Morgunblaðið - 11.09.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.09.1993, Blaðsíða 1
64 SIÐUR LESBOK/C STOFNAÐ 1913 205. tbl. 81.árg. LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Yitzhak Rabin forsætisráðherra Israels viðurkennir PLO fyrir hönd Israelsstjórnar Blóðsúthellingarnar og hörm- ungamar em vonandi á enda Framkvæmdastjórn PLO samþykkir sjálfstjórn - Hussein Jórdaníukonungur boðar friðarsamning Jerúsalem. Reuter, The Daily Telegraph. YITZHAK Rabin, forsætisráðherra Israels, undirritaði í gær skjal þar sem ísraelsstjórn viðurkennir formlega Frelsissamtök Palestínu, PLO, sem fulltrúa palestínsku þjóðarinnar. Við hlið hans sátu Shim- on Peres, utanríkisráðherra ísraels, og Johan Jorgen Holst, utanríkis- ráðherra Noregs, sem gegndi hlutverki sáttasemjara í leynilegum viðræðum Israela og Palestínumanna undanfarna mánuði. „Þetta er söguleg stund sem vonandi verður til þess að binda enda á hundr- að ára blóðsúthellingar og hörmungar í samskiptum gyðinga og Palestínumanna, Palestínumanna og ísrael," sagði Rabin eftir að hann hafði ritað undir skjalið með einföldum kúlupenna. Hart hefur verið deilt undanfarna öllum þeim fimm fyrrum forsetum viku um orðalag gagnkvæmrar við- urkenningar ísraela og PLO. í fyrra- dag náðist hins vegar samkomulag og nokkrum klukkustundum áður en undirritunarathöfnin átti sér stað í ísraelska forsætisráðuneytinu hafði Holst komið til ísrael frá Túnis með bréf frá Yasser Arafat, leiðtoga PLO, þar sem tilveruréttur ísraels er viður- kenndur og PLO hafna hryðjuverk- um og ofbeldi. Lofa samtökin einnig að aga þá til sem ekki eru reiðubún- ir að taka þátt í þeirri samvinnu, sem nú er að hefjast. Rabin las vandlega yfir bréfið frá Arafat áður en hann undirritaði sitt skjal, rétt eins og hann vildi fullvissa sig um að ekki væri verið að gabba hann á síðustu stundu. Að því búnu undirritaði hann svarbréf sitt, sem er ein málsgrein að lengd. ísraelski forsætisráðherrann hefur nú lagt grunninn að brottför ísraela frá þeim svæðum sem hann hernam sem yfirmaður heraflans í sexdaga- stríðinu árið 1967. Hann viðurkenndi í samtali við ísraelska blaðamenn á fimmtudag að hann væri með „fiðr- ildi“ í maganum út af þeirri ákvörðun að taka upp opinber samskipti við samtök sem áratugum saman hafa barist fyrir tortímingu Israelríkis. Mikil óvissa ríkir meðal ísraela um hvert samvinnan við PLO muni leiða. Hin hægrisinnaða stjórnarandstaða í ísrael er sannfærð um að Rabin sé að stuðla að stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna, sem verði ísraelum skeinuhætt. Samkvæmt nýrri skoð- anakönnun styðja 57% ísraela sjálf- stjómarsamkomulagið en 41% er því andvígt. Þúsund gestir við athöfnina í yfírlýsingu frá Bill Clinton Bandaríkjaforseta segir að náðst hafi söguleg málamiðlun milli tveggja þjóða sem hafí barist hvor við aðra í nánast hálfa öld. • Nú þegar hin gagnkvæma viður- kenning PLO og Israela liggur fyrir er hægt að ganga frá samkomulagi um sjálfstjórn Palestínumanna á Gaza-svæðinu og í borginni Jeríkó á Vesturbakkanum. Akvað fram- kvæmdastjórn PLO á fundi í Túnis- borg í gærkvöldi að samtökin gætu fallist á sjálfstjómarsamkomulagið og að þau myndu undirrita það í Washington í Bandaríkjunum á mánudag. Tveir af leiðtogum PLO, þeir Taysir Khaled og Abdul Rahim Hallouh, sögðu sig hins vegar úr framkvæmdastjórninni í gær í mót- mælaskyni. Um þúsund manns verður boðið að vera við athöfnina, þar á meðal Bandaríkjanna, sem enn eru á lífi. Þjóðarleiðtogar og ríkisstjómir um allan heim fögnuðu í gær að sáttir hefðu náðst milli Israelsstjómar og PLO og á Gaza-svæðin dönsuðu þús- undir manna á götum úti. Fjölmarg- ir föðmuðu að sér ísraelska hermenn og hrópuðu „salaam, salaam" sem er arabíska orðið yfir frið. í yfirlýs- ingu frá íslenska utanríkisráðuneyt- inu segir að íslensk stjórnvöld fagni því tímamótasamkomulagi sem náðst hefur í málefnum ísraela og Palest- ínumanna. Vonast þau til að hin gagnkvæma viðurkenning Israels og Frelssisamtaka Palestínumanna, sem í því felist, verði til að endir verði bundinn á blóðug átök þessara aðila, sem staðið hafa áratugum saman. Friðarsamningur við Jórdani? Hussein Jórdaníukonungur lýsti því yfír í gærkvöldi að hann teldi að í byijun næstu viku væri hægt að undirrita viljayfirlýsingu um að gerð- ur yrði friðarsamningur milli ísraela og Jórdaníu. Jórdanir og ísraelar hafa þegar lagt grunninn að slíkum samningi en endanlegur frágangur hefur beðið þess, að árangur næðist varðandi samskipti ísraela og Palest- ínumanna. Hussein sagði í viðtali við bresku sjónvarpsstöðina Channel Four í gærkvöldi að samkomulag milli Israela og Jórdana gæti leitt til friðar í Mið-Austurlöndum. Óvinur tekinn í sátt Reuter. YITZHAK Rabin undirritar skjal um viðurkenningn á Frelsissamtökum Palestínumanna. Til hægri situr Shimon Peres utanríkisráðherra Israels en til vinstri Johan Jorgen Holst, utanríkisráðherra Noregs. Veija aðgerðir friðar- gæsluliðsins í Sómalíu Meira en 100 særðust en engar staðfestar upplýsingar um mannfall Fangar Króata Reuter. MEÐFERÐ stríðsfanga í borgarastyijöldinni í fyrrverandi Júgóslavíu er oft á tíðum hörmuleg. Þessum múslimum var nýlega sleppt úr haldi úr fangelsi Króata í borginni Dretelj og voru þeir að bíða eftir hádegismat í barnaskóla í bænum Jeblenica er myndin var tekin. Mogadishu, Washington. Reuter. TALSMAÐUR friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna í Mogadishu í Sómalíu sagði í gær, að ávallt væri reynt að koma í veg fyrir mann- fall en hins vegar væri litið á þá, sem tækju þátt í árás sem stríðs- menn. Var hann að svara ásökunum Sómala og stuðningsmanna stríðsherrans Mohameds Aideeds um að 100 manns, þar á meðal konur og börn, hefðu fallið í átökum við gæsluliða í fyrradag. Banda- ríska öldungadeildin hefur beðið Bill Clinton, forseta Bandaríkj- anna, að skilgreina markmið bandaríska gæsluliðsins í Sómalíu. „í átökum af þessu tagi eru engin svæði ætluð áhorfendum," sagði David Stockwell majór og talsmaður bandaríska friðargæsluliðsins í gær en Sómalir halda því fram, að 100 manns hafi fallið á fimmtudag. Þá komu bandarískar þyrlur til hjálpar friðargæsluliðum, sem gerð hafði verið fyrirsát. Féll einn gæsluliði og fimm særðust. Að sögn starfsmanna SÞ er ekki vitað hvað hæft er í full- yrðingum Sómala um að 100 manns hafi fallið en starfsmenn Rauða krossins segja, að gert hafi verið að sárum 107 manna eftir átökin á fímmtudag. Frakkar styðja aðgerðirnar Franska stjómin lýsti í gær yfír stuðningi við aðgerðir gæsluliðs SÞ í Sómalíu og sakaði málaliða Aideeds um að skýla sér á bak við óbreytta borgara þegar þeir réðust gegn her- mönnum SÞ. Hvatti hún til, að geng- ið yrði harðar fram við að afvopna skæruliðana. í gær voru tveir Sómal- ir, starfsmenn bandarísku sjónvarps- stöðvarinnar CNN, skotnir í Moga- dishu þegar reynt var að stela bif- reið, sem þeir voru á. Bandaríska öldungadeildin sam- þykkti í fyrrakvöld að biðja Clinton forseta um að skilgreina betur mark- mið bandaríska gæsluliðsins í Sómal- íu og fara fram á samþykki þingsins við áframhaldandi veru þess í iand- inu. Óttast margir þingmenn, að bandaríska herliðið sé að lenda í ein- hveiju fúafeni í Sómalíu ogteljajafn- vel skynsamlegast að kalla það heim.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.