Morgunblaðið - 23.04.1995, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.04.1995, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ _____________STJORWARMYMPUW_________ STEFNUYFIRL ÝSING RÍKISSTJÓRNAR SJÁLFSTÆÐISFLOKKS OG FRAMSÓKNARFLOKKS Hér á eftir fer stefnuyfirlýsing ríkisstjómar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, sem kl. 16 í gær, laugardag, var lögð iyrir æðstu stofnanir beggja flokkanna. FRÁ stjórnarmyndunarviðræðum forystumanna flokkanna. F.v. Guðmundur Bjarnason, varaformaður Framsóknarflokksins, Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, Jón Sveinsson, lögmaður og annar ritstjóra stefnuyfirlýsing- arinnar (ásamt Hreini Loftssyni), Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstæðis- flokksins, og Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. MEÐ MYNDUN ríkisstjórnar Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks hefst ný fram- farasókn þjóðarinnar. Undirstöður velferðar verða treystar og sköpuð skilyrði fyrir bættri afkomu heimilanna í landinu. Áhersla verður lögð á samheldni þjóðarinnar, samvinnu vinnuveitenda og launþega, dreifbýlis og þétt- býlis. Efnahagslegur stöðugleiki og jafnvægi í ríkisfjármálum eru forsenda framfara, lágra vaxta, öflugs atvinnulífs og atvinnuöryggis. Framtak einstaklinga verður virkjað í þágu aukinnar verðmætasköpunar. Á þann hátt verður stuðlað að hagsæld, félagslegum umbótum og afkomuöryggi. Vegur menntun- ar og rannsókna verður aukinn, en það er forsenda nýsköpunar í atvinnulífinu. Unnið verður að markaðssókn fyrir íslenskar vörur og þjónustu á erlendum mörkuðum, sam- starfi við erlend fyrirtæki og þjóðir svo og fjárfestingu erlendra aðila á Islandi. Ný upp- lýsingatækni verður nýtt í þágu efnahags- legra framfara og uppbyggingar í atvinnulíf- inu, vísindarannsókna, lista og hvers kyns menningarmála. Með aðgerðum sínum á kjörtímabilinu hyggst ríkisstjórnin gera landsmönnum kleift að ganga bjartsýnir og með reisn inn í 21. öldina. Meginmarkmið ríkisstjórnar Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks eru þessi: • Að viðhalda stöðugleika í efnahagsmálum og skapa skilyrði fyrir hagvöxt. Hagstætt raungengi og sambærilegir vextir og í helstu samkeppnislöndum eru undirstaða öflugs atvinnulífs og forsenda þess að störfum fjölgi. Með auknum fjárfestingum og nýsköpun í atvinnulífi verður unnið gegn atvinnuleysi. • Að ná jafnvægi í ríkisfjármálum á kjör- tímabilinu. Áhersla verður lögð á ráðdeild og að treysta stoðir velferðarinnar. I þeim tilgangi er brýnt að stöðva sjálfvirkni í útgjöldum ríkissjóðs. Unnið verður að kerf- isbreytingum í þeim tilgangi að nýta sem best fjármuni sem varið er til heilbrigðis- og menntamála, einstakra atvinnugreina og opinberra framkvæmda. Kannað verður hvort lífeyrissjóðir geti leyst af hólmi ein- staka þætti almannatryggingakerfisins. Teknar verða upp viðræður við sveitarfé- lögin um alvarlegan hallarekstur þeirra og leiðir til að bregðast við þeim vanda. • Að vinna að nýskipan í ríkisrekstri, t.d. með auknum útboðum, sameiningu stofn- ana, þjónustusamningum, breyttu launa- kerfí og aukinni ábyrgð stjórnenda. Stefnt verður að meiri hagkvæmni við opinberar framkvæmdir. Unnið verður að því að gera ríkisrekstur einfaldari en um leið skilvirkari. Aðstöðumunur verður jafnaður þar sem ríkið stundar atvinnurekstur í samkeppni við einkaaðila. Arðsemiskröfur verða gerðar til fyrirtækja ríkisins. • Að taka upp samstarf við aðila vinnumark- aðarins um endurskoðun á skattkerfinu með það að markmiði að draga úr skatt- svikum, lækka jaðarskatta, einfalda skatt- kerfíð og auka jafnræði innan þess. Með skattaívilnunum verður almenningur hvattur til að leggja áhættufé í atvinnufyr- irtæki. Undirbúningi þessara skattabreyt- inga verður lokið á árinu 1996. Skattalegt umhverfí fyrirtækja verði eins og best gerist í samkeppnislöndum þannig að ekki þurfí að gera sérsamninga við erlend fyrir- tæki um skattaafslætti til að þau fáist til að starfa hér á landi. • Að leggja fram áætlun um verkefni á sviði einkavæðingar sem unnið verður að á kjör- tímabilinu. Ahersla verður lögð á að breyta rekstrarformi ríkisviðskiptabanka og fjár- festingarlánasjóða. Það á einnig við um fyrirtæki og stofnanir í eigu ríkisins sem eru í samkeppni við einkaaðila. Unnið verð- ur að sölu ríkisfyrirtækja á kjörtímabilinu í samræmi við ákvarðanir Alþingis. • Að tryggja stöðug og góð rekstrarskilyrði útflutningsgreina og stuðla að nýsköpun og sókn í vöruþróun og markaðssetningu. Að mestu er byggt á aflahlutdeildarkerfi í sjávarútvegi, en banndagakerfí svo- nefndra krókabáta verður tekið til endur- skoðunar. Skapað verður svigrúm til að rétta hlut þeirra aflamarksbáta sem harð- ast hafa orðið úti vegna minnkandi þorsk- afla. Öflugar líffræði- og hagkvæmnirann- sóknir eru forsenda skynsamlegrar fisk- veiðistjómar og eðlilegrar þróunar hennar. Sérstök áhersla verður lögð á að bæta umgengni um auðlindir sjávar. Tryggja þarf hagsmuni íslands varðandi veiðar utan fiskveiðilögsögunnar með því að afla málstað íslands fylgis á alþjóðavettvangi og með samningum við aðrar þjóðir. Stefnt er að því að festa í stjómarskrá ákvæði um að auðlindir sjávar séu sameign ís- lensku þjóðarinnar og að stjórn fiskveiða og rétti til veiða skuli skipað með lögum. • Að taka búvörusamninginn frá 1991 til enduskoðunar, sérstaklega með tilliti til þess mikla vanda sem sauðfjárbændur standa frammi fyrir. Skapað verður svigrúm til aukinnar hagræðingar í landbúnaði og úrvinnslugreinum hans og gripið til þeirra hliðaraðgerða sem óhjákvæmilegar era. í því sambandi er mikilvægt að taka tillit til hagsmuna neytenda. Treysta verður tekju- grundvöll bænda. í því felst m.a. að losa um framleiðsluhömlur og auka sveigjan- leika í framleiðslustjóm, stuðla að nýsköpun og fjölbreyttari atvinnu til sveita og auð- velda bændum breytingar á búháttum eða búskaparlok. Átak í útflutningi landbúnað- arafurða verður stutt, sérstaklega á grand- velli nýrra laga um vöraþróun og markaðs- sókn sem byggist á hreinleika og hollustu afurðanna. Rannsóknir og þróunarstarf á þessum sviðum verður eflt. Unnið verður að gróðurvemd og landgræðslu með það að markmiði m.a. að stöðva landeyðingu. Áherslur í landgræðslu og skógrækt miðist jafnframt við að auka hlut bænda í fram- kvæmdum. Verkefnum verður raðað með það fyrir augum að mæta samdrætti í hefð- bundnum búskap. • Að efla byggð í landinu með traustum og góðum samgöngum þannig að gæði lands- ins og aðrar auðlindir til lands og sjávar nýtist með hagkvæmum hætti. Með verk- efnaflutningi frá ríki til sveitarfélaga og ákvörðun um staðsetningu opinberra stofn- ana verður stuðlað að eflingu þjónustu- kjama. Unnið verður að lækkun húshitun- arkostnaðar. Starfsemi og skipulag Byggðastofnunar, Atvinnuleysistrygg- ingasjóðs og atvinnuráðgjafa verður tekið til endurskoðunar í því skyni að þessir aðilar geti í sameiningu stuðlað að sókn og uppbyggingu atvinnulífsins um land allt. • Að tryggja öllum tækifæri til náms án til- lits til búsetu o g efnahags. Þörfum einstak- linga fyrir endurmenntun og fullorðins- fræðslu verður sinnt. Flutningi grannskóla til sveitarfélaga verður lokið í samkomu- lagi við þau og í samráði við samtök kenn- ara. Framhaldsskólar verða efldir, ekki síst starfsnám og verkmenntun. Unnið verður áfram að uppbyggingu og þróun Háskóla íslands, Háskólans á Akureyri og listnáms á háskólastigi. Öflugt rannsókna- og þróunarstarf er forsenda framfarasókn- ar í íslensku atvinnulífi. Nýta verður sem best fjármagn sem varið er í því skyni og tryggja að bæði nýjar og hefðbundnar at- vinnugreinar eigi jafnan aðgang að rann- sóknafé. Lög og reglur um Lánasjóð ís- lenskra námsmanna verða endurskoðuð. Nýsköpunarsjóður námsmanna verður studdur og þátttaka námsmanna í rann- sóknastarfi verður aukin. • Að standa vörð um íslenska tungu og þjóð- menningu og stuðla eins og kostur er að öflugu lista- og menningarlífi sem aðgengi- legt sé öllum landsmönnum. Stuðningur við menningarstarfsemi miðist við að efla skilning íslendinga á eigin menningu, ávaxta menningararfleifð þjóðarinnar og auka þekkingu landsmanna á menningu annarra þjóða. • Að lánstími húsnæðislána frá Húsnæðis- stofnun verði breytilegur þannig að í stað 25 ára eins og nú er verði hann á bilinu 15-40 ár. Sérstök áhersla verður lögð á að hjálpa ungu fólki til þess að eignast sína fyrstu íbúð. Þeim sem greiða af eldri fasteignaveðbréfum Húsnæðisstofnunar verður gefínn kostur á lengingu lána. Stuðlað verður að því að einstaklingar, sem eiga í alvarlegum greiðsluerfiðleikum, hafi möguleika á því að ná tökum á fjármálum sínum. Stefnt verður að því að flytja al- menna húsnæðislánakerfið frá Húsnæðis- stofnun yfír í bankakerfíð. • Að stuðla að hagkvæmni og auka fjöl- breytni í rekstri heilbrigðisstofnana. Lögð verður sérstök áhersla á þátt forvarna- og fræðslustarfs í heilbrigðismálum, þ. á m. til að draga úr neyslu vímuefna. Komið verður á markvissara samstarfí og verka- skiptingu milli sjúkrahúsanna í landinu. Sett verða ný lög um almannatryggingar þar sem réttur þeirra sem raunveralega þurfa á bótum að halda verður betur tryggður en nú er. Tryggingastofnun verð- ur gerð virkari í eftirliti með útgreiðslum og sjúkratryggingum, svo og þeirri þjón- ustu sem stofnunin kaupir. • Að endurskoða vinnulöggjöfina með það að markmiði að stuðla að stöðugleika, ábyrgð samningsaðila og auknum áhrifum einstakra félagsmanna í stéttarfélögum. • Að treysta starfsgrundvöll lífeyrissjóða- kerfisins þannig að allir landsmenn njóti sambærilegra lífeyrisréttinda. Tryggja þarf aukið valfrelsi í lífeyrissparnaði og innleiða samkeppni milli lífeyrissjóða. Sett verða almenn lög um starfsemi lífeyris- sjóða þar sem m.a. verða tryggð bein áhrif sjóðsfélaga á stefnumörkun og stjórn sjóð- anna. Einnig verða sett lög um stöðu og hlutverk séreignasjóða lífeyrisréttinda. Leitað verður samkomulags við lífeyris- sjóði um að þeir veiji auknum hluta af árlegu ráðstöfunarfé sínu til fjárfestingar í atvinnulífinu. • Að vinna gegn launamisrétti af völdum kynferðis. Stuðlað verður að jafnari mögu- leikum kvenna og karla til að njóta eigin atorku og þroska hæfileika sína. • Að endurskoða kosningalöggjöfina með það fyrir augum að hún verði einfaldari og tryggi jafnara vægi atkvæða milli kjör- dæma. • Að setja reglur er tryggi aðgang borgar- anna að upplýsingum hjá stjórnvöldum. Dregið verði úr skrifræði í samskiptum borgaranna við stjórnvöld og óþarfa laga- og reglugerðarákvæði verða afnumin. Þjónusta ríkisins verði sniðin að nútíma tækni, t.d. með nettengingu þjónustustofn- ana og pappírslausum tollviðskiptum. Tryggt verður að eftirlitsaðilar íþyngi fyr- irtækjum ekki um of með starfsemi sinni. • Að stuðla að vexti íþrótta- og æskulýðs- starfs með hag fjölskyldunnar að leiðar- ljósi. Forvarnir og löggæsla verður efld til verndar borgurunum. • Að vinna í samstarfi við þjóðkirkjuna og aðra kristna söfnuði að því að efla jákvæð áhrif trúarlífs með þjóðinni, ekki síst í til- efni þess að um næstu aldamót verða 1.000 ár liðin frá kristnitöku. • Að móta heildarstefnu í samvinnu við full- trúa atvinnulífsins um upplýsingatækni og miðlun er miði að þvi að auka framleiðni og samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja. • Að taka virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi um mengunai-varnir og verndun lífrikis sjávar. Unnið verður að markvissari endur- vinnslu og endurnýtingu. Stuðlað verður að bættri ferðaþjónustu er falli vel að umhverfissjónarmiðum. Áhersla verður lögð á að Island hafi ímynd hreinleika og umhverfisverndar. • Að vinna að frekari erlendri fjárfestingu í atvinnulífinu. Markaðsstarfsemi verður efld með því að styrkja starfsemi Útflutn- ingsráðs, Ferðamálaráðs og Markaðsskrif- stofu iðnaðarráðuneytisins og Landsvirkj- unar. Utanríkisþjónustan mun leggja meiri áherslu á að kynna möguleika erlendra fjárfesta hérlendis. Unnið verður áfram að undirbúningi orkufreks iðnaðar. Lög um erlenda fjárfestingu verða endurskoðuð í því skyni að laða að erlent fjármagn. • Að treysta samskiptin við Evrópusamband- ið á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, fylgjast náið með þróun mála innan sambandsins á næstu misser- um og kynna íslenska hagsmuni fyrir aðild- arríkjum þess. Áhersla verður lögð á að tryggja viðskiptasamstarf og önnur sam- skipti íslands við Bandaríkin. Kannaðar verða hugmyndir, sem fram hafa komið, um fríverslunarsamstarf Bandaríkjanna og annarra Atlantshafsríkja og hvort í þeim felist sóknarfæri fyrir íslensk fyrirtæki. Áhersla verður lögð á markaðssókn um allan heim og leitað leiða til að virkja ís- lenskt framtak til verkefna á erlendum vettvangi. Þau tækifæri til alþjóðavið- skipta, sem leiðir af aðild íslands að Al- þjóðaviðskiptastofnuninni, verða nýtt. Að- ildin að Atlantshafsbandalaginu og varnar- samstarfið við Bandaríkin verða áfram þungamiðja öryggisstefnu þjóðarinnar, en áhersla er lögð á að efla þátttöku íslands í því víðtæka pólitíska samráði sem fram fer á vettvangi bandalagsins. Þá er lögð áhersla á þýðingu norræns samstarfs og þátttöku íslands í starfi Sameinuðu þjóð- anna og Oryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. íslendingar munu vinna að stofn- un Norðurheimskautsráðs sem verði vett- vangur samráðs og samhæfíngar þeirra ríkja sem eiga hagsmuna dð gæta á norður- heimskautssvæðinu, sérstaklega á sviði umhverfis- og auðlindanýtingar. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks mun láta útbúa verkefnaskrá fyrir einstök ráðuneyti þar sem gerð verður grein fyrir þeim verkefnum sem ríkisstjórnin hyggst ljúka á kjörtímabilinu. Verkefnaskrá- in verður lögð fyrir Alþingi á haustþingi 1995.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.