Morgunblaðið - 03.12.1993, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 03.12.1993, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993 19 Frá Vestmannaeyjum. stöðvarinnar hf. og blaðaumfjöllun um fyrirtækið á árinu 1993. Má af þeim blaðaúrklippum sjá, að um talsverða umfjöllun hefur verið að ræða. Er ekki þörf að rekja þessa umfjöllun hér, en í stuttu máli má segja, að almennt sé ekki vikið að meintri slæmri fjárhagsstöðu fé- lagsins. Þau tilvik, þar sem slíkt kemur fram er að finna í apríl 1993, þar sem skýrt er frá launalækkun yfirmanna í Vinnslustöðinni hf. og öðru sjávarútvegsfyrirtæki í Vest- mannaeyjum. Þannig er í DV hinn 2. apríl 1993 rætt við fjármála- stjóra fyrirtækisins og upplýsir hann, að fyrirtækið væri þá rekið með tapi og rökstuddi launalækk- unina m.a. með þeim hætti. í Morg- unblaðinu hinn 21. apríl 1993 segir í fyrirsögn svo: „Vinnslustöðin hf. og ísfélag Vestmannaeyja hf. Tapið samtals yfir 400 milljónir í fyrra.“ Er í fréttinni sagt frá því, að Vinnslustöðin hf. hafí tapað yfir 200 milljónum króna á árinu 1992 og haft eftir framkvæmdastjóra fyrirtækisins, að skýringarnar á þessari slæmu afkomu fyrirtækisins á árinu, séu fyrst og fremst gengis- fellingin á árinu 1992 og misgengi gjaldmiðla um haustið það ár. í fréttinni eru jafnframt höfð eftir framkvæmdastjóra Vinnslustöðvar- innar hf. eftirfarandi ummæli: „Þetta er í raun og veru alveg skelfilegt. Við erum að verða þokkalega sáttir við rekstur okkar, en það eru þessar utanaðkomandi breytur sem við ráðum ekkert við, sem gera það að verkum að afkom- an er ekki betri. Þrátt fýrir að hafa aukið skuldir okkar um rúmar 200 milljónir króna útaf gengisfellingu og misgengi gjaldmiðla, þá náðum við þeim árangri á árinu að lækka skuldir fyrirtækisins um 400 millj- ónir króna frá upphafi ársins í fyrra.“ Síðari fjölmiðlaumfjöllun hefur lotið að batnandi stöðu félagsins, m.a. hagnaði á fyrstu fjórum mán- uðum ársins 1993. Síðast var um að ræða viðtal við framkvæmda- stjóra Vinnslustöðvarinnar hf. i blaðinu Fréttum í Vestmannaeyjum þann 16. júní 1993, þar sem sú afstaða kemur almennt fram, að hagur félagsins sé að styrkjast og, að það muni standa af sér þá erfiðu tíma, sem nú eru í sjávarútvegi. Sú fjölmiðlaumíjöliun, sem nú hefur verið rakin getur ekki verið grundvöllur undir ummælum þeim, sem Kristján Ragnarsson lét frá sér fara í nefndu útvarpsviðtali. Ég tek sérstaklega fram, að mér er ekki kunnugt um hugsanleg ummæli framkvæmdastjóra Vinnslustöðvar- innar hf. í ljósvakamiðlum, og get því ekki tekið tillit til þeirra hér. Það ætti samkvæmt framanrit- uðu að liggja ljóst fyrir, að ekki er fyrir hendi nægjanlegt tilefni til að réttlæta þær fullyrðingar, sem fram koma í hinum tilvitnuðu ummælum Kristjáns. Ég tel heldur ekki, að hin opinbera umfjöllun um kvóta- kerfi eða stefnur og sjónarmið í fiskveiðistjórnun eigi að geta verið slíkt tilefni. Verður heldur ekki séð, að það séu óhæfilegar hömlur á tjáningarfrelsi manna, þó þeir hagi ummælum sínum með öðrum hætti en Kristján gerði að þessu sinni. Það leiðir svo sérstaklega til refsiþyngingar, að Kristján Ragn- arsson er formaður bankaráðs ís- landsbanka hf., viðskiptabanka Vinnslustöðvarinnar hf. Þar sem um einn stærsta, eða stærsta, við- skiptaaðila íslandsbanka hf. er að ræða, fer ekki hjá því, að ljármál þess félags hafi verið rædd á fund- um bankaráðs íslandsbanka hf. og kynnt formanni bankaráðs með öðrum hætti. Gerir það fullyrðingar hans sýnu alvarlegri, að þær upp- lýsingar sem hann kann að búa yfir um fjármál Vinnslustöðvarinn- ar hf. og hefur fengið í starfi sínu sem formaður bankaráðs, eða bank- aráðsmaður, eiga samkvæmt sér- stökum lagafyrirmælum, sem vikið verður nánar að hér á eftir, að vera trúnaðarmál, þ.e. „einkamálefni" eins og segir í téðu ákvæði. Tekið skal sérstaklega fram, að upplýs- ingar um fjárhagsstöðu manna (fé- laga), eru án efa eitt af því sem 229. gr. veitir vernd gegn.2 Ummæli eins og þau, sem Krist- ján Ragnarson Iét frá sér fara, og vitnað er til hér að framan, fara einnig í bága við 235. gr. almennra hegningarlaga. Það hefur verið litið svo á, að áburður á hendur öðrum manni (félagi), sem verða myndi honum til hnekkis, þ.e. lækka mann (félag) í áliti annarra falli undir þetta ákvæði. Meiðandi ummæli um slæma fjárhagsstöðu þeirra, sem stunda viðskipti eru, að öðru jöfnu talin til brota á þessu lagaákvæði.3 Regla 235. gr. hefur sama refsi- ramma og áður umfjallað ákvæði 229. gr. og myndu ákvæðin án efa tæma sök, hvort gagnvart öðru, þ.e. hámark refsingar yrði varðhald allt að 1 ári. Hér, sem endranær myndi það leiða til þyngingar á refsingu, að ummælin eru án nægjanlegs tilefn- is, þau eru viðhöfð í opinberum fjölmiðli, af manni, sem hefur lög- bundinnar trúnaðarskyldu að gæta, og eru sett fram með mjög tillits- lausum hætti í viðtalinu. Þess skal getið, að samkvæmt 241. gr. má dæma ummæli, sem fara í bága við 235 gr. ómerk. Dæma má hinn brotlega til að greiða miskabætur, sbr. 264. gr almennra hegningarlaga, svo og skaðabætur fyrir ljártjón, sem hann kann að hafa valdið með ummælum sínum. Þegar um er að ræða at- vinnufyrirtæki, geta slík ummæli valdið miklu fjártjóni. Er þekkt dæmi um mjög háar skaðabætur í slíku tilviki að finna í dómasafni Hæstaréttar, er ritstjóri Alþýðu- blaðsins var dæmdur til að greiða íslandsbanka hf. kr. 20.000 í skaða- bætur á árinu 1922 vegna ummæla hans í blaðinu um bankann.' Telja verður, að ummæli eins og þau, sem Kristján Ragnarsson lét frá sér fara í umræddu viðtali séu, einkum stöðu hans vegna sem for- manns bankaráðs íslandsbanka hf., til þess fallin að geta valdið alvar- legu fjárhagstjóni. Bótareglur þær, sem raktar hafa verið eiga að sinu leyti einnig við um 229. gr. almennra hegningar- laga. Akvæði laga um viðskipta- banka og sparisjóði nr. 43/1993. Eins og fram hefur komið mælir 43. gr. 1. 43/1993 um viðskipta- banka og sparisjóði fyrir um það, að bankaráðsmenn og starfsmenn viðskiptabanka og sparisjóða, auk sérstakra trúnaðarmanna eins og t.d. endurskoðenda, hafi þagnar- skyldu um „allt það er varðar hagi viðskiptamanna hlutaðeigandi stofnunar og um önnur atriði, sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lög- um eða eðli máls...“. Ekki er vafi, að fjárhagsmálefni viðskiptamanna eiga eðli málsins samkvæmt að fara leynt, a.m.k. þar til staðfest hefur verið með opinber- um hætti t.d. gjaldþroti hver fjár- hagsstaðan er. Er það án efa brýnt brot á þagnarskyldu þeirri, sem lög- boðin er með 43. gr. tilvitnaðra laga að viðhafa slik ummæli um fjárhag viðskiptamanns banka eins og for- maður bankaráðs íslandsbanka við- hafði í umræddu viðtali. Svo sem fyrr segir hefur Kristján Ragnarsson lýst því yfir, að hann hafi ekki verið að gera annað en að lýsa, eða draga ályktanir af ummælum framkvæmdastóra Vinnslustöðvarinnar hf. á opinber- um vettvngi. Mér hefur ekki tekist að finna þessum staðhæfingum Kristjáns stað við könnur. á umfjöll- un í prentuðum fjölmiðlum. Regla sú, sem sett er fram í 43. gr. laga 43/1993, myndi glata mjög gildi sínu, ef þeir, sem bundnir eru þagn- arskyldu samkvæmt henni gætu, án þess að færa á það ótvíræðar sönnur, borið það fyrir sig, að þeir hefðu fengið upplýsingar annars staðar frá. Er hér rétt að minna á að umfjöllun í prentuðum fjölmiðl- um um Vinnslustöðina hf. hefur a.m.k. frá maímánuði á þessu ári verið á þann veg, að fyrirtækið sé að vinna sig útúr fyrri vanda, hafi eða sé að ná betri tökum á rekstrin- um, lækki skuldir og, að það muni standa af sér þá erfiðu tíma, sem ganga yfír. Það er mat mitt, að Kristján Ragnarsson hafi a.m.k. ríka sönn- unarskyldu ef því verður haldið til streitu, að hann hafi fengið þessar upplýsingar úr opinberum yfírlýs- ingum framkvæmdastjóra Vinnslu- stöðvarinnar hf. Yrði það að byggj- ast á öðrum gögnum en þeim, sem ég hef aflað, enda renna þau ekki stoðum undir þessar fullyrðingar hans. Það verður líka að líta svo á, að sú staðreynd, að maður er formaður bankaráðs viðskipta- banka hlýtur almennt að leggja honum þær skyldur á herðar að fjalla alls ekki um fjárhagsmálefni viðskiptamanna bankans, hvorki í einkaviðtölum og þaðan af síður á opinberum vettvangi. Það er því ekki víst að það dygði til þess að víkja þagnarskyldunni samkvæmt reglu 43. gr. til hliðar þó Kristján hefði heyrt eða séð umfjöllun um meinta bága fjárhags- stöðu Vinnslustöðvarinnar hf. hjá öðrum. Réttarfarsreglur Til þess að knýja fram refsi- og bótaábyrgð á grundvelli 229. gr. og 235. gr. almennra hegningarlega og til að fá ummæli ómerkt þarf sá, sem misgert er við, að höfða mál. Brot á hinum tilvitnuðu ákvæðum sæta ekki opinberri ákæru. Brot á 43. gr 1. 43/1993 sæta hins vegar opinberri ákæru, enda er þess ekki getið í 100 gr. þeirra laga, að öðru vísi skuli með fara. Það er líka rétt að vekja sérstaka athygli á því, að samkvæmt XIV. kafla laga 43/1993 fer Bankaeftir- lit Seðlabanka íslands með eftirlit með því, að starfsemi þeirra stofn- ana, sem undir lögin heyra, séu í samræmi við ákvæði laganna. Þá segir í 96. gr. laganna, að viðskiptaráðherra fari með fram- kvæmd laganna. Ekki er því hægt að útiloka, að t.d. viðskiptaráðherra óskaði eftir opinberri rannsókn á því, hvort téð ummæli Kristjáns Ragnarssonar fari í bága við 43. gr. laganna. Samantekt í bréfí þessu er fjallað um rétt- aráhrif ummæla Kristjáns Ragnars- sonar, formanns bankaráðs íslands- banka hf. og formánns LIU, um fjárhagsmálefni Vinnslustöðvarinn- ar hf., og meint ábyrgðarleysi fram- kvæmdastjóra þess félags, með til- tekinni skoðun hans á málefnum fiskveiðistjórnunar. Ég tel, að með ummælum sínum hafí Kristján Ragnarsson gerst brotlegur við 229. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk þess, sem um sé að ræða aðdróttun, sem sé brot á 235. gr. sömu laga. Tekið er fram, að ýmis atvik leiði til refsiþynging- ar, einkum sú staðreynd, að um- mælin eru sett fram í opinberum fjölmiðli, þau eru gróf og sett fram með tillitslausum hætti, og viðhöfð af manni, sem að lögum hefur sér- staka trúnaðarskyldu um málefni það, sem um ræðir. Þá tel ég, að með ummælum sín- um hafí Kristján Ragnarsson, sem formaður bankaráðs Islandsbanka hf„ brotið þagnarskyldu þá, sem á honum hvílir samkvæmt 43. gr. 1. 43/1993 um viðskiptabanka og sparisjóði, enda verður ekki séð, að síðari fullyrðingar hans um að hann hafi fengið þessar upplýsingar úr opinberri umfjöllun framkvæmda- stjóra Vinnslustöðvarinnar hf. eigi sér stoð í raunveruleikanum. Eru ummæli Kristjáns sérstaklega al- varleg, þar sem þau fara á skjön við fjölmiðlaumfjöllun um málefni Vinnslustöðvarinnar hf. síðustu mánuði. Þá er bent á réttarfarsreglur, sem ég tel að gildi í þessum tilvik- um.“ 1 Um þetta má t.d. vísa til rits Stephan Hurwitz, Kriminairet, Speciel del, útg. Kaupmannahöfn 1955, bls. 302, þar sem fjallað er um skýringu á sambæri- legu ákvæði í dönskum hegningarlög- um. Jafnframt má vísa til rits Gunnars Thoroddsen, Fjölmæli, útg. Reykjavík 1967, bls. 168 og áfram. 2 Sjá td. Stephan Hurwitz, tilv. rit. bls. 301 og Vagn Greve o.fl. Kommenteret straffelov, Speciel del, 4. útg. Kaup- mannahöfn, 1988, bls 295. 3 Sjá t.d. Einar Arnórsson, Meiðyrði og meiðyrðamál, í Tímariti lögfræðinga 3. hefti 1952, bls. 127-128. 4 Sjá Hrd. I (1922), bls. 377. Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut Kopavogi, sími 571800 Opið sunnudaga kl. 13-18. BÍLAR Á TILBOÐSVERÐI: Subaru 1800 GL Coupé 4x4 '86, S g., ek. 152 þ., ný yfirf. V. 490 þús. Tilboðsverð: 390 þús. Mercedes Benz 250 T station '80, grænn, 4 g., ek. 170 þ. V. 550 þús. Tilboðsverð: 320 þús. stgr. Lada 1500 station '92, 5 g., ek. 32 þ., sumar/vetrardekk. V. 450 þús. Tilboðsverð: 390 þús. stgr. MMC Colt GL '90, 5 g., ek. 69 þ. V. 690 þús. Tilboðsverð: 600 þús. stgr. Renault 9 '87, 4ra dyra, vinrauður, 5 g., ek. 91 þ. V. 370 þús. Tilboðsverð: 250 þús. Chevrolet S-10 Thao '83, 5 g., ek. 120 þ. milur, sóllúga, álfelgur o.fl. V. 630 þús. Tilboðsverð: 480 þús. Honda Prelude '85, 5 g., ek. 125 þ., sóllúga, spoiler. V. 480 þús. Tilboðsverð: 330 þús. stgr. Daihatsu Charade TS EFi 16v '93, rauð- ur, 1300 vól, bin innsp., 5 g., ek. aðeins 4 þ. km. Sem nýr. V. 860 þús MMC L-300 Minibus 4x4 '88, grásans, 5 g., ek. 87 þ. Gott eintak. V. 1090 þús. BMW 5201 '82, 4ra dyra, sjálfsk., óvenju gott eintak. V. 320 þús. Toyota Tercel statlon 4x4 '88, 5 g., ek. 75 þ. V. 700 þús. Suzuki Swlft GL '90, sjálfsk., ek. 16 þ., 5 dyra. V. 650 þús. Nissan King Cap 4x4 '90, grár/svartur, 5 g., ek. 59 þ. V. 1250 þús. Honda Clvic CRX '88, hvítur, 5 g., ek. 78 þ., rafm. í rúðum, sóllúga o.fl. V. 760 þús., sk. á ód. MMC L-300 Minibus 4x4 '91, hvítur, 5 g., ek. 40 þ. V. 1850 þús. Toyota Hi Lux SR5 EFi '93, 5 g„ ek. 15 þ„ upphækkaður o.fi. V. 1980 þús. MMC Pajero turbo diesel (stuttur) '86, gott eintak, mikið endurnýjaður. V. 690 þús. Dalhatsu Feroza EL-II '89, grár/tvflitur, 5 g„ ek. 62 þ„ álfelgur, cent. o.fl. V. 890 þús. Subaru Justy J-12 4 x 4 '89, grásans, 5 dyra, 5 g„ ek. 61 þ. V. 590 þús. Toppeintak. Daihatsu Charade Sedan SG '91, rauður, sjálfsk., ke. 48 þ. V. 820 þús. Toyota Corolla 1300 DX '87, blár, 5 dyra, 4 g„ ek. 102 þ. V. 370 þús„ sk. á ód. Subaru station 1800 GL '88, sjálfsk., ek. 70 þ. V. 780 þús„ sk. á ód. MMC Colt GL '91, blár, 5 g„ ek. 45 þ. V. 740 þús. Dalhatsu Feroza EL-II '89, grár/hvílitur, 5 g„ ek. 62 þ„ álfelgur, cent. o,fl. V. 890 þús. C..J Corolla XL '88, steingrár, 4 g., ek. 78 þ. V. 520 þús. stgr. Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíöum Moggans! y Palli var einn í heiminum Hin heimsfræga barnabók - sem þýdd hefur verið á nær 40 tungumál - er komin út í 5. útgáfu. Óskabók íslenskra barna í 45 ár sem lengi hefur vantað í bókaverslanir. Bókaútgáfan Björk

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.