Morgunblaðið - 14.06.1996, Side 38
38' FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREIIMAR
/
Þarríkir
fegrirðin ein
Hvítasunnuferð á Hvannadalshnjúk
Á tindinum
VIÐ, tuttugu og þriggja manna
gönguhópur frá Ferðafélagi íslands,
stöndum á hæsta tindi Öræfajökuls,
Hvannadalshnjúk, rjóð í vöngum.
Það er hvítasunnudagur og að baki
tíu tíma ganga. Við leggjum frá
okkur ísaximar, tökum af okkur
bakpokana og leysum okkur úr lín-
unni. Setjumst niður og fáum okkur
nestisbita, svölum þorstanum. Veðr-
ið er kyrrt, sólin hátt á lofti og skín
dauft í þokunni svo að slær föl-
rauðri birtu á grátt víðernið. Og jörð-
in fær hlutdeild í himninum.
Hvannadalshnjúkur á Öræfajökli er
þekktastur fyrir það að vera hæsti
tindur landsins, 2119 m á hæð. Ör-
æfajökull er eldkeila eins og Snæfell-
sjökull. Efst á jöklinum er geysistór
gígur og á barmi hans raða sér átta
tindar og er Hvannadalshnjúkur
einn þeirra.
Ég horfi í suðurátt, fyrir neðan
blundar gígur Öræfajökuls, sem vill-
ir á sér heimildir því að hann er
barmafullur af jökulís en þakinn
snjóbreiðu. Gígbarmurinn er eins og
kóróna með sína átta tinda. Austar
sér giöggt til tveggja þeirra, Sveinst-
inds og Sveinsbungu.
Það er komið að myndatöku og
einnig er hitastigið kannað, 6 stig á
Celsíus. Við höfum verið heppin að
komast á tindinn. Hér á jöklinum
er allra veðra von, og oft þurfa hóp-
Veðrið er kyrrt, sólin
hátt á lofti og skín dauft
í þokunni svo að slær
fölrauðri birtu á grátt
víðernið, segir Gerður
Steinþórsdóttir, og
jörðin fær hlutdeild
í himninum.
ar að snúa við. Við höfum hins veg-
ar gengið í logni og þoku mestalla
leiðina. Ofarlega birti allt í einu eins
og dregið væri tjald frá og við blasti
hnjúkur með hamravegg í klaka-
böndum, „klakahöll“, varð einhveij-
um að orði og aðdáunin duldist ekki
í röddinni.
Broddaæfing
Við höfðum lagt af stað úr
Reykjavík á föstudagskvöldið og lá
leiðin að Hofí í Öræfum þar sem
hópurinn átti ap hafa aðsetur um
hvítasunnuna. Á laugardaginn var
að mestu haldið kyrru fyrir til að
hvílast fyrir gönguna miklu á
Hvannadalshnjúk. Einungis var far-
ið síðdegis þann dag í stutta ferð á
Fjallsjökul fyrir austan Kvísker til
að æfa göngu á broddum og til að
Á ÖRÆFAJÖKLI. Frá vinstri: Ólafur Örn Ólafsson, Þórunn M.
Gunnarsdóttir, Gunnar V. Guðmundsson.
beita ísöxi. Fæstir í ferðinni höfðu
notað slíkan útbúnað áður, en hvort
tveggja er hægt að fá lánað hjá
Ferðafélaginu. Það tók töluverðan
tíma að máta broddana við göngus-
kóna og stilla þá rétt. Þama á ísnum
kom sér vel að hafa
svissneskan hníf með
oddjámi þegar þurfti
að laga brodda á skóm,
herða ólar og gera
aukagöt. Ennfremur
kom 'hárnál að góðum
notum þegar skrúfa
týndist.
Kvöldmatur var
snæddur snemma og
tekið til nesti, brauð
og orkuríkt nasl, og
ekki minna en tveir
lítrar af vökva á mann.
Æskilegt er að hafa með sér orku-
drykk, því mikið reynir á úthald.
Farið var snemma að sofa, því að
lagt er upp að næturlagi.
Leiðin upp
Klukkan tvö um nóttina voru all-
ir vaktir, úti þoka og súld. Einum
og hálfum tíma síðar hófst gangan,
en lagt var af stað nokkru austan
við Svínafell, þar sem
forðum bjó höfðinginn
Brennu-Flosi, ein
aðalsöguhetja Njáls
sögu. Farin var svo-
kölluð Virkisjökulsleið
en hún er helst fær
að vorlagi á meðan
snjófylla er i sprung-
um. Úr öskju Öræfa-
jökuls falla ekki færri
en átta skriðjöklar.
Við gengum fyrst upp
Falljökul, en síðan var
sveigt inn á Virkisjök-
ul, sem er einnig skriðjökull, og var
gengið þvert yfir hann. Sá jökull
er formfagur á að líta með bláleitum
sprungum, bogadregnum línum og
oddhvössum hryggjum. Þá var gott
að hafa göngustafi til að halda jafn-
væginu. Þegar yfir Virkisjökul var
komið gengum við í línu á Öræfa-
jökul. Fyrst lá leiðin upp bratta
snjóbrekku að svokölluðum Kaffi-
kletti. Þá var klukkan sjö að morgni
og tímabært að fá sér hressingu
og smáhvíld. Snjóbirtan er blekkj-
andi en það er nauðsynlegt að bera
á sig sóláburð oft á leiðinni og nota
sólgleraugu til að veijast snjó-
blindu. Síðan lá leiðin í þijá tíma
meðfram Hvannadalshrygg að
sunnan, en í svörtu klettabeltinu
stigu fram í þokunni kynjamyndir,
tröll og forynjur. í fjarska mátti
heyra drunur í jöklinum. Hvanna-
dalshryggur liggur upp að Dyr-
hamri. Það var eins og hamarinn
sneri baki í okkur og vindurinn
hefði strokið hvít hárin beggja
vegna upp í móti og þau mættust
í hrygglengju. Þarna var nestis-
stopp og þá greiddist þokan í sund-
LÝÐVELDISGANGA
FERÐAFÉLAGS
ÍSLANDS
miðstöð heimilanna
METRÓ^t^t
Hallarmúla og Skeifunni Reykjavík,
Akranesi, Borgarnesi, ísafirði,
Akureyri og S.G. búðin Selfossi
METRÓ búðir um allt land
«8®* Hagæða Akrylmalning
- '■HgaaBak
METRO Grunnfúavörn og Pallaolía.
m
METRO
Lítið þekjandi
Hálfþekjandi
Þekjandi