Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1996 23 „Þá greip mig einhver hugsun, ég reiddi fram púnsskálina, keypti lítið af kryddi í einu og blandaði þær blöndur sem höfðu þróast á veitingahúsinu Krákunni. Þetta voru sex blöndur og með þær mætti ég í Kolaportið.“ ist. í þeim sé til dæmis engin aukefni né salt eða pipar. Hún byijaði með sex kryddblöndur í upphafi en býður nú 16 blöndur auk 20 kryddtegunda, þar á með- al saltkrydd. „Ég fór að bjóða saltkrydd vegna þess að ég get notað íslenska eðalsaltið, sem er heilsusalt. Með því opnaðist mögu- leiki á að koma með „season- krydd“ og samt að halda mark- miðum fyrirtækisins, sem eru að hafa framleiðsluvörurnar sem náttúrulegastar og að þær geri matreiðsluna spennandi,“ segir Sigfríð. Hún tekur fram að markhópur hennar, auk húsmæðra og veit- ingamanna, séu hjartasjúklingar og sá hópur sem eigi við óþol eða exem að stríða. „Kryddjurtir hafa lækningamátt og bara ilmurinn virkar eins og ilmolía og fer inn á ákveðnar heilastöðvar, þar sem hann byijar heilunarferil sinn. Við getum tekið dæmi sem er allt öðru vísi. Þegar maður kemur inn á hamborgarastað og finnur djúp- steikingarlykt kemur hún melt- ingastarfseminni ekki af stað. Því finnst mér nauðsynlegt að fólk eldi mat heima, noti góðar krydd- jurtir, þannig að ilmurinn undirbúi líkamann fyrir meltingu og borð- hald. Ilmur getur einnig haft ró- andi áhrif á taugakerfið eins og salvia.“ I júní eykst úrvalið enn hjá Pottagöldrum, því þijár krydd- blöndur eru væntanlegar auk tiu sérkrydda. „Þá verð ég komin með 50 tegundir alls,“ segir Sigfríð og greinir frá því að hún sé komin í samstarf við Katrínu Ásgríms- dóttur, Lönguhlíð á Egilsstöðum, sem er að setja á markað ís- lenska, þurrkaða lerkisveppi. „Ég vil bjóða fólki úti á landi, sem er að koma fram með náttúrulegar vörur, að framleiða vörur sínar undir Pottagaldramerkinu en þó merktar viðkomandi.“ Sömuleiðis er hún að hefja samstarf við Sól hf. í júní munu koma á markað kryddolíur þar sem blandað er saman víola-olíum frá Sól og kryddblöndum frá Pottagöldrum. Hún segir að íslendingar séu mjög svo tilbúnir að prófa nýjar kryddblöndur og þar sé breyting á frá árum áður. Vinsælasta kryddið segir hún vera Lamb Is- landia, fiski-, villi- og ítalskt krydd og ítalskt pastakrydd. Sjálf er hún hrifnust af arabíska kjúklinga- kryddinu, ítölsku hvítlauksblönd- unni og Lamb Islandia. Sigfríð segir að krydd eigi aldr- ei að geyma fyrir ofan eldavél, helst eigi að geyma það á dimm- - kjarni málsins! + m ■ ■ ■ um, köldum stað. „Ég merki geymsluþol kryddblöndunnar til eins árs í stað þriggja eins og leyfi- legt er, en það er hluti af gæða- stýringu Pottagaldra. Bragðið dofnar smám saman en kryddið skemmist ekki,“ segir hún. Engir sérfræðingar Hún segir fjármagnið vera erf- iðast í þeim rekstri sem hún stend- ur nú í. „Ég var á markaðssviði í iðnrekstrarfræðinni og þar var okkur kennt hvernig hinir stóru fara að með sérfræðingana og aðstoðarmennina sér við hlið. Ég BÍLSKÚRS- & IÐNAÐAR HURÐIR Lindab hurðirnar eru dönsk hágæða framleiðsla. Þær eru þéttar með sterkar og efnismikilar brautir, sem gerir opnun og lokun auðvelda og tryggir langa endingu. Hurðagormar eru sérstaidega prófaðir og spenna reiknuð út með njálp tölvu. Lindab hurðirnar eru einangraðar og fást í fjölmörgum útfærslum allt eftir óskum viðskiptavina. Lindab hurðirnar eru fáaniegar úr áli og stáli með plastisol yfirboroi, með eoa án glugga og gönguhurða. Hurðabrautir geta verið láréttar, eða fylgjandi þakhalla. Opnun getur verið handvirk, hálfsjálfvirk eða sjálfvirk. Lindab hurðirnar eru fáanlegar í lit- um að ósk viðskiptavina. TÆKNIOEILD I £ í Smiöshöfða 9 • 132 Reykjavik Simi 587 5699 • Fax 567 4699 «■■■■■■■■■■■■■■» byijaði aftur á móti með tvær hendur tómar og staðan var allt önnur. Það þarf gífurlega útsjón- arsemi við markaðssetningu, nýta þarf nánast hveija krðnu tvisvar og gera þarf allt eins ódýrt og hægt er,“ segir hún og bendir á skrifstofuhúsgögnin sem flest voru keypt notuð. Hún er með ýmislegt í bígerð, eins og nýja vöru í haust sem teng- ist matargerð, en segist ekki geta farið nánar út í þá sálma. „Það er öruggt að þessi vara á eftir að vekja athygli," segir hún svo íbyggin á svip. „ÉG blanda smáa skammta af kryddblönd- um í einu eða kannski í 140 glös,“ segir Sigfríð Þóris- dóttir sem er allt í öllu í fyr- irtæki sínu, Pottagöldrum. Lindab

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.