Morgunblaðið - 27.05.1993, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 27.05.1993, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1993 32 Krístín Jóna Sigurð- ardóttír — Minning Fædd 23. september 1908 Dáin 19. maí 1993 Að kvöldi 19. þ.m. lést í Landspít- alanum Kristín Jóna Sigurðardóttir eftir stutta legu. Hún fæddist á Stokkseyri 23. september 1908 og var því á 85. aldursári þegar hún féll frá. Foreldr- ar hennar voru hjónin Sigurður Sig- urðsson, sem alinn var upp í Skál- holti, og kona hans, Valgerður Jóns- dóttir frá Háeyri á Eyrarbakka. Kristín var elst sex bama þeirra hjóna sem upp komust. Faðir Krist- ínar ók póstvagni frá Stokkseyri til Reykjavíkur og tók einnig farþega. Þetta var rúta þess tíma. Auk þess stundaði Sigurður sjósókn. Móðir Kristínar var mikil hannyrðakona og hefði kosið, ef hún hefði átt þess kost, að sitja í stofu við fínan sauma- skap og fela öðrum hin venjubundnu heimilisstörf. Sigurður og Valgerður bjuggu um skeið á Eyrarbakka, en fluttust síðan aftur til Stokkseyrar. Sjálf leit Kristín á sig sem Stokks- eyring. Þama við suðurströndina verða veður válynd, eins og kunnugt er. Því má ætla að í bernsku hafí Krist- ín litla oft staðið í fjöruborðinu og horft milli vonar og ótta, út í ólg- andi brimgarðinn. Sama ár og hún fæddist fórust t.d. 12 menn þama í lendingu, og hefur það verið mikil blóðtaka litlu sjávarplássi. Lífsbaráttan var hörð á þessum tíma. Saga Kristínar endurspeglar lífssögu þorra íslenskra alþýðu- kvenna á þessari öld. Átján ára gömul kveður hún bernskustöðvam- ar og heldur út í hina stóm viðsjálu veröld. Reykjavík er áfangastaður- inn. Veganesti hennar er sú mennt- un sem hún hlaut í bamaskólanum á Stokkseyri og kjarkur og dugnað- ur, sem henni var í blóð borinn. Hlutskipti hennar er að verða vinnu- kona og hún ræður sig í vist til hjóna á Laugavegi 18. Hún er heppin, því 'að hún lendir hjá góðu fólki sem hún hélt tryggð við æ síðan. Kjör vinnukvenna, og raunar flestra kvenna, vom engin sældarkjör á þessum tíma. Lífíð var þrotlaus vinna. Margri nútímakonunni myndi líklega reynast það ofraun. Það þurfti að bera kol og vatn, oft upp marga stiga, kveikja upp í ofnum og eldavél, bera út ösku, sandskúra gólf, svo að fátt eitt sé nefnt. Erfið- astir voru þó þvottadagarnir. Þvott- inum var ekið á vagn eftir holóttum veginum inn í Þvottalaugar og síðan blautum heim. Það þurfti sterk bein til að þola slíkt álag, og þau hafði Kristín. Kristín var tvö ár í vistinni á Laugaveginum, eða þar til hún gekk í hjónaband með Kristni Magnúsi Halldórssyni og byijaði búskap með honum á Hverfísgötu 67. Kristinn ók vömbíl fyrir Reykjavíkurborg. 1 hjónabandinu t eignuðust þau hjón fjórar dætur: Valgerði, Sigríði, Elínu og Gíslínu. Allar dæturnar era bú- settar í Reykjavík, þrjár þær elstu giftar. Eiginmaður Kristínar andað- ist árið 1967. Mig minnir að það hafí verið að haustlagi sem við Kristín kynnt- umst. Hún hafði tekið að sér, fyrir milligöngu frænku minnar, að að- stoða mig nokkra tíma í viku við heimilisstörfín. Þetta var snemma á 6. áratugnum. Klukkutímarnir urðu býsna margir, því að hún var hjá Efni og tæki fyrir nfiiee járngorma innbindingu. OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 33 • 105 Reykjavík Símar 624631 / 624699 okkur þar til 1969 og vann heimil- inu allt það gagn sem hún mátti. Þegar hún fluttist af Hverfísgötunni í Álftamýrina, þar sem hún hafði fest kaup á lítilli íbúð ásamt dóttur sinni, Gíslínu, margfaldaðist vega- lengdin milli okkar og hún hætti að koma, enda orðin vinnulúin og heilsutæp. Þetta breytti þó engu um samband okkar, vináttan hélst óbreytt. Kristín var fágæt mannkosta- kona. Eðliseinkenni hennar voru festa og rósemi. Hún kippti sér ekki upp við það þó ærslafengnir strákar sporuðu stigann, sem hún var að þvo. Ég minnist þess ekki, að henni hafí nokkru sinni fundist þörf á að stjaka við þeim, öll þessi ár. Kristín líktist móður sinni í því, að hún hafði yndi af hannyrðum. Ég hygg það hafi verið hennar bestu stundir, þegar hún sat að saumum, prjónaði sokk eða heklaði dúk. Ég naut góðs af þessu, því að hún vann ýmsa handavinnu fyrir mig, auk þess sem hún færði mér oft gjafír, sem hún hafði sjálf unnið. í sam- skiptum okkar var ég ævinlega þiggjandinn. Kristín fór aldrei í neina sólarlandaferð, en til útlanda fór hún þó einu sinni, ásamt Gíslínu dóttur sinni. Þær fóm til þriggja landa, Danmerkur, Hollands og Englands. Þessi ferð var mikil til- breyting frá amstursömu hvers- dagslífi. Ég vil ekki skiljast svo við Krist- ínu að ég minnist ekki á þá ánægju sem hún hafði af tónlist. Hún hafði gaman af kórsöng og sótti oft slíka hljómleika. Að einu leyti var Kristín mikii hamingjumanneskja, hún átti ijöl- skyldu sem sýndi henni mikla rækt- arsemi. Þar átti Gíslína, dóttir henn- ar, stærstan hlut, en hún annaðist móður sína af mikilli óeigingimi þar til yfír lauk. Góð kona er gengin, hafí hún þökk fyrir góða viðkynningu. Hildigunnur Hjálmarsdóttir. Þar var alltaf sól. Hjá ömmu var alltaf sólskin fyrir okkur bamabörn- in. Og þar var alltaf skjól líka. En það var ekki bara sól og skjól fyrir barnabörnin. Á Hverfisgötu 67, eða „Hverfó" eins og ættaróðalið var gjarnan nefnt, fyrmm óðal tengda- foreldra Kristínar ömmu, hjónanna Halldórs Þorsteinssonar trésmiðs langafa míns, f. 7. mars 1875 að Austurvelli á Kjalarnesi (Kasparíus- sonar bónda þar), og konu hans Gíslínu Pétursdóttur langömmu minnar, f. 22. júlí 1874 að Bala á Kjalamesi (Kristjánssonar bónda að Bala), (Fremrahálsætt, les: Flöskuhálsættin), var nánast alltaf sól, hvernig sem viðraði útivið. Langar mig hér að drepa aðeins á nokkur minningarbrot og önnur atriði úr lífi Kristínar ömmu og Magnúsar afa míns og okkar barna- barnanna. Þó ekki væri nema í sagnfræðilegum tilgangi einum saman. Ekki var síður gestrisni og sól- skin á Hverfisgötunni eftir að afi minn Kristinn Magnús Halldórsson og Kristín amma urðu húsráðendur þar. Átti stórættin öll meira og minna höfði sínu að halla þar. Enn meira þó maga sína að seðja, sem mér virðist stundum hafa sett var- anlegan svip á vaxtarlag þessarar ættar. Allir höfðu alltaf orð á því við alla hversu gott var að koma til Magga og Stínu á Hverfisgöt- una. Skildi ég þetta fólk bara mæta- vel því Kristín amma gat nánast alltaf galdrað fram kökur á hvaða degi sem var. Risajólakökur og risa- stafla af pönnukökum Hvenær sem var. Það áttu örugglega ekki allir svona ömmu þá, hvað þá í dag. Svo mikið er víst. Þessar ömmur eru allt öðm vísi 'en allt annað kvenfólk sem lang- flestir hitta fyrir í lífínu. Þar era ekki kröfumar og þar er ekki nöldr- ið yfír drullugu fötunum eða sæl- gætiskaupunum. Nei, öðru nær. Þar voru ekki bara óendanlegu köku- birgðirnar til staðar á degi sem kvöldi, heldur var ofsalega góða brúna kexið til þar í stómm pokum. í minningu flestra reykvískra krakka fæddra á fímmta og sjötta áratugnum vora ömmurnar engu líkar. Þær vom ekki bara gangandi sælgætis- og kökulagerar, heldur vora þær búnar að vera til síðan í fornöld menningarinnar. Þannig upplifðu flestir krakkar ömmur sín- ar og afa frá þessum tíma. Og allar þessar eldgömlu ömmur höfðu frá ótrúlegum furðusögum að segja síðan „í gamla daga“. Dulrænastar allra þessara furðu- og órasagna voru túkalla-launa- kaupssögumar frá því þær vom ungar stúlkur í vinnu hér og þar. Þegar þær höfðu túkall á viku í laun fyrir erfíðisvinnu á mölinni. Og fimmeyring á klukkutímann! Aðar eins ógnarforneskju-frásagnir var varla hægt að ímynda sér. En þannig blöstu þessar „gömlu daga“- frásagnir almennt við okkur. Og í þannig heimsmynd lifðum við barnabörn hennar Stínu ömmu einnig. Ég man þá tíð fyrir tæpum þijá- tíu áram þegar Kristín amma sagði mér frá því þegar hún kom sem vinnukona til Reykjavíkur árin um og fyrir 1925, þá rétt um 17 ára vinnustúlka. Og hún hafði þá sem fyrr þennan óskiljanlega endingar- góða túkall í laun á viku. Þetta var svo gjörsamlega óskiljanlegt þegar gosflaskan kostaði fimmkall fýrir okkur ömmubömin þá hjá honum Jónasi. Þetta var greinilega alveg óstjórnlegt okur hjá honum Jónasi fannst okkur börnunum þá meðan skilningurinn á verbólguskrímslinu var ekki kominn ennþá í kollinn á okkur. Það var sem sagt ekki hægt að kaupa sér eina kók á hálfsmán- aðarfresti með þessari fomaldar- kaupgetu hennar ömmu. En ég man líka þegar Kristín amma sagði mér frá því þegar hún fór að vinna sem vinnukona hjá hjónunum sem bjuggu í risinu á Laugavegi 20 árið 1926, þar sem í dag eru á neðri hæðinni grænmet- ismatstofur og skrifstofur Náttúru- lækningafélagsins. Þá fékk hún 12 krónur og fimmtíu aura á mánuði! Sagði hún mér að henni hefði fund- ist það mikið þá. Þetta olli mér miklum heilabrotum þegar ég fékk á þessum frásagnartíma 12 þúsund krónur á mánuði fyrir lítinn Mogga- útburð. En þessi vinnukonustaða hafði meira í för með sér en 12 krónurn- ar og fimmtíu aurana. Á heimili þessara hjóna var uppeldissonur austan úr Flóanum að nafni Gísli. Gísli þessi átti töluvert af kunningj- um sem hann dró með sér heim til sín. Einn þessara kunningja þá var ungur og myndarlegur maður að nafni Magnús. Hittust því afi og amma þar í fyrsta sinn og felldi hann hug til hennar fljótlega. Varð því úr þeim kynnum þessi stór- myndarlegi ættleggur í mörgum skilningi sem kominn er af þeim, eins og sjá má í dag. Hreint af- bragð. Ég hefi stundum velt því fyrir mér hvort nokkurn tímann í Is- landssögunni hafi verið eða muni koma fram önnur kynslóð eins og aldamótakynslóð Magnúsar afa og Kristínar ömmu. Kynslóð sem muni upplifa aðrar eins breytingar eins og þetta fólk gerði. Aðeins hluti af þessu heljarstökki voru þessar óra- túkallalaunasögur. Þetta fólk fædd- ist ýmist í moldarholuhúsum í sveit- um landsins, eða í sárfátækum tómthúsum kaupstaðanna. Þá vora engir bílar, né flugvélar, né símar, hvað þá tölvur eða ljósleiðarar, eða geimför eða gervihnettir, eins og nú er þegar þetta fólk kveður þenn- an furðulega heim. Nei, örugglega engin kynslóð hingað til hefur horft á aðar eins breytingar ganga í garð. Og þrátt fyrir fijótt ímyndunar- afl sem sagnfræðingur og spámað- ur á ég erfitt með að ímynda mér að nokkurn tíman muni koma fram kynslóð þessari lík varðandi þjóðfé- lagsbreytingar, utan þá sem í fram- tíðinni eftir ca. 2 til 5 aldir héðan- ífrá sem fær það óyndislega hlut- skipti að annað hvort að farast með manni og mús vegna óafturkræfra skemmda á umhverfinu, okkar ■La. mannanna vegna, eða þá að þrauka í gegnum þær ólýsanlegu þrenging- ar sem framundan virðast vera óhjákvæmilega. En kynslóð Kristín- ar ömmu stendur uppúr í dag og um allnokkra framtíð hvað þjóðfé- lagsbreytingar varðar. Og örugg- lega hefur þetta sett meiri svip á þetta fólk en flesta granar í dag. En það er samt ekki hægt að skella allri slæmri skuld nýrra þjóð- félagsbreytinga á yngri kynslóðim- ar. Það væri sögufölsun. Margt af því sem miður hefur þróast í samfé- lagi okkar í dag á sér rætur í eldri kynslóðum og eldra gildismati og fordómum margra þessara geng- inna kynslóða, hvað sem fólki fínnst annars um það. Það er óumdeilan- legt. Þaðan er hluti tilvistarkreppu nútímans líka kominn. Við skulum ekki gleyma því við söguskoðanir samtímans og fortíðarinnar. Kristín amma hét fullu nafni Jóna Kristín Sigurðardóttir. Hún var fædd að Tjöm á Stokkseyri 23. september 1908, elst sex systkyna þar sem komust upp. Fjögur létust kornung eins og algengt var á þess- um tíma Islandssögunnar. Næst í röðinni þeirra sem upp komust var Halldóra, þá Sigurður, þá Sigríður, þá Valgerður og yngstur var siðan Jón, eða Nonni frændi á Stokks- eyri. Af þessum systkynahópi lifa í dag þær systur Halldóra ekkja á Selfossi, Sigríður gift í Kópavogin- um og Valgerður ekkja á Stokks- eyri. Foreldrar þeirra voru þau Sigurð- ur Sigurðsson bóndi í Götuhúsum á Stokkseyri og póstflutningsmaður til Reykjavíkur, fæddur 27. febrúar 1874 í Höltunum (Halldórssonar og Sigþrúðar Jónsdóttur), og kona hans Valgerður Jónsdóttir fædd 13. apríl 1885 að Skúmstöðum á Eyar- bakka (Jónssonar og Kristbjörgu Einarsdóttur). Kristín amma giftist afa mínum Kristni Magnúsi Halldórssyni 18. maí 1929 hér í Reykjavík. Var hann bifreiðastjóri hjá Reykjavíkurbæ framanaf ævi á meðan heilsan ent- ist, sem reyndar ekki var svo lengi. Var hann fæddur hér í Reykjavík 27. október 1905. Þau eignuðust fjórar dætur, þær Valgerði, gifta Skarphéðni Össurarsyni, Sigríði, gifta Andrési Bjerkhoel Adolfssyni, Elínu, gifta Sigurði Gunnarssyni, og Gíslínu, yngstu systurina. Eign- aðist Valgerður fimm börn með Skarphéðni, þau Össur, Magnús Hall, Sigurð Valgeir, Jófríði Ágústu og Halldóru. Eignaðist Sigríður eina dóttur með Andrési, Hjördísi Bjerk- hoel. Elín eignaðist líka eina dóttur og alnöfnu ömmu sinnar, Kristínu Sigurðardóttir. Barnabarnabörnin urðu svo sjö núna síðastliðin mánu- dag. Magnús afi var í þá tíð eini bíl- stjóri Reykjavíkurbæjar. Þá var aðeins einn verkstjóri í bænum og einn vinnuflokkur. Magnús afi var því í senn bæði einkabílstjóri Ög- mundar verkstjóra og keyrði vinnu- flokkinn á yfirbyggða kassabílnum vítt og breitt um litla bæinn, í hin ýmsu verk sem fyrir dyrum stóðu i þessu litla sveitarfélagi sem þá hét líka Reykjavík. Missti hann fyrir miðjan aldur heilsuna og kom það í hlut Kristín- ar að sjá fjölskyldunni með dætran- um fjórum farborða á sinn hljóðláta hátt. Vann hún sem vinnukona á einkaheimilum á þeim árum og lengi frameftir víðs vegar um bæj- inn samhliða heimilishaldinu á Hverfisgötunni, til að fjölskyldan kæmist af og gæti haldið saman. Má geta nærri að hart hafí verið í búinu á þeim árum hjá fjölskyld- unni í risinu á Hverfisgötunni, með fyrirvinnuna frá sökum heilsuleysis og stelpurnar fjórar ungar á öllum aldri. Ófáir réttu þeim Kristínu og Magnúsi hjálparhönd þá þegar harðast var í búi á þeim áram. Þetta var fyrir nærri sextíu áram, fyrir stríð og reyndar á meðan á því stóð og eftir það þótt skárra væri þá álðar þegar líða tók á öldina. En það var ekki bara ódrepandi dugnaðurinn sem Kristín amma hafði til að bera. Því ég hef oft síð- ar velt því fyrir mér að ef allir skúrkar heimsins ættu aðrar eins ömmur og Kristín var þá væri heim- urinn, þessi samfelldi táradalur, ekki bara öðru vísi en hann er í dag, heldur allt öðru vísi. Það sem yfirleitt það sem bilar í mótun ein- staklinga og gerir þá að skúrkum er skortur á gleði til handa þeim í uppvextinum og nægur tími af hendi fullorðinna og mjög fullorð- inna. Mjög fullorðinna eins og ömm- ur og afar og langömmur og langaf- ar eru yfírleitt. Slík fyrirmyndar- amma var Kristín Sigurðardóttir óumdeilanlega. Það er erfítt að lýsa ömmum. Þær gefa í sífellu. Eru alltaf í góðu skapi. Brosa mikið. Eiga alltaf allt. Og skilja alltaf lítið fólk betur en flestir aðrir. En þannig var ekki bara Kristín amma. Hún var um- fram allt prúð kona, geysilega prúð kona og fádæma góð manneskja í hvívetna við alla sem á vegi hennar urðu. Fá dæmi gæti ég nefnt til samjöfnunar við góðmennsku henn- ar þótt margir væra kallaðir til samanburðar. En Kristín amma var líka dul kona. Þannig fóru leikar að aldrei fékk ég hana til að ræða við mig í návist segulbands um sína ævi. Það var nú ekki neitt til að tala um! Ekki aldeilis. Og reyndar var yfir- leitt erfitt að ræða við hana um fortíðina eða hana sjálfa yfirleitt. Þetta var helsti ljóðurinn á þessari annars góðu ömmu. Kristín gerði sér líka vel grein fyrir því að heim- urinn snerist ekki í kringum hana. Það er hætt við því að heimurinn væri líka svolítið öðru vísi í dag ef fleiri gerðu sér þetta eðli hans ljóst. En ef eitthvað er að marka hand- anheimafræðin þá eru allar líkur á að ömmu verði nú loksins að ósk sinni að geta tínt eplin af tijánum út um gluggann sinn, eins og „ag- entinn frá Ameríku" ku hafa sagt bæjarbúunum í þessum volaða bæ í þessu guðsvolaða landi í byijun aldarinnar. Þannig væri nú mannlíf- ið í henni fjarlægu Ameríku. Með frásögnum þessum líkum voru ís- lendingar lokkaðir til Vesturheims héðan úr fátæktinni og volæðinu, eins og hún sagði mér eitt sinn eft- ir þessum agenti sem hún frétti af þegar ég var að þiggja epli hjá henni forðum sem aðrar góðgerðir. Löngu síðar eftir þetta skildi ég betur þá íslendinga sem fóra vestur um haf héðan úr eymdinni og staðn- aða bændasamfélaginu, þangað sem eplin uxu á tijánum rétt í hand- leggjarfjarlægð frá sólargluggun- um, eins og hún amma hefði gjam- an viljað fá að hafa það að eigin sögn um leið og hún hló sjálf að frásögn agentsins forðum. Fyrir hönd barnabarna Kristínar vil ég þakka öllum þeim skyldum og óskyldum er sýndu henni þá ræktarsemi sem raunin varð á á ævikvöldi hennar. Það var til fyrir- mundar. En skal hér ekki síst líka þökkuð sú fádæma umhyggja sem frænka okkar og móðursystir, Gíslínu dótt- ir hennar, sýndi móður sinni síðast- liðin aldarfjórðung, þar sem hún ól ekki bara önn fyrir henni á ævi- kvöldinu, heldur hélt henni heimili og sjúkrahús í senn alla tíð frá því er Magnús afi lést 1967 og til síð- asta dags. Það var til einstakrar fyrirmyndar og verður seint nóg- samlega þakkað. í það minnsta ekki í þessu lífi. Magnús H. Skarphéðinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.