Morgunblaðið - 10.11.1993, Qupperneq 40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. NOVEMBER 1993
40
Það koma ekki skyndibita-
pakkar, segir konan mín.
Hún var gripin um daginn.
TM Refl. U.S Pat Otf,—all rights reservod
® 1993 Los Angeles Times Syndicate
að fresta heimilisstörf-
unum þegar þannig
stendur á
Ast er...
BRÉF TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
Hátíðin á Snæfellsnesi
Frá Birgi Bragasyni:
NÚ LÍÐUR senn að því að íslenska
þjóðin gerir sig að athlægi fyrir allri
heimsbyggðinni. Nú á að gera hoax
aldarinnar og plata meginþorra Is-
lendinga, sem alþjóð veit að eru trú-
gjarnari en góðu hófí gegnir. Leita
má allt til miðalda til að finna þjóð,
sem hefur slíka tröllatrú á álfum,
draugum og alls kyns dulrænum
fyrirbærum og Islendingar.
Það þykir því við hæfi að láta
okkur hlaupa 1. apríl - eða í þessu
tilfelli 5. nóvember - upp um fjöll
og fírnindi til að taka á móti geist-
legum vitsmunaverum, sem hafa
tilkynnt opinbera heimsókn sína
hingað í vetrarbyijun. Ég ætla bara
að vona að móttökunefndin sýni
ekki þann lúðaskap að gleyma rauða
dreglinum heima!
Að sjálfsögðu munu þessar vits-
munaverur koma hingað færandi
hendi. Þær munu í nokkrum hnit-
miðuðum setningum segja okkur
galdurinn við að lækna krabbamein
og kvef, hjartasjúkdóma og hiksta,
gigt og gyllinæð og hvernig megi
bjarga efnahagsvandanum og at-
vinnuleysinu fyrir horn.
Þessi útihátíð á Snæfellsnesi mun
lifa í minni manna langt fram yfír
aldamótin og lifa í munnmælasögum
langt yfir þau þarnæstu. Hvernig
nokkrir óprúttnir náungar gátu
fengið stóran hluta þjóðar til að
verða sér úti um hálsríg vegna gláps
til himins. Að ógleymdu því að
nauðganir fara langt fram yfir
kvótamörk, því einhvernveginn
þurfa menn að halda á sér hita.
Uppi í hlíðum jökulsins standa
svo nokkrir tugir ungmenna og láta
frisbee-skífur og gamlar verðiausar
vinil-plötur svífa yfir hausum móts-
gesta, unz þeir falla í gýg og lenda
í iðrum jarðar.
Að sjálfsögðu munu einhveijir
hagnast á gabbinu. Kodak af filmu-
sölu og Japis af videospólnasölu,
rútuferðir Helga P. að ógleymdum
pylsu- og pizzusölum og hótels- og
staðareigendum og Flugleiðir vegna
flutnings geimspekúlanta og frétta-
manna hingað til landsins.
Ég get þó ekki stillt mig um ann-
að en að taka ofan fyrir upphafs-
manni þessa bráðsmellna gabbs.
Það hlýtur að vera einhver einn
maður, sem hefur komið skriðunni
af stað. Ég á bágt með að trúa, að
hópur miðla hafi skyndilega sprottið
úr sæti og hrópað einum rómi: „Hey,
strákar!" Ég fékk hugboð - einhvers
konar heilafax. Við eigum von á
gestum utan úr geimnum."
Ég held varla.
Og hvar eiga svo herlegheitin að
birtast? Ekki í Bandaríkjunum. Allt
of miklar ljarlægðir. Japan? Nei,
þeir myndu aldrei hlaupa apríl, enda
allir að vinna. En ísland? Tilvalið!
250.000 auðtrúa sálir. Flestir at-
vinnulausir og hafa því ekkert þarf-
Frá Frá starfsfólki heilsdagsskóla:
VEGNA þeirrar umræðu sem verið
hefur vegna heilsdagsskóla í skólum
Reykjavikur, viljum við undirrituð
sem störfum við heilsdagsskóla í
Hólabrekkuskóla og Austurbæjar-
skóla koma eftirfarandi sjónarmið-
um á framfæri.
Tvö okkar eru með fóstrumenntun
en erum ekki ráðin sem fóstrur. Þar
af leiðandi fáum við ekki greidd laun
samkvæmt kjarasamningum fóstra
pg getum ekki verið í Fóstrufélagi
íslands sem stéttarfélagi. Starfsald-
ur okkar er einnig mun lægra met-
inn en við fyrri störf.
Tvær okkar eru núna í Starfs-
mannafélaginu Sókn. Við erum með
starfsreynslu og höfum sótt nám-
skeið samkvæmt kjarasamningi
Sóknar. Vegna bréfs frá Skólaskrif-
stofu Reykjavíkurborgar verður
breyting þar á 1. janúar 1994. Mun-
um við þá verða færðar í Starfs-
mannafélag Reykjavíkurborgar og
laun okkar Iækka um mörg þúsund
á mánuði, enda áunnin réttindi okk-
ar ekki metin þá.
Jafnhliða launaskerðingu hefur
börnum fjölgað gífurlega og vinnuá-
lag starfsfólks aukist, þar sem því
hefur ekki fjölgað í samræmi við
fjölgun barnanna.
Þar sem við erum með fóstru-
menntun og eða reynslu í starfi
ara við tímann að gera en hlaupa
upp um fjöll og fírnindi og svo eru
íslendingar dæmalausar ótugtir,
sem drepa hvali. Gott á þá!
Þegar svo geimverumar svíkjast
um að mæta hinn umsamda dag
verða útskýringar á reiðum höndum:
Þær hafa tafizt vegna umferð-
arþunga eða þær séu vissulega
komnar og séu nú hjá okkur í anda
og að vonandi verðum við einhvern
tíman það háþróuð að við getum
barið þá augum.
BIRGIR BRAGASON,
Laugavegi 81,
Reykjavík.
sjáum við okkur ekki fært að ná
fram þeim uppeldismarkmiðum sem
við teljum svona starfsemi þurfa að
eiga að byggjast á. Eigum við þar
við að börnunum standi til boða
umönnun og verkefni sem stuðla að
auknum þroska og vellíðan þeirra.
Sá mikli barnafjöldi sem nýtir
þessa þjónustu sýnir hve þörfin er
mikil. Spurningin er! Viljum við hafa
heilsdagsskólann sem geymslustað
fyrir börnin eða viljum við hafa hann
með uppeldismarkmið. Eins og hann
er í dag teljum við nokkuð ljóst að
fólk með fóstrumenntun og starfs-
reynslu sækist ekki í þessi störf. Við
komum alla vega ekki til með að
starfa áfram við þessi skilyrði.
Skýrar línur varðandi húsnæði,
launakjör, rekstursform, markmið
og leiðir, barnafjölda, starfsmanna-
fjölda o.fl. hefðu þurft að liggja fyr-
ir áður en starfsemin hófst. Undir-
búningur hefur greinilega verið
ónógur og of margir lausir endar til
að vel mætti fara.
PAUL A. HANSEN,
fóstra, Austurbæjarskóla,
GUÐRÚN R. DANÍELSDÓTTIR,
fóstra, Hólabrekkuskóla,
ÁSTHILDUR GEIRMUNDS-
DÓTTIR,
Hólabrekkuskóla,
GUÐNÝ ZÍTA PÉTURSDÓTTIR,
Hólabrekkuskóla.
Heilsdagsskóli
Víkveiji skrifar
að er víst óhætt að fullyrða að
með auknu magni á beinum
útsendingum sjónvarpsstöðvanna, í
formi frétta-, umræðu- og viðtals-
þátta, þynnist þrettándinn, í réttu
hlutfalli við aukninguna. Þetta
fannst Víkveija verða deginum ljós-
ara í þeim frétta- og viðtalsþáttum
sem sjónvarpsstöðvarnar sendu út
í beinni útsendingu um miðjan dag
síðastliðinn sunnudag. Stöð 2 var
með Guðmund Árna Stefánsson
heilbrigðisráðherra í viðtali, þar
sem fréttamennirnir Elín Hirst og
Sigurdór Sigurdórsson og ritstjór-
inn Þór Jónsson spurðu ráðherrann
spjörunum úr. Ekkert nýtt kom
fram í þessum þætti. Aðeins endur-
tekningar frá liðnum vikum, og úr
sunnudagsviðtali Morgunblaðsins
við ráðherrann.
xxx
Síðar á sunnudaginn var annar
þáttur í beinni útsendingu frá
Ríkissjónvarpinu, undir „stjórn"
Gísla Marlleins Baldurssonar, um
öryggis- og varnarmál. Satt best
að segja fannst Víkveija sem um-
ræðuþáttur þessi væri á svo ótrú-
lega lágu plani, að vart gæti boð-
legt talist. Stjórnandinn var einung-
is með örlitla tilburði til þess að
hafa stjórn á þættinum. Þannig lét
hann það yfir sig ganga, við upphaf
umræðnanna, að Birna Þórðardóttir
flytti langan og afar leiðinlegan
áróðursfyrirlestur, sem hægt hefði
verið að segja með tveimur vel
kunnum slagorðum herstöðvaand-
stæðinga: „ísland úr NATO. Herinn
burt!“ Málefnafátækt Birnu krist-
allaðist svo í svari hennar við spurn-
ingu stjómanda þáttarins um það
hvernig ætti að standa að vörnum
landsins. Hún sagði að það ætti að
gera með því að reka herinn úr
landinu!
xxx
Ekki var fyrrverandi formaður
Alþýðubandalagsins, Svavar
Gestsson, málefnalegri í sínum
málflutningi, sem allur gekk út á
óskhyggju hans um Útópíu framtíð-
arinnar, þar sem engin vopn væru
og friður ríkti um heim allan. Vissu-
lega fögur framtíðarsýn, en ekki
svo ýkja raunsæ.
Aþessum grunni byggði þing-
maðurinn svo þann málflutn-
ing sinn, að ísland ætti að segja
sig úr NATO, varnarliðið ætti að
hverfa úr landi, og leggja bæri
Atlantshafsbandalagið niður, en
setja þess í stað á laggirnar alþjóð-
legt friðar- og öryggisnet. Hvergi
kom þingmaðurinn inn á það í
máli sínu, að smáríki eins og Island
hefur nákvæmlega ekkert um það
að segja hvort Atlantshafsbanda-
lagið er lagt niður eða ekki. Það
markverðasta sem kom fram í þess-
um þætti, að mati Víkveija, var
svar Svavars við spurningu Gísla
Marteins um hvernig ætti að veija
alþjóðlega flugvelli landsins, ef
varnarliðið hyrfi alfarið úr landinu.
Hann lýsti þeirri skoðun sinni, að
það yrði að veija flugvellina með
einum eða öðrum hætti, þannig að
í þessum efnum greinir þau Birnu
Þórðardóttur á. Svavar vill ekki, að
ísland verði með öllu óvarið, þótt
hann hafí ekki úttalað sig um með
hvaða hætti hann vill að flugvellirn-
ir verði varðir, en Birna telur að
varnir landsins verði best tryggðar
með brottför vamarliðsins.