Morgunblaðið - 14.03.1997, Side 1

Morgunblaðið - 14.03.1997, Side 1
■ STÍLROF- FATATÍSKA OG FÖRÐUM/2 ■ STÓLAR MEÐ BROS OG SKEIFU/2 ■ LÁTIÐ BLÓMIN TALA MEIRA OG HÆRRA/4 ■ DREYMIR UM BRÚÐULEIKHÚS í AFRÍKU/6 ■ SKALLALYF/6 ■ MYNDASAGAN/8 Á vlt íslenskra ævintýra Dagskráin hefst með móttöku hjá forseta ís- lands, Ólafi Ragnari Grímssyni að Bessastöðum, og segir Nicholas það vera mikinn heiður fyrir erlendu gestina að vera boðið þangað. Að henni lokinni verður efnt til matarveislu í flugskýlinu þar sem um 300 manns munu njóta veitinga sem Guðvarður Gíslason, matreiðslumeistari á Loft- leiðum, hefur yfírumsjón með. Um kvöldið verða ýmsar óvæntar uppákomur og nefnir Nicholas sem dæmi dansandi íslenskar sauðkindur en fæst ekki til að útskýra nánar hvers konar dans þær muni stíga. Einnig ætla íslensk hreystimenni á brókum einum fata að fleygja sér niður í fallhlífum fyrir framan flug- skýlið og íslenskar dragdrottningar skemmta. di brækur di sauðkindur Morgunblaðið/Ásdís NICHOLAS Graham við undirbúning í flugskýli á Reykjavíkurflugvelli. FLUGSKÝLI Flugleiða á Reykjavíkurflug- velli verður fært í heldur óvenjulegan búning þann 12. apríl næstkomandi. Til- efnið er heimsfrumsýning á haustlínu bandaríska fatafyrirtækisins Joe Boxer sem framleiðir m.a. undir- fatnað á konur og karlmenn, galla- buxur og íþróttafatnað. Til að beija viðburðinn augum koma til Reykjavíkur um 150 erlendir gestir, m.a. blaðamenn helstu tískutímarita, sjónvarpsmenn og kaupmenn stórverslana í Bandaríkjunum. Gert er ráð fyrir að húsrúm verði fyrir um 800 manns þegar tískusýningin hefst um kvöldið en hún verður í höndum um 30 íslenskra fyrirsæta frá Eskimo models og spil- uð verður íslensk tónlist, m.a. eftir eftir Björk og fjöllistahópinn Gus Gus. „ímynd Joe Boxer á að vera hrein og tær, svip- að og Island er í augum útlendinga og þess vegna ætlum við að hemema eyjuna í tvo daga, “ segir Nicholas Graham, stofnandi og aðaleig- andi fyrirtækisins, sem nýlega var staddur hér landi ásamt fylgdarliði. Nicholas er þekktur fyrir að fara ótroðnar slóði r við að kynna vör- ur sínar en aldrei fyrr hefur fata- línan verið kynnt á þennan hátt. Undirbúningur hefur staðið yfir frá í janúar en hug- myndin er tveggja ára gömul, upprunninn frá góðkunningja Nicholas í Kaliforníu, Siguijóni Sighvatssyni kvikmyndagerðar- manni. Starfsmenn Joe Boxer hefur notið Iiðsinnis Flugleiða og fleiri íslenskra fyrir- tækja við að koma viðburðinum á koppinn en Saga Film hefur í hyggju að kvikmynda öll herlegheitin. Joe Boxer nærbuxur. Þá fer einnig fram hestasýning og jólasveinar munu stíga á stokk. Auk alls þessa verða sýnd brot úr söngleiknum Chicago sem nýtur mikilla vinsælda á Broadway í New York um þessar mundir og Gus Gus mun koma fram en Nicholas segir aukið samstarf við Qöllistahópinn vera á döfínni. íslensk hönnun í Perlunni Að fmmkvæði Nicholas var ákveðið að kynna fyrir erlendu gestunum, íslenska tískuhönnuði og urðu þær Guðlaug Elsa Ásgeirsdóttir klæð- skeri og Filippía I. Elísdóttir fatahönnuður fyrir valinu. Tískusýning þeirra fer fram í Perlunni daginn eftir, þann 13. ápríl. „Þetta er gott tæki- færi fyrir okkur," segir Filippía. Við ætlum að nota dagsbirtuna og gera Perluna að eins konar ísjökli með aðstoð snjóvélar og Stígs Steinþórs- sonar sviðsmyndahönnuðar. Sýningin verður síð- an endurtekin fyrir almenning síðar um daginn en sýndar verða meðal annars mokkaflíkur frá Skinnaiðnaði hf. á Akureyri." ■ f

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.