Morgunblaðið - 15.09.1995, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.09.1995, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ 18 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995 Bílamarkaburinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut Kopavogi, sími 567-1800 Löggild bílasala Verið velkomin. Við vinnum fyrir þig. Opið laugard. kl. 10-17 sunnudag kl. 13-8 Mazda 323 1.6 GLX '91, dökkgrænn, sjálfsk., ek. 58 þ. km.( rafm. í rúðum. hiti í sætum o.fl. Toppeintak. V. 930 þús. Ford Explorer XLT '91, rauður, sjálfsk., ek. 98 þ. km., óvenju gott eintak. V. 2.490 þús. MMC L-300 Minibus ’88, grásans., 5 g., ek. 120 þ. km., vél yfirfarin (tímareim o.fl.). V. 1.050 þús. MMC Pajero V-6 (3000) '92, vínrauöur, sjálfsk., ek. 113 þ. km., Einn m/öllu. V. 2.850 þús. Toyota Corolla XL Sedan ’91, sjálfsk., ek. 71 þ .km. V. 750 þús. Daihatsu Feroza EL II '90, grár, 5 g., ek. 80 þ. km. V. 850 þús. Toyota Corolla GLi 1600 Liftback '93, 5 g., ek. aðeins 21 þ. km., spoiler o.fl. Sem nýr. V. 1.190 þús. Nissan Pathfinder V-6 SE '93, sjálfsk., m/öllu, ek. 38 þ. km. V. 2.950 þús. Subaru Legacy 1.8 4x4 Sedan '91, 5 g., ek. aöeins 57 þ. km. V. 1.180 þús. Nýr bfll: Renault Safrane 2.2 Vi ’94, steingrár, ek. aðeins 16 þús. km., rafm. í öllu, fjarst. Isingar o.fl. V. 2.650 þús. Subaru 1800 GL 4x4 station ’87, rauður, 5 g., ek. 125 þ. km. Óvenju gott eintak. V. 590 þús. MMC L-300 Minibus 4x4 ’91, ek. 85 þ. km. 2,4i. V. 1.550 þús. Hyundai Pony LS ’93, 3ja dyra, vínrauö- ur, ek. aðeins 25 þ. km. V. 740 þús. Toyota Corolla Si '93, svartur, 15“ álfelg- ur, geislasp., þjófav. (sk. á dýrari jeppa). V. 1.250 þús. Peugeot 205 XL 3ja dyra ’90, rauður, 5 g., ek. 107 þ. km. Gott ástand. V. 450 þús. GMC Geo Tracker 4x4 ’90 (USA týpa af Suzuki Vitara), hvítur, sjálfsk., ek. 83 þ. km. V. 1.050 þús. Toyota 4Runner V-6 '95, dökkgrænn, sjálfsk., ek. 13 þ. km., rafm. í öllu 31“ dekk, brettakantar, álfelgur o.fl. V. 3.390 þús. Hyundai Pony SE '94, 4 dyra, rauður, 5 g., ek. aöeins 11 þ. km., spoiler, samlitir stuðarar o.fl. V. 890 þús. Ford F-250 XLT EX Cap 7.3 diesel m/húsi '90, sjálfsk., ek. 85 þ. km. Toppeintak. V. 1.950 þús. Subaru Justy J-12 '90, sjálfsk., ek. 57 þ. km. V. 590 þús. Honda Civic GTi ’89, steingrár, 5 g., ek. 104 þ. km., sóllúga o.fl. V. 695 þús. Toyota Corolla Liftback '88, rauöur, 5 g., ek. 107 þ. km., 2 dekkjag. o.fl. V. 550 þús. Ford Econoline 150 4x4 '84, innréttaður feröabíll, 8 cyl. (351), sjálísk., vél nýupp- tekin. V. 1.080 þús. Skipti. MMC L-200 Double Cap T-diesel '93, 32" dekk, álfelgur o.fl. V. 1.650 þús. Sk. ód. MMC Colt EXE '91, svartur, 5 g., ek. 62 þ. km. V. 750 þús. Sk. ód. Nissan Sunny SR Twin Cam 16V '88, svartur, 5 g., ek. 120 þ. km., ný tímareim, sóllúga, spoiler o.fl. V. 590 þús. Tilboðsv. 490 þús. Toyota Celica Supra 2.8i '84, hvítur, 5 g., álfelgur o.fl., 170 ha. Gott eintak. V. 490 þús. Ford Econoline 150 9 manna ’91, sjálfsk., ek. 50 þ. km. V. 1.750 þús. Hyundai Accent GS ’95, 5 g., ek. 12 þ. km. V. 1.020 þús. Audi 100 CC '81, 5 dyra, grár, 4 g., góð vél. Ný skoðaður. V. 110 þús. Fjörug bílaviðskipti. Vantar góða bíla á skrá og á staðinn. ERLENT Hernum mótmælt í Hebron Margra ára togstreitu ríkja á Balkanskaga að ljúka Grikldr semja við Makedóníumenn HUNDRUÐ palestínskra náms- manna komu saman í borginni Hebron á Vesturbakka Jórdanar í gær til að krefjast þess að her ísraels og um 400 gyðingar, sem hafa sest þar að, færu úr borg- inni. Myndin var tekin þegar ísraelskir hermenn dreifðu námsmönnunum. Mótmælin fóru fram við skóla fyrir palestínskar stúlkur eftir að gyðingar höfðu reynt að ráðast inn í hann til að rífa niður palestínskan fána sem nemendur höfðu dregið að húni. París, Skopje. Reuter. FORSETI Makedóníu, Kíró Glíg- orov, fagnaði í gær samkomulagi við Grikki um að taka upp friðsam- leg samskipti og sagði að atburður- inn gæti haft mikil áhrif í þá átt að efla frið á Balkanskaga. Utanrík- isráðherrar ríkjanna undirrituðu samninginn í aðalstöðvum Samein- uðu þjóðanna í New York á miðviku- dag og tekur hann gildi eftir mánuð. I samningnum er kveðið á um gagnkvæma virðingu fyrir fullveldi og landamærum. „Eg er sannfærður um að það mun koma í ljós að þessi samningur merki vatnaskil í þróun mála á Balkanskaga,“ sagði Glíg- orov. Hann sagði öllu skipta að báð- ir aðilar sýndu góðan vilja er að framkvæmd samningsins kæmi. Er Júgóslavía sem var liðaðist í sundur mótmæltu Grikkir því ákaft að sambandsríkið Makedónía fengi að halda nafninu eftir að það væri orðið sjálfstætt. Nyrsta hérað Grikk- lands heitir einnig Makedónía og sögðust Grikkir eiga einkarétt á heitinu af sögulegum ástæðum, þeir sökuðu Makedóníu um að vilja leggja undir sig gríska héraðið. Einnig mótmæltu þeir tákni í fána nýja rík- isins sem þeir sögðu benda til áætl- ana um landvinninga. í Makedóníu er stór og óánægður minnihluti Albana, landið er bláfá- tækt, landlukt og háð grísku hafn- arborginni Saloniki um aðdrætti. Grikkir gripu til þess ráðs að banna grönnum sínum aðgang að höfninni og hefur þetta valdið Makedóníu miklu efnahagslegu tjóni. Evrópusambandið (ESB)hefur ár- angurslaust mótmælt aðförum grískra stjórnvalda en Grikkland á aðild að ESB. Frakkar fögnuðu í gær samningnum og taldi talsmaður ut- anríkisráðuneytisins í París líklegt að ESB myndi nú auka aðstoð sína við Makedóníu. Reuter í kvenréttindamálum er Kína allt of dæmigert EFTIRFARANDI grein birtist í síðasta tölublaði bandaríska vikuritsins Time og er höfundur henn- ar Barbara Ehrenreich. Fjallar hún þar um Alþjóð- legu kvennaráðstefnuna í Peking og hvernig ástandið er í kvenréttindamálum almennt í heim- inum. Fer greinin hér á eftir: Eini iærdómurinn, sem draga má af kvenna- ráðstefnunni í Peking enn sem komið er, er lík- lega sá, að Kína sé stjórnað af val- dagráðugum karlrembum, sem kunni litla mannasiði. í Bandaríkjunum hafa íjölmiðlar velt sér upp úr kúgun kínverskra kvenna, óftjósemisað- gerðum og yfirgangi lögreglunnar, og vissulega skipta þær upplýsingar máli, sérstaklega fyrir þann fjórðung allra kvenna í heiminum, sem búsett- ur er í Kína. Spyija má þó hvort það hafi verið nauðsynlegt fyrir 40.000 konur að fara til Peking til að stað- festa það, sem einn maður, Harry Wu, sýndi fram á fyrir nokkrum vik- um. Hvar átti að halda ráðstefnuna? Þeir, sem gagnrýnt hafa fundar- staðinn, segja, að til að tryggja árangur ráðstefnunnar hefði átt að velja annað land og hliðhollara konum en hvar skyldi það vera að finna? Kannski Saudi-Arabía? Það er ekki erfitt að ímynda sér hvemig ástandið hefði verið í kringum ráðstefnuna í þessu landi þar sem kon- um er ekki einu sinni leyft að aka bíl. Alsír yrði að sjálfsögðu eins og martröð enda hafa meira en 500 konur verið myrtar þar á einu ári, sumar fyrir það að vera kunnar kvenréttindakonur og aðrar fyrir það eitt að taka blæjuna frá andlitinu. Við getum afgreitt megnið af fyrrverandi kommúnistaríkjum þar sem innreið kapitalismans hefur ekki enn bætt hlutskipti kvenna. Atvinnu- leysi meðal þeirra hefur aukist og ýmis þjónusta eins og barnagæsla er að verða jafn fáséð þar og myndir af Stalín. í Póllandi hefur rétturinn til fóstureyðingar verið tekinn af konum og í Rússlandi er svo komið, að skrifstofustarfinu getur fylgt sú skylda að sofa hjá forstjóranum. Varla hefði það verið við hæfi að halda ráðstefn- una í Brazilíu þar sem menn, sem myrða konu sína, sleppa oft með áminninguna eina eða í Ind- landi þar sem fjöldi kvenna, sem eiginmenn og annað tengdafólk drepur í því skyni að komast yfir annan heimanmund, er meiri en 6.000 árlega og fer hækkandi. Eða í Bangladesh þar sem fatwa, dauðadómur, hefur verið kveðinn upp yfir rithöf- undinum Taslima Nasreen ... eða í írlandi þar sem hjónaskilnaðir eru bannaðir sama hve skelfilegt hjóna- bandið er og jafnvel þótt líf konunn- ar sé í hættu. Við höfum þó alltaf Bandaríkin þar sem kvenréttindabaráttan á ætt sína og óðul. Samt má efast um, að þátt- takendum í ráðstefnunni hefði fund- ist þeir vera velkomnir í landi þar sem kunnur repúblikani og áhugasamur um að komast í forsetaembættið for- dæmdi ráðstefnuna fyrir þann „vinstrisinnaða anda“, sem þar svifi yfir vötnum. Það væri líka heldur óskemmtilegt að koma saman í landi þar sem hart er sótt að rétti kvenna til fóstureyðingar, þar sem hugmynd- ir um að bæta hlut kvenna með bein- um aðgerðum virðast dauðadæmdar og þar sem fjöldi kvenna á þingi fer minnkandi og er að komast niður fyrir töluna 10. Réttindi kvenna almennt á undanhaldi Ef við legðum við eyrun og hlustuðum á kon- urnar 40.000 í Peking, kæmumst við að því, að það er ekki víða sem borin er virðing fyrir kon- um. Kannski kærum við okkur ekkert um að heyra sannleikann. Hann á nefnilega ekkert skylt við „framfararausið" á Vesturlöndum. í stað þess að sækja fram eru kohur og réttindi þeirra al- mennt á undanhaldi. í rannsókn, sem Alþjóða- þingmannasamtökin (Inter-Parliamentary Union) í Genf gengust fyrir, kom fram, að hlutfall kvenna á þjóðþingum hefur lækkað um næstum 25% á sjö árum. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch skýrðu frá því í ágúst, að algengt væri um allan heim, að karlar beittu eiginkonur sínar ofbeldi og yfirleitt án þess að vera refsað fyrir og önnur vandamál, til dæmis verslun með konur sem kynlífsþræla, ykjust stöðugt. Það „geisar stríð gegn konurn" um allan heim eins og banda- ríska vikuritið U.S. News & World Report sagði á síðasta ári. Það er svo auðvelt að gleyma því hvernig ástandið í þessum málum er um allan heim og beina heldur athyglinni að einum stað. Benazir Bhutto var hrósað fyrir að gagnrýna meðferðina á konum í Kína en hvorki hún né fjölmiðlar minnt- ust á, að í Pakistan eru konur, sem er nauðgað, dæmdar í fangelsi fyrir „hórdóm“! Bhutto lofaði einu sinni að binda enda á þessa svívirðu en hætti við til að móðga ekki íslömsku guðsmennina. Það er auðvelt fyrir Bandaríkjamenn að fjalla um sín eigin vandamál á stað, sem er einhvers staðar langt, langt í burtu eins og í hinum fram- andi Austurlöndum. Fjölmiðlar gerðu sér mikinn mat úr „hugrekki" Hillary Clintons fyrir að deila á kínversk stjórnvöld fyrir meðferðina á konum en hvaða áhættu var hún að taka? Kannski þá að fá fyrir vikið ekki nógu góða þjónustu á hótel- inu í Peking? Hún hefði getað sýnt hugrekki og tekið pólitíska áhættu með því að fylgja eftir gagnrýni sinni á kínversk stjórnvöld með dálitlum hugleiðingum um stöðu kvenna í Bandaríkjunum og sjálfrar sín um leið. Hún hefði getað viður- kennt, að hún væri frá eina iðnríkinu, sem neitað hefur að staðfesta 16 ára gamlan sáttmála Sam- einuðu þjóðanna um réttindi kvenna; frá landi þar sem konur, sem þora að láta að sér kveða, sitja undir stöðugum skömmum. Ekkert eitt „illt heimsveldi" Þegar um réttindi kvenna er að ræða, þá er ekki til neitt eitt „illt heimsveldi", sem hægt er að benda á og einangra. Svo er fyrir þakka trúar- legu afturhaldi og opinberu afskiptaleysi, að kven- hatur fer alls staðar vaxandi. Einmitt þess vegna skulum við meta mikilvægi ráðstefnunnar í Pek- ing fyrir eitthvað annað en ofanígjöfina, sem kín- verskir ráðamenn fengu. „Konur um allan heim — og góðviljaðir karlmenn! Sameinumst um að verja réttindi kvenna" ætti að vera boðskapurinn frá Peking. ) I Í i i > Í s i \ i ! I Í Í I- i I i i i i i i i I h
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.