Morgunblaðið - 23.01.1997, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 23.01.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997 31 FRÉTTIR » Lýðskólinn starf- ræktur áfram BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum á þriðjudag að veita 2,5 millj- ónir til reksturs lýðskóla við Náms- flokka Reykjavíkur á vorönn 1997. Fjárhæðin er til viðbótar framlagi frá menntamálaráðuneyti og Rauða I krossi íslands, sem munu leggja til eina milljón hvort. Fræðslumiðstöð Reykjavíkur hef- ur samþykkt að nýta megi húsnæði Bústaðaskóla þessa önn. I erindi til borgarráðs kemur fram að Lýðskól- inn hafi nýst vel sem úrræði fyrir ungt fólk sem af einhvetjum orsökum hefur ekki náð árangri eða þrifist í almennu skólakerfí. „Flestir nemend- umir hafa einnig verið atvinnulausir og margir án þess að eiga rétt á atvinnuleysisbótum. Á síðustu önn tóku 20 nemendur þátt í námstilboði Lýðskólans, þar af 11 nemendur sem vísað var frá Félagsmálastofnun." I : * i . 1 ! I .1 I rj * i ci i i i i i FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA 22.1. 1997 Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (kíló) verð (kr.) ALLIR MARKAÐIR Blálanga 70 70 70 98 6.860 Djúpkarfi 92 86 89 4.382 390.568 Grálúða 165 163 165 2.327 383.557 Grásleppa 15 8 9 159 1.496 Hlýri 128 119 124 1.406 174.046 Karfi 88 80 86 2.813 242.967 Keila 64 30 64 1.637 104.224 Langa 80 70 79 764 60.080 Langlúra 117 117 117 345 40.365 Lúða 579 298 409 577 235.798 Lýsa 51 51 51 71 3.621 Steinb/hlýri 110 110 110 2.678 294.580 Sandkoli 60 60 60 1.835 110.100 Skarkoli 143 137 141 555 78.273 Skata 150 150 150 118 17.700 Skrápflúra 79 30 71 2.464 175.453 Skötuselur 200 196 196 453 88.836 Steinbítur 119 69 97 1.329 128.615 Sólkoli 180 180 180 85 15.300 Tindaskata 15 10 14 1.244 17.620 Ufsi 65 48 . 64 6.136 395.204 Undirmálsfiskur 136 63 133 5.269 698.373 Ýsa 180 99 130 14.676 1.907.859 Þorskur 124 33 92 75.262 6.950.443 Samtals 99 126.683 12.521.937 FAXAMARKAÐURINN Djúpkarfi 92 86 89 4.382 390.568 Grásleppa 15 8 9 159 1.496 Karfi 80 80 80 121 9.680 Keila 64 64 64 78 4.992 Langa 80 80 80 440 35.200 Skrápflúra 79 79 79 522 41.238 Skötuselur 200 196 197 54 10.632 Steinbítur 119 106 112 256 28.605 Ufsi 65 65 65 810 52.650 Undirmálsfiskur 133 133 133 644 85.652 Ýsa 116 99 110 6.256 687.034 Þorskur 60 33 43 14.516 623.898 Samtals 70 28.238 1.971.645 FISKMARKAÐUR BREIÐAFJARÐAR Skrápflúra 55 55 55 214 11.770 Steinbítur 110 69 85 515 43.651 Ufsi 60 48 59 219 12.816 Ýsa 170 99 165 442 72.736 Þorskur 119 85 104 30.823 3.206.825 Samtals 104 32.213 3.347.798 FISKMARKAÐUR DALVÍKUR Blálanga 70 70 70 98 6.860 Grálúða 165 165 165 - 2.128 351.120 Hlýri 128 128 128 748 95.744 Karfi 87 87 87 2.209 192.183 Keila 30 30 30 16 480 Langa 70 70 70 104 7.280 Steinb/hlýri 110 110 110 2.678 294.580 Ýsa 100 " 100 100 268 26.800 Samtals 118 8.249 975.047 FISKMARKAÐUR SNÆFELLSNESS Ýsa 180 180 180 500 90.000 Þorskur 113 93 105 9.600 1.006.176 Samtals 109 10.100 1.096.176 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA Lúða 355 300 343 178 60.990 Tindaskata 10 10 10 173 1.730 Ufsi 65 65 65 2.000 130.000 Ýsa 180 165 175 1.500 262.500 Þorskur 116 90 104 19.200 1.987.200 Samtals 106 23.051 2.442.420 FISKMARKAÐUR VESTFJ. PATREKSF. Hlýri 119 119 119 658 78.302 Keila 64 64 64 1.543 98.752 Lúöa 579 395 455 102 46.362 Undirmálsfiskur 136 136 136 4.402 598.672 Ýsa 143 126 135 5.638 759.213 Samtals 128 12.343 1.581.301 FISKMARKAÐUR ÍSAFJARÐAR Lúða 298 298 298 63 18.774 Skarkoli 143 143 143 373 53.339 Steinbítur 101 101 101 558 56.358 Ufsi 50 50 50 70 3.500 Samtals 124 1.064 131.971 FISKMARKAÐUR ÞORLÁKSHAFNAR Karfi 80 80 80 175 14.000 Langa 80 80 80 220 17.600 Lúða 523 408 519 155 80.490 Lýsa 51 51 51 71 3.621 Sandkoli 60 60 60 1.835 110.100 Skarkoli 137 137 137 182 24.934 Skata 150 150 150 118 17.700 Skrápflúra 60 60 60 216 12.960 Skötuselur 196 196 196 399 78.204 Sólkoli 180 180 180 85 15.300 Tindaskata 15 15 15 896 13.440 Ufsi 65 65 65 1.870 121.550 Undirmálsfiskur 63 63 63 84 5.292 Þorskur 124 55 111 639 70.859 Samtals 84 6.945 586.050 FISKMARKAÐURINN HF. HAFNARFIRÐI Langlúra 117 117 117 345 40.365 Lúða 395 365 369 79 29.182 Skrápflúra 75 75 75 1.425 106.875 Tindaskata 14 14 14 175 2.450 Undirmálsfiskur 63 63 63 139 8.757 Ýsa 133 133 133 72 9.576 Þorskur 117 87 115 484 55.486 Samtals 93 2.719 252.691 HÖFN Grálúöa 163 163 163 199 32.437 Karfi 88 88 88 308 27.104 Skrápflúra 30 30 30 87 2.610 Ufsi 64 64 64 1.167 74.688 Samtals 78 1.761 136.839 Árni R. Árnason á fundi Sjálfstæðisfélags Seltirninga Varar eindregið við veiðileyfagjaldi ÁRNI R. Ámason, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins á Reykjanesi, varaði eindregið við því að tekið yrði upp veiðileyfagjald á fundi Sjálfstæðisfé- lags Seltirninga um sjávarútvegs- mál. Sagði hann að sú meginregla ætti að gilda að þeir sem hefðu hasl- að sér völl í atvinnugrein sem byggð- ist á nýtingu almennra auðiinda ættu að hafa aðgang að auðlindinni. Á hinn bóginn ætti sömuleiðis að gilda sú meginregla að öll fyrirtæki sem nýttu auðlindina tækju á sig kostnað vegna nýtingarinnar og greiddu skatta af hagnaði. Fyrirhugað var að á fundinum skiptust tveir þingmenn Sjálfstæðis- flokksins, Ámi og Einar Oddur Krist- jánsson, þingmaður Vestfirðinga, á skoðunum um stefnu flokksins í sjáv- arútvegsmálum en Einar Oddur var veðurtepptur og komst ekki á fund- inn. Heitar umræður spunnust engu að síður á fundinum og þeir sem tóku til máls gagnrýndu harðlega ýmsa þætti varðandi stjómun fisk- veiða. Árni Ragnar hafnaði hugmyndum sem sjálfstæðismenn á Vestfjörðum hafa sett fram um að tekið verði upp sóknarmarkskerfi í stað núverandi aflamarkskerfis. Sóknarmark leiddi ótvírætt til meiri ríkisafskipta og fullyrðingar um að kvótakerfi hefði leitt af sér aukið brottkast afla væru rangar. Þingmaðurinn vék einnig að stöðu vestfirskra sjávarútvegsfyrirtækja sem hann sagði hafa setið eftir í gömlum farvegi meðan sjávarútvegs- fyrirtæki á suðvesturhominu og á Eyjaijarðarsvæðinu kepptust við að hagræða. Þau fyrirtæki sem ein- göngu stunduðu bolfiskvinnslu og talin væru standa verst yrðu að hag- ræða í rekstri, breyta vinnsluaðferð- um eða sameinast öðram fyrirtækj- um. Árni Ragnar sagði að það væri þjóðhagslegur ávinningur að þau fyr- irtæki sem skiluðu góðum arði lifðu en það væri ekki ávinningur að sem flest fyrirtæki störfuðu í sjáv- arútvegi. Þingmaðurinn sagði það vera skoðun sína að ef réttur til að fram- selja aflaheimildir væri afnuminn væri engin hagnaðarvon í sjávarút- vegi. Hann sagðist vænta þess að nefnd sem sjávarútvegsráðherra hefði skipað til að skoða framsal aflaheimilda muni legði fram mótað- ar reglur um viðskipti með aflaheim- ildir. Sagði hann mikilvægt að þar yrði skýrt kveðið á um að eingöngu þeir sem ættu atvinnutæki fengju úthlutað aflaheimildum. Einnig sagði hann stefnt að því að ákveðið yrði hámark sem leyfilegt væri að úthíuta einni útgerð. Þeir sem tóku til máls á fundinum áttu það sammerkt að telja núver- andi fiskveiðistjómarkerfi um margt óréttlátt. Óli Bjöm Kárason sagði að það særði réttlætiskennd margra á hvern hátt útgerðarmenn sætu að aflaheimildum sem þeir hefðu fengið að gjöf. Þeir sem ekki hefðu aðgang að auðlindinni hlytu að fá skaðabæt- ur fyrir. Pétur Kjartansson sagði að flokks- forystan hefði í umræðum um sjávar- útvegsmál hæðst að almennum flokksmönnum. Það væri hættulegt fyrir flokkinn ef hann gerðist boð- beri forréttindahóps útgerðarmanna og berðist fyrir óréttlæti. Kvótakerfi andstætt viðreisnarstefnu Halldór Halldórsson sagði viðbúið að ef engar breytingar yrðu gerðar á stjórnkerfi fískveiða myndu afla- heimildir færast á hendur enn færri aðila en nú er og jafnframt skapast hætta á að þær kæmust í eigu er- lendra fyrirtækja. Hvatti hann til þess að veiðileyfagjald yrði tekið upp óháð afkomu fyrirtækja. Kvótakerf- ið, í þeirri mynd sem það væri nú, væri mjög andstætt viðreisnarstefnu Sjálfstæðisflokksins á fyrri áram. Líkti hann sjónarmiðum útgerðar- manna nú við sjónarmið innflytjenda á haftaáranum. Árni Ragnar sagði andstöðu sína gegn veiðileyfagjaldi m.a. helgast af því að hann væri þeirrar skoðunar að skatta ætti að miða við afkomu fyrirtækja en ekki eingöngu miða við að þau væru til. r Olíuverð á Rotterdam-markaði, 6. nóv. til 15. jan. Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir Glitský yfir Egils- stöðum 1 TVÖ stór svokölluð glitský sáust á himni yfir Egilsstöðum seinni part þriðjudags, en það þykir heldur óveiyuleg en um leið tilkomumikil sjón. Að sögn Harðar Þórðarsonar, veðurfræðings hjá Veðurstofu íslands, sjást glitský yfirleitt í kjölfar sterkra veðraskila og myndast úr ískristöllum hátt á himni eða í 20 til 30 kíló- ^ metra hæð. „Glitskýin eru svona skýr vegna þess að sólin er komin niður fyrir sjóndeild- arliring bæjarins og því er komið myrkur þar, en í 20 kílómetra hæð sést hún enn og því ná geislar hennar til skýja sem eru svo hátt á himni,“ segir hann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.