Morgunblaðið - 22.02.1995, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 22.02.1995, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1995 17 ERLENT Bretar og írar sammála um friðartillögur Yandlega kynnt- ar á N-írlandi London, Belfast. Reuter. BRESKA stjórnin samþykkti í gær Hillsborough-kastala, um 16 km frá tillögur um friðarsamkomulag á Belfast. Norður-írlandi sem unnar hafa verið Reuter „Sjúkrabíll“ í Hanoi OKUMAÐUR þriggja hjóla létti- vagns flytur sjúkling á sjúkrahús í Hanoi í Víetnam. Slíkir létti- vagnar eru eitt helsta samgöngu- tækið í borginni og þeir eru not- aðir til að flytja fólk, vörur, hús- gögn og skólabörn. Framrás nýrrar hreyfingar í Afganistan Friðaráætlun- in talin í hættu FRIÐARÁÆTLUN Sameinuðu þjóðanna er talin í hættu vegna framrásar nýrrar hreyfmgar heit- trúaðra múslima í átt að Kabúl, höfuðborg Afganistans. Burha- nuddin Rabbani, forseti landsins, hefur neitað að láta af embættinu, eins og gert er ráð fyrir í friðará- ætluninni, nema hreyfingin sam- þykki aðild að ráði sem á að taka við völdunum af forsetanum. Ólík- legt er að hreyfingin, sem nefnist Taliban, fallist á aðild að ráðinu. Mahmood Mestiri, sendimaður Sameinuðu þjóðanna í Afganistan, hafði vonast til þess að ráðið tæki við völdunum á mánudag. Alls hafa um tíu fylkingar barist um völdin í Afganistan og gert er ráð fyrir að hver þeirra tilnefni einn fulltrúa í ráðið, sem á einnig að vera skipað nokkrum mönnum sem ekki tengjast fylkingunum. „Ég óttast að fylkingarnar séu ekki tilbúnar til að friðmælast," sagði Mestiri í gær. „Ég hygg að friður komist á, en ekki í náinni framtíð." Vilja „góða múslima" Rabbani forseti setur það sem skilyrði fyrir því að láta af embætt- inu að Taliban-hreyfingin fallist á skipan ráðsins, að sögn AP-frétta- stofunnar. Leiðtogar Taliban segj- ast hlynntir friðaráætluninni í öll- um aðalatriðum en hafa sett ýmis skilyrði. Þeir vilja mynda íslamska stjóm og hafna aðild að ráðinu nema það verði skipað „góðum múslimum“, en þá kröfu hafa aðr- ar hreyfíngar oft lagt fram til að geta haldið áfram að beijast. Taliban-hreyfíngin er andvíg því að ráðið verði skipað mönnum sem tengjast kommúnistastjóminni fyrrverandi, sem var steypt af stóli árið 1992. Heimildarmenn AP segja að hreyfíngin hafí einnig hafnað mönnum sem ekki em með skegg, sem er talið til marks um guðrækni á þessum slóðum, eða gangi ekki í víðum fötum sem margir afganskir karlmenn klæð- ast, en ekki allir. Vex hratt Taliban-hreyfíngin var upphaf- lega skipuð heittrúuðum náms- mönnum og fyrir fjórum mánuðum hafði hún aðeins 800 hermönnum á að skipa. San Francisco Chronicle segir að hreyfíngin hafi nú safnað saman um 25.000 manna liði sunn- an við Kabúl og búi sig undir árás á borgina. Talið sé að hún hafí náð um þriðjungi landsins á sitt vald. Almenningur í Afganistan hefur fengið sig fullsaddan af valdabar- áttu fylkinganna og stríðinu eftir fall kommúnistastjómarinnar, sem staðið hefur í þijú ár og kostað a.m.k. 20.000 manns lífið. Margir Afganir virðast nú líta á Taliban sem einu hreyfínguna sem geti komið á friði í landinu. í samráði við stjóm írlands. Forsæt- isráðherrar landanna munu kynna tillögurnar á blaðamannafundi í dag og heimildarmenn segja að dreift verði 600.000 eintökum á N-írlandi, ekkert heimili verði út undan. Stjórnvöld í London og Dublin ákváðu í desember 1993 að reyna að koma af stað viðræðum fulltrúa mótmælenda og kaþólikka í von um að endanlegir friðarsamningar næð- ust. Fyrir hálfu ári tókst síðan að koma á vopnahléi hópa hermd- arverkamanna úr röðum beggja deilúaðila. I tillögunum mun m.a. vera gert ráð fyrir viðræðum fulltrúa allra flokka í héraðinu um framtíð þess, tengslin við Bretland og samskiptin við Irland. John Major, forsætisráð- herra Bretlands, og starfsbróðir hans á írlandi, John Bruton, hugð- ust ræða saman yfír kvöldverði í Kaffi á yfir 3.000 dali London. Reuter. KAFFI seldist á hæsta verði það sem af er árinu í London í gær, rúmlega 3,000 Bandaríkjadali tonnið, sem er 6% hækkun á einni viku. Hækkunin er rakin til uggs vegna rýmandi birgða í London og minna framböðs frá Rómönsku Ameríku. Langvinnir þurrkar hafa geisað í Kólombíu og framleiðendur í Mið- Ameríku hafa dregið úr útflutningi. Kaffí hefur hækkað úr 2,500 doll- urum tonnið í desember. Wigestrand látinn NORÐMAÐURINN Harald Wige- strand, sem var varakonsúll á Seyð- isfírði um tíma á síldarárunum, lést í Noregi i síðasta mánuði, áttræður að aldri. Harald Wigestrand var vara- konsúll á Seyðisfírði 1. júní til 28. september árið 1964 og 15. júní til 15. september 1966. Hann var fulltrúi norskra yfirvalda gagnvart norska síldveiðiflotanum á íslands- miðum á þessum tíma. Wigestrand var einnig í sigling- um milli Englands og íslands í heimsstyijöldinni síðari. Hann var í mörg ár formaður félags norskra stríðsfarmanna og í stjórn samtaka sem aðstoðuðu Norðmenn sem særðust í stríðinu. Wigestrand var forkur duglegur. Að sögn Ostlandets Blad varð hann landsþekktur í Noregi árið 1962 fyrir baráttu sína fyrir því að fé- lagsheimili yrði reist í heimabæ hans, Kolbotn. Eftir þrotlaust starf í 5-6 ár við að safna fé til fram- kvæmdanna neitaði norska hús- næðisstofnunin að veita leyfi fyrir byggingunni. Wigestrand svaraði með þrásetu í biðstofu stofnunar- innar, með nesti og hitabrúsa, og neitaði að fara. Hann fékk sínu framgengt. Ný kenning sett fram um verkið „Hreinn umfram allt(< Leikrit Wilde háðs- ádeila á íhaldsmenn? London. The Daily Telegraph. KOMIÐ hefur fram sú kenning að meistaraverk Oscars Wilde, „The Importance of being Ear- nest“ (Hreinn umfram allt) sem lengi hefur verið talið fjalla öðr- um þræði um samkynhneigð höfundarins, sé í raun háðs- ádeila á íhaldsmenn og eina af valdamestu fjölskyldum Bret- lands á Viktoríutímanum. Það er Frances Banks, sem rannsakað hefur bókmenntir Viktoríutímans, sem lagt hefur fram þessa kenningu. Hún telur að Wilde byggi stóran hluta verksins á fjölskyldu Roberts Cecils, þriðja markgreifans af Salisbury, sem var forsætisráð- herra í þrígang og utanríkisráð- herra. Einkunnarorð fjölskyld- unnar eru: Sero Sed Serio (Seint en einlæglega). Verk Wilde var frumsýnt 14. febrúar 1895 og fjórum mánuð- um síðar var hann dæmdur sek- ur um ósiðsemi með körlum sem stunduðu vændi. Flestir bók- menntafræðingar sem fjallað hafa um verk Wilde, telja téð leikrit fjalla um það tvöfalda líf sem hann lifði vegna samkyn- hneigðar sinnar. I titlinum felst orðaleikur með mannsnafnið og Iýsingarorðið Earnest (einlæg- ur) en það var einnig slangur- yrði yfir samkynhneigða á Vikt- oríutímanum. Árás sósíalistans Banks telur m.a. að nöfn ungu kvennanna í leikritinu tengi það Cecil-fjölskyldunni. Þær heita Gwendolyn og Cecily, sem Banks segir sama nafn og Gwen- dolyn Cecil, dóttur Roberts Cec- ils, en Banks vinnur að gerð ævisögu hennar. Þá telur Banks að lýsingin á „Manor House, Woolton" í leik- ritinu sé sláandi lík Hatfield House, aðsetri Cecil-fjölskyld- unnar, sem Wilde heimsótti árið 1894. Banks segir Wilde hafa verið sósíalista og að hann hafi OSCAR Wilde um það Ieyti er réttarhöldin hófust. valið Cecil-fjölskylduna sem fulltrúa íhaldsins, sem honum var svo i nöp við. nn í framtíðina með Novell NetWare 4.1 Mest selda netstýrikerfið í heiminum í dag. NetWare frá Novell. Tæknival Skeifunni 17 - Sími 568-1665 - Fax 568-0664

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.