Morgunblaðið - 19.04.1994, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 19.04.1994, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. APRIL 1994 Háskólabíó STÆRSTA BIOIÐ. ALLIR SALIR ERU FYRSTA FLOKKS. HASKOLABIO SÍMI 22140 ÍStóá’lTtSurborinn? Stormynd frá leikstjóra Siöasta keisarans. i, BRIDGET FONDA OG CHRIS ISAAK Newton fjölskyldan er að fara í hundana! FRA höfundum ghost Beethoven’s2nd Sýnd kl.5 og7. Stórgóð mynd frá Óskarsverðlaunahafanum Steven Zaillian (handrit Lista Schindlers) byggð á sögu undrabarnsins Josh Waitzkin sem Bandaríkjamenn ætluðu að verða nýr Bobby Fischer. Faðir hans ætlaði honum alla leið á toppinn en álagið var gríðarlegt. Aðalhlutverk: Ben Kingsley, Joe Mantegna, Laurence Fishburne og hinn átta ára gamli Max Pomeranc sem valinn var eftir hæfileikakeppni þúsunda barna. Sýnd kl. 4.50, 7, 9.10 og 11.15 Fjögur ungmenni freista gæfunnar i háborg kántrítónlistarinnar Nashville en ástamálin þvælast fyrir þeim á framabrautinni, svo ekki sé nú talað um hina tiuþúsund sem eru að reyna að slá í gegn! Aðalhlutv. River Phoenix, Samantha Mathis og Dermot Mulroney. Sýnd kl. 9 og 11.10. / NAFIMI FÖÐURINS ★ ★★★ ★★★★ HH PRESSAN A.I. MBL ★ ★★★★ Ö.M. TpllW ijhK. EINTAK LIF MITT „glæsilegt verk... Kieslowski hefur kvikmyndalistina full komlega á valdi sínu..." **** ÓHT Rás 2. FYRSTISUMAR- SMELLURINN ROBOCOP3 ER Á LEIÐINNI, HEITARI EN NOKKRU SINNI FYRR. HT. Rás 2 „Þetta einstaka listafólk hefur skilað afar tregafullri en engu að síður einni bestu mynd ársins. *** S.V. MBL Sýnd kl. 9 „Tilfinningasöm og fyndin til skiptis, mörg atriðin bráðgóð og vel leikin... Tæknin er óvenjuleg og gengur upp" Ó.H.T. Rás 2. Sýnd kl. 7. Sýnd kl. 9.10. Bönnuð innan 14 ára. Málflutnings- stofa Snæ- fellsness sf. Stykkishólmi. NÝVERIÐ var opnuð lögmanns- stofa í Stykkishólmi. Það eru þeir Daði Jóhannesson og Pétur Kristinsson héraðsdómslögmenn sem standa að rekstri stofunnar og nefnist hún Málflutningsstofa Snæfellsness. Samhliða rekstri lögmannsstofunnar munu þeir félagar reka Fasteinga- og skipa- sölu Snæfellsness. Þessi starfsemi er nýjung í at- vinnulífi á Snæfellsnesi. Þeir Daði og Pétur hafa báðir verið fulltrúar sýslumannsins í Stykkishólmi um nokkurra ára skeið og kváðust þar af leiðandi vera í ágætri aðstöðu til þess að meta þörfina fyrir þá þjónustu sem þeir bjóða. Þörfin er tvímælalaust fyrir hendi og auðvitað er það trú þeirra félaga að Snæfellingar notfæri sér þessa þjónustu í stað þess að fara langt yfir skammt. - Arni. Kristjánsson héraðsdómslög- tnenn í Stykkishólmi. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Jóhannes Kristjánsson, eigandi, á barnum sem byggður er úr smogn- um rekavið. Nýr veitingastaður opnað- ur á Höfðabrekku í Mýrdal Vík í Mýrdal. ÞAU hjónin Sólveig Sigurðardóttir og Jóhannes Kristjánsson hófu í vetur byggingu á 170 fm veitingasal í tengslum við ferðaþjónustu sína. Salurinn er allur hinn glæsilegasti og aðstaða öll fyrsta flokks. Einnig er gaman að sjá hvernig reynt, hefur verið að nýta sem best heimafengið efni t.d. er barinn smíðaður úr smognum rekavið af Höfðabrekkufjöru. Að sögn þeirra Sólveigar og Jó- hannesar hefur verið óvenju mikið að gera í vetur og teija þau að nýi veitingasalurinn eigi eftir að auka nýtjnguna enn meira næsta vetur. Árið 1988 leigðu þau fullvirðisrétt sinn í sauðfé og ári síðar hófu þau að byggja fimm herbergja gistiskála. Það kom fljótlega í ljós að hann var allt of lítili og árið 1991 byggðu þau annan skála með 12 herbergjum sem öll eru búin sturtu og salerni. Sól- veig og Jóhannes geta nú tekið 34 manna hópa í gistingu og hafa þau frá upphafi selt gestum mat og þar til í vetur notuðu þau eldhús og stofu í íbúðarhúsi sínu. Þessi nýi matsalur mun væntan- lega auka nýtingu gistiaðstöðunnar yfir vetrarmánuðina, t.d. geta þau Höfðabrekkuhjón nú tekið á móti minni fyrirtækjum og félögum með árshátíðir og þorrablót og þá boðið gistingu, mat og tónlist. Þess má geta að lokum að nú hefur kvikmyndafélagið Justin Pict- ure tekið alla gistiaðstöðuna á leigu næsta einn og hálfan mánuð ásamt öllu öðru tiltæku gistirými í Mýrdai vegna fyrirhugaðrar töku á víkinga- mynd. - Jónas. Lygilegt sumarfrí Kvikmyndir Amaldur Indriðason Hetjan hann pabbi („My Father the Hero“). Sýnd í Bíóhöllinni. Leikstjóri: Steve Miner. Aðal- hlutverk: Gérard Depardieu, Katherine Heigl, Dalton James og Lauren Hutton. I gamanmyndinni Hetjan hann pabbi leikur franski stórleikarinn Gérard Depardieu áhyggjufullan föður táningsstúlku j>ar sem þau dvelja í sólríku sumarfríi á Ba- hamaeyjum. Pabbanum til sárrar gremju taka strákarnir á strönd- inni ekki augun af litlu stúlkunni hans og dótturinni til enn frekari leiðinda fær hún engan frið fyrir pabbanum, sem er sífellt á varð- bergi. Atvikin haga því svo til að hún fer að ljúga uppá gamla kail- inn ýmsum ósóma eins og þeim að hún sé ekki dóttir hans heldur kornung lagskona og hann skilur ekki neitt í neinu þegar bað- strandargestir hætta að heilsa honum en taka að hreyta í hann ónotum. Hetjan hann pabbi er ósköp léttvægur sumarleyfisfarsi svolít- ið í ætt við „Biame it on Rio“ með Michael Caine, aðeins ófyridnari. Þær eiga það sameig- inlegt þessar myndir að vera franskar endurgerðir. Bandaríski leikstjórinn Steve Miner gerir „Hetjuna" eftir frönsku gam- anmyndinni „Mon pére, ce héros“ eftir Gérard Lauzier. Depardieu ku vera í þeim báðum en það er ljóst a.m.k. af endurgerðinni að honum þykir gaman að sóla sig á Bahamaeyjum. Hlutverk föður- ins býður líka uppá nokkra afs- löppun frá stóru og ábúðarmiklu hlutverkum þessa mesta kvik- myndaleikara Frakka. Hlutverk föðurins er lítið og átakalaust að mestu og það er nokkur tilbreyt- ing að sjá þennan kraftmikla leik- ara eins og þægan kött þegar hann er vanur að öskra frekar eins og ljón. Hann er það besta í brokk- gengri mynd. „Hetjan" snýst tals- vert um ástarævintýri dótturinn- ar, sem er heldur en ekki óspenn- andi, og hún byggir auðvitað gam- ansemina á því að Depardieu er vita grunlaus um lygar pabba- stúlkunnar, sem aukast í sífellu og spyrjast út. Bestu hlutar mynd- arinnar eru þegar grunlaus Dep- ardieu fær að finna fyrir andúð ferðafélaga sinna og veit ekki meir. Fyrirferðarmeiri gaman- semi eins og sú þegar Depardieu er dreginn á sjóskíðum á banvæn- um hraða virkar eins og maður hafi séð það oft áður. Raunverulegir brandarar eru fáir og dóttirin, sem Katharine Heigl leikur, er svo ofdekruð og fýluleg mestanpart að hún virkar hundleiðinleg. Emma Thompson birtist í óvæntu hlutverki undir lokin og er í rauninni það eina sem kemur verulega á óvart í mynd sem ætti að hafa allt með sér undir Bahamasóiinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.