjarstjórinn gat þess að eftir fyrrnefnt veður hefði þar þótt skortur á öryggi að ekki væri til FM sendir til að koma nauðsynlegum tilkynningum til bæjarbúa, við slíkar aðstæður, sem þá hefðu skapast. Því hefði bærinn keypt þennan sendi og lánað skól- anum hann til afnota. Hann brýndi fyrir nemendum að slíku útvarpi fylgdi ábyrgð sem hann vonaði og treysti húsvískri æsku til að axla. Guðmundur Birkir skólameist- ari taldi þetta merkan dag í sögu Framhaldsskólans á Húsavík og með þessu væri nemendum fært gott tæki til þroska bæði í starfi og leik. Úvarpsráð Framhaldskólans skipa Heimir Harðarson, Hilmar Dúi Björgvinsson, Hákon Sig- urðarson og Rúnar H. Sigmunds- son. Þeir segja þetta eigi fyrst og fremst að vera skólaútvarp með fjölbreyttri tónlist sem mótist af smekk þeirra sem sjá um þættina að hveiju sinni. En þeir muni einn- ig reyna að ná til fleiri bæjarbúa með fjölbreyttara efni, þá fram líða stundir. En engar auglýsingar verði í þessu útvarpi. - Fréttaritari. Heildsöluverð á undirfatnaði frá CACHAREL og PLEYTEX. Einnig snyrtivörurá kynningarverði. ÞOKKI Faxafeni 9, sími 677599

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.