Morgunblaðið - 13.11.1993, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1993
3
ALMENNA BOKAFELAGIÐ H F
- góð bók um jólin
Dreifing hefst 18. nóvember
Tilfinningaþrungin örlagasaga þar sem dregm
er upp á ljóðrænan hátt mynd af hörðum
raunveruleika.
Einar Már Guðmundsson er í hópi fremstu rithöfunda þjóðarinnar
og hafa verk hans verið þýdd á fjölda tungumála.
X ÁLEITIN OG ÁTAKANLEG SKÁLDSAGA EINARS MÁS GUÐMUNDSSONAR
í skugga
geðveikinnar
í skáldsögu sinni, Englum alheimsins, tekst Einar Már Guðmundsson á
við krefjandi og viðkvæmt viðfangsefni - ævi og endalok ungs manns
sem lendir í hremmingum geðveikinnar. Þegar sakleysi æskuáranna
lýkur fellur skuggi þessa sjúkdóms á líf hans og fjölskyldu og við blasir
nöturlegur heimur þeirra sem dæmdir eru til einveru og afskiptaleysis.
Hugarástandi mannsins er lýst af miklum næmleika og skarpsýni.
Hér er á ferð áhrifamikil og átakanleg saga sem lætur fáa ósnortna.
Engin venjuleg
unglingasaga!
Dreifing hefst 18. nóvember
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ H F
- góð bók um jólin
Yá! Ástir og átök í unglingaheimi segir frá tveimur strákum
í 10. bekk sem flækjast fyrir tilviljun inn í vægast sagt dular-
fullt mál þegar þeir rekast á umslag fullt af peningum. Ástin
kemur líka við sögu í lífi vinanna og skiptast á skin og skúrir
í hjörtum þeirra.
Yá! er óvenjuleg saga ekki síst fyrir þær sakir að tungumál
og efniviður er sótt í heim unglinga. Annar höfundurinn,
Ingibjörg Einarsdóttir, er 1S ára og er því að skrifa sögu sem
gerist í þeim heimi sem hún sjálf lifir í. Hún og Þorsteinn
Eggertsson ná hér í sameiningu að skapa spennuþrungna og
fjöruga unglingasögu.
Spennandi saga sem snertir alla imglinga!
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA