Morgunblaðið - 03.12.1993, Side 42

Morgunblaðið - 03.12.1993, Side 42
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993 42 Ásthildur Erlings dóttir - Minning Fædd 17. mars 1938 Dáin 22. nóvember 1193 Mikil heiðurskona er fallin frá langt fyrir aldur fram. Fundum okk- ar bar fyrst saman er hún settist í 4. bekk MA haustið 1954. Hún var að sunnan og bar með sér andblæ borgarmenningarinnar inn í heim okkar dreifbýlisungmennanna. Hún var glæsileg stúlka og heimskona á okkar mælikvarða. Að henni stóðu sterkir stofnar og hún hlaut í vöggu- gjöf góðar gáfur, en umfram allt var hún heilsteypt, hjartahlý og vönduð til orðs og æðis. Hún gerði miklar kröfur til sjálfrar sín og var einstak- lega samviskusöm. Það kemur upp í hugann mynd af hópi skólasystkina á heimavistinni forðum daga þar sem við sátum oft saman og glímdum við heimaverkefni ýmiss konar. Mér eru sérstaklega minnisstæðar stundirnar þar sem setið var við þýðingar á enskum gullaldarbók- menntum. Sumir vildu láta sér nægja að vita svona nokkurn veginn réttar merkingar hinna erlendu orða, en Assí var allt hálfkák þvert um geð; verkið skyldi unnið til hlítar og það viðhorf fylgdi henni í hveiju því sem hún tók sér fyrir hendur á lífs- leiðinni. Þessi hópvinna okkar dróst því oft á langinn, og stundum fannst okkur hinum nóg um nákvæmnina. Oft enduðu þessar tarnir á líflegum umræðum um eitthvað allt annað en námsefnið og þar var Assí í ess- inu sínu því ekkert mannlegt var henni óviðkomandi. Þær eru margar góðu minningarnar frá þessum áhyggjulausu æskuárum svo og síð- ari tímum sem eiga eftir að ylja okkur um iijartaræturnar. Eftir að menntaskólaárunum lauk héldust góð tengs! meðal okkar bekkjarfélaganna og átti Assí ekki hvað síst þátt í að hópurinn hélt saman, þessi fámenni stúdentahópur sem nú sér á eftir áttunda félaga sínum yfir móðuna miklu. Stundum var langt á milli endurfunda á þess- um árum en alltaf var þráðurinn tekinn upp á ný og efnt til fagnaðar- funda. Assí var manna glöðust í góðra vina hópi og þar naut sín vel hin einstaka frásagnargáfa hennar. Hún var höfðingi heim að sækja'og veitti gestum sínum af mikilli rausn og örlæti. Hún var fagurkeri sem kunni vel að meta lífsins lystisemd- ir. Það sópaði að henni hvar sem hún fór, og það var aldrei nein logn- molla í kringum hana enda hafði hún ákveðnar skoðanir og lá ekki á þeim. Fasmikil framkoma hennar villti stundum um fyrir fólki sem vissi ekki að þarna fór kona með stórt og viðkvæmt hjarta sem ekki mátti neitt aumt sjá. Lífið lék ekki alltaf við hana og hún sigldi ekki alltaf lygnan sjó, en hún bar sig ávallt með því stolti og þeirri reisn sem voru henni í blóð borin. Það lá fyrir okkur Assí að starfa undir sama þaki í Kennaraskóla ís- lands, síðar Kennaraháskóla íslands, í 26 ár og þar styrktust enn vináttu- böndin. Hún gekk þar ti! starfa af þeirri eðlislægu atorku sem ein- kenndi hana alla tíð og hún stóð meðan stætt var. Fyrir nokkrum árum fóru að heija á hana veikindi sem virtust óviðráðanleg. Smám saman mörkuðu þau sín spor og loks var svo komið að þessi sterka kona varð sem skugginn af sjálfri sér. Það er erfitt að sætta sig við ótímabæran dauða hennar því hún var í eðli sínu sannkallað lífsins barn. En nú er hún á braut og eftir stendur mynd af konu sem var stór í sniðum og hreinskiptin. Við skóla- félagarnir úr MA munum minnast hennar með söknuði sem hins lífs- glaða og skemmtilega félaga, en ekki síður fyrir tryggð hennar, hlýju og ræktarsemi. Við og fjölskyldur okkar sendum fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur. Auður Torfadóttir. Með fáeinum orðum vi! ég minn- ast elsku vinkonu minnar hennar Assíar - Ásthildar Erlingsdóttur. Fréttin um sviplegt og óvænt fráfall hennar snart mig djúpt. Þrátt fyrir fjarvistir mínar langdvölum í Kali- forníu hefur vinskapur okkar varað í 47 ár, sambandið náið og tryggt. Ásthildur var fædd og alin upp í Kaupmannahöfn til sjö ára aldurs. Foreldrar hennar voru Erlingur Þor- steinsson læknir og Hulda Davíðs- son, en afi hennar var Þorsteinn Erlingsson skáld. Hún kom til ís- lands árið 1946 er foreldrar hennar fluttust heim að loknu sérnámi Erl- ings. Um það leyti hófust okkar kynni. Við gengum saman í barna- skóla en eftir það fór hún í Kvenna- skólann en ég í Verslunarskólann. Ásthildur var ætíð ötul við að hvetja okkur báðar til menntunar fyrir framtíðarstörf. Við ólumst upp í Hlíðunum og áttum þar margar ógleymanlegar ánægjustundir - vor- um heimagangar hvor á annarrar heimili. Fjölskylda hennar var mér ávallt góð og hjálpleg. Hún var ein- staklega glæsileg og áhrifarík kona, skynsöm, hjartahlý, vinaföst og ætt- rækin. Ásthildur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1957, BA-prófi frá Háskóla íslands og framhaldsnámi frá Kennarahá- skólanum í Kaupmannahöfn og lauk þaðan Cand. paed prófi nokkru síð- ar. Hún var lektor í dönsku við Kenn- araháskóla íslands til dauðadags. Ásthildur giftist Jónasi Elíassyni verkfræðingi og síðar prófessor 1961 og eru börn þeirra Helga Guð- rún og Erlingur Elías sem kvæntur er Maríu Vilhjálmsdóttur og eiga þau eina dóttur, ainöfnu Ásthildar. Ássí bjó þeim glæsilegt heimili í Eskihlíð- inni og mér eru minnisstæð rausnar- leg boð þeirra hjóna. Þau Ásthildur og Jónas dvöldust nokkrum sinnum á heimili mínu í Kaliforníu. Ég minn- ist ánægjulegra samverustunda er við rifluðum upp gamlar minningar. Ég mun ávallt minnast Ásthildar með sérstökum hlýhug, virðingu og miklum söknuði og vil að lokum færa mínar hjartans samúðarkveðjur til Jónasar, Huldu og fjölskyídu þeirra. Guð blessi þau og styrki á þessum erfiðu tímamótum. Ásthildur mín, megir þú hvíla í friði. Þín vinkona, Dóra Hjartar. Það var síðsumars árið 1947 að atvikin höguðu svo til, eftir sérstök- um krókaleiðum ótrúlegra tilviljana, að fjölskyldur okkar Ásthildar flutt- ust í sama stigagang fjölbýlishúss við Eskihlíð. Því fór fjarri í fyrstu að barnamergð hafi einkennt þennan nýjasta vaxtarsprota höfuðstað- arins, sem Hlíðahverfið þá var, enda tókst með okkur jafnöldrum vinátta, sem haldizt hefur til þess dags er nú leiðir skildu. Hún var til þess að gera nýlega komin til landsins; hafði komið með fyrstu ferð Esjunnar eftir stríð frá Kaupmannahöfn aðeins tveimur árum fyrr. Hún var eftirminnilegur félagi, dugleg, harðfylgin og skemmtileg. Enda þótt hún hafi alizt upp í Danmörku fyrstu sjö ár ævinn- ar var íslenzkan henni jafn töm og okkur hinum. í skólanum var hún hamhleypa til náms og starfa. Þess- ir eiginleikar urðu enn ljósari, er við réðumst saman til sumardvalar að Hrauni í Olfusi, en þar gekk hún, borgarbarnið, ötul til allra verka inn- an húss sem utan, aðeins 12 ára gömul og gilti einu hvort sinna þurfti kúarekstri; heyskap eða barna- gæzlu, sem var ærinn starfi á barn- mörgu heimili í nánu sambýli við bæjarlækinn og mýrarkeldur, sem liggja fast að bæjarhlaðinu. Leiðin lá um Kvennaskólann og stækkaði vinahópurinn að mun, og áður en varði var hún í þungamiðju skólafé- lags og skemmtanalífs. Þegar í menntaskóla kom skildu leiðir okk- ar, hún hélt til Akureyrar, þar sem hún lauk stúdentsprófí vorið 1957 og síðan kennaraprófi í dönsku og ensku við Háskóla íslands. Kandí- datsprófi í dönsku við danska kenn- araháskólann árið lauk hún 1978. Það var gott að eiga Ásthildi að sem trúnaðarvin gegnum bernsku- og unglingsár. Ávallt hafði hún mörgu að miðla og frásagnargáfan brást ekki, hvort heldur um var að ræða daglega viðburði eða litríkar ættarsögur hennar, en af þeim kunni hún kynstrin öll. Minnisstæðar eru margar ánægjustundir, er við nutum saman í faðmi fjölskyldna. Ræktar- semi hennar var einstök og þeir sem aldraðir voru, sjúkir eða flestum gleymdir áttu hana jafnan að holl- vini á persónulegum tyllidögum þeirra; einatt skyldi hún gleðja þá með heimsókn eða blómagjöf, þegar þá sízt varði. Enda þótt starfssvið okkar yrði á margan hátt ólíkt og útsærinn skildi að svo árum skipti héidust bréfa- skipti okkar hvenær sem hugnrinn bauð og við fundum þörf á að miðla því er okkur var efst í huga á hveij- um tíma. Einnig héldust tengsl með nábýli hennar við fjölskylduna í Eskihlíðinni, og er tryggð hennar og hjálpsemi við móður mína um sex ára tímabil fjarvista_ hugstæð og mikillar þakkar verð. Ánægjuleg var heimsókn þeirra Ásthildar og Jónas- ar með Helgu Guðrúnu og ferðalag um Nýja England haustið 1968 varð enn til að treysta þau vinabönd. Störf sín við dönskukennslu við Kennaraháskóla íslands rækti hún af sömu atorku og vandvirkni, enda þótt það dyldist ekki þeim er gerst þekktu að Ásthildur vinkona mín gekk hvergi nærri heil til skógar síðustu árin, en ieit hennar að þeirri lækningu er færði henni líkamlega heilsu, sálarfrið og lífshamingju bar ekki árangur. Þá heilsu hefur hún fundið núna handan móðunnar miklu. Eftirlifandi eiginmanni, börnum, íjölskyldum þeirra, ásamt Huldu og Erlingi votta ég mína dýpstu samúð, megi blessun fylgja minningu hennar. Halla Siguijóns. Fréttin um andlát Ásthildar kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Mig setti hljóðan og hugsanir um tilgang lífsins og fallvaltleika þess fylltu hugann. Aðeins tveimur dög- um áður en hún lést skiptumst við á hressilegum kveðjum á heimili hennar þar sem ég var tíður gestur. Þó að við vinir hennar vissum að hún ætti við veikindi að stríða þótt- umst við viss um að þau væru tíma- bundin, jafnvel að hið versta væri afstaðið og hún myndi endurheimta sinn fulla þrótt á ný. Og eftir á vakn- ar sú nagandi spurning hvort maður hefði ekki getað gert meira til að hressa hana við og e.t.v. létta henni eitthvað lífið í veikindum sínum. Nú er allt slíkt um seinan og um það þýðir ekki að fást. Fyrstu kynni mín af Ásthildi voru í Ménntaskólanum í Reykjavík þegar hún stundaði nám í þriðja bekk en ég í þeim sjötta. Ég man að þar fór óvenju fríð stúlka sem eftir var tek- ið og hafði það að auki sér til ágæt- is að vera sonardóttir þjóðskáldsins góða, Þorsteins Erlingssonar. Við urðum málkunnug og svo æxlaðist til að ég ásamt bekkjarbróður mínum vorum fengnir til þess að miðla henni og bestu vinkonu hennar af kunn- áttu okkar í efnafræði, en á því sviði töldu þessar föngulegu stúlkur sig hafa þörf fyrir aðstoð. Liðsinnið var fúslega veitt og launin voru falleg bros. Tíminn leið og nokkrum árum seinna kynntist ég Ásthildi á nýjan leik er hún gerðist náin vinkona og síðar eiginkona vinar míns og skóla- bróður Jónasar Elíassonar. Á þess- um tíma vorum við Jónas í sama árgangi ásamt nokkrum félögijm við nám í verkfræði, fyrst heima á ís- landi og síðan í Kaupmannahöfn. Löndunum þar í borg þótti bera nokkuð á þessum stórvöxnu mönn- um sem héldu svo mjög hópinn og gáfu þeim nafnið „groddarnir". Þetta nafn festist í sessi og hafði sitt að segja til þess að halda hópn- um saman að námi loknu. Á Kaupmannahafnarárunum festu flestir okkar félaganna ráð sitt eða lögðu grunninn að hjónabandi. Hinn samheldni hópur stækkaði og traust vináttubönd voru mynduð sem enn halda. Óhætt er að fullyrða að Assí, en undir því nafni gekk Ást- hildur ævinlega í okkar hópi, lagði mikið af mörkum til þess að viðhalda þeim góða félagsskap og nánu tengslum sem þarna urðu til. Átti það ekki síður við eftir að menn fóru hver til sinna verka í lífinu. Assí var frábær matreiðslumeistari og naut hópurinn þess í ríkum mæli í samkvæmum heima hjá henni og víðar. Hún var einnig hrókur alls fagnaðar í gleðskap okkar og hvata- maður að ógleymanlegum ferðum þessara vina um heiminn. Okkur þótti vænt um hana og fannst mik- ils misst ef hún var fjarri þegar við áttum gieðistundir saman. Við hið óvænta fráfall þessarar tápmiklu og glæsilegu konu hættir sérstakur tónn að óma í sinfóníu vinahópsins. Við söknum hennar sárt. Nú er Ásthildur horfin á vit þess óumflýjanlega sem bíður okkar allra, alltof snemma að því er okkur vinum hennar finnst, en örlög sín flýr eng- inn. Lífsneisti Ásthildar heldur áfram að snarka í afkomendum hennar og fyrir u.þ.b. fjórum árum birtist hann enn á ný í alnöfnunni, sem var augasteinn ömmu sinnar. Kæri Jónas, við Sigrún sendum þér og þínum og foreldrum Ásthildar okkar innilegustu samúðarkveðjur. Jóhann Már Maríusson. Þegar okkur hjónunum barst sú harmafregn, að hún Assí væri dáin, setti okkur hljóð. Það er ávallt sárt að sjá á eftir samferðamönnum sín- um í lífinu, ekki sízt þegar um er að ræða langvarandi og trygglynda vináttu. Við hjónin ásamt þeim Jón- asi og Assí erum búin að þola saman súrt og sætt frá því að við vorum öll saman í námi í Kaupmannahöfn. Reyndar þekktum við bæði Assí frá því að hún var ung stúlka, Júlíus úr Menntaskólanum á Akureyri, þar sem varð uppi fótur og fit þegar þessi bráðfallega stúlka kom til náms norður, en Sigríður María úr bæjarlífinu í Reykjavík á uppvaxt- arárum þeirra beggja. Það var svo um 1970, að við hittumst öll á nýjan leik í Kaupmannahöfn, þangað sem Assí og Jónas komu bæði til að stunda framhaldsnám, en við bjugg- um þar fyrir. Á þessum árum var oft glatt á hjalla og margt brallað. Okkur er minnisstæð afmælisveizla okkar þriggja, Assíar, Júlíusar og Sigríðar Maríu, sem við héldum sam- an með pomp og pragt í kjallaranum í Jónshúsi í Kaupmannahöfn, þar sem borðtennisborðið svignaði und- an krásunum, og annað eins hafði ekki sést í Kaupmannahöfn fyrr eða síðar. Þannig var Assí. Hún var mikill höfðingi og hafði unun af því að taka á móti gestum og halda þeim veglegar veislur. Hún hefði áreiðanlega sómt sér vel meðal kven- skörunga á íslandi á gullöld okkar. Leiðir okkar lágu svo saman til Islands, þar sem Jónas og Júlíus urðu samstarfsmenn, en Assí hóf störf sem lektor í dönsku við Kenn- araháskólann. Við höfum ávailt haldið hópinn síðan og fjölskyldurnar fylgzt hvor með annarri og saman tekið þátt í gleði og sorg. Assí var einstaklega ræktarsöm og trygglynd vinum sínum. Um áratugaskeið heimsóttu þær Sigríður María og Assí hvor aðra á afmælisdaginn, sem eru samliggjandi, til að færa hvor annarri blóm eða einhveija smágjöf. í starfí var Assí hamhleypa og lagði metnað sinn í að ná fullkomnun. Stundum þótti okkur nóg um því að hún lagði oft svo hart að sér, að það hafði áhrif á heilsu hennar. Hún var ósérhlífm og ávallt reiðubúin til að taka að sér verkefni og ýmiss konar störf fýrir aðra án þess að reikna með sérstakri umbun fyrir. Þannig tók hún þátt í margs konar félags- störfum. Var meðal annars um langt skeið áhrifamanneskja í BHMR og fleiri samtökum. Það var það síð- asta, sem henni datt í hug þegar hún var á kafi upp fyrir haus í ein- hveijum verkefnum, hvort hún fengi greitt fyrir vinnu sína. Miklu fremur var hún að hugsa um hvernig hún gæti orðið að liði, hjálpað einhveijum eða stutt einhvern málstað með at- orku sinni. Okkur þykir lífíð miklu fátæk- legra eftir að Assí er horfin frá okk- ur. Við söknum samverustunda okk- ar, þar sem ávallt ríkti glaðværð og kátína svo ekki sé talað um þær dýrlegu veitingar, sem Assí var fræg fyrir. Hún kunni vel að meta þegar Júlíus kom í heimsókn og var stór- tækur á góðgætið. Núna síðustu mánuðina höfum við fylgzt áhyggju- full með baráttu hennar við hræði- legan sjúkdóm og séð hvernig smám saman dró af henni. Það var sárt að sjá þessa dugmiklu konu bogna að lokum fyrir því, sem hún réð ekki við. Við vottum Jónasi, Huldu og börnunum innilega samúð okkar og kveðjum Assí með sárum söknuði. Júlíus og Sigríður ■ María Sólnes. Haustið 1955 hittust tvær ungar manneskjur á Akureyri, báðar frá Reykjavík. Stúlkan kom til þess að setjast í fimmta bekk menntaskól- ans, jnlturinn í sjötta bekk. Stúlkan var Ásthildur Erlingsdóttir, pilturinn sá er þessar fátæklegu línur ritar. Vináttan sem varð til á þessum haustdögum varð bæði falleg og langvarandi. I raun og veru er ekki hægt að skrifa um svoleiðis vináttu. Hún hlýtur að vera eins og stjarna sem skýst upp í himininn og skín svo á festingunni um eilífð. Það sem skemur lifir fer höndum sínum um þessa stjörnu á leið til himna, því langlífara hlotnast aðeins að láta hugann reika um himinhvolfið. Minningin er sömu ættar og augnablikið, fegurðin býr í því og deyr aldrei. Þannig er minningin mín um Ásthildi. Hún giftist vini mínum og bekkj- arbróður Jónasi Elíassyni og átti með honum dótturina Helgu Guð- rúnu og soninn Erling Elías. Þeim og móður hennar Huldu votta ég djúpa samúð mína. Einnig föður hennar Erlingi Þorsteinssyni. I áritun á bókina Fagra veröld eftir Tómas Guðmundsson skáld sem Assí gaf mér á tvítugsafmæli mínu skrifar hún: „Heill þér tvítugum. Vona að vin- skapur okkar megi haldast fimm sinnum um þessa tölu.“ í engum vafa er ég um það. Hinsta kveðja mín, þessa lífs, til vinkonu minnar verður eitt af eftirlætisljóð- um okkar úr þessari bók: Hver veit nema ljósir lokkar, lítill kjóll og stuttir sokkar hittist fyrir hinumegin? Þá getum við í gleði okkar gengtð suður Laufásveginn. Knútur Bruun. Orð verða oft bæði fá og fátækleg þegar ástvinir falla frá og við kveðj- um þá hinstu kveðju. Það er skrýtið hve dauðinn er okkur alltaf jafnfjar- lægur jafnvel þótt hann sé ávallt á næsta leiti og við ástvinamissi mynd- ast alltaf stórt tómarúm. Nú er skarð fyrir skildi. Vinkona mín, hún Assí, er látin eftir hetjulega baráttu við erfiðan sjúkdóm sem hún varð þó að lúta í lægra haldi fyrir, og eftir stöndum við svo miklu snauðari. Hennar verður sárt saknað en það er huggun harmi gegn að vita að nú er hún laus við allar þær þjáning- ar sem hún varð að líða, ekki aðeins síðustu mánuði heldur jafnvel ár. Assí var einstaklega tryggur vinur og ég minnist allra þeirra ánægju- legu samverustunda, sem við áttum saman, bæði innanlands og utan, og margar glaðar stundirnar áttum við hjónin með þeim Assí og Jónasi í sumarbústaðnum okkar á Þingvöll- um. Assí var sannur listakokkur og hefði hún sómt sér vel í hvaða hallar- eldhúsi sem var. í fjölda ára höfum við skipst á að fagna nýju ári ásamt fjölskyldum okkar og eftir síðasta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.