Morgunblaðið - 27.01.1993, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 27.01.1993, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐYIKUDAGUR 27. JANÚAR 1993 35 Félagar í golfklúbbnum Keili fóru blysför frá nýja golfskálanum. Ljósmyndir/Magnús Hjörleifsson HAFNARFJÖRÐUR Þorri blótaður með mat og brennu Vesturkot brennur. F.v. Guðjón Sveinsson stjórnarmaður i Keili, Hálfdan Karlsson flutti minningarorð um Vesturkot, Baldvin Jóhannsson félagsmaður í Keili og Gísli Sigurðsson félagsmaður í Keili. Golfklúbburinn Keilir í Hafnar- firði fagnaði þorranum í nýju félagsheimili síðastliðið laugar- dagskvöld og sunnudagsnótt. Á meðan brann gamla félagsheimilið en sá bruni var tímabær og sam- kvæmt áætlun; hafnfírskir kylfar- ar kveiktu sjálfír í húsinu. Golfklúbburinn Keilir í Hafnar- fírði var stofnaður árið 1967. Golf- iðkan félagsmanna hefur verið stunduð á Hvaleyrarholti. Þegar klúbburinn tók til starfa var fé- lagsheimilinu fundinn staður í gömlu býli í holtinu; Vesturkoti. Síðasta aldarfjórðunginn hefur golfspil aukist mjög í firðinum og eru nú félagar í klúbbnum 580. Gamla félagsheimilið var því fyrir löngu orðið allt of lítið, tæpir 150 fermetrar. Klúbburinn réðst því í það verk að byggja nýtt og stærra; tæplega 500 fermetra hús 600 metrum sunnar í Hvaleyrinni rétt ofan við þann stað sem Sædýra- safnið var í eina tíð. Hið nýi golfskáli var tekinn í notkun 6. september á 25 ára af- mæli klúbbsins en eftir stóð gamla Vesturkot. Að sögn Hálfdanar Karlssonar formanns golfklúbbs- insins var gamla húsið orðið erfítt í viðhaldi og flutningur og/eða endurbætur voru ekki taldar svara kostnaði. Að höfðu samráði við yfírvöld varð það að ráði að eyða húsinu með eldi. Síðastliðið föstudagskvöld komu um hundrað félagar í Keili saman til þorrablóts en áður en golfspilarar settust að þjóðlegum kræsingum fóru þeir blysför frá nýja félagsheimilinu til hins gamla og báru eld að. Auk eldfæra var harmonika með í för. Á meðan logarnir léku um um Vesturkot flugu gamlar og ljúfar minningar frá liðnum starfsárum um hugi klúbbfélaga. Þegar eldurinn hafði að mestu unnið sitt verk sneru félagar aftur til til hins nýja fé- lagsheimilis þar sem þorramatur og góðar veigar biðu á borðum. Nú horfa hafnfirskir golfspilar- ar til framtíðaruppbyggingar í nýjum húsakynnum en í vor hyggj- ast þeir bæta við níu holum við golfvöll sinn en sú viðbót verður í hrauninu þar sem sædýrasafnið var áður. SKRIFSTOFUTÆKM Tölvuskóli Reykjavíkur hjálpar þér að auka þekk- ingu þína og atvinnumöguleika, hvort heldur sem er á lager, skrifstofu eða í banka. Þú lærir á vinsæl- ustu Windowsforrit PC-tölvunnar og kynnist Mac- intoshtölvunni. Þar að auki lærirðu almenna skrif- stofutækni, bókfærslu, tölvubókhald, verslunar- reikning og tollskýrslugerð. Innritun fyrir vorönn stendur yfir. Hringdu og fáðu sendan ókeypis bækling. NIKON F4 Til sölu er mjög vel með farin Nikon F4s myndavél. Verð aðeins kr. 85.000,- Upplýsingar í síma 23411 kl. 9-18. CAPTURE FRÁ CHRISTIAN CAPTURE LIFT erenn ein kremnýjungin fró Christian Dior til að viðhalda aosku húð- arinnor. Capture lift er algjör nýjung, sem byggist ó nýrri teg- und af liposome. Copture Lift er fyrst og fremst næturkrem og er ætloð fyrir allar húðgerðir. DIOR sérstaklego fyrir aldurshóp innumog yfir ‘fimmtugt. Með daglegri notkun sóst órangurótrú- lego fljótt. Capture Lift er ofnæmis- prófað. LIFT VERÐLAUNAHAFAR I GETRAUN ÍSLENSKRA MATVÆLA „HVAÐA SÍLD FINNST ÞÉR BEST?" Kristján Þór Guðmundsson, Breiðvangi 30, 220 Hafharfirði Einar M. Einarsson, Birkimel 6, 107 Reykjavík Bryndís Jóhannsdóttir, Baldursbrekku 13, 640 Húsavík Svandís Birkisdóttir, Lyngheiði 26, 810 Hveragerði Þorvaldur Ingibergsson, Blesugróf22, 108 Reykjavík j Árni K. Ehmann, Löngumýri 37, 210 Garðabœ = Magnús Pálsson, Huldubraut 17, 200 Kópavogi Ingigerður Ágústsdóttir, Víkurbakka 32, 109 Reykjavík Anna Marie Georgsdóttir, Jakaseli 4, 109 Reykjavík Guðrún H. Hjálmarsdóttir, Borgarflöt 11, 340 Stykkishólmi Vinningshafar eru beðnir að hafa samband við skrifstoíu íslenskra matvæla f síma 91-51455. ÍSLENSK MATVÆLI ÞAKKA LANDSMÖNNUM MJÖG GÓÐA ÞÁTTTÖKU fSLENSK MATVŒLI Við framleiðum niðurlagða og reykta síld, kryddlax, ferskan og grafinn hx, graflaxsósu, laxasalat, beikon-, kína- og vorrúllur. ICEFOOD

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.