Morgunblaðið - 27.06.1996, Side 52

Morgunblaðið - 27.06.1996, Side 52
>2 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Grettir HERE S A BROCHURE FOR A SUMMER CAMP THAT.. 50RRV..IF ANYONE MEHTIONS SUMMER CAMP TO MEy I FREAK OUT.. UJELL, HERe's ANOTHER 0ROCHURE FOR A SUMMER CAMP THAT SAVS.. HÉRNA er bæklingur yfir sumarbúðir Afsakaðu.. En ef einhver minnist á sumarbúðir, þá sleppi ég mér.. Jæja, hérna er annar bæklingur um sumarbúðir sem segir.. BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Handahófskennt borgarskipulag Frá Þuríði Guðmundsdóttur: NÚGILDANDI aðalskipulag Reykjavíkur var staðfest 1988. Skv. texta þess á að nota það til að stjórna þróun byggðar í borg- inni fram til 2004. Á vegum borgarinnar starfa skipulagsnefnd og framkvæmda- stjóri hennar, sem ætlað er, með hliðsjón af markmiðum aðalskipu- lags, að stýra skipulagi borgarinn- ar og tryggja að á henni sé heildar- svipur og samræmi en ekki skipu- lagslýti. Þrátt fyrir þetta virðast lóðar- eigendur og byggingarverktakar að meira eða minna leyti hafa skipulag einstakra svæða borgar- innar og nýtingarhlutfall þeirra í hendi sér. Þetta sést af því að á óbyggðum reitum sem þeir eignast í grónum hverfum rísa íbúðaturnar sem hvorki samrýmast þeirri byggð sem í kringum þá er né þeirri byggð sem fyrirhuguð var á reitnum. Nýjasta dæmið um þetta eru fyrirhugaðar byggingar á lóð á horni Laugalækjar og Sæbrautar (Goðalóð). Nú á að skipta þessari lóð upp og breyta aðalskipulagi á hluta hennar þannig að þar megi reisa íbúðir. Auk þessa á að breyta deiliskipulagi þannig að húsin megi vera tvöfalt hærri en nú er heim- ilt. Það á sem sagt að reisa þrjá íbúðatuma, 9, 7 og 6 hæða í miðju athafnasvæði en nærliggjandi hús og hverfið í heild er 3-4 hæðir. Skipulagsnefnd fellst á þessar grundvallarbreytingar á skipulagi, að því er virðist, án rökstuðnings því hann er ekki að finna í gögnum hjá borgarskipulagi. íbúar í Laugarnesi fara fram á að skipulagsyfirvöld borgarinnar leggi, skriflega, fram þau rök, sem þau hafa fundið fyrir því að um- ræddur reitur sé ákjósanlegur fyr- ir íbúðabyggð. Þær röksemdir verða að yfirgnæfa rök, sem áður voru fyrir útivistarsvæði á þessum hluta nessins (eins og eitt sinn var lofað), yfirgnæfa rök sem síðan voru fundin fyrir athafnasvæði þarna á nesinu og yfirgnæfa nú rökin fyrir því að Listaháskólanum sé ætlaður þessi reitur í framtíð- inni. Einnig vantar rökin fyrir því- líkri hæð húsanna. Borgarfulltrúi og byggingar- nefndarmaður rökstuddi þessar breytingar þannig: „Þegar Ár- mannsfell keypti þessa lóð af Landsbankanum var ljóst að þarna yrði íbúðabyggð, það var ljóst að þarna yrðu þijú hús og einnig að þau yrðu 9, 7 og 6 hæða.“ Séu þetta rökin er jafnframt ljóst að það eru ekki skipulagsyfir- völd borgarinnar sem stjórna þróun byggðar í borginni heldur lóðareig- endur og byggingarverktakar. Það tangarhald sem byggingar- verktakar hafa á borgaryfirvöldum er enn augljósara þegar litið er til þess að framkvæmdir eru þegar hafnar á umræddum reit enda þótt lagaskilyrði fyrir veitingu bygging- arleyfis liggi ekki fyrir. Er ekki kominn tími til að menn tali opinskátt um það hvaða stefnu byggðin í borginni er að taka og hver það er sem stýrir henni? Vilj- um við „sjónvarnargarð" meðfram allri ströndinni? Viljum við þétta byggð með íbúðaturnum? Er hún þannig, sú Reykjavík sem við vilj- um búa í? Verði fyrirhugaðar breytingar í Laugarnesi að veruleika, yrði enn eitt skipulagsslys! Hver mun kunna borgaryfirvöldum þakkir fyrir? ÞURÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Kleppsvegi 4, Reykjavík. Lögbrot Ríkisútvarpsins? Frá Ólafí Hannessyni: Á TVEGGJA ára afmæli R-list- ans, 13. júní sl, hringdi undirritað- ur í Þjóðarsál á Rás 2 til að mót- mæla þeirri fullyrðingu talsmanna R-listans að R-listinn hefði ekki staðið við kosningaloforð sín. Þeir sögðu: „Átvinnuleysið er komið til að fara.“ Það hefur aldrei verið meira. Þeir sögðu einnig: „Við munum stöðva skuldaaukninguna." Skuldirnar jukust á síðasta ári um 50 þúsund krónur á meðalfjöl- skyldu, þrátt fyrir holræsagjald, heilbrigðisgjald og hærra afgjald af veitustofnunum. Þeir kvarta mikið um háar skuldir, sem þeir segjast hafa fengið í arf. Samt gætu þeir selt hlut Reykjavíkur í Landsvirkjun og átt eftir skuldlaust hitaveituna, raf- magnsveituna, vatnsveituna og höfnina, em metnar eru á marga tugi milljarða. Jafnframt benti ég á hlutdrægni starfsmanns Rásar 2, sem drægi taum R-listans á áberandi hátt. Þessi starfsmaður Rásar 2, Anna Kristine, brást ókvæða við og til- kynnti mér, að meðan hún stjórn- aði Þjóðarsál fengi ég ekki frmvegis að tjá mig. Nú koma nokkrar spurningar: Er þetta stefna eða starfsregla Ríkisútvarpsins? Hvaða reglu braut ég? Var ég ómálefnalegur? Var ég með klám eða dónaskap? Eða mega þeir einir tala sem eru með skoðanir sem hugnast stjórn- andanum? ÓLAFUR HANNESSON, Snælandi 4, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.