Morgunblaðið - 25.02.1997, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 25.02.1997, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ JRwgtiiifrlafrife STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. SVIPTINGAR A SJÓNVARPSMARKAÐI TjAÐ SEM fyrst og fremst blasir við eftir þær sviptingar, sem urðu á sjónvarpsmarkaðnum um helgina er minnkandi samkeppni. Kaup íslenzka útvarpsfélagsins hf. á íslenzkri margmiðlun hf., sem hefur rekið Stöð 3 og sú ákvörðun kaupand- ans að hætta útsendingum þeirrar stöðvar leiða til þess, að sú aukna samkeppni, sem virtist fyrirsjáan- leg á milli sjónvarpsstöðva eftir endurskipulagningu á rekstri Stöðvar 3 verður ekki að veruleika. Hag- ur sjónvarpsnotenda verður verri af þeim sökum. Samkeppni leiðir til þess að allir aðilar leggja sig meira fram og sjónvarpsnotendur eiga fleiri kosta völ. Fyrir rúmu ári hóf ný sjónvarpsstöð útsendingar og var henni ætlað að veita bæði ríkissjónvarpinu og Stöð 2 samkeppni. Sú samkeppni var af hinu góða og hefur þegar orðið sjónvarpsáhorfendum til hagsbóta vegna þess, að í kjölfar útsendinga Stöðvar 3 jókst framboð á sjónvarpsefni allveru- lega. Þegar eigendur Stöðvar 3 endurskipulögðu rekst- ur sjónvarpsstöðvarinnar sl. haust var markaðs- staðan könnuð mjög rækilega og niðurstaða þeirrar könnunar var sú, að nokkur öflug fyrirtæki gengu til liðs við þá eigendur Stöðvar 3, sem fyrir voru. Ákvörðun þeirra um sölu á Stöð 3 til íslenzka út- varpsfélagsins hf. gegn liðlega 9% eignarhlut í því fyrirtæki er væntanlega til marks um, að þær áætlanir hafi verið endurskoðaðar og hluthafar hafi komizt að annarri niðurstöðu. Það er auðvitað áfall fyrir samkeppni á ljósvaka- markaðnum. En hún er eftir sem áður hörð, þegar litið er á fjölmiðlamarkaðinn í heild. SAMKOMULAG UM STÆKKUN NATO? 'C'LEST bendir nú til þess, að samkomulag sé að nást við Rússa um að stækkun Atlantshafs- bandalagsins geti farið fram með sæmilegu sam- komulagi við stórveldið í austri. Um helgina gaf Jeltsín Rússlandsforseti yfirlýsingar, sem benda til þess, að Rússar muni að lokum sætta sig við stækk- un bandalagsins en ætlast áreiðanlega til að eitt- hvað komi á móti. Stækkun Atlantshafsbandalagsins er eitt mikil- vægasta mál, sem nú er á döfinni í Evrópu. Mörg fyrrum leppríki Sovétríkjanna leggja mikla áherzlu á að fá aðild að Atlantshafsbandalaginu, eins og glöggt kom fram hjá Klaus, forsætisráðherra Tékk- lands í samtölum hans við Davíð Oddsson forsætis- ráðherra fyrir nokkrum dögum. Þar er ekki sízt um að ræða Pólland, Tékkland og Ungverjaland svo og Eystrasaltsríkin þrjú. Forystumenn margra þjóða á Vesturlöndum hafa haft af því áhyggjur að ganga til verks um stækk- un Atlantshafsbandalagsins í fullri andstöðu við Rússa. Þess vegna m.a. hafa staðið yfir miklar viðræður á milli Rússa og einstakra aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins á undanförnum misserum. Rússar hafa margítrekað eindregna andstöðu sína en nú bendir margt til þess að samkomulag sé að nást. Ef marka má yfirlýsingar Jeltsíns um helgina má gera ráð fyrir, að það samkomulag verði innsigl- að á fundi þeirra Clintons Bandaríkjaforseta í Hels- inki í næsta mánuði. Fari svo verður þar með stig- ið stórt skref í átt til öryggis fyrir þau Evrópu- ríki, sem hafa búið við óvissu undanfarin ár. BÚNAÐARÞING KJÖR bænda eru brýnasta viðfangsefni þessa Bún- aðarþings," sagði Ari Teitsson, formaður Bændasamtaka Islands, í skýrslu sem hann flutti þinginu í gær. Þetta varð raunar ljóst strax við setningu þingsins á sunnudag. Þar sagði Ari Teitsson að á undanförnum árum hefði afkoma flestra greina landbúnaðarins farið versnandi. „Nú er svo komi að endurnýjun landbún- aðarbygginga er nær engin og stór Kjaramá í brenr hluti stéttarinnar gerir ráð fyrir að vera síðasti ábúandi á jörð sinni. Þeg- ar svo er komið er þessi erfiða staða ekki lengur eingöngu vandamál stétt- arinnar, það er hluti af efnahag og atvinnustefnu þjóðarinnar, auk þess að vera félagslegt úrlausnarefni," sagði Ari. Hann sagði að samhliða öllum miili- ríkjasamningum reyndu flestar þjóðir að styrkja landbúnað sinn bæði af atvinnu- og efnahagsástæðum, en einnig vegna matvælaöryggis í sí- breytilegum heimi. Þetta hefðu íslensk stjórnvöld einnig gert en þó í minnk- andi mæli. „Við þær aðstæður sem við blasa nú verður að gera kröfu um að ekki verði frekar dregið úr þeim stuðn- ingi sem bæði hefur falist í innflutn- ingsvernd og beinum framlögum til lækkunar á matvælaverði," sagði Ari. Ekki dregið úr ríkisútgjöldum Guðmundur Bjarnason landbún- aðarráðherra tók undir þetta í ávarpi sem hann flutti við setningu þingsins, og sagði það skoðun sína að eins og ástandið væri nú hjá bændum væri ekki viðunandi að draga meira út rík- isútgjöldum til greinarinnar. „Ef menn vilja meiri niðurskurð kallar það á stórfellda fækkun bænda og breyttar áherslur í byggðamálum. Ég er þeirrar skoðunar að sveitir landsins og þjóðin öll geti ekki verið án íslensks landbúnaðar. Stórfelldar breytingar með tilheyrandi byggða- röskun, á borð við þær sem sumir boða í málflutningi sínum um meiri lækkun ríkisútgjalda og stórfelldan innflutning búvara, eru ekki á minni stefnuskrá. Ég hef aftur á móti unnið að skipulagsbreytingum sem auka frelsi og minnka opinber afskipti, fært framleiðendur nær neytendum svo markaðsvitund landbúnaðarins aukist og hvatt til frekari hagræð- ______ ingar í úrvinnslu og sölumál- um. Hægfara þróun í átt tii meira frelsis og markaðsvit- undar, en án þess að fórna þeim hreinleika og gæðum Kjaramál bænda eru mjög til umræðu á Bún- aðarþingi sem sett var á sunnudag á Hótel Sögu í Reykjavík og stendur fram eftir vikunni. Land- búnaðarráðherra lýsti því yfir við setningu þingsins að bændur byggju við óviðunandi kjör og ekki mætti draga meira en orðið væri úr ríkisút- gjöldum til landbúnað- arins því meiri niður- skurður þýddi stórfellda fækkun bænda. ÝMIS fyrirtæki landbúnaðarins k Hægfara þróun í átt til meira frelsis sem við höfum og viljum hafa áfram, er stefna sem ég tel vera farsæla," sagði Guðmundur. Óviðunandi kjör Guðmundur rakti áhrif búvöru- samningsins sem gerður var 1991 um fasta hagræðingarkröfu í framleiðslu nautgripa- og sauðfjárafurða og stór- fellda lækkun ríkisútgjalda. Þetta hefði fært neytendum verulega verð- lækkun á þessum afurðum en á sama tíma hefðu bændur mátt þola sam- drátt í neyslu og þvi ekki getað hagr- ætt eins og samningurinn gerði ráð ________ fyrir. Raunveruleikinn hafí því verið óhagkvæmari rekstur og nær öil raun- lækkun búvara á tímabilinu hafí lent á launalið bænda. -„Það er því ljóst að ís- lenskir bændur hafa lagt mikið að Hann sagði að kjör bænda væru óviðunandi og það ætti ekki að koma neinum á óvart að þau hefðu versnað undanfarin ár í samanburði við aðrar stéttir. mörkum til að viðhalda góðum lífskjör- um í landinu á meðan aðrir hafa feng- ið kjarabætur," sagði Guðmundur. Tekjur aukast Fram kom að hagur bænda hefði heldur vænkast undanfarið. Landbún- aðaráðherra sagði að almennur efna- hagsbati í landinu undanfarið hefði haft áhrif á kjör bænda. Neysla landbúnaðaraf- urða hefði farið vaxandi o g ferðaþjónusta nyti góðs af uppsveiflunni og við meiri umsvif fjölgaði atvinnutækifærum og möguleikum bænda til að auka tekjur sínar. Ari Teitsson sagði á þinginu í gær að fram- kvæmd nýs búvörusamn- ings í sauðfjárframleiðslu hefði gengið eftir vonum. Tekist hefði að ná birgða- stöðu í viðunandi horf með útflutningi á um 1.800 tonnum af kinda- kjöti innan greiðslu- marks, og kostnaður við það næmi um 400 millj- ónum króna, sem skiptist á milli ríkisins og verðskerðingarsjós sem bændur og sláturleyfíshafar greiða í. Ari sagði, að athuganir bentu til Ari Teits maður I samtaka í ræðusti aðarþ „Smjör drýpur af h\ LANDBÚNAÐARVERÐLAUN- IN voru veitt í fyrsta skipti við opnun Búnaðarþings á sunnu- dag. Þau á að veita árlega aðilum sem á einn eða annan hátt þykja hafa sýnt áræðni og dugnað með verkum sínum. Að þessu sinni var fernum hjónum, ábúendum fjögurra bú- jarða, veitt verðlaunin fyrir ár- angursrík störf í þágu landbún- aðar. Verðlaunahafarnir voru Birna Lárusdóttir og Sturlaugur Eyjólfsson á Efri-Brunná í Dala- sýslu, Vigdís Guðbrandsdóttir og Þorsteinn Geirsson á Reyðará í Lóni í Austur-Skaftafellssýslu, Guðrún Þorvaldsdóttir og Val- geir Þorvaldsson á Vatni á Höfða, J. Valberg og Ólafur Eggertsson á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum. Guðmundur Bjarnason land- búnaðarráðherra veitti verð- launin og fór nokkrum orðum um verðlaunahafana. Hann sagði að á Efri-Brunná drypi smjör af hveiju strái í bókstaflegri merk- ÞAU hlutu landbúnaðarverðlaunin. Frá vinstri eru Ólafur Eggertssc valdsdóttir, Valgeir Þorvaldsson, Vigdís Guðbrandsdóttir, Þorsteinn Sturlaugur Eyjólfsson. ingu því þar hefði um langt skeið Um Reyðará sagði ráðherra að verið rekið meitt afurðamesta þar hefði verið stundaður af- kúabú landsins. burðagóður ræktunarbúskapur á „
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.