Morgunblaðið - 30.01.1993, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.01.1993, Blaðsíða 14
14 MGRGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993 Fyrirhugað ferlíki í miðbæ Hafnarfjarðar Afsprengi rammrar óskyggju og pólitískrar erfðasyndar? eftir Einar Má Guðmundsson Greinarefnið er fyrirhuguð bygging stórhýsis í hjarta Hafnar- fjarðarbæjar. Gríðarstórs ferlíkis sem mun drottna í miðjum bænum og gjörbreyta öllu svipmóti hans, ef af verður. Þar er ekki aðeins um að ræða 9000 fermetra bákn á tveim versl- unarhæðum, sem jafngilda nær Qórum íbúðarhæðum (viðmiðun: 2,70 metrar hæðin), heldur eiga að rísa upp úr því bákni tvö há- hýsi. Annað þeirra (17,5 x 20 metrar) mun verða svipað um sig og það hús sem hýsir Landsbank- ann og rúmlega hálft Ólivers Steins húsið til samans. Þessi hús við Strandgötu eru þijár hæðir og tyyárval af drögtum Opib ó laugardögum . frókl. 12—16. s ef við bætum þrem hæðum við þau skellum öllu saman ofan á tíu metra hátt verslunarbáknið höfum við nokkuð glögga mynd af því sem er fyrirhugað. Hitt háhýsið, sem fyrirhugað er að reisa til mótvægis við það fyrr- nefnda eins og ég hef heyrt hlutað- eigandi kalla það, er áætlað tveim hæðum lægra og lítið minna um sig. Það ætti því að vera öllum ljóst að þessu fyrirhugaða ferlíki er ætlað að drottna á jörðu jafnt sem himni. Nú lít ég þannig á, að þegar við setjum eitthvað í öndvegi, ætlum einhveiju það hlutskipti að vera öðru fremra og æðra sé það vegna þess að það beri af öðru vegna eiginleika sinna. Hvort sem það er vegna frumleika, fegurðar eða annarra þeirra gæða sem tjá sér- stöðu þess og við metum svo mik- ils. í byggingarsögunni hefur sú afstaða t.d. legið til grundvallar mörgum kirkjubyggingum hér- lendis jafnt sem erlendis. En þar sem mér hefur ekki tekist eftir gaumgæfilega athugun að sjá neitt við fyrirhugað ferlíki sem gerir það öðru fremra, Sparisjóðurinn með- talinn, í miðbæ Hafnarfjarðar, ekk- ert sem réttlætir að það eigi slíkt drottnunarhlutskipti skilið er ég af tilfinningalegum og siðferðisleg- um ástæðum andsnúinn því að það rísi í núverandi mynd. En þar kem- ur fleira til. í ljósi hafnfirskar menningar og skipulagsstefnu Aftur á móti get ég ekki horft framhjá þeirri staðreynd að bæjar- yfirvöld ætla því slíkt drottnunar- hlutskipti. En þar sem ég efast ekki um að hlutaðeigandi þyki jafn vænt um bæinn sinn og' mér hefur mér reynst erfitt að skilja og sam- þykkja þau sjónarmið sem liggja til grundvallar fyrirhugaðri fram- kvæmd. Og ekki síst í ljósi þeirrar vakningar um menningarleg verð- mæti og lífsgæði sem birtast í miðbæjarskipulaginu frá 1982. Að viðbættri þeirri áherslu sem bæjar- yfirvöld hafa lagt á framgang lista og menningar í bænum á síðast- liðnum árum. Hef ég litið svo á að hið síðamefnda hafi að ein- hveiju leyti verið afleiðing þess fyrmefnda og að lista og menning- armiðstöðin Hafnarborg sé gleggsta dæmið, en sá metnaður sem hefur verið lagður í hönnun safnaðarheimilis og tónlistarskóla það nýjasta. í ljósi þessarar já- kvæðu þróunar birtist svo þetta ferlíki eins og skrattinn úr sauða- leggnum, algjörlega á skjön við öll þau menningarlegu og fagurfræði- legu gildi sem allavega virtust ráða ferðinni. Áttum við von á að þetta gæti gerst? Getur ekki verið að það skýri að einhveiju leyti af hveiju við áttum okkur svo seint á hönnunarferlinu hvað sé raun- verulega í vændum. Seint og seint, ég kem nánar að því síðar. Þegar búið er að skapa jákvæða og traustvekjandi ímynd, sem þar að auki er áþreifanlegur vemleiki, þá á maður einfaldlega ekki von á slíku bakslagi. En þetta skýrir einnig af hveiju ég og fleiri höfum haft svo ríka þörf fyrir að kynna okkur þá af- stöðu og þær skoðanir sem liggja ferlíkinu til grundvallar. Þær rök- semdir sem réttlæta þessi um- skipti og afturhvarf til fortíðar í hafnfirskri umhverfis-, byggðar- og menningarpólitík. Eftir að hafa fundað með þeim sem hlut eiga að máli, þ.e. meiri- hluta og minnihluta bæjarstjórnar auk lóðarhafa get ég ekki betur séð en eftirfarandi atriði vegi þungt varðandi fyrirhugaða fram- kvæmd. f fyrsta lagi: römm ósk- hyggja. Ferlíkið er afsprengi rammrar óskhyggju og kosningaloforða, sem virðast vera orðin eins konar erfðasynd á meðal bæjarfulltrúa, um að „búa til líf“ í miðbæ Hafnar- fjarðar eins og viðkomandi orða það gjaman. Hefur þetta verið kosningafrasi margra frambjóð- enda til bæjarstjómar árum sam- an. Og þar sem óskhyggjan er nú jafn römm og raun ber vitni krefst hún framkvæmda ekki síðar en núna (eins konar dómsdagur). En því miður er fórnað á altari hennar flestum þeim fagurfræðilegu og einnig hagrænu sjónarmiðum, sem að öllu jöfnu hljóta að liggja til grundvallar slíkri framkvæmd. Og þá er lítið eftir annað en bara „eitt- hvað“ og ekkert smáræðis „eitt- hvað“. í öðru lagi: hvaða miðbær? Ferlíkið er einnig afsprengi þeirrar skilgreiningar, að landið sem það á að rísa á sé „nýtt land“ þar sem um uppfyllingu er að ræða, reyndar úr gömlu gijóti. Og vegna þess að viðkomandi skil- Einar Már Guðmundsson „í ljósi þessarar já- kvæðu þróunar birtist svo þetta ferlíki eins og skrattinn úr sauða- leggnum, algjörlega á skjön við öll þau menn- ingarlegu og fagur- fræðilegu gildi sem allavega virtust ráða ferðinni.“ greina landið sem nýtt er í huga þeirra um að ræða „nýjan miðbæ“, sem er nær algjörlega óháður og úr tengslum við þann gamla, þ.e. sjálfan miðbæinn, og því ástæðu- laust að taka tillit til hans og mið af honum í útfærslunni. Samkvæmt þessari röksemda- færslu voru það jafnvel mistök, þegar byggt var við elsta hluta Hafnarborgar á uppfýllingu að L GLOBUS BILAR ÞU HEFUR AÐEINS 2 DAGA TIL AÐ GERA FRABÆR BILAKAUP oe EIGA MOGULEIKA A ÆVINTYRALEGRI OBYGGÐAFERÐ Það eru aóeins tveir dagar eftir af stórkostlegu bílatilboói Globus i Bilahöllinni. Seldir veróa vandabir, notabir bílar á hreint frábæru ver&i og vegna ótrúlega gó&ra vi&takna höfum við bætt við fleiri bílum þannig að úrvalið er meiriháttar. Dregið verður úr nöfnum allra þeirra sem nýta sér þetta tækifæri og fimm heppnir kaupendur fá tveggja daga ævintýralega ferð fyrir tvo upp á Hveravelli með Hafþóri „Hveravallaskrepp" á Ford snjótrölli. SYNISHORN Saab 900i, markaSsver& 660.000 tilbo&sverö 590.000 Toyota Camry, . ;BhBI markaðsverb 580.000 tilboðsverð 490.000 Mazda 626, markaðsver& 780.000 tilboðsverð 690.000 Honda Civic Shuttle 4x4, markaðsverð 580.000 filboðsverð 430.000 Citroen AX 11 TRE, rnarkaðsverð 390.000 tilboðsverð 340.000 Mitsubishi Colt, markaðsverð 340.000 tilboðsverð 280.000 Saab markaðsverð 580.000 tilboðsverð 420.000 Ú R SÖLUSK árg. '86, grænn, ekinn 114 þús. km. árg. '86, brúnn, • ekinn }10þús. km. árg. '88, Ijósblár, ekínn 102 þús. km. órg. '87, blár, ekinn 99 þús. km. árg. '88, grár, árg. '86, hvítur, árg. '85, blár, ekinn 43 þús. km. ekinn 82 þús. km. ekinn 89 þús. km. OPIÐ laugardag kl. 10.30 - 17.00 sunnudag kl. 13.00 - 16.00 SIMI: 674949 KOMDU í BÍLAHÖLLINA, BÍLDSHÖFÐA 5 OG SKOÐAÐU ÓTÚLEGT ÚRVAL AF NOTUÐUM EN GÓÐUM BÍLUM í EIGU GLOBUS CK N O T A Ð I R

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.