Morgunblaðið - 27.11.1994, Síða 40
40 SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
“7 ÆfA ^erjU sibu&u, heF " " (Oýgerir ekki, neitt f j CC \ (J&, eq h ef Likd t/eríé', 1 J irelta. fví -fyrír rn&rj)
Ferdinand
Smáfólk
Hæ, ég heiti Rabbi... viltu koma Við munum skemmta okkur vel... Það hefði orðið skemmtilegt!!
út og leika? ég kasta boltanum og þú getur
elt hann...
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
JÓLAFRÍMERKIN sem um ræðir í greininni.
30 00
ISLAMD
; ISLAMD
35oo
Forljót
jólafrímerki
Frá Sveini Ólafssyni:
MÉR BRÁ óþyrmilega er ég kom
á pósthúsið til að kaupa frímerki
að verðgildi 30 og 35 krónur til
að nota á jólapóstinn innanlands
og til útlanda.
Á undanförnum árum hefur
Póstur og sími yfirleitt vandað til
útlits á frímerkjum um jólin, og
nú á árinu gefið út falleg og sér-
lega smekkleg og litfögur 30
króna frímerki í tilefni af lýðveldis-
hátíðinni með mynd af herra Gísla
Sveinssyni forseta Alþingis við
lýðveldisstofnunina og íslenzka
skjaldarmerkinu í fánalitum.
Nú bregður hins vegar svo við
að gefin eru út merki, sem ekki
verða kölluð annað en afskræmi
og ömurlegasta pírumpár og klast-
ur — svo ljót að ég neitaði að
kaupa þau, en keypti aðrar teg-
undir með öðrum verðgildum, sem
líka voru til, Guði sé lof, — þó
álímingin yrði þannig fyrirhafn-
arsamari en ella. Mér fannst ég
ekki geta sætt mig við að þurfa
að taka þátt í að dreifa út því
pári, sem myndin á merkjunum er
í mínum augum.
Stundum verður maður að
sætta sig við að þegja, en svo
getur manni ofboðið að ekki verði
komist hjá að kvaka. Ég verð að
lýsa vanþóknun minn á því smekk-
lausa vali Pósts og síma á þessum
frímerkjum fyrir landslýð til að
líma á jólapóstinn í ár. Látum vera
þó stofnunin vilji ef til vill hygla
einhveijum með því að nota svona
pírumpár, en það minnsta sem
hefði mátt vænta er, að þess væri
gætt hafa fleiri valkosti en þennan
ömurleika fyrir hinn almenna við-
skiptamann, svo hann þyrfti ekki
vera ofurseldur svona afbakaðri
sérvisku einmitt nú fyrir jólin, —
án þess að eiga nokkurt val í sömu
greinum merkja.
Ef þetta á að bera orðstír ís-
lenzkrar listar vitni, þá er það síð-
ur en svo til hróss fyrir menningar-
lega stöðu hennar. Þetta er eins
og að færa hana aftur á ömurlegt
steinaldarstig og auglýsa það út
um allar jarðir, en ekki til að birta
neina háfleyga hugsun eða fegurð
sem sæmandi sé nútímaþróun. Að
vísu er það orðið til siðs á síðustu
og verstu tímum að kalla hvers-
konar afskræmi og pírumpár bæði
í allskyns myndagerð og tónsmíð-
um „list“, þar sem misboðið er
almennum smekk venjulegs fólks,
og jafnvel búið að móta almennar
hugmyndir í það form, að mat á
slíku sé aðeins á valdi sérfræðinga
með yfirskilvitlega sérþekkingu,
sem svífí ofar fáfróðum skilningi
pupulsins á götunni. Og enginn
nennir eða vogar sér að stynja upp
neinum andmælum gegn fárán-
leikanum, og rennir svo öllu saman
þegjandi niður, af ótta við að fá
á sig stimpil fyrir „menningars-
kort“ og að kunna ekki að meta
„háfleyga“ listsköpun, sem oft er
bara hrein vitleysa, — jafnvel eins
til þess fallin að gera grín að
fávizku fólks, sem fellur í stafi
yfir. svoleiðis listsköpun, eða lætur
svo;
Án þess að farið sé lengra út í
þessa sálma, verður að játa, að
Póstur og sími hefur yfirleitt verið
smekklegur í vali á myndum á
frímerki til notkunar fyrir lands-
lýðinn. Og oft hefur maður óljóst
glaðst yfir því með sjálfum sér,'
að á þeim bæ hafi ekki gætt „smit-
unar“ frá fáránleika listanna, sem
rutt hefur sér til rúms í nútíman-
um, og fáir hafa þorað eða reynt
— en enginn megnað — að reisa
við rönd. En þetta, sem nú hefur
haldið innreið sína í frímerkjaútg-
áfunni, keyrir svo um þverbak og
er svo sorgleg mynd af undanláts-
semi við frummennsku og fátækt
í myndvali, að óhug slær á mann,
ef maður á að eiga vona á fram-
haldi á þessum nótum.
Er það von undirritaðs, að hald-
ið verði staðfastlegar við fyrri
hefðir Pósts og síma um að gefa
út falleg og smekkleg frímerki,
sem yfirleitt hafa verið til fyrir-
myndar, þótt svo ömurlega hafi
tekist til nú, sem hér er lýst, og sé
í svo hrópandi ósamræmi við hátíð-
arstemmningu jóla og áramóta í
hugum fólksins.
Eg vil svo senda Pósti og síma
jóla- og nýárskveðjur og í von um
betri tíma, — eða öllu heldur fram-
hald á smekklegum hefðum hinna
fyrri tíma — og að fólki verði gef-
inn kostur á fallegri frímerkjum
með nýrri fallegri útgáfu nú fyrir
jólin en þessum afkáralega
óskapnaði, sem nú er hafður á
boðstólum.
SVEINN ÓLAFSSON,
Furugrund 70, Kópavogi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa" efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lótandi.