Morgunblaðið - 22.02.1995, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 22.02.1995, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ Öllum, sem glöddu mig sjötugan meÖ nœrveru sinni, blómum, skeytum og gjöfum sendi ég alúöarkveðjur og þakkir. Guðni Guðmundsson. Hjartans þakkir fyrir gjafir, blóm og sýndan hlýhug vegna 75 ára afmœlis mins 31.janúar. Guö blessi ykkur öll. Asta Steingrímsdóttir, Háaleitisbraut 117, Reykjavík. Vitundarvígsla manns og sólar Dulfraeði íyrir þá sem leita. Bókin fæst í Bókahúsinu, Skeifunni S Erlendar bækur um heimspeki og skyld efni. ' /a\ Námskeið og leshringar. /a^\) Áhxigamenn nm þró'u.na.Theimspeki Box 4124, 124 Rvk., Fax 587 9777 Sími 557 9763 Ókeypis lögfræðiþjónusta íkvöld millikl. 19.30 og 22.00 í síma 55 11012. Orator, félag laganema. SÍÐASTA HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐIÐ! ca Viltu marefalda lestrarhraðann oe afköst í starfi? m Viltu margfalda lestrarhraðann og afköst í námi? Ef svar þitt er jákvætt við annarri ofangreindra spum- inga skaltu skrá þig strax á síðasta hraðlestramámskeið vetrarins sem hefst fímmtudaginn 9. mars n.k. Skráning er í símum 564-2100 og 564-1091 HRAJÐLJESnrFJAF^KOLITSIN Samhjálp kvenna j? OPIÐ HÚS Samhjálp kvenna, stuðningshópur kvenna, sem farið hafa í aðgerð og/eða meðferð vegna brjóstakrabbameins, hefur opið hús í Skógarhlíð 8, húsi Krabbameinsfélagsíns, fimmtudaginn 23. febrúar nk. kl. 20.30. Guðmundur Björnsson, læknir, flytur erindi um „Starfsemi Heilsustofnunar N.L.F.Í. i Hveragerði og endurhæfingu krabbameinssjúklinga." Við víljum minna á leikfimina. Ennþá geta nokkrar konur komist að. Upplýsingar eru veittar i símum 658577 og 72875. ^ Allir velkomnlr SuTtlhjíllp kveHTld_______________Kaffiveltingar ^ Skóverslunin Eidistorgi Verslunin hættir um mánaðarmótin Rýmingasala á öllum vörum. 50-70% afsláttur. Skóverslunin Eiðistorgi 13, sími 611944. I DAG SKÁK Umsjón Margcir Pétursson ÞESSI staða kom upp á helgarskákmóti Taflfélags Reyiqavíkur sem fram fór um síðustu helgi. Jón Garðar Viðarsson (2.345) var með hvítt og átti leik, en Amar E. Gunnarsson (2.095) hafði svart. Amar var með skiptamun yfir og vænlega stöðu en var alltof bráður á sér og lék síðast 33. - bxc3? 34. Rxh6+! - Kh8 (Eftir 34. - gxh6, 35. Dg6+ blas- ir mátið við, en nú tapar svartur drottningunni) 35. Bxg7+ - Bxg7, 36. Dxc4 - Bxh6, 37. Dxc3 og svart- ur gafst upp nokkrum leikj- um síðar. Sævar Bjamason, alþjóðlegur meistari, sigr- aði á helgarskákmótinu með 6V2 v. af 7 mögulegum, en næstir með 'áVi v. komu þeir Eiríkur Bjömsson, Tómas Bjömsson, Jón Garðar Viðarsson og Jón Viktor Gunnarsson. VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Minni hjúkrunar- heimili VEGNA umræðu um byggingu hjúkranarheim- ila vil ég leggja til að byggð séu minni og heimilislegri hjúkmnar- heimili, en ekki risastór eins og gert hefur verið og má þar nefna hjúkrun- arheimilið Eir. Minna hinir miklu salir heimilisins einna helst á ráðstefnusali en ekki heimili. Guðný Jóhannsdóttir Tapað /fundið Hanskar töpuðust SVARTIR leðurhanskar töpuðust í anddyri Dans- hússins í Glæsibæ eða þar fyrir utan föstudagin 17. febrúar. Finnandi vinsam- lega hringi í síma 5530611. Húfa tapaðist GULBRÚN húfa með svörtu merki fyrir miðju tapaðist í fatahengi í Foldaskóla að morgni 13. febrúar sl. Drengurinn sem á húfuna vill gjarna fá hana til baka. Húfunni má gjarna skila í Folda- skóla eða hringja í síma 675116. Hanski tapaðist GRÁR fóðraður leður- hanski tapaðist nálægt Perlunni eða í kirkjugarð- inum í Fossovogi sl. sunnudag. Finnandi vin- samlega hringi í síma 21393. Gleraugu töpuðust TVÍSKIPT gleraugu töp- uðust í eða við Hafnar- borg, Hafnarfirði, sunnu- daginn 12. febrúar sl. Finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 651620. Gæludýr Hvolpur FJÖGURRA mánaða gull- fallegur hvolpur af labra- dorkyni óskar eftir heimili þar sem vel er hugsað um hann. Upplýsingar í síma 14428 eftir kl. 17. Týndur köttur ÞESSI ljósbrúnbröndótti köttur fannst á Laugaveg- inum í síðustu viku. Hann bíður í Kattholti eftir eig- anda sínum. Síamskettlingur tapaðist SJÖ mánaða síamsfress, sealpoint, tapaðist frá heimilinu sínu, Víðilundi í Garðabæ, sl. sunnudag. Hafi einhver orðið ferða hans var er hann vinsam- lega beðinn að hringja í síma 656897 eða vinnu- síma 626299. Lilja. LEIÐRÉTT Ekki fyrsta húsið Smámiskilningur varð í myndatexta í sunnudag- sviðtali við Hörð Ágústsson. Tvær setningar vom misvís- andi. í texta stendur: Fyrsta húsið í funkisstíl var hús Ólafs Thors í Garðarstræti 1929. Það er rétt, en það hús er númer 41. Myndin Pennavinir FIMMTÁN ára bandarísk stúlka með mikinn ís- landsáhuga: Jennifer Shearer, 11561 Via Montana, Yuma, Az. 85367, U.S.A. TUTTUGU og eins árs Ghanapiltur með áhuga á listum, myntsöfnun o.fl.: Anthony Arthur, Church of Christ, P.O. Box 474, Agona Swedru, Ghana. sem birtist af húsi i funk- isstíl er Garðarstræti 37 eftir arkitektinn Gunnlaug Halldórsson. Það er því ekki rétt í myndatexta að það sé fyrsta húsið í funkisstíl. Krókurinn en ekki Kanada í andlátsfrétt um Bjöm Jónsson á blaðsíðu 11 í Morgunblaðinu í gær er sagt að í fyrri bók sinni hafi Bjöm lýst uppvaxtarárum sínum og uppátækum í Kanada, en átti að vera á Króknum, Sauðárkróki. Beðizt er vel- virðingar á þessu. Rangt föðurnafn í FRÉTT um íslandsmót í fijálsum dönsum í gær var greint frá því að hópurinn Fókus frá Selfossi hefði bor- ið sigur úr býtum. Rangt var farið með nafn eins keppandans en það var Sig- ríður Rós Sigurðardóttir ekki Jónsdóttir. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Farsi »\/á, i/erða,þeircLttiOif suora, huit/r?!'• VAlS&LACS/cóöLTUhfLT 5-3 01»4 Farcus Cartoona/DMtxMd by Univarui Pr««« Syrxtal* Víkveiji skrifar... AÐ er eins og því fylgi einhver léttir, þegar þorraþræll er all- ur og góan tekin við. Sólin farin að hækka verulega á lofti og sú tilfinning farin að læðast að manni, kannski í óraunsærri bjartsýni, að verstu vetrarhörkur séu að baki, a.m.k. þennan veturinn. Að vísu var upphaf góunnar nú á sunnudag, ekki með þeim hætti að hægt sé að réttlæta slíkar hugrenningar og rökstyðja. Vitlaust veður víða um land. Tveir létust, annar í snjóflóði í Bláfjöllum og hinn í jökulsprungu á Mýrdalsjökli, auk þess sem hrein- asta mildi hlýtur að teljast, að ekki fór illa fyrir unga göngumanninum á Fimmvörðuhálsi, sem varð við- skila við félaga sína í blindbyl og þurfti að grafa sig í fönn. Atburðir sem þessir, minna okkur rækilega á, að ísland í vetrarham er ekkert lamb að leika sér við, síður en svo. xxx UNDANFARNA daga hefur Víkverji orðið áþreifanlega var við aukinn fjölmiðla- og fréttaáhuga eigin barna, sem eru á grunnskóla- aldri. Nú þarf ekki að brýna fyrir ungviðinu, að hafa hljótt um sig, þegar fréttatímar í útvarpi og sjón- varpi eru annars vegar. Börnin fara sjálf að tækjunum, hækka og bíða spennt eftir fregnum af kennara- verkfallinu. Svo dæsa þau af létti, þegar upplýst er að lítið hafi þok- ast í samkomulagsátt, eða þegar greint er frá því, að horfur séu á því að verkfall kennara verði ekki leyst, fyrr en samningar á almenna vinnumarkaðnum hafi verið af- greiddir í verkalýðsfélögunum. Lærðir fyrirlestrar Víkveija um gildi skólagöngu, þýðingu mennt- unar og um þá staðreynd, að það verði aukið vinnuálag á nemendur í kjölfar verkfalls, eru fluttir fyrir algjörlega daufum eyrum, hverra eigendur líta á verkfall kennara sem kærkomið aukafrí! xxx ANNARS ætti Víkveiji alls ekki að hafa þetta háalvarlega mál í flimtingum, því honum er fullljóst að mörgþúsund heimili í landinu eiga nú í miklum erfiðleikum, vegna þess að foreldrar ýmist treysta sér ekki til þess að skilja börn sín eftir ein heima, kannski daglangt, á meðan þeir stunda vinnu sína, eða þeir í neyð taka börn sín með á vinnustað sinn, hversu heppilegt sem það svo aftur er. Víkveiji þekk- ir til margra foreldrar eru með nag- andi samviskubit yfír því einu að vera í vinnunni. Þetta gengur auð- vitað ekki! Verst kemur þetta niður á yngstu nemendunum og það eru síður en svo allir sem búa við þá aðstöðu að geta leitað til annarra, eins og afa eða ömmu, frænda eða frænku, vinar eða nágranna, til þess að líta til með krílunum, á meðan að vinnan er sótt. Auðvitað er þetta óþolandi, bæði fyrir foreldr- ana og börnin. Það getur enginn til langframa sinnt barnauppeldi og gæslu, með símasambandi af vinnu- stað, auk þess sem slík neyðarúr- ræði koma þá niður á vinnufram- lagi manna og þar af leiðandi vinnu- veitendum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.