Morgunblaðið - 14.04.1994, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 14.04.1994, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1994 Albert S. Guðmundsson fyrrverandi ráðherra Albert nýkominn heim árið 1956 og stofnar þá strax heildsölu sína en á veggnum fyrir ofan hann hangir mynd af Sigurboganum í París í Frakklandi þar sem hann átti síðar eftir að gegna sendiherra- starfi. Ljósm. Ól. K. M. aftasta þingsæti kjörinna sjálfstæð- ismanna í höfuðborginni. I næstu kosningum þar á eftir var hann sig- urvegarinn, hafði sett formann flokksins og forsætisráðherra aftur fyrir sig. Þaðan í frá var styrkur hans slíkur að hann hafði örlög flokks og höfuðatburði í hendi sér. Það var Albert sem í raun veitti Gunnari umboð til stjórnarmyndun- ar. Það var Albert sem byggði brúna sem Geir gekk eftir á ný inn í stjómarráðið. Það var Albert sem tók embætti íjármálaráðherra þeg- ar enginn í ráðherraliði flokksins lagði í þá þraut. Það var Albert sem stofnaði nýjan stjómmálaflokk þeg- ar nýr og ungur formaður Sjálf- stæðisflokksins setti hann út úr rík- isstjóm og Albert vann stærri sigur en nokkur annar sem ógnað hefur fylgiskipan þjóðflokksins. Hinn nýi flokkur hans varð mikilvægasta forsendan fyrir brotthvarfí Þor- steins úr forsætisráðuneytinu og þar með formannsskiptunum í Sjálfstæðisflokknum þótt Albert væri þá sestur í æðsta tignarsæti Islendinga á franskri gmndu. Jafn- vel ferill Davíðs var mótaður af örlagaskrefum Alberts. Það var umfram annað forsetaframboðið sem varð til þess að borgarfulltrú- inn ungi gat tekið sæti oddvita Sjálfstæðisflokksins. Enginn mann- legur máttur nema ákvörðun Al- berts sjálfs hefði getað fært borgar- stjóraembættið til annars. Hvílík saga: Að ráða meim um stöðu Gunnars og Geirs, Þorsteins og Davíðs en nokkur annar og hafa enn í vetur slíkt vald að fyrsta verk Áma þegar hann tók við af Mark- úsi var að sækja Albert heim og biðja um blessun. Úr sætum annarra flokka höfum við hin horft á þetta mikla drama í nær tvo áratugi. Sum okkar vomm svo lánsöm að fá að njóta nærver- unnar við Albert og eignast síðan í honum góðan vin. Mér er til efs að nokkur forystumaður í íslenskum stjómmálum hafí á þessu tímabili lagt jafn mikla rækt við að kynnast fulltrúum annarra flokka, verið jafn trúr því viðhorfi að mannkosti skuli ávallt setja ofar hagsmunum. Fyrir vestan ólst ég upp við goð- sögnina um hetjuna á fótboltavöll- um útlandanna, útlanda sem þá vom svo órafjarri því sem nú er að erfitt er fyrir æskufólk nútímans að skilja hve ótrúlegur ferill Alberts var á þeim ámm. Ég horfði síðan hugfanginn á hann leika á Melavell- inum eftir að hann kom heim en hafði áður sett Ríkharð af Skagan- um í öndvegi. En ég kynntist Al- bert ekki fyrr en ég tók ungur sæti á Alþingi. Þau kynni urðu fljótt að vináttu og trúnaði sem urðu mér dýrmæt í hörðum heimi stjórnmála- baráttunnar. Albert var skarpgreindur og með ótrúlegt næmi á menn og málefni. Hann hafði skýrari dómgreind en flestir sem ég hef rætt við um stjórnmál hérlendis og erlendis. Sumir hafa átt erfitt með að trúa að prófessorinn í stjórnmálafræði gæti sótt lærdóm og visku til manns með slíkan bakgmnn og án þess aga sem stundum næst með lang- skólanámi. Albert Guðmundsson var að mínum dómi einhver gáfað- asti stjórnmálamaður íslendinga á síðari áratugum. Gáfur hans vom hins vegar ekki allra og hann kaus að sýna ekki margbreytileika þeirra nema viðmælandi væri vinur og verðskuldaði trúnað. Á opinberum vettvangi var hann maður hinna einföldu lýsinga og fæstra orða. í samræðum okkar tveggja var dóm- greindin eins og beittur geisli og skarpleikinn líkur hörðum gim- steini. Það hefur vissulega verið stór- brotin sýning fyrir Islendinga að fylgjast með og taka þátt í æviferli Alberts Guðmundssonar. En það vom einstæð forréttindi að geta átt með honum trúnaðarstundir þar sem merin og málefni vom rædd á þann hátt sem aldrei gleymist. A kveðjustund þakka ég þessar stundir, þakka vináttu sem hefur verið mér dýrmæt reynsla. Við ræddum síðast saman yfir hádegisverði á Hótel Borg fyrir nokkmm vikum. Það var greinilegt að sumum í salnum fannst sér- kennilegt að sjá formann Alþýðu- bandalagsins og hinn heimkomna sendiherra sitja saman hátt i þriðju klukkustund í nánum samræðum. Jafnvel fáeinir kunningjar mínir úr forystusveit R-listans sem þá var í fæðingu og sátu á nálægu borði gutu til okkar homauga. Þessi sak- lausi hádegisverður okkar skapaði greinilega spennu í salnum. Við Albert höfðum yfirleitt ekki valið opinbera samkomustaði fyrir sam- ræður okkar. Nú vildi hann endilega að við snæddum saman á hans gamla heimavelli, Hótel Borg. Sendiherrann átti bara að vera á eftirlaunum en allur stjómmála- heimurinn titraði af eftirvæntingu: Myndi gamla kempan mæta til leiks á ný? En nú er hann allur, spennan horfin. Aðeins fráfall hans sjálfs gat veitt úrskurð um að nú væri leiknum endanlega lokið. Þegar ég frétti andlát Alberts til fjarlægrar heimsálfu og þau óvæntu tíðindi héldu fyrir mér vöku í heitri nóttinni, þá varð þessi síð- asta samræða okkar tákn um allt það besta í fari hans. Um gáfurn- ar, hlýleikann, kraftinn, dómgreind- ina, vináttuna, áhugann og viljann til að gera vel. Kannski færi ég einhvem tímann í letur það sem okkur fór á milli til að veita öðmm innsýn í hve margslunginn og mikil- hæfur Albert Guðmundsson var í hugum okkar sem bámm gæfu til að kynnast honum vel. Við Guðrún fæmm íjölskyldu Alberts samúðarkveðjur og vonum að minningin um góðan dreng og stórbrotinn forystumann muni létta þeim sorg sem svo óvænt barði að. dyram. Ólafur Ragnar Grímsson. Ekki er það ætlun mín að rekja æviferil Alberts Guðmundssonar. Það gera aðrir. Ég hyggst aðeins kveðja góðan vin og samstarfsmann með fáeinum orðum. Við Albert áttum náið samstarf í ríkisstjóm minni 1983-1987, einkum þau ár sem hann gegndi störfum fjármáiaráðherra. Var það samstarf með ágætum og leiddi til góðrar vináttu. Albert lagði mikinn metnað í starf sitt sem fjármáiaráðherra. Það starf er ætíð eitt hið erfiðasta í hverri ríkisstjórn og aldrei verður gert svo öllum líki. Albert lagði sig þó fram við að skoða hveija tillögu af sanngirni. Hann leitaði til mín sem forsætisráðherra og óskaði eft- ir því að ég settist með sér yfir athugasemdir og óskir annarra ráð- herra, sem ég gerði. Hef ég ekki átt svo náið samstarf við annan fjár- málaráðherra. Líkaði mér það sam- starf vel. Ekki verða hér raktir þeir mörgu fundir sem við áttum um hin fjöl- mörgu vandamál sem upp komu eins og ætíð í ríkisstjórn. Áðalatrið- ið er að slík mál voru rædd og yfír- leitt Ieyst. Er ég Albert þakklátur fyrir hans góða vilja. Mættu ýmsir taka sér Albert til fyrirmyndar að þessu leyti. Albert var einlægur vinur þeirra sem minni máttar em og í erfiðleik- um áttu. Hann lagði sig fram við að leysa slík mál, jafnvel þau smæstu. Hann gladdist þegar slíkt tókst. Eins og kunnugt er var Albert í Samvinnuskólanum og varð á milli hans og Jónasar Jónssonar góð vin- átta, sem Albert lagði rækt við. Albert beitti sér fyrir því að brjóst- mynd af Jónasi var reist við Arnar- hvol. Ég hygg að mikið af sam- vinnu- og félagshyggjuhugsjón Jón- asar hafí lifað í huga og hjarta Alberts. Albert Guðmundsson var, eins og alþjóð veit, mikill afreksmaður í íþróttum. Af þeim krafti og einurð gekk hann fram í hvetju máli. Mikil- vægast er þó að Albert var dreng- skaparmaður. Það var að mínu mati hans aðalsmerki, fyrst og fremst. Með samstarfí okkar Alberts hófst einlæg vinátta sem hélst. Þannig mun ég geyma minninguna um Albert. Við hjónin vottum eftirlifandi eiginkonu Alberts, Brynhildi Jó- hannsdóttur, og börnum þeirra, ein- læga samúð okkar. Við biðjum þeim Guðs blessunar. Steingrímur Hermannsson. Kveðja frá sendiherra Frakklands Skyndilegt fráfall herra Alberts Guðmundssonar, sendiherra íslands í Frakklandi frá 1989 til 1993, var mér mikil harmafregn. Hann var gæddur miklum mann- kostum og langar mig að minnast sérstaklega þeirra , sem viðkoma tengslum hans við land mitt. Löngu áður en hann var skipaður sendiherra, hafði Albert Guðmunds- son myndað mjög náin tengsl við Frakkland. Sem atvinnuknattspyrnumaður hafði hann aflað sér mikilla vin- sælda meðal íþróttaáhugamanna, en hann var í fyrstu liðsmaður knattspyrnufélags Nancy, því næst liðsmaður félagsins Racing Club de Paris og síðast var hann liðsmaður í félaginu Olympic Gymnaste Club de Nice. Ég vil einnig minnast starfa hans í Reykjavík, en hann var ötull stuðn- ingsmaður og forseti Alliance Frangaise. Hann átti og stóran þátt í þróun viðskipta milli landa okkar. Ég og forverar mínir í þessu emb- ætti höfum notið stuðnings hans í ríkum mæli. Þegar hann sneri aftur til Frakk- lands sem sendiherra (en þar kaus hann gjarna að dvelja á eigin veg- um, hann var heiðursborgari Nice), gafst honum tækifæri til þess að endumýja gömul vinatengsl og skapa ný. Eg kýs einnig að fram komi að skömmu eftir komu hans til Reykjavíkur, barst mér erindi frá Mitterrand forseta, þar sem hann spurðist fyrir um heilsu hans. Þar sem mér hafði gefíst tækifæri til þess að hitta Albert Guðmundsson, taldi ég mig geta veitt jákvæð svör við þeirri fyrirspurn. Mér er því mikill harmur að ótímabæru andláti þessa mikla Frakklandsvinar. Framjois Rey-Coquais. Það verður trauðla sagt um Al- bert Guðmundsson að hann hafi verið maður lítilla sanda og lítilla sæva. Þvert á móti var hann hinn mikli senuþjófur, sem alltaf kom jafn mikið á óvart í hvaða hlutverki sem var. Og einnig þegar hann kvaddi, svo snöggt og svo óvænt féll tjaldið. Ósjálfrátt leitar hugurinn til baka, aftur til unglingsáranna. Með stolti fylgdist ég eins og jafnaldrar mínir með heimkomu knattspyrnu- hetjunnar, sem gert hafði garðinn frægan bæði í Skotlandi og Eng- landi svo og á meginlandi Evrópu. Frægð og frami Alberts fyllti okkur strákana eldmóði og hvatti okkur til dáða. í bláma þessara ára var hann stjarnan, sem varðaði veginn. Hlutverk Alberts í íslenzkri knattspyrnu var engan veginn lok- ið, þegar hann lagði sjálfur skóna á hilluna. Nokkur lægð hafði verið í knattspyrnu hérlendis á sjöunda áratugnum og virtist sem íslenzkir knattspyrnumenn væru haldnir minnimáttarkennd gagnvart er- Iendum þjóðum. Það var þá, sem leitað var til Alberts um að hann tæki að sér forystu í Knattspyrnu- sambandi íslands. Með því urðu alger straumhvörf, því að hann taldi kjark í íslenzka knattspyrnumenn og sannfærði þá um, að þeir gætu staðið jafnfætis stórþjóðunum, ef viljinn væri fyrir hendi. Það hreif og síðan hafa knattspyrnumenn okkar staðið í báða fætur. Meðal merkra málefna sem Al- bert Guðmundsson beitti sér fyrir sem formaður KSÍ var að endur- vekja getraunastarfsemina hérlend- is og þar með að styrkja fjárhags- legan grundvöll íþróttafélaganna. Eftir farsælt samstarf á sviði íþróttamála, lágu leiðir okkar Al- berts aftur saman í borgarstjórn Reykjavíkur. Á þeim vettvangi beitti hann sér fyrir margvíslegum málefnum^ og þá ekki sízt fyrir eldri borgara. I þeim málaflokki tókst Albert að sameina krafta meirihluta og minnihluta þannig, að borgar- stjórnin starfaði eins og einn maður. Síðar sneri Albert sér að lands- málunum, eins og kunnugt er, þar sem hann vann stóra sigra, en mátti einnig lúta í lægra haldi um hríð vegna óvæginna árása. Er óhætt að fullyrða, að þrátt fyrir glæsilegt „comeback" hafi sárin aldrei fyllilega gróið, er hann fékk í þeim átökum. Það hefur réttilega verið sagt, að Albert hafí verið greiðvikinn. Sl. sumar leitaði ég til hans um smá- vægilega aðstoð. Þá var hann sendi- herra Islands í París. Ég bað hann um aðstoð við að útvega dóttur minni hótelgistingu eina nótt í Par- ís á leið hennar til Austurlanda fjær. Svörin sem ég fékk voru einföld og skýr: „Ég tek á móti henni á flug- vellinum og hún gistir hjá okkur hjónunum." Allt gekk þetta eftir. Og ekki nóg með það. Sendiherrann fór í sér- staka skoðunarferð með ungu döm- una og sýndi henni merkustu stað- ina, áður en hann skilaði henni aft- ur út á flugvöll daginn eftir. Gest- risni þeirra hjóna Brynhildar og Alberts var henni ógleymanleg. Ég kveð góðan vin og samferða- mann með söknuði um leið og ég sendi Brynhildi og fjölskyldu þeirra innilegustu samúðarkveðjur. Alfreð Þorsteinsson. Ég kynntist Albert Guðmunds- syni fyrst í kosningabaráttu fyrir borgarstjórnarkosningar 1970. Við vorum báðir í fyrsta sinn í framboði, hvor fyrir sinn flokk, og eins og gefur að skilja deildum við hart þegar tækifæri gafst. Þegar ég mætti á minn fyrsta fund í borgarstjórn Reykjavíkur, í Skúlatúni 2, nýkjörinn borgarfull- trúi, þá urðum við Albert tveir ein- ir samferða upp í lyftunni. Við heilsuðumst kurteislega þeg- ar við mættumst en á leiðinni upp sagði Albert allt í einu mjög glettn- islega: „Þarna sérðu, stundum eig- um við samleið!“ Þessi orð reyndust orð að sönnu, því oft gerðist það, bæði á opnum vettvangi sem á lokuðum nefndar- fundum, að við Albert reyndumst vera á sama máli um ýmislegt, sér- staklega þó þau málefni er vörðuðu lítilmagnann í þjóðfélaginu. Ekki gladdi þessi samstaða okkar samherja hans í stjórnmálunum en Albert lét engan segja sér fyrir verkum og þess vegna var um hann sagt af hans eigin flokksmönnum að hann rækist illa í flokki. Eitt af þeim málum sem Albert beitti sér mjög drengilega í var bygging íbúða fyrir aldraða. Þar naut hann óskipts stuðnings þáver- andi minnihluta í borgarstjórn og það reið án efa baggamuninn. Enda fór það svo að þegar vinstri menn náðu meirihluta í borgar- stjórn Reykjavíkur 1978-1982 þá var Albert Guðmundssyni áfram falin formennska í byggingarnefnd aldraðra. Slíkt var traustið til hans og slík var trúmennska hans við þetta mikla verkefni sem átti hug hans og starfskrafta um nokkurt skeið. Um Albert Guðmundsson ætla ég ekki að skrifa langt mál. Engan annan íslending veit ég sem skrifaðar hafa verið um tvær ævisögur í lifanda lífí. Á vegferðinni um lífíð hittir mað- ur margar manneskjur og á með þeim mislanga samleið. Með Albert Guðmundssyni átti ég samleið í sameiginlegu starfi um 16 ára skeið og hann reyndist góð- ur og minnisstæður samferðamað- ur. Að leiðarlokum er ég þakklátur forsjóninni fyrir þessi kynni um leið og ég votta eiginkonu hans og börn- um samúð mína. Sigurjón Pétursson. Lærifaðir minn í blaðamennsku, Valtýr heitinn Stefánsson ritstjóri og aðaleigandi Morgunblaðsins um langt skeið, útskýrði eitt sinn fyrir mér raunverulega merkingu kín- versks orðatiltækis sem hljóðar á þessa leið í íslenzkri þýðingu: „Þeir sem guðirnir elska deyja ungir.“ Þá sem nú var raunveruleg merking þessa orðatiltækis oft mistúlkuð. Flestir töldu að þetta ætti einkum við þegar æskufólk, eða fólk á fyrri hluta lífskeiðs, hverfur úr jarðvist- inni. Að dómi Valtýs var raunveru- leg merking orðatiltækisins sú, að það skiptir engu máli, hversu gam- all að ámm virtur og elskaður per- sónuleiki er þá er hann deyr, því andlát slíkrar persónu ber alltaf of snemma að. Hans er saknað um- fram aðra af því hann er dáður umfram aðra. Ég get vart hugsað mér að raun- veruleg merking hins kínverska orðatiltækis eigi betur við nokkurn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.