Morgunblaðið - 10.05.1995, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 1995 25
>ING MJÓLKURSAMLAGS BORGFIRÐIIMGA
rinnar er gert
in verður.
oðað?
Kaupfélagi Borgfirðinga. „Það má líka
hafa í huga að ráðherra skrifaði undir
úreldinguna með ákveðnu skilyrði um
tryggingu sem var ekki í samkomu-
lagi kaupfélagsins við mjólkursamsöl-
una,“ sagði Gunnar og útilokaði ekki
að þetta gæti veitt undankomuleið til
þess að rifta samkomulaginu. „Eg get
ekkert um þetta mál sagt annað en
að það er stjórnarfundur hjá kaupfé-
laginu næsta föstudag," sagði hann.
Margir hafa lýst undrun á því hve
seint Páll Kr. fór af stað með hug-
myndina um stofnun hlutafélagsins.
„Fyrstu viðræður við Kaupfélag Borg-
firðinga fóru fram síðastliðið haust-
þar sem ég ræddi við kaupfélagstjóra
og stjórnarmenn kaupfélagsins," segir
Páll um tímasetninguna hjá Sól. „Þá
kom í ljós að þetta var ekki talinn
vænlegur kostur á þeim tíma. í fram-
haldi af því hef ég verið með mikla
vinnu í gangi þar sem ég notið aðstoð-
ar mjög reyndra lögfræðinga. Eg
reyndi að koma sjónarmiðum mínum
á framfæri við fyrri stjórnendur í land-
búnaðarráðuneytinu, en það má segja
að það hafi orðið til ákveðinn mögu-
leiki á opnun málsins með nýjum ráð-
herra.“
Of seint hjá Sól
„Það má kannski segja að við höfum
ekki komið nógu skýrt fram með hug-
myndir okkar fyrr en nú. Fyrir því eru
ákveðnar ástæður, en mér finnst það
ekki réttlæta að neita að skoða þenn-
an kost. Það hefði ekki tekið nema
kannski tvær vikur,“ sagði Páll.
Þórarinn V. Jónsson, stjórnarfor-
maður Kaupfélags Borgfirðinga, seg-
ir 100% öruggt frá sínum bæjardyrum
séð að af úreldingunni verði. „Ef Sól
hefði komið fyrr fram með tilboð sitt
hefði málið hugsanlega horft öðru-
vísi. Ég er hins vegar persónulega á
móti því að reka fleyg í samstarfið
við mjólkurframleiðendur og ég hugsa
að það sé viðhorf nokkuð margra
mjólkurbænda hér. Við höfum dýr-
keypta reynslu af sundraðri stöðu í
kjötiðnaði og við myndum hugsa okk-
ur um tvisvar áður en við sundruðum
samstarfi í mjólkuriðnaði," sagði Þór-
arinn.
Hvað kemur í staðinn?
Áður hefur komið fram að mjólk-
urinnviktun, mjólkureftirlit, vörudreif-
ing og önnur starfsemi, s.s. pizzugerð
og áfengisátöppun, verður áfram í
Borgarnesi eftir úreldinguna. Þá verð-
---------- ur nýja hlutafélagið
jr telja væntanlega stofnað í
| skoða næstu v^u. Hlutverk fé-
i Sólar la-g-sins verður að efla at-
vinnustarfsemi á svæðinu
. og hefur ýmislegt verið
nefnt til sögunnar, m.a. pökkun á
vatni til útflutnings. Um 40 manns
vinna hjá MSB og að sögn Þóris Páls
halda 25 þeirra óbreyttri vinnu áfram,
en 15 þarf að skapa nýja atvinnu.
Hús og tæki MSB verða auglýst til
sölu eftir úreldinguna um næstu ára-
mót, en samkomulag er um að hið
nýja hlutafélag kaupi eignirnar. Að-
spurður hvað gerðist ef utanaðkom-
andi aðili gerði tilboð sagði Þórir Páll
að slíkt yrði skoðað. Menn ættu þó
síður von á því, enda mikið ónotað
atvinnuhúsnæði í Borgarnesi.
Starfsmenn
efast um
réttmæti að-
gerðanna
Morgunblaðið/Þorkell
STARFSMENN Kaupfélagsins
í Borgarnesi leggja áherslu á
að úr því sem komið er þurfi
menn að einbeita sér að upp-
byggingu á nýju fyrirtæki sem komi
í stað Mjólkursamlagsins.
Andstaða er í Borgamesi við áform um að
hætta mjólkurvinnslu í Mjólkursamlagi Borg-
firðinga. Margir þeirra sem Egill Ólafsson
Það hefði hins vegar greinilega verið
þrýst á landbúnaðarráðherra að klára
málið. Halldór sagði ekki víst að tilboð
Sólar hefði verið aðgengilegt. Það
hefði hins vegar ekki verið skoðað,
að því er hann best vissi.
ræddi við í Borgarnesi, eru reiðir þeim sem
stóðu að tillögu um að samlaginu yrði lokað
og sú reiði beinist ekki síst að Kaupfélaginu.
Verðum að snúa okkur að
uppbyggingu nýs fyrirtækis
„Starfsmenn efast margir hveijir
um að þetta séu réttar aðgerðir. Marg-
ir eru þeirrar skoðunar að það mætti
hagræða á annan hátt, en það eru
auðvitað bændur, eigendur fyrirtækis-
ins, sem ráða ferðinni í þessu máli.
Það er hins vegar komin niðurstaða í
málið og nú þurfa menn að horfa fram
á við og vinna að áframhaldandi at-
vinnuuppbyggingu. Ég vona bara að
út úr því komi eitthvað raunhæft og
hér verði áfram rekið öflugt fyrir-
tæki,“ sagði Jón Guðmundsson, mjólk-
urfræðingur og framleiðslustjóri.
Jón sagði að mjög margir Borgnes-
ingar ættu erfitt með að sætta sig við
að Mjólkursamlagið, sem væri 60 ára
gamalt fyrirtæki og ein meginstoðin
í atvinnulífi bæjarins, yrði lagt niður.
Hann benti á að líkast til hefði í engu
samlagi verið hagrætt eins mikið á
síðustu árum eins og í Mjólkursamlagi
Borgfirðinga. Þar væru framleiddar
pítsur, grautar og áfengi. Öll þessi
aukaframleiðsla tæki þátt í að greiða
niður fastan kostnað í rekstri samlags-
ins.
Hann sagði að starfs-
menn væru færðir til úr
einni framleiðslunni í aðra
eftir því sem markaðurinn
kallaði á hvetju sinni. Af
44 stai... lönnum störfuðu
um iiéTmingur við mjólk-
urvinnslu.
Jón sagði að með þessari
viðbót væri hið stóra hús-
næði Mjólkursamlagsins
allvel nýtt í dag. Nýtingin
hefði batnað enn nýlega
þegar Rannsóknastofnun
mjólkuriðnaðarins var flutt
upp í Borgarnes.
Mjólkurfræðingar
í mestri óvissu
Jón sagði að mjólkur-
fræðingar væri sá hópur
starfsmanna sem væri í mestri óvissu
um störf sín. Hann sagði að tekið yrði
áfram við mjólk frá bændum í hús-
næði Mjólkursamlagsins þó mjólkur-
vinnslu yrði hætt og mjólkureftirlit
yrði sömuleiðis áfram í Borgarnesi.
Nokkrir mjólkurfræðingar ættu kost
á að fá vinnu við þau verkefni. Aðrir
yrðu annaðhvort að leita sér að ann-
arri vinnu hjá öðrum samlögum eða
finna sér önnur störf í Borgarnesi.
Jón sagði að stjórnendur Kaupfé-
lagsins hefðu lýst því yfír að með
nýrri atvinnustarfsemi í samlaginu
væri stefnt að því að halda uppi
óbreyttu atvinnustigi. Hann sagði að
flestir vonuðu að þetta þýddi að allir
núverandi starfsmenn gætu áfram
fengið vinnu hjá nýju fyrirtæki.
Tilboð Sólar kom of seint
„Að mínu mati kemur tilboð Sólar
hf. of seint. Þetta mál er búið að vera
í undirbúningi í langan tíma og þegar
tilboð Sólar kom var verið að ganga
frá því. Hefði Sól komið með tilboðið
í vetur þegar Kaupfélagið var að taka
sínar ákvarðanir hefði það getað breytt
einhveiju. Mér finnst hins vegar að
menn hefðu alveg mátt gefa sér
nokkra daga í að skoða tilboðið," sagði
Sólrún Egilsdóttir, en hún sér um vín-
framleiðslu Mjólkursamlagsins.
Sólrún sagði að Ingibjörg Pálma-
dóttir heilbrigðisráðherra hefði ákveð-
ið að fresta gildistöku tilvísanakerfis-
ins til að vinna sér tíma til að skoða
málið. Hún sagðist telja að Guðmund-
ur Bjarnason Iandbúnaðarráðherra
hefði getað gert það sama í þessu máli.
Sólrún var ein þeirra sem beittu sér
nýlega fyrir því að farið var í kröfu-
göngu um Borgarnes til að mótmæla
tillögu um að Mjólkursamlagið yrði
lagt niður. Hún sagði að starfsmönn-
um hefðu komið svör Þórir Páls Guð-
jónssonar kaupfélagsstjóra á óvart um
að málið væri frágengið. Hún sagði
að starfsmenn hefðu vonað allt fram
í síðustu viku, að ekki yrði af áformum
um lokun samlagsins.
Höfum ekki fengið
nægar upplýsingar
„Við höfum ekki fengið að fylgjast
nægilega vel með þessu máli. Okkur
hefur t.d. aldrei verið sýnt fram á að
lokun samlagsins leiði til þessarar
hagræðingar sem verið er að tala um.
Þetta hefur aldrei verið útskýrt fyrir
okkur. Margir efast um að af þessu
verði nein hagræðing. Maður er t.d.
að heyra að lokun hér kalli á fjárfest-
ingu annars staðar.“
Sólrún sagði að menn vonuðu að
staðið yrði við yfirlýsingar um að allir
starfsmenn Mjólkursamlagsins fengju
vinnu áfram þó að mjólkurvinnslu yrði
hætt. Ef starfsemi yrði flutt frá
Reykjavík í Borgarnes mætti hins veg-
ar búast við að nokkrir starfsmenn í
Reykjavík misstu vinnuna.
Óttast launalækkun
Sólrún sagðist hins vegar óttast að
þessi breyting leiddi til launalækkunar
lijá verkafólki sem starfaði hjá Mjólk-
ursamlaginu. Starfsfólk mjólkursam-
laganna í landinu hefði svokallaðan
vinnuskyldusamning, sem m.a. skyld-
aði það til að vinna á laugardögum.
Hún sagði að þessi samningur færði
fólki um 12.000 krónur aukalega á
mánuði. Búast mætti við að fólk missti
þessar tekjur ef það færi að vinna hjá
almennu matvælavinnslufyrirtæki.
Staða þess yrði þá sú sama og starfs-
fólks Áfurðasölunnar i Borgarnesi.
Sólrún sagði að margir væru reiðir
yfir þróun mála. Sú reiði beindist ekki
síst að Kaupfélaginu, en hún sagðist
gera sér grein fyrir að það væru bænd-
ur sem hefðu tekið þessa ákvörðun.
Hún sagðist hins vegar ekki vera sátt
við hlut Kaupfélagsins í þessu máli.
Erfitt fyrir mjólkur-
fræðinga að fá vinnu
„Ég veit ekki hvað mjólkurfræðing-
ar gera. Þeir eiga eignir hérna og það
er ekki hlaupið að því að selja. Maður
veit heldur ekkert hvað er í boði ann-
ars staðar,“ sagði Halldór Guðni Guð-
laugsson, trúnaðarmaður mjólkur-
fræðinga í Mjólkursamlaginu.
Halldór er einn tíu mjólkurfræðinga
hjá Mjólkursamlagi Borgfirðinga, sem
fengið hafa uppsagnarbréf í hendur.
Uppsagnarfrestur mjólkurfræðinga er
9 mánuðir og þess vegna var þeim
sagt upp 1. febrúar sl. Aðrir starfs-
menn, sem hafa þriggja mánaða upp-
sagnarfrest, mega búast við að fá
uppsagnarbréf í haust.
Halldór sagði að mjólkurfræðingar
hefðu enga tryggingu fyrir því að
þeir gætu fengið vinnu hjá öðrum
mjólkursamlögum þó að störf þeirra í
Borgarnesi yrðu lögð niður. Hann
sagði að hluti af verkefnum mjólkur-
fræðinga í Borgarnesi yrðu flutt til
annarra samlaga og því mætti búast
við að einhverjir myndu leita eftir því
að fá vinnu þar.
Hann sagðist vera óánægður með
ákvörðun kaupfélagsfundar um að
leggja Mjólkursamlagið niður. Hann
sagði að menn hefðu mátt gefa sér
lengri tíma í að skoða tilboð Sólar.
Málið er skaðlegt fyrir
Kaupfélagið
„Það hefur verið illa að þessu stað-
ið allt frá upphafi. Það átti að fara
fram allshetjar atkvæðagreiðsla meðal
félagsmanna Kaupfélagsins. Það voru
mistök að knýja það ekki fram.
Ákvörðunin var tekin á fámennum
fulltrúaráðsfundi,“ sagði Sveinn Guð-
jónsson, bóndi á Stekkjarvöllum í Stað-
arsveit.
Sveinn sagði það ekki rétt að það
væru eingöngu bændur. sem hefðu
tekið ákvörðun um að leggja Mjólk-
ursamlagið niður. „Borgnesingarnir
sjálfir höfðu þetta í hendi sinni. Ég
er fulltrúi á aðalfundi Kaupfélagsins
og i haust var haldinn fulltrúafundur
um þetta mál. Á fundinum var borin
fram tillaga um áframhaldandi við-
ræður um að leggja samlagið niður
og hún var samþykkt með miklum
mun. Þar réð afstaða Borgnesinga
úrslitum. Svo vakna þeir upp fyrir
aðalfundinn í vor og mótmæla, en það
var bara allt of seint.“
Mönnum stillt upp við vegg
Sveinn sagði að fulltrúum á kaup-
félagsfundinum hefði verið
stillt upp við vegg þar sem
gefið hefði verið í skyn að
Kaupfélagið myndi fara á
hausinn ef það fengi ekki
úreldingarpeningana. Þetta
hefði haft áhrif á marga.
Sveinn sagðist ekki hafa
látið þetta hafa áhrif á af-
stöðu sína og greitt at-
kvæði gegn því að samlagið
yrði lagt niður.
„Vonandi skilar þessi
hagræðing sér. Ég trúi því
hins vegar ekki að hún geri
það. Mér sýnist að Mjólk-
ursamsalan í Reykjavík sé
að gleypa þetta. Ég er ekki
sannfærður um að það sé
til góðs fyrir bændur að
færa alla úrvinnslu á eina
hendi.
Við erum hræddir um það, bændur
á Snæfellsnesi, að verða skornir af.
Það er langt að sækja mjólk til okk-
ar. Enda hefur ekki verið dregin dul
á það, af hálfu þeirra sem tala mest
fyrir þessu, að það væru til fjármunir
til að úrelda bændur líka. Það má sjálf-
sagt komast að þeirri niðurstöðu að
það fari best á því að skera þessa
útkjálka af.“
Sveinn sagðist ekki vera sannfærð-
ur um að þessi ákvörðun bjargi Kaup-
félaginu. Vandi þess snérist um að
verslun á þess vegum væri alltaf að
minnka. Fólk færi suður til að versla.
„Þessi ákvörðun um að leggja Mjólk-
ursamlagið niður hefur vaidið mjög
mikilli óeiningu meðal félagsmanna
Kaupfélagsins. Það eru margir reiðir
út í Kaupfélagið og það á eftir að valda
félaginu skaða. Maður er að heyra að
fólk sé farið að segja sig úr félaginu.
Satt að segja sé ég varla hvað maður
hefur að gera í Kaupfélaginu þegar
það er búið að losa sig við báðar afurða-
stöðvar okkar, Mjólkursamlagið og
sláturhúsið. Með þessu er það að losa
sig við tengslin við bændur."
Jón Guðmundsson Sólrún Egilsdóttir Halldór Guðni Guð- Sveinn Guðjónsson
mjólkurfræðingur. starfsmaður Mjólkur- laugsson trúnaðarmað- bóndi á Stekkjar-
samlagsins. ur mjólkurfræðinga. völlum.