Morgunblaðið - 23.04.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.04.1995, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hagnaður SS 35 milljónir Fagradal. Morgunblaðið. Viðræð- ur í strand KJARAVIÐRÆÐUR bifreiða- stjórafélagsins Sleipnis og Flugfreyjufélagsins hjá ríkis- sáttasemjara sigldu í strand á föstudagskvöld og aðfaranótt laugardags. Sigríður Ásta Ámadóttir, formaður samninganefndar flugfreyja, segir að upp úr hafi slitnað á fjórða tímanum í fyrri- nótt. Hún segir að stjóm og trúnaðarmannaráð félagsins verði kölluð saman til að taka ákvörðun um framhaldið. Óskar Stefánsson, formaður Sleipnis, segir að vel hafi verið farið yfir stöðuna á fundi hjá sáttasemjara á föstudag með viðsemjendum sem aðild eiga að Vinnuveitendasambandinu. Viðræðumar sigldu í strand en búið er að boða fund hjá sátta- semjara með viðsemjendum ut- an VSÍ á mánudag. Stækkun Álversins Akvörðun- ar að vænta * • * * ijum UMRÆÐUFUNDI um stækk- un Álversins í Straumsvík lauk á föstudag í London. Samninga- nefndarmenn frá stjómvöldum og Landsvirkjun voru væntan- legir heim í gær. Að sögn Þorsteins Hilmars- sonar, upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar, voru meðal annars rædd skattamál, orku- verð og afstaða stjórnvalda til stækkunar álverksmiðjunnar. Reiknað er með að haldinn verði að minnsta kosti einn umræðu- fundur enn áður en Alusuisse- Lonza tekur endanlega ákvörð- un um hvort af stækkun álvers- ins verður. Þeirrar ákvörðunar er að vænta í júní, að sögn Þorsteins. Tekinná 112 innanbæjar LÖGREGLAN á Akranesi mældi ungan ökumann á 112 km hraða á Kalmannsbraut í fyrrinótt. Maðurinn var samstundis sviptur ökuréttindum. Lögreglan á Akureyri þurfti í fyrrinótt að hafa afskipti af um 20 unglingum sem voru inni á veitingastaðnum Setrinu. Þeim var vísað út þar sem þeir höfðu ekki náð 20 ára aldri. í Reykjavík voru 7 ökumenn teknir grunaðir um ölvun við akstur í fyrrinótt og einn í Kópavogi. Nær 200 milljónir í vinning VINNINGUR í Víkingalottóinu verður þrefaldur á miðvikudag. Búist er við að fyrsti vinningur verði um 180-200 milljónir króna. „Ef þetta er borið saman við viðskiptalíf á íslandi er þessi vinningur álíka og árlegur hagnaður af stórfyrírtæki," sagði Bjarni Guðmundsson, markaðsstjóri íslenskrar get- spár. Áður hefur verið þrefaldur fyrsti vinningur í Víkingalottói og þá skiptist hann í 10 hluta. A AÐALFUNDI Sláturfélags Suð- urlands á föstudagskvöld kom fram að fyrirtækið skilaði 35,2 milljóna króna hagnaði á síðasta ári. í ræðu Páls Lýðssonar stjómar- formanns kom fram að um væri að ræða veruleg umskipti frá síð- asta ári en þá var félagið rekið með 15,7 milljóna króna tapi. Samþykkt var að greiddur verði 4% arður til eigenda B hlutabréfa einnig verði gefin út jöfnunarhluta- bréf upp á 4% af nafnverði B-deild- ar hlutabréfa. Rekstrartekjur Sláturfélagsins á „MÉR féllust gersamlega hendur. Hvomgu okkar var dæmt forræðið og þó ég hafi forræðið samkvæmt íslenskum og alþjóðlegum lögum em hendur mínar bundnar. Ég reyni án árangurs að ýta óbærilegri hugs- uninni frá mér. Að missa úr fimm ár í lífí þeirra er hræðilegt - vita ekki hvemig lífi þær lifa - og sjá svo kannski fram á að biðin verði enn lengri,“ sagði Sophia Hansen eftir að tyrkneskur undirréttur vís- aði forræðismáli hennar frá á fímmtudag. En Sophia ætlar ekki að gefast upp. „Þegar mér líður illa reyni ég að tala við mína nánustu og hingað til hefur mér alltaf tekist að ná mér upp aftur til að halda áfram. Ég hef verið héma í 11 mánuði nánast innilokuð. Hef ekki getað tekið neinar ákvarðanir í lífi mínu og ekki getað stundað vinnu. Stund- um verður mér hugsað til dómar- ans. Hvað hann geti verið miskunn- arlaus að leiða t.d. ekki hugann að því hvemig kona í minni aðstöðu geti séð fyrir sér og staðið undir kostnaði við málareksturinn,“ segir Sophia. Halim fagnaði sigri Hún segir að Hasíp Kaplan, lög- fræðingi hennar, hafi með naum- indum tekist að fá staðfestingu tyrkneskra stjómvalda á gögnunum frá íslandi í tæka tíð fyrir réttar- höldin. Dómaranum hafi greinilega bmgðið í brún þegar hann sá stað- árinu 1994 voru 2.747 milljónir króna en rekstrargjöld námu 2.650 milljónum króna. Eigið fé Sláturfé- lagsins var í árslok 270 milljónir króna og hafði hækkað um 20% eða 45 m.kr. í ávarpi forstjórans Steinþórs Skúlasonar kom fram að síðasta ár markaði tímamót í rekstri Slát- urfélagsins frá árinu 1988. Félagið jók markaðshlutdeild sína á flest- um sviðum rekstrar jafnt í slátrun sem og sölu unninna kjötvara. í máli forstjóra kom einnig fram að á síðastliðnu ári hefði komið fram fjöldi nýjunga í vöruþróun. festinguna og hann hafi tekið sér fimm mínútna hlé til að taka af- stöðu. Hann hafi síðan komið inn og horft til hliðar, frá viðstöddum, þegar hann las ákvörðun sína. Hún hafi ekki verið studd neinum rökum. Sophia segir að lögfræðingur henn- ar hafi orðið nánast orðlaus yfir ákvörðuninni og lögfræðingur Ha- lims hafí sýnt greinileg undrunar- merki. Halim hefði hins vegar fagn- að sigri. KJÖRNEFND Vinnuveitendasam- bands íslands vinnur nú að uppstill- ingu nýs frambjóðanda til for- mennsku í sambandinu fyrir aðal- fund þess 9. maí næstkomandi. Magnús Gunnarsson, núverandi formaður VSÍ, hefur lýst því yfir að hann vilji láta af formennsku á aðalfundinum. Samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins hafa nöfn Víglundar Þorsteinssonar, forstjóra BM Vallá, og Eysteins Helgasonar, framkvæmdastjóra Plastprents, helst verið nefnd í umræðum um hugsanlega frambjóðendur til for- mennsku. Borið hefur á flokkadráttum inn- an sambandsins vegna leitar að Elsta húsi Austurstræt- is breytt NÚ STANDA yfir miklar breyt- ingar á elsta húsi Austurstrætis í Reykjavík sem síðast hýsti veit- ingastaðina Berlín og Písa. Helgi Björnsson og Hallur Helgason standa fyrir framkvæmdunum og ætla þeir að opna veitingastað í húsinu í næsta mánuði. Að sögn Halls fær húsið andlitslyftingu að utan og verður mikið endur- bætt að innan. Meðal annars er verið að rífa niður ýmislegt af því sem bætt hefur verið við hús- ið síðustu tvo áratugi. Hallur seg- ir að mikið af því efni sem rifið sé niður sé notað aftur en þó í breyttri og óþekkjanlegri mynd. Páll Hjaltason arkitekt, sem und- anfarin ár hefur starfað í New York, hannar hinn nýja stað. Sophia sagði að hún og lögfræð- ingur hennar byndu vonir við að hæstiréttur taki efnislega ákvörðun í málinu. Færi svo væri nokkuð tryggt að henni yrði dæmt forræð- ið. Hún sagðist ekki vita hversu langan tíma taki að fá niðurstöðu í málið verði því vísað aftur til hæstaréttar. Lögfræðingur hennar myndi hins vegar án efa ganga fast eftir því að afgreiðslu þess yrði hraðað af fremsta megni. formannsefni. Talið hefur verið að Víglundur Þorsteinsson væri líkleg- asti framþjóðandi kjörnefndar en hópur manna vill heldur tefla Ey- steini fram. Enginn hefur hins vegar opinber- lega lýst yfir framboði til for- mennsku enn sem komið er og kjör- nefnd, sem í sitja Páll Sigurjónsson, Kristján Ragnarsson og Haraldur Sumariiðason, hefur ekki lokið störfum. Þeir kjörnefndarmenn sem rætt var við vildu ekki tjá sig um málið og sögðu að nefndin væri að vinna að uppstillingu. Hvorki Eysteinn Helgason né Víglundur Þorsteins- son vildu tjá sig um málið. Reyni að ýta óbærilegri hugsuninni frá mér Formannsval framundan í VSI Styrkir stöðu íslend- inga ►Rætt við Helga Ágústsson, sendiherra og formann íslensku sendinefndarinnar á úthafsveiðir- áðstefnu Sþ um samninginn um veiðar á úthöfunum. /10 Hver keppir við Chirac? ►Fyrri umferð frönsku forseta- kosninganna fer fram í dag. Úrslit- in leiða í ljós hvaða tveir frambjóð- endur takast á í síðari umferðinni þann 7. maí næstkomandi. /12 FjársjóAur á fjöllum ►Dr. Kristín Ingólfsdóttir hefur rannsakað íslensku fjallagrösin. .Áhrifamáttur þessarar nytjaplöntu á ýmsa sjúkdóma hefur vakið at- hygli erlendis. /18 Þumalputtaaðferðin ►Helgi Vilhjálmsson í Góu rekur umfangsmikla sælgætisgerð og þijá veitingastaði. Hann er sælkeri og leggur áherslu á bragðgóða framleiðslu. /20 Hin kynhreina grimmd ►Leiksýningin „Býr íslendingur hér?“ verður sýnd í Berlín í tilefni hálfrar aldar frá stríðslokum. Dr. Þorleifur Friðriksson segir sýning- una ákall um að fólk á ofanverðri 20. öld gleymi ekki hinni kynhreinu grimmd Þriðja ríkisins. /22 B ► 1-32 Vetur kvaddur ►Óvenju kaldur vetur er að baki. Harðindi hafa verið til sjós og lands, einkum fyrir norðan. Ragn- ar Axelsson ljósmyndari festi á filmu nokkur augnablik vetrarins og rætt er við bændur og sjó- mann. /1,16-17 Kúrekinn á tölvunetinu ►Kevin Mitnick er að sumra áliti illræmdastur allra tölvuþijóta. Hann á nú yfir höfði sér 35 ára fangelsisdóm. /4-5 Bormenn íslands ►Rætt er við tvo frumherja í jarð- borunum og mannvirkjagerð með stórvirkum vinnuvélum hér á landi, þá Guðmund Sigurðsson og Rögn- vald Finnbogason. /9 Ungt fólk í listum ►Kristjana Stefánsdóttir söng- nemi, Hildigunnur Þráinsdóttir, leiklistamemi og Ásgeir Jónsson myndlistamemi lýsa viðhorfum sínum til listarinnar. /18 BÍLAR ► 1-4 Hyundai jeppi ►Stærsti bílaframleiðandi heims kynnti nýlega þriðju kynslóð HCD hugmyndabílsins. /1 Reynsluakstur ►Mazda 323 er fáanlegur í nokkr- um útgáfum. Nýlega var LX gerð- inni reynsluekið. /3 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Leiðari 26 Helgispjall 26 Reykjavíkurbréf 26 Minningar 28 Myndasögur 38 Bréf til blaðsins 38 Brids 40 ídag 40 Stjömuspá 41 Skák 41 Fólk í fréttum 42 Bíó/dans 44 íþróttir 47 Útvarp/sjónvarp 49 Dagbók/veður 51 Mannllfsstr. • 6b Kvikmyndir 12b Dægurtónlist 14b INNLENDAR FRÉTTIR- 2—4—8—BAK ERLENDAR FRÉTTIR- 1-6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.