Morgunblaðið - 26.11.1995, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 26.11.1995, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1995 11 200" Heimlínur á starfsmann Kostnaður við3 mín. £ innanbæjarsímtöl 3 35 Fiárfestinaai í símakei" IS N Tekjur af símarekstri 40rrr— áíbúai IS N D F ÍS N S Tölurnar eru fengnar úr samantekt Alþjóða símamálastofnunarinnar. Allar tölur eru frá árinu 1994. D = Danmörk, F = Finnland, IS = Island, N = Noregur og S = Svíþjóð. A töflunni má meðal annars sjá að þriggja mínútna innanbæjarsímtal er ódýrast í Finnlandi og Svíþjóð, en dýrast í Danmörku. Einnig má sjá að flesta starfsmenn þarf á hverja heimlínu á íslandi, en þar eru fjárfestingar líka hæstar, en tekjur af símarekstri minnstar. Farsímanotendur eru aftur á móti fæstir á Islandi, en flestir í Svíþjóð, þar sem samkeppni er mikil í simarekstri. Breytt rekstrarform og einkavæðing símafélaga Land Reglur um evrópsk símafélög íjúlí 1995 Árleg heildarlækkun á Hvernig Samkeppni i gjaldskrá sem krafist er framfyigt grunnþjónustu ; Frakkland -4,57-6,0% 1995-98 A 1998 Þýskaland -8,07-10,0% 1996 & 1998 A 1998 Ítalía -5,5% til 1997 A 1998 Spánn -1,0% til 1997 Áriegir samningar 1998 Bretland -7,5% til 1997 Sjálfstæð eftirlitsnefnd Fyrir hendi ■ Holland -1,0% til 1997 A 71996 Belgía Ekki tilgreint A 1998 Sviss Ekki tilgreint A 1998 Svíþjóð -1,0% til 1997 Sjálfstæð eftirlitsnefnd Fyrir hendi Danmörk -3,0% til 1997 Sjálfstæð eftirlitsnefnd 71996 Portúgal -2,0% til 1997 Sjálfstæð eftirlitsnefnd 2000 Finnland A A: Eftirlitsnefnd sem heyrir undir viðkomandi ráðherra Hefmild: FT/ Daiwa Instltute of Reasercfi. 1998 SAMGÖN GURÁÐUNEYTIÐ er að leggja lokahönd á frumvarp um breytt rekstrarform Pósts og síma. Að sögn Jóns Birgis Jónssonar ráðu- neytisstjóra verður frumvarpið tilbúið af ráðuneytisins hálfu fyr- ir jól, en ekki er ljóst hvortþað verður lagt fram á Alþingi fyrr en eftir áramót vegna anna í þinginu. Samkvæmt frumvarp- inu er lagt til að Pósti og síma verði breytt í hlutafélag í eigu ríkisins. Fyrirtækið fengi sjálf- stæða stjórn sem valin yrði af eiganda hlutafjárins, þ.e. ríkinu, og réði sér framkvæmdastjóra, líkt og önnur hlutafélög. Víða um heim er verið að losa um hömlur sem verið hafa á rekstri fjarskiptafyrirtækja og breyta eignarhaldi á símafyrir- tækjum sem verið hafa í ríkis- eigu. Þannig stendur til að breyta um rekstrarform og einkavæða símafyrirtæki í Belg- íu, Grikklandi, HoIIandi, Ítalíu, Spáni, Tékklandi, Ungverjalandi, Israel, Indónesíu og Suður-Afr- íku. Nýlega seldi portúgalska ríkið 28% hlut í símafyrirtæki landsins fyrir936 milljónir bandaríkjadala og hafa ríkis- stjórnir ýmissa landa aflað sér verulegra tekna á þennan hátt á undanförnum árum. Ráðgert er að einkavæða símafyrirtæki í Austurríki, Frakklandi, Irlandi, Perú, Tyrklandi, Sri Lanka og Venesúela á næstu 18 mánuðum, að því er nýlega kom fram í fréttabréfi Handsals hf. Símafyr- irtæki eru eftirsótt fjárfesting og þykir reynslan sýna að einka- væðing þeirra leiði til aukinnar hagkvæmni. Einkavæðing hraðar uppbyggingu Nokkur efnalítil lönd hafa gripið til þess ráðs að einkavæða símarekstur til að greiða fyrir örari uppbyggingu fjarskipta. Þannig er reiknað með að á næstu tveimur árum verði síma- þjónusta einkavædd í Ghana, Guíneu, Panama og Póllandi. Sum ríki hafa leyft einkarekstur þráðlausra símkerfa til að mæta þörf sem hefðbundin símafélög hafa ekki getað mætt. I Svíþjóð ríkir meira frelsi á símamarkaði en dæmi eru um á meginlandi Evrópu, að því er sagði í frétt Financial Times 20. september sl. Þar segir að víða í Evrópu líti menn til Svíþjóðar sem einskonar tilraunastofu í hvernig fara má að því að aflétta hömlum af fjarskiptaþjónustu. Alþjóðleg símafyrirtæki á borð við British Telecom (BT), AT&T og France Telecom berjast um skerf af kökunni. Sífellt fjölgar frumheijum sem bjóða sérhæfð- ari og oft ódýrari þjónustu en þeir sem fyrir eru. Sænska síma- félagið Telia, sem er hlutafélag í opinberri eigu og hafði áður einkarétt á talsímarekstri, tapar markaðshlutdeild og horfir fram á minnkandi arðsemi. Hagnaður Telia á fyrri árshelmingi þessa árs minnkaði um 60% miðað við sambærilegt tímabil í fyrra og var harðari samkeppni kennt um. Það var um mitt ár 1993 að losnaði um hömlur á rekstri fjar- skiptafélaga í Svíþjóð. Sam- keppni hefur harðnað í kjölfarið, ekki síst hvað varðar fyrirtækja- þjónustu. í maí síðastliðnum stofnuðu BT, Tele Danmark og Telenor í Noregi símafélagið Telenordia. Þessi samsteypa ráð- gerir að veija tæpum 20 milljörð- um króna til að verða næst- stærsta fjarskiptafyrirtæki Sví- þjóðar. France Telecom kynnti nýlega áætlun um að veija sem svarar 10 milljörðum króna til að byggja upp almenningssíma- þjónustu í Stokkhólmi, Gauta- borg og Málmey. Þá er ekki síður gróska í rekstri kapalfélaga, far- símafyrirtækja og svonefndrar „call-back“ þjónustu sem af- greiðir millilandasímtöl. Nú er talið að um 40 fyrirtæki í Svíþjóð sérhæfi sig í afgreiðslu slíkra millilandasímtala. Gjöld fyrir millilandasímtöl hafa lækkað um ein 30% í kjölfarið og Telia hefur tapað um þriðjungi markaðshlut- deildar á innan við tveimur árum. Eins er hart sótt að Telia á sviði farsímaþjónustu, gagnaflutninga og reksturs símkerfa. Norðurlönd ífremstu röð Telia hefur brugðist hart við samkeppninni. Starfsfólki hefur fækkað um 18 þúsund frá 1991 og nú starfa um 30 þúsund manns lijá fyrirtækinu. Teiia hefur stofnað til bandalags með þrem- ur evrópskum ríkissímafélögum, á Spáni, í Hollandi og í Sviss, og hafa þau myndað Unisource sam- steypuna sem ætlað er að keppa á alþjóðlegum markaði. Uniso- urce hefur leyfi til að annast millilandasímtöl frá Bretlandi og á hlut í farsímarekstri í Litháen, Ítalíu og Ekvador. Þrátt fyrir harðari samkeppni sagðist talsmaður Telia, Bertil Thorngren, fagna breyttu rekstrarumhverfi. Því fylgdu ný viðhorf og starfshættir. Það væri betra að veita viðskiptavinum umbeðna þjónustu en að þeir ættu ekki annars úrkosta en að skipta við félagið. Farsími til fyrirmyndar Financial Times segir að Norð- urlöndin hafi verið fyrst til að samþykkja sameiginlegan staðal fyrir farsíma (NMT). Sú ákvörð- un hefur stuðlað að grósku í smíði farsímakerfa og farsíma. Fyrirtækin Ericsson í Svíþjóð og Nokia í Finnlandi þykja standa framarlega á heimsvísu á því sviði. Hvergi í heiminum munu farsímar vera almennari en á Norðurlöndunum. Frétt Financial Times lýkur á þeim orðum að það sem unnist hefur með auknu frelsi á fjar- skiptamarkaði geti verið skýr- ingin á því hvers vegna Norður- löndin eru að losa um hömlur á öðrum sviðum. Það sé engin til- viljun að Svíþjóð, Finnland og Noregur séu að undirbúa sam- eiginlegan raforkumarkað á næsta ári, líkt og þau komu á fót sameiginlegum farsímastaðli fyrir 14 árum. Hvatt til breytinga í Þýskalandi í Þýskalandi hafa verið uppi ráðagerðir um að aflétta einka- leyfi Deutsche Telekom AG (DT) á símaþjónustu í árslok 1997. Það er í samræmi við þá stefnu Evr- ópusambandsins að öll fjarskipti verði gefin fijáls 1998. „Vitring- arnir fimm“, það er fimm manna hópur sjálfstæðra efnahagsráð- gjafa þýsku ríkisstjórnarinnar, segja í nýrri ársskýrslu um þýskt efnahagslíf að aflétta beri einka- leyfi DT fyrr en ætlað var til að örva samkeppni og hvetja til nýjunga á sviði fjarskipta og símaþjónustu. „Frá efnahagslegu sjónarmiði er engin ástæða til að leyfa Telekom að hafa einka- leyfi til ársloka 1997. Telekom þarfnast ekki aðlögunartima til að ráða við samkeppni á sviði reksturs símaneta eða þjónustu." Telekom hefur haldið því fram að félagið þurfi að laga sig að hinum frjálsa markaði og ef sam- keppni á þessu sviði hefjist of snemma muni það hafa neikvæð áhrif á markaðssetningu hluta- bréfa í DT sem ráðgerð var á næsta ári. Vitringarnir fimm telja hins vegar að áratugagamall einka- réttur DT tryggi félaginu ráð- andi markaðsstöðu í talsímaþjón- ustu og rekstri netkerfa um mörg ókomin ár. Vitringarnir vara við því að DT kunni að misnota sterka stöðu sína á markaðnum og krefjast því strangrar reglusetn- ingar. Þeir mæla með því að sam- keppnisyfirvöldum verði falið eftirlit með fjarskiptamarkaðn- um í stað þess að setja á stofn sérstaka eftirlitsstofnun. leggur grunn að fjarskiptabylting- unni. Nýlega hófst samstarf Pósts og síma, Kerfisverkfræðistofu Há- skóla íslands og Nýherja hf. við svonefnt AMUSE-verkefni sem styrkt er af fjarskiptasviði fjórðu rammaáætlunar Evrópusambands- ins (ACTS). AMUSE verkefnið er á sviði gagnvirkrar margmiðlunar en aðrir þættir ACTS lúta að gerð ljósleiðarakerfa; þróun háhraðaneta sem eru forsenda myndsíma og fleira; þróun nýrra þráðlausra fjar- skiptatækja; þróun gervigreindra boðskiptakerfa þar sem notandinn getur sjálfur skilgreint þjónustuna; nýjar leiðir til að tryggja áreiðan- leika og öryggi rafrænna boðskipta. Vinna við AMUSE-verkefnið hófst af fullum krafti 1. september og starfa að því fjórir sérfræðingar undir stjórn Ebbu Þóru Hvannberg. Stjórnvöld ráða ferðinni Afstaða stjórnvalda ríkja heims- ins mun ráða miklu um hve ört og hve víða áhrifa fjarskiptabyltingar- innar gætir. Víða má sjá merki þess að ríkisreknar einokunarstofn- anir og ríkisstjórnir geri sitt besta til að varðveita einokunaraðstöðuna og standi gegn því að rekstur sím- ans verði jafn frjáls og sala sím- tækja. The Economist telur að á meðan þessir varðmenn fortíðar- hagsmuna beijist' gegn hinu óum- flýjanlega muni aðrar þjóðir hagn- ast. A1 Gore, varaforseti Bandaríkj- anna, dró saman í hnotskurn þær breytingar sem væntanlegar eru þegar hann sagði: „Það verða tíma- belti jarðar, en ekki kostnaður, sem helst standa í vegi fyrir því að menn verði í sambandi." A öld upplýsingatækninnar mun staðsetning margra fyrirtækja og stofnana skipta litlu máli varðandi markaðshæfni þeirra. Það sem skiptir máli verður hvaða stefnu stjórnvöld í hvetju landi taka í fjar- Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir NÚ ER unnið að því að setja upp eftirlitsstöð á vegum gervihnatta- símafélagsins Iridium við Snjóholt, um 10 km norðan við Egils- staði. Þessi stöð er ein af 4 í heiminum sem eiga að fylgjast með gervihnattaskotum og sporgöngu gervihnatta Iridium um jörðu. skiptamálum. Það verður auðveld- ara að veita þjónustu af ýmsu tagi á milli heimsálfa, með tilstilli öfl- ugra fjarskipta, en að flytja vörur sömu vegalengd. Þvi fjær sem land eða landsvæði er frá hringiðu efna- hagslífsins því meira getur það beinlínis hagnast á fjarskiptabylt- ingunni. The Economist telur að aukið flæði upplýsinga muni veita al- menningi meiri völd og áhrif en hann hefur nú. Sú staðreynd geti ógnað veldi stjórnvalda og stórfyrir- tækja. Kjósendur og neytendur munu eiga auðveldara með að bera saman þá kosti sem í boði eru, afla sér upplýsinga, sniðganga girðingar og hliðverði sem hingað til hafa stjórnað upplýsingaflæðinu. Það er því margt sem styður það að fjarskiptabyltingin verði einn helsti áhrifavaldur þjóðfélagsþróun- arinnar um mest allan heim á kom- andi árum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.